Tíminn - 11.09.1958, Page 6

Tíminn - 11.09.1958, Page 6
6 T í M I N N, finnntudaginn 11. scptembcr 1958. Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Ritstjóri: Þórarinn Þórarinsson. Skrifstofur í Edduhúsinu við Lindargötu Símar: 18 300, 18 301, 18 302, 18 303, 18 304. (ritstjórn og blaðamenn) Auglýsingasími 19 523. Afgreiðslan 12323 Prentsmiðjan Edda hf. Pólitískir nashyrningar SÚ MUN vera náttúra naslhyrningsins, þegar hann ræðst á eitthvaö í reiði sinni, að' hann getur ekki sveigt til : hliöar eða hörfað, heldur fer beint af augum, þótt óyfir- j stíganlegar torfærur og hætt ur séu á vegi hans. Þessi stirð busaháttur og ósveigjanleiki hefur orðið mörgum nashyrn , ingnum að aldurtila. Ótrúlegt er annað en að mörgum hafi flogið í hug þessi náttúra nashyrningsins þegar þeir litu í gær yfir tvær heilsíður í Morgunblað inu, en á annarri þeirra sagði frá héraðshátíð Sjálfstæðis- manna í Þingeyjarsýslu, en í hinni frá héraösnátíð Sjálf stæðismanna í Eyjafirði. Á báðum þessum stöðum var Bjarni Benediktsson aðal- ræðumaðurinn og hefur > hann líka skrifað frásagn- • irnar. Það ætti því ekki að þurfa að efa, að rétt sé sagt frá ummælum hans. HVER var svo boðskapur inn, sem Bjarni hafði að flytja á þessum samkomum, samkvæmt eigin frásögn hans í Mbl.? Ræddi hann ekki aðallega það mál, sem nú er mál málanna, land- helgismálið? Hvatti hann þjóðina ekki til að standa saman um málið og láta falla niður deilur um aukaatriði, meðan unnið væri að fram gangi þess? Sýndi Bjarni það , ekki á þessum samkomum, að • hann getur á vissum augna ■ blikum hafið sig yfir grjót- kast stjórnmálanna og talað eins og þjóðhollum stjórn- málamanni sæmir? Þvi miður gerði Bjarni ekki neitt af þessu. Honum fórst nákvæmlega á sama hátt og nashyrningi, sem ekki getur vikið frá fyrri stefnu. Bjarni hefur í allt sumar haldið uppi nöldri og nuddi um land ■ helgismálið í Mbl., svo að það hefur vakið t>ær vonir and- stæðinga okkar, að íslending ar væru klofnir í málinu. — Þrátt fyrir það, sem gerst hefur eftir 1. september, hef ur Bjarni haldið þessu naggi sínu áfram á áðurnefndum samkomum. Ofbeldi Breta hefur ekki getað opnað augu hans. Hann þumbast áfram á sinni gömlu braut eins og iiashyrningurinn, sem ekk- ert skeytir um, hvort hann er að fara sjálfum sér eða öðrum að voða. Reiðin blind ar honum sýn. AÐ ÞESSU sinni er það aðaluppistaðan í nöldri Bjarna, að utanríkisráðherra , hafi ekki unnið nægilega vel að kynningu málsins út á við og því beiti Bretar nú vopna valdi í staö þess að veita okk ur rétta viðurkenningu. — Með lævísum hætti er hér verið að koma á framfæri þeirri kenningu, að raunar sé það lélegum vinnubrögð- um rikisstjórnar íslands að kenna, hvernig komið sé. í samræmi við það reynir Bjarni líka að komast hjá því að fordæma hið överj- andi athæfi brezku stjórnar- innar. Af fleiri ástæðum er hér sannarlega kastað grjóti úr glerhúsi. Engum tveimur mönnum ferst verr öll vand- læting í þessum efnum en Þeim Bjarna Benediktssyni og Ólafi Thors. Svo slæleg var kynning þeirra félaga á útfærslunni 1952, eins og Lundúnaför Ólafs Thors í jan úar 1952 er frægt dæmi um, þar sem Ólafur hafði ekki tal af neinum brezkum ráð- herra í þeirri ferð og flutti mál sitt svo óljóst við þær undirtyllur, sem hann ræddi við, að þær fengu ekki þá vitneskju, sem Ólafi var ætl að að láta þá fá. Af hálfu Bjarna sjálfs virðist kynn- ingarstarfið þó hafa verið enn aumara en þetta, eða nánast sagt ekki neitt. SVO slælegt sem þetta kynningarstarf Bjarna og Ólafs var 1952, er þó fram- koma þeirra að þessu sinni enn ámælisverðari. í allt sumar hafa þeir félagar látið Mbl. halda uppi nöldri og naggi um landhelgismáliö, eins og áður er sagt. Allt það, sem andstæðingar útfærsl- unnar höfðu að segja, átti greiðan aðgang að helztu síð um Mbl. Allan þennan tíma birtist hins vegar ekki í blað inu ein einasta grein um landhelgismálið, þar sem skelegglega var haldið á mál stað íslendinga. Af þessu drógu útlendingar þær álykt anir, að íslendingar væru klofnir í málinu. Ekki bætti það svo úr skák seinustu dagana áður en útfærslan tók gildi, að ýmsar helztu kempur Sjálfstæðisflokksins, eins og Pétur Benediktsson bankastjóri, riðu um héruð og héldu því fram, að komm únistar hefðu alla forustu í málinu og stæðu í vegi eðli legs samkomulags við vina- þjóðirnar. Hér skal ekkert fullyrt um, hvaða áhrif þetta hefur haft á Breta. En áreiðanlega hefur það ekki dregið úr þeim ásetningi Breta að reyna að kúga Íslendinga, hve Mbl. og ýmsir forkólfar Sjálfstæðisfl. léku hér tveim ur skjöldum og ýttu undir trúna á óeiningu íslendinga. MARGIR gerðu sér vonir um, að Bjarni Benediktsson og fylgismenn hans og Ólafs í Sjálfstæðisfl. myndu hætta þessum Ijóta leik eftir að kunnugt varð um árás Breta. Sá er líka áreiðanlega ein- dreginn vilji yfirgnæfandi meirihluta Sjálfstæðis- manna. En Bjarni og fé- lagar hans virðast ekki geta horfið frá fyrri stefnu frek- ar en reiður nashyrningur. Stefna þeirra hefur verið sú að reyna að nota þetta mál gegn ríkisstjórninni á einn eða annan hátt, ef erfiðlega gengi. Frá því sjónarmiði er ekki vikið, þótt erlent her- Ný viðhorf í Alsírmálinu eftir hermdar- verkin í Frakklandi fyrir skömmu Eftir atburðina í Frakk- landi á dögunum er þjóðern- issinnar frá Alsír unnu þar stórfelld skemmdarverk er Alsírmálið komið á nýtt stig. De Gaulle lætur fátt uppi um áform sín um framtíð Alsír, og fregnir af ástandinu í landinu sjálfu eru óljósar. — Eftirfarandi grein um hin nýju viðhorf í Alsírmálinu er þýdd úr danska blaðinu Information. Styrjöldin inilli Frakklands og FLN, þjóðernishreyfingarinnar í Alsír, er komin á nýtt stig. Alsír- búar hafa nú gert alvöru úr hótun, sem þeir hafa beitt hvað eftir ann að á tveimur síðustu árum, hótun- inni um að flytja styrjöldina yfir til Frakklands sjálfs. Benzín- og olíugeymslur, birgðageymslur lög- reglunnar og aðrar „hernaðarstöðv ar“ í sjálfu Frakklandi hafa orðið fyrir árásum af mönnum FLN. Innbyrðis átök þjóðernis- sinna í öðrum skilningi hefir styrjöld- in þegar fyrr flutzt yfir til Frakk- lands. Síðasta árið hefir varla lið- ið svo dagur, að Alsírbúar stæðu ekki í mannvígum í Frakklandi. En hinir vegnu hafa venjulega ver ið Afríkumenn, hér hefir verið um að ræða innbyrðis átök með hinum tvehnur þjóðernishreyfing- um, FLN og MNA, sem er meira hægfara. En þessari borgarastyrj- öld innan borgaraslyrjáldarinnar virðist nú lokið með fullum sigri FLN. Bæði hafa einbeittar og miskunnarlausar baráttuaðferðir FLN lamað andstæðingana, en einnig virðist meðferð Frakka á einum helzta leiðtoga MNA, Bell- ouni hershöfðingja, hafa ráðið miklu um úrslitin. Bellouni naut fyrir nokkrum mánuðum mikillar hylli Frakka vegna þess að hann var fyrsti herforingi Alsírbúa, er nokkru máli skipti, er skilið hafði að skipt um við FLN og fallizt á að taka upp samstarf við Frakka. Samstarf inu lauk fyrir skemmstu með því að Frakkar skutu Bellouni, og sá atburður virðist hafa sannfært marga um, að þýðingarlaus't sé að vinna fyrir MNA. Orsakir hermdarverkanna Franska blaðið L’Express telur, ' að þessi sókn FLN í Frakklandi ■ sé samkvæmt beinum fyrirmælum (leiðtoga hreyfingarinnar, sem eru landflótta í Kairó. Tilefnið á að vera, að leynilegar viðræður, er staðið hafi í Sviss milli fulltrúa FLN og frönsku stjórnarinnar, hafi farið út um þúfur vegna þess að FLN hafi haldið fast við kröf- ur sínar um sjálfstæði Alsír, en frönsku fulltrúarnir ekki viljað ganga lengra en lofa frjálsum kosn ingum í Alsir. Hvað sem þessu líður virði'st ljóst, að aðgerðirnar í Frakklandi Enn er óvíst me8 öllu hverja stöftu de Gaulle ætlar landinu í framtíðinni CHARLES DE GAULLE hafi verið undirbúnar löngu fyrir- fram, og einnig geta aðrar orsak- ir hafa valdið því að þær voru hafnar. Einkum liggur nærri að álykta að þeim sé stefnt gegn hinni fyrirhuguðu þjóðaratkvæða- greiðslu 28. september. Áróður FLN snýst'þessa dagana mikið um atkvæðagreiðsluna. Þjóðernissinn- um er efalaust mikið í mun að sýna að þeir séu enn mikils megnugir, bæði vegna fylgismanna sinna og eins vegna Frakka. Síðan uppreisn in varð í Alsír 13. maí í vor hefir franskur aimenningur átt erfitt með að fylgjast með hernaðarat- burðum þar, þar sem franska her- stjórnin hefir reynt að halda því á lofti, að Alsírbúar hafi tekið slíkum sinnaskiptum að FLN sé að þrotúm komið. En ógerlegt er að leyna þvi, sem gerist í Frakklandi sjálfu, sízt þegar miklar benzínbirgðir standa í ljósum logum. Einnig geta aðgerðirnar í Frakk Iandi verið til stuðnings skærulið- um í sjálfu Alsír. Franska her- stjórnin hefir beðið de Gaulle að senda liðsauka til Aisir. Skemmd arverkin í Frakklandi skapa hern- um verkefni heima fyrir, svo að erfiðara verður að senda lið úr landi. Þjóðaratkvæðagreiðslan í Frakklandi eru nú um það bil 400.000 Als'irbúar. Fullyrt er, að 40.000 þeirra séu vopnaðir og und ir stjórn FLN. Eigi Frökkum að takast að brjóta hina nýju sókn á bak aftur, getur það aðeins orð ið með fjöldahandtökum, og FLN vill kannske einmitt koma slíkum aðgerðum til leiðar. Hermdarverka menn stefna einmitt oft að því að kalla fram kúgunaraðgerðir vegna þess að slikar aðgerðir verða oft til þess að menn snúast gegn kúg- urunum i stáð hermclarverkamánn- anna. Með tilliti til þjóðaratJkvæða- greiðslunnar í Frakklandi getur það reynzt FLN í hag að Frakkar hefji kúgunaraðgerðir gegn Alsír- búum í Frakklandi. Hreyfingin heldur þvi fram, að Frakkar beiti ofbeldi til þess að knýja múhameðs menn í Alsír til að skrá sig á kjör- skrá. Samkvæmt frönskum heimild um hafa þegar meira en þrír fjórðu hlutar þeirra látið skrá sig og þetta er lagt út sem vottur þess að múhameðsmenn hlýðnist ekki leng ur fyrirmælum FLN. Þjóðernis- sinnar halda því aftur á rnóti fram, að franski herinn þvingi múhameðs menn með ógnunum og beinu of- beldi til að láta skrá sig og enn- fremur að ó>hugsandi sé að mú- hameðsmenn fái að ganga til frjálsra kosninga meðan í landinu er her 800.000 manns, — her- manna, lögreglu og heimavarna- liðs. Framtíð Alsír Að öðru leyti er enn óvíst liver örlög de Gaulle ætlar Alsír í fram- tíðinni. Á ferð sinni um Afriku lofaði hann því að þau lönd Frakka þar, er þess óskuðu, skyldu hljóta sjáHstæði. En þetta loforð nær greinilega ekki til Alsír, sem tal- inn er hluti Frakklands. De Gaulle virðist ætla sér að fresta lausn þessa vanda, ekki aðeins fram yfir þjóðaratkvæðagreiðsluna 1 haust, heldur einnig fram yfir næstu kosn ingar, sem eiga að fara fram siðar í vetur. í þessum kosningum, sem FNL rengir að sjálfsögðu einnig að verði frjálsar^ eiga að koma fram fulltrúar Aisir, sem Frakkar geti samið við' um framtíðarstöðu lands ins. veldi hafi gert árás á land- helgi íslands. Reiðin og þjösnaskapurinn hylur þess um mönnum alla sýn á ann- að en það að reyna að ó- frægja ríkisstjórnina. Pyrir því verða augljósir hagsmun ir íslands að víkja. Tvímælalaust fordæmir all ur meginþorri Sjálfstæðis- manna þessi nashyrnings- legu vinnubrögð. En það er ekki nóg. Þeir verða annað’- hvort að losa sig við þau úr flokki sinum eða snúa sér eitthvað annað. Meðan vissir forustumenn Sjálfstæð isflokksins haga sér eins og reiðiblindir nashyrningar í stærsta máli þjóðarinnar, dæmir flokkurinn sig til ein- angrunar í íslenzkum stjórn- málum. B. Sk. kveður sér hljóðs í Bað- stofunni í dag og ræðir gleði- fréttir frá Breiðafjarðare.vjum. Honum íarast svo orð: Langt er síðan að góðar fréttir hafa borizt úr Breiðafjarðareyjum. Þaðan hafa helzt heyrzt raddir um erfiðleika, einangrun og þverrandi lifsskilyrði. En nú bregður út af venjunni. Blaða- maður frá Tímanum liefir átt tai við ungann bónda, Jakob Jóns- son í Rifgirðingum. Þar kveöur við annan tón. — Gestinum er boðið í bæinn, og húsfreyjan leggur á borðið: „Svartbaksunga, reyktan rauðmaga og signa grá- sleppu, lostæti, sem tilheyrir eyjabúskapnum, en fæst varla í Reykjavík þótt gull sé í boði. Skyr með hnausþykkum rjóma á eftir.“ Þetta kannast maður við: Gamla bú- sældin í eyjunum segir til sín. Það er mörg malarholan í Breiða fjarðareyjum. — — — Ilér var alll grátt af mink, þegar við kom um, segir bóndi, on h-.’erjum mink hefir verið eytt, æðurinn syndir geigiaus á víkinni fram- an við baeinn og varpið og dún- tekjan vex ár frá ári.----Salka Valka hefir eytt minknum. Fannst ykkur ekkert einmana legt, spyr blaðamaðurinn. — Síð- ur en svo. Maður var orðinn þreyttur af arginu og stappinu. Eg hefi verið til sjós, — og ef maður vill hafa það rólegt, er einmitt tiivaiið að búa svona. — Húsfreyjan er á sama máli. Hún unir vel i Rifgirðingum og vill ekki fremur annars staðar vera. Þetta katta ég góðar fréttir. Skyldi þetta nú ekki vera upphaf að betri og bjartari tímum i eyjun- um? Skyldu ekki fleiri en Jakob verða leiðir á arginu og stapp- inu, og verða fegnir að setjast að í blómiegum eyjum ef kostur væri? Ekki er ólíklegt að kjark- ur og Ibjartsýni þessara iíjóna smiti einhverja og innan tíðar verði komnii' bændur í Gvendar- eyjar og Ólafsey, sem þarna em Framhald á 8. síðu.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.