Tíminn - 04.12.1958, Blaðsíða 12
Norðvestan kaldi og bjart veður.
Stórviðri um
a!!t land í pr
Vestan stórviðri og sums staðar
fárviðri va rum allt land í gœr,
víðast með éljum. Ekki var þó
vitað um teljandi tjón af veðrinu.
Skip hafa þó víða tafizt, en bátar
voru flestir i höfn. í byljunum
fór veðurhæðin oft í 14 vindstig,
en var víðast 10—12 vindstig. —
Veðurstofan gerði ráð fyrir, að
heldur mundi hægja í nótt. Slysa
varnafélaginu hafði engin beiðni
borizt um hjálp í veðri þessu í
gærkveldi.
Framsóknarvist í
Keflavík í kvöld
Keflavík í gær. — Hinni vinsælu
„þriggjakvöldakeppni" í Fram-
.sóknarvist í Keflavík er nú lokið.
Vndirtektir voru svo góðar að nú
er ákveðið að halda aðra slíka
keppni fyrir jól. Sú fyrsta verður
í kvöld, en sú næsta verður 11
þ.m. og sú síðasta verður þann
18. Veitt verða verðlaun fyrir
úrslilin og eru þau hæstu 500 kr.
Ekki er að efa það að þessi keppni
í Framsóknarvist verður ekki síð-
ur sólt en sú fyrri. Framsóknar-
vistin hefst kl. 8,30 í kvöld. J.
Happdrætti D.A.S.
í dag var dregið i 8. flokki happ
drættis DAS um tíu vinninga.
Fyrsti vinningur, tveggja her-
hergja íbúð að Hátúni 4, 1. hæð,
fullgerð. á miða nr. 58 140, umboð
V'eslurver. Eigandi Hiimir Þor-
valdsson, Drekastræti 15C, Vest-
mannaeyjum. Annar vinningur,
Volga fólksbifreið, kom á miða nr.
20.404, umboð Raufarhöfn. Eig-
ar.di Anton Krisljánsson, vélstjóri
þar. Þriðji vinningur, Fiat 1100
íólksbifreið á miða nr. 51.595,
umfaoð Grund, Hrunamannahr.
Eigandi Birgir Oddsteinsson, Dal-
bæ. Fjórði vinningur, Hornung og
Möller píanó, á miða nr. 60.125,
untíjuf) Votturuer. Eigandi’ Þor-
varður Ólafsson; ■'vélvirki, Eyng-
haga 14, Reykjavík. Fimmti vinn-
irgur Zimmermann píanó, á miða
r.r. 58 099, umboö Vesturver. Eig-
endur Þórunn og Dagbjört Stein-
grímsdætur, Bakkagerði 1. Sjötti
v.nningur, hús'gögn eða heimilis-
tæki fyrir 20.000 kr., á miða nr.
46.299, umboð Vesturver. Eigandi
Jón V. Magnússon, Iíurðarbaki í
Flóa. Sjöundi vinningur, húsgögn
eoa heimilislæki fvrir 15.000 kr.,
á iniða nr. 62.290, umboð Vestur-
ver. Eigandi frú Ásta Ólafsson,
Kleifarvegