Tíminn - 04.09.1958, Síða 12
VeSriC:
Hægviðri, léttskýjað.
Yarð bráðkvaddur
á fundi Stéttar-
sambandsins
Sá atburður gerðist á aðal-
funcli Státtarsambands 'bænda,
sem hófst að Bifröst í igær, að
einn gestanna, Jón G. Guðniaun
bóndi á Skarði hjá Akureyri,
varð bráðkvaddur. Hann mætti
á fundinn fyrir hádegið og tók
þar myndir og virtist ekki kenna
' sér neins meins. Rétt áður en
gengið var til hádegisverðar,
veiktist liann svo skyndilega og
var látinn eftir fáar mínútur.
Hitinn kl. 18:
Reykjavík 15 st., Akureyri 11
Kaupmanna'höfn 16, Loncton 17,
Paris 22.
Fimmtudagur 4. september 1958.
Ritarar og fundarstjórar á aðaltundi Stéttarsambands bænda. Frá vinstri
fundarritararnir Guðmundur Ingi Kristjánsson og Atli Baldvinsson en þar
næst fundarstjórar Jón Sigurðsson og Sigurður Snorrason.
Hækkun á verðlagsgnmdvelli land-
búnaðarvara verður milli 10-11%
Frá aðalfundi Stéttarsambands bænda,
sem hófst að Bifröst í Borgarfirði í gær
Aðalfunrliir Stéttarsambands bænda hófst árdegis í gær að
Bifröst í Borgarfirði. Nær fimmtíu fulltrúar sækja fundinn,
auk stjórnar sambandsins, Framleiðsluráðs og ýmissa trúnað-
armanna og gesta. Aðalmálin, sem fyrir fundinum lig'gja, eru
verðlags- og afurðasölumál landbúnaðarins.
Sverrir Gíslason. formaður Stétt
arsambands bænda setti fundinn
og titnefndi sem fundarstjóra Jón
Sigurðsson alþm. á Reynistað. —
Fundarritarar voru kjörnir Guð-
unundur Ingi Kristjánsson skáld
og séra Gísli Brynjólfsson. Vara-
fundarstjóri var kjörinn Sigurður
Snorrason á Gilsbalcka.
Ræða Sverris Gíslasonar.
Að lokinni fundarsetningu og
ikosningu fundarstjóra og fundar-
riíara. flutti Sverrir Gíslason
ræðu, þar sem hann ræddi um
mál þau, sem stjórn sambandsins
hefði haft með höndum síðan síð
asta aðalfundi lauk, AðaJlega
tívaldi hann við verðlags- og af-
urðasöiumálin.
Varðandi verðlagsmálin upp-
lýsti Sverrir, að enn liefði ekki
náöst samkomulag um nýjan
verðiagsgrundvöll í hinni svo-
kölluðu sex manna nefnd, sem er
skipuð fulltrúum framleiðenda
og neytdnda, en báðir aðilar
aðilar höfðu sag't upp verðlags
grundvellinum, sem sami'ð var
uni í fyrra. Ef sá grudvöllur
hefði haldist óbreyttur, hefði út-
gjaldahækkun orðið 10,5% eftir
Því sem hagstofustjóri liefir
reiknað út. Samkomulag er feng'
ið í nefndinni um ýmis veiga-
mestu atriðin, en um nokkur at-
riði, er enn ósamið, en þau
mimu breita miklu um heildar-
útkomuna. Samningauinleitunum
verður haldið áfram, eu náist
samkomulag ekki, sker hagstofu-
stjóri úr varðandi ágreinisatriði.
Stækkun litlu býlanna.
Auk þess sem Sverrir ræddi um
verðlags- og afurðasölumálin,
minntist hann einnig' á ýmis fleiri
mál. eins og kornræktarmálið, hús
byggingarmál bændasamtakanna
og stækkun litlu býlanna. Einkum
ræddi hann ítarlega um síðast-
nefnda atriðið, verður nánar vik-
ið að þvi síðar.
Eftir að Sverrir hafði lokið máli
siínu, gerði Sæmundur Frið(riks-
son, framkvæmdastjóri Stéttar-
sanibandsins grein fyrir reikning-
um þess og fjárhagsáætlun. Nokkr
ar umræður urðu um það mál, en
síðan tekið matarhlé.
Avarp forsætisráðlierra.
Þegar fundur hófst að nýju.
flutti Ilermann Jónasson forsætis
ráðherra ávarp og kom víða við.
Hann minntist m. a. á landbúnað-
arsýninguna á Selfossi. er hefði
sýnt ljóslega hinar miklu framfar
ir í lanbúnaðinum. Þá hefði hún
vakið athygli á vissum atriðum.
sem eftir væri að bæta úr, t. d.
hefði ekkert verið skýrt frá því.
hve mikið það hefði farið í vöxt.
að bændur gerðu búreikninga.
