Tíminn - 19.09.1958, Síða 6

Tíminn - 19.09.1958, Síða 6
6 T í MIN N, föstudaginn 19. september 1958. Útgefandl: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Ritstjóri: Þórarinn Þórarinsson. Skrifstofur f Edduhúsinu við Lindargötu Símar: 18 300, 16 301, 18 302, 18 303, 18 304. (ritstjóm og blaðamenn) Auglýsingasími 19 523. Afgreiðslan 12323 Prentsmíðjan Edda tif. Vísitölukerfið og skæruverkföllin Um þessar mundir verð- ur íslendingum einna mest hugsað um landhelgismálið. Slíkt er eðlilegt, því að af- koma þjóðarinnar í fram- tíðinni veltur mjög á því, að henni takizt að verja fiski- miðin gegn rányrkju. Til þess að tryggja framtíð þjóð arinnar þarf þó miklu meira en að sigra Breta í landhelgis deilunni og fá tólf mílna fisk veiðilandhelgi viðurkennda. Sá sigur mun líka reynast tiitölulega einfaldur, ef rétt er á spilum haldið. Hann mun hins vegar ekki verða þjóðinni að fullum notum, ef hiin kann ekki tökin á efnahagsmálum sínum og eyðir til langframa meiru en efni standa til. Þá mun verð bólga og fjármálaóreiða fyrr en seinna leggja fjárhags- legt sjálfstæði hennar að velli, þótt hinn glæsilegi sig- ur vinnist í landhelgisdeil- unni. Þetta þarf þjóðin vissulega að gera sér vel ljóst. Annars getur frelsið verið tapað fyrr en varir. ÞAÐ er kunnara en frá þurfi að segja, að íslending- ar-hafa húið viö mikla og sí- vaxandi verðbólgu um sext- án ára skeið eða allt síðan að stjórnarskiptin urðu vor- ið *I942, er samstjórn Fram- sóknarflokksins og Sjálfstæð isflokksins lét af völdum og Sjálfstæðisflokkurinn mynd aði flokksstjórn með stuðn- ingi Brynjólfs Bjarnasonar og félaga hans. Sú stjórn tvö faldaði dýrtíðina á fáum mánuðum. Síðan hefur að- eins tekizt að veita viðnám gegn henni stund og stund, en aldrei til langframa. Hún hefur stöðugt haldið áfram að magnast síðan. Allar stjórnir, sem síðan hafa farið með -völd, hafa veigrað sér viö að grípa til svo róttækra aögerða, að þær hafi nægt til að koma að fullu og til- ætluöu gagni í þessu efni. VISSULEGA eru það margar ástæður, sem því hafa valdið, að þannig hefur farið. Ef litið er yfir sögu seinustu 16 ára, mun þó koma í ljós, að tvær orsakir hafa hér reynzt veigamestar. Önnur er vísitölukerfið, hin er skæruverkföllin. Gþarft er að rekja hér, hvernig vísitölufyrirkomulag ið-hefur verkað. Hvaða smá- hækkun, sem hefur átt sér stáð á kaupgjaldi eða verð- iagi, hefur með fulltingi vísi- bölukerfisins haft áhrif til almennrar hækkunar. Vísi- tölukerfið hefur þannig ver- ið hin öfluga driffjöður verð bólgunnar. Aðrar þjóðir hafa fyrir löngu gert sér þetta ljöst. Allar aðrar þjóðir, sem hafa reynt vísitölukerfið, hafa lagt það niður aftur eftir stutta stund. Þeim hef- ur orðið ljóst, hvílíkan ófarn að það myndi leiða yfir fjár hag þeirra, ef því væri fylgt til langframa. ÞRÁTT fyrir þann háska, sem fylgir vísitölukerfinu fyrir efnahagsþróunina, hefði dýrtiðin þó ekki vaxið eins ört og óðfluga hér á landi og raun ber merki um, ef skæruverkföll hefðu ekki verið fleiri og tíðari hér á landi en sennilega í nokkru öðru landi öðru. Einstök fé- lög — oft og tíðum smáfélög hálaunamanna — hafa tekið sig út úr og knúið fram kaup hækkun með verkfallshótun eða verkfalli. Síðan hafa önn ur fylgt í kjölfarið. Það hef- ur átt sinn þátt í því að magna skæruverkföllin, að óvönduðustu stjórnarand- stæðingar hafa gert sitt til þess að ýta undir þau til þess að gera ríkisstjórninni örð- ugra fyrir varðandi meðferð efnahagsmálanna. Eins og áður segir, hafa að sjálfsögðu fleiri orsakir en vísitölukerfið og skæruverk- föllin átt sinn þátt í því að auka verðbólguna. Það rétta er þó, að þessar orsakir eru flestar afleiðing vísitölukerf isins og skæruverkfallanna. Hin stöðuga verðrýrnun pen inganna, sem vísitölukerfiö og skæruverkföllin hafa haft i för með sér, hafa átt sinn mikla þátt í hinni óeðlilega miklu fjárfestingu og eyðslu, sem hefur einkennt efna- hagslífið seinustu 16 árin. EF ÞJÓÐIN ætlar ekki að koma efnahagsmálum sín um á réttan kjöl og tapa í sjálfstæðisbaráttunni inn á við á sama tíma og hún mun sigra í landhelgismálinu út á við, verður hún að horfast í augu við þessar staðreyndir af fullri alvöru. Eigi hún að koma efnahagsmálum sínum á starfhæfan grundvöll, verð ur hún að stöðva víxilverk- anir vísitölukerfisins og binda endi á skæruverkföll in. í staðin verða að koma heildarsamningar allra verka lýðs- og framleiöslusamtaka til lengri tíma. Með því yrði sköpuð sú festa í efnahags- lífi þjóðarinnar, er tryggja myndi vinnustéttunum bezta og öruggasta afkomu og skapa framförunum traust- astan grundvöll. Æskilegast og eðlilegast er, að þessi mál séu leyst af ríkis stjórn, eí styðst við samtök vinnustéttanna til sjós og sveita. Því hefði núverandi ríkisstjórn átt að snúa sér strax að þessum verkefnum. Hún hefur enn tíma og tæki færi til að leysa þau á þann veg, er vinnustéttunum hent ar bezt. Fari hins vegar svo, að lausn þessara mála drag- ist enn á langinn og óáran efnahagsmálanna heldur á- fram að vaxa, getur vel svo farið, að vinnustéttirnar missi tækifærið til að hafa hér hönd í bagga, og and- stæðingar þeirra fái mestu ráðið um það, sem þá tekur við. Þannig hefur þetta farið víða erlendis, þar sem öng- þveiti efnahagsmála hefur keyrt úr hófi fram. Miklar hömlur settar á ferðaiög milli Austur- og Vestur-Þýzkalands Frá 1. janúar 1949 til loka fyrra árshelmings 1958 flúðu rúmlega 3 milljónir Austur- Þjóðverjar til Vestur-Þýzka- lands, |»að er að segja um 15% af íbúum Austur-Þýzka lands. Fyrri hluta árs 1958 voru flóttamennirnir 140. 000 talsins, í júní 14.000, í júlí 19.000 og í ágúst 22,000. Þag sem aihyglisverðast er við í'lÓttamannastrauminn á sífíustu mánuðum er ekki fjöldi flótta- manna (í ágúst í ár voru þeir um 5 þús. færri en í sama mánuði í fyrra og 1956) heldur það, að flestir flótlamenn koma nú um Berlín, andstætt því sem verið hef ur hingað til. í ársbyrjun 1957 sneru aðeins 40% flóttamannanna sér til flóttamannabúða í Vestur- Berlín, en nú er talan 88%. Auknar hömliir á ferðafrelsi. Orsök þessa er sú, að stjórn kommúnista í Austur-Þýzkalandi hefur nú bimdið því nær algeran endi á ferðamannastraum milli hinna tveggja hluta landsins. Áður voru hinar löglegu leyfisferðir til ættingja í Vestur-Þýzíkalandi næst um áhættulaust tækifæri til flótta. Nú eru ferðir til Vestur-Þýzka- lands aðeins leyfðar hinum trygg- ustu flokksmönnum ,og síðan er Berlín einasta skarðið í járntjald- ið þar sem unnt er að komast yfir landamærin á áhættulítinn hátí. — Þessar takmarkanir á ferðafrelsi manna hafa minnkað mjög tæki- færi manna til flótta, en þess utan háfa þau rofið tengsl margra fjöl- skyldna — og það hefur orðið til að margir Austur-Þjóðverjar hafa látig til skarar skríða um flótta til ættingja sinna handan landa- mæranna. Austur-þýzkir ferðamenn í Vest ur-Þýzkalandi hafa aldrei verið færri en í ár, ef árið 1953 er und- anskilið. Fyrstu fjóra mánuði ársin ins 1957 koniu 680.000 ausiur-þýzk ir ferðamenn til Vestur-Þýzkalands en á sama tíma í ár hafa yfirvöld- in aðeins gefið 218.000 manns far-1 arleyfi til að heimsækja ættingja ■ og vini. Lækkunin nemur því 68%. | Þessar ferðahömlur ná bæði til. ferða einstaklinga og hópa. Þann- ig fengu aðeins 13 austur-þýzk! ferðafélög í ár leyfi til að fara til sambandslýðveldisins, en tala þeirra í fyrra var sjaldan undir 100 á mánuði. Bílar er fóru yfir landamærin voru í febrúar í ár 45% færri en í sama mánuði í fyrra. Vonbrigði af fyrri ferðalög'um. Ferðamannastraumur yfir landa mærin var mestur frá júlí 1956 fram í ágúst 1957. Þegar þessar ferðir reyndust ekki hafa það áróð ursgildi sem kommúnistar höfðu vonað var þegar í árslok 19 >6 tekið að halda aftur áf slíkum ferðal'ög- um. Þannig var öllum embættis- mönnum í þjónustu ríkisins bann ag að ferðast til VesturJÞýzka- lands. í árábyrjun 1957 voru höml ur settar á ferðalög námsfólks og kcnnara til Vestur-iÞýzkalands. Um leið var tekið að hafna öllum umsóknum vestur-þýzkra skóla er fara vildu námsferðir til Austur- Þýzkalands. Síðan voru allar aðrar reglur um ferðalög einnig hertar smátt og smátl. Ef cinhver reyndi samt að fara yfir landamærin eða hinum ströngu ákvæðum um ferðalög var ekki nákvæmlega fylgt var viðkom andi refsað. Þá var landamæra- gæzla hert svo mjög að það eitt nægði til að mönum stæði stugg ur af frekari ferðalögum. Landa- mæraeftirlitið var svo slrangt að það jafnaðist til fulls á við svip- aðar aðfarir SS-manna og Gestapo á dögum nazista. Hin slröngu ákvæði kommúnist’a um ferðalög milli landshlutanna hafa haft hörmulegar afleiðingar Þriár milljónir manna hafa flúið Austur-Þýzka- land síðan 1949. Mestur flóttamannastraumur til Berlínar ,Sigrar Austur-þýzka alþýðulýðveldisins . . . “ — Teikning úr þýzku blaði fyrir mikinn fjölda fólks. Þar sem fæstir uppfylla öll skilyrði er þarf til að fá ferðaleyfi hafa tengsl margra fjölskyldna rofnað til fulls. Ákvæði um ferðalög. Ákvæðin um ferðir til og frá Austur-Þýzkalandi eru nú sem stendur í stuttu máli á þessa leið: Öllum ættingjum þeirra er flúið hafa til Vestur-Þýzkalands er bann að að fara þangað. Þess utan hvíl ir ferðabann á öllum þeim sem grunaðir eru um að vilja flýja, — og hver er ekki undir þá sök seld- ur? Þetta bann nær t. d. til allra þeirra er skiptu sérlega stórum upphæðum í reiðufé við peninga skiptin 13. október 1957, fólks sem ekki vill leggja fram peninga til fjársafna og fólks sem ekki kaus við seinustu bæjarstjórnar- kosningar. A u s t u r-Þ.| (f ðv e r j a r sem hlotið hafa vestur-þýzkan ferðastyrk á fyrri ferðurn þar í landi fá ekki að fara aftur. Prestar og aðrir kirkjunnar menn og fjölskyldur þeirra mega alltaf reikna með því að umsóknum þeirra verði synj að. Verkamenn fá því aðeins að fara til Vestur-Þýzkalands að um sókn þeirra fylgi meðmæli for- stjóra fyrirtækisins er þeir starfa hjá, yfirmanni starfsfólks, flokks deildinni á staðnum og verkalýðs félaginu. Ef verkamaður sem feng ið hefir fararleyfi snýr ekki heim aftur eru þeir menn sem gáfu honum meðmæii dregnir til á- byrgðar. Menntamenn eiga það víst að þeim er enn erfiðara ag fá farar leyfi en öðrum. Ákvæði um ferðir til Austur-Þýzkaíands. Heimsóknir frá Vestur-Þýzka- ; landi til Austur-Þýzkalands eru 1 yfirleitt ekki leyfðar ef umsækj andi er blaðamaður, á verulegar eignir, er eigandi eða forstjóri meiri háttar fyrirtækis, er prest- ur eða háttsettur emhættismaður. Framhald á 8. síðu. 'BAÐsrorAN Húsmóðir skrifar baðstofunni: „Mig langar til að skjóta hér að for- ráðamönnum Mjólkursamsölunn- ar atriði, sem kemur okkur hús- mæöum oft afar illa, en það er aö illmögulegt er nú orðið aö fá rjóma í lausu máli, eins og óð- ur fyrri tiðkaðist í allflestum mjólkurbúðum, bæði neytendum og seljendum til hagræðis, því á- reiðanlegt er, að margar inis- mæður myndu kaupa meiri rjóma, ef hægt væri að fá hann í lausu máli. Minnsta magn, sem nú er yfirleilt selt, er einn peli, sem koStar tæp- ar 10 krónur, og er það mikið fé. Fá heimili hafa efni ó, að kaupa það magn. daglega, en hins vegar myndi koma sér vel að geta feng- ið einn desilítra, til þess að blanda mjólkina með, sem börn- in fá út á grautinn, eða til dæm- is til að punta örlítið upp á kaff- ið, með því að fá sér rjómakaffi af og til. Þá er einnig annað í þessu sam- bandi, þegar bökuð er terta, að þá er eirm peli af rjóma í- það minnsta til að skreyta hana, en þrír desiIStrar myndu vel duga. Þarna er talsverður munur fyrir húsmæður, því þegar einn peli dugar ekítí, þá verða þær að kaupa háifan líter, ef vel ó að vera, og 4>að er allt of mikið í tertuna. Elns og þessum málum er nú hált- að mun toegt að fá rjóma l tausu máli í tveimur til iþremur mjólk- urbúðum ‘i Reykjavík. Entbærinn er stór og þvi geta fáar húsmæð ur notfært sér það hagræði. En þá er spurningin. Ef hægt -er að selja rjóma í lausu máli í örfáum mjólkurbúðum, því er þá ekki hægt að gera það í öllum? Þetta ættu forráðamenn Mjólkursamsöl unnar að taka til áthugunar og húsmæður afmennt myndu verða þeim mjög þakklátar ef þessu yrði breytt í betra horf ep nú er“. Bréfi húsmóðurinnar er lokið, og vonum við heimamenn í baðstof- unni, að máli hennar verði vel tekið.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.