Slikt væri þó áreiðanlega mikil-
vægt fyrir réttan vöxt og viðgang
landbúnaðarins, því að af þeim
mætti mikið læra. Þá skýrði hann
nauðsyn þeirra efnahagsráðstaf-
ana, sem gerðar hefðu verið á síð-
astliðnu vori, m. a. sýndi hann
fram á, >að röng gengisskráning
héfði verrð búin að gera alla at-
vinnuvegi þjóðarinnar ósamkeppn
ishæfa við erlenda keppinauta og
hefði slíkt ekki getað haldist á-
fram.
Loks vék hann að óþurrkunum
og ræddi í því sambandi m. a.
Sverrir Gíslason, formaður Stéttar.
sambandsins flytur skýrslu sína. —
um nauðs.vn þess að votheysgerð
yrði aukin. M. a. annars kvað
hann í ráði að sérstakur ráðu-
nautur yrði skipaður til að vinna
að framgangi þess máls.
Að loknu ávarpi forsætisráð-
lierra flutti Edvard Sigurðsson
kveðju frá Alþýðusambaridi ís-
lands. Síðan hófust almennar um-
ræður og tóku allmargir til máls.
Nefndarstörf hófust svo í gær-
kvöldi. Ætlunin er að Ijúka fund
inum í kvöld.
Frá happdrættinu
Þeir, sem fengið hafa heimsenda miða, eru beðnir að
gera skil fyrir þá við fyrstu hentugleika.
Á skrifstofunni { Framsóknarhúsinu er einnig hægt að
fá miða til að selja.
Umboðsmenn úti á landi eru beðnir að gera skil strax
og sölu er lokið,
Það þurfa allir að eiga miða í happdrætti Framsóknar-
flokksins.
Skrifstofa happdrættisins er á Fríkirkjuvegi 7
(Framsóknarhúsið). Sími T-92-85.
Landsleikur við
Breta íellur niður
Vegna liins alvarlega ástands,
sem skapazt hefir milli íslands
og' Bretlauds út af landhelgismál
inu liefir stjórn Knattspymusam
bands íslands ákveðið á fundi
sínum í dag að hætta við fyrir-
Iiugaðan landsleik við England,
sem fram átti að fara í London
hinn 13. sept. n. k.
Hvikum hvergi
í landhelgismálinu
■Eftirfarandi samþykkt var gerð
á fundi hreppsnefndar Miðnes-
hrepps, Sandgerði. laugardaginn
30. ágúst 1958.
„Hreppsnefnd Miðneslnepps,
skorar á ríkisstjórn íslands að’
livika hvergi frá útfærslu fisk-
veiðilögsögunnar í 12 sjómílur.
Jafnframt heitir hreppsnefndin
á alla sjótneun og aðra lands
menn, sein kunna að fá tæki-
færi til að aðstoða landhelgis-
gæsluna í s'tarfi sínu, að gjöra
þaff í hið ýtrasta.“
Færeyskir fiskimenn skora á starfsbræmir
í Bretlandi að virða landhelgi Islendinga
Félagssamtök fiskimanna í Fær
eyjuni hafa sent orðsendingu til
framkvæmdastjói'a alþjóðasam-
bauds flutningaverkamanna, og
beðið hann að koma henni til
fiskimanna í Bretlandi. Er þar
skorað á brezka- sjómeiin að
kynna sér rökin fyrir útfærslu
fiskvciðilandhelginnar við ís-
land. Láta Færeyingar í ljósi
þá ósk, að starfsbræður þeirra
í Bretlandi skilji cig virði sjónar
mið íslendinga eins vel og Fær
eyingar og virði liin nýju fisk-
veiðimörk. í klöðum Færeyinga
er í dag lýst fullum stuðningi við
málstað fslendinga, og skýrt frá
því, að það hafi vakið almenna
reiði í Færeyjum, er það fréttist
að Bretar væru farnir að beita
ofbeldi á íslandsiniðum. Efast
Dimníálætting og 14. september
ekki uin að íslending'ar muni
sigra í niálinu.
Allsherjarverkfallinu
í Libanon aflýst
NTB-Beirut, 3. sept. —■ Alls-
herjarverkfallinu, sem veriö hefir
í Libanon í 115 daga, og knúð hef
ir verið fram með valdi af hálfu
stjórnarandstæðinga, mun Ijúka
að nokkru leyti þessa dagana. Var
þetta tilkynnt af hálfu stjómar-
andstöðunnar í dag. Segir í yfir-
lýsingu stjórnarandstæðinga um
þetta, að það muni stuðla að því,
að ástandið í landinu komist í eðli
legt horf, að verkfallið verði lagt
niðiir að nokkru leyti, áður en
hehab tekur við försetaembætt-
inu hinn 23. scptember. Ekkert er
upplýst um. hvenær verkfáHinu
muni verða aflýst að fuliu, en
skorað er á íólkið í landinu að
sýna ró og stilimgu .
Búizt viS nýrri aSvörun írá Banda-
ríkjastjórn til kommúnista í Kína
Blö($ í Washington telja, aíJ Bandaríkjaher myndi
verja Quemoy, eí til innrásar kæmi
NTB-Washington og Taipeh, 3. sept. — Sennilegt er, aS á
morgun muni Eisenhower Bandaríkjaforseti setja fram hörð-
ustu aðvörun sína við kínverska kommúnista til þessa og ráða
þeim frá að leggja til innrásar á eyjaklasann Quemoy á For-
mósusundi, en af mörgum er nú talið, að sú innrás sé yfir-
vofandi.
Dulles utanríkisráðherra átti í
dag fund imeð íulltrúum hinna sjö
meðlimaþjóðanna í Suðaustur-Asíu
bandataginu (SEATO), og mun á
morgun eiga fund með forsetan-
um. Haft er eftir alltraustum
heimildum í Wastoington, að Dulles
sé ekki í neinum vafa um, að tak-
ast megi að fá kommúnista í Kína
ofan af því að leggja til innrásar,
því að þeir muni stórlega óttast
beina hernaðaríhlutun af hálfu
Bandaríkjánna. Það er útbreidd
skoðun fréttamanna í Washington,
að Eisenhovver muni þess vegna
senda út yifirlýsingu með ströng-
ustu aðvörunum til kinverskra
kommúnista.
Sennilegt, að Bandaríkin
ínyndu verja Quernoy.
Það er á þessum grundvelli,
sem Bandaríkjamenn hafa stefnt
öflugustu flotadeild sinni til For-
mós'usunds, og hafa af pólitískum
og hernaðarlegum ástæðum ekki
vilja gefa neitt út um það bein-
línis, hvað þeir myndu gera, ef til
hreinnar og beinnar innrásar
kæmi. Blöð í Washington skýrðu
þó svo frá í dag, að greinilegt
væri, 'að Bandaríkjastjórn ætlaði
að verja Quemoy og aðrar úteyjar,
ef kommúnistar gerðu tilraun til
að taka þær. — Formósustjórnin
hefir nú einnig hafið áróðurssókn
gegn Kína og var í dag skotið all
miklu af fallbyssukúlum til megin-
landsins', en þær höfðu raunar það
hlutverk að dreifa flugritum, þar
sem skorað er á kommúnista að
gefast upp og láta ekki blekkjast
af Mao tse Tung og glæpamönn-
um han’s. Annars var skothríð á
Quemoy frá meginlandinu með
minna móti í dag.
„Ógnun við Ráðstjórnarríkin"
í annað skiþtið í þessari viku
kom það frain í grein í málgagni
Ráðstjórnarinnar, að Kínverjar
njóta fuhs s'tuðnings Rússa I stefnu
sinni gagnvart Formósu. í Izvestija
sagði, að enginn hefði nokkurn rétt
til að skipta sér af innanríkismól-
um kínverskra alþýðulýðveldisins.
í fyrri viku var skrifað í Pravda,
að árás á alþýðulýðveldið yrði
skoðuð sem ógnun við Ráðstjórnar
ríkin.
Herskipin búast
ekki á brott
Þegar blaðið átti tal við land
helgisgæzluna um miðnætti í gær
kveldi, liöfðu eng'in merki sézt,
a'ð brezku herskipin væru að láta
af vörzluniii eða affi þau og tog
ararnir væru að hakla út úr land
lielginni. Hins vegar var aknennl
gert ráð fyrir því í erlendum
fréttastofufregnum í gærkveldi,
að berskipaverndin hætti um
miðnætti, og' mun það hafa verið
byg'gt á gömlum fréttuni. Dimm
þoka var austanlands, og togar
arnir söfnuðust í linapp um her
skipin.
Landhelgis-
samfjykktir
„Stúdentaráð Háskólan fslands
fordæmir harðlega þær aðgerðir
brezkra stjórnvalda að vernda með
ofbeldi og yfirgangi lögbrot
brezkra fiskiskipa innan íslenzkr
ar landhelgi.
Þær aðgerðir. að fótiuntroða
með valdi ótvíræðan rétf vupn
lausrar smáþjóðar, er bein árás á
lifshagsmuni þjóðarinnar og hljóta
að verða fordæmdar sem hið mesta
ódrengskapaibragð.
Stúdentaráð fagnar því að þjóð
areining skuli ríkja' um mál þetta
og hvetur til einingar meðal þeirra
se mmeð mál þetta fara af hálfu
þjóðarinnar.
iStúdentaráð lýsir sig fylgjandi
hveréum þeim aögerðum er miða
að því, að halda uppi fullri lög-
gæzlu innan 12 mílna landhelginn
ar og þakkar löggæzlumönnum
þá einurð og stillingu, sem þeir
hafa hingað til sýnt í starfi sánu.“
„Stúdentafélag Reykjavíkur
mótinælir harðlega ofbeldi Breta
í íslnezkri landlielgi og1 krefst
þess í nafni laga og réttar, að
þeir láti þegar í stað af fram
ferði sínu.
Jafnfrauit skorar Stúdentafé-
lag Reykjavíkur á aúa íslendinga
að standa saman sem cinn mað-
ur og eigi víkja fyrr en fullur
sigur er uniiinn.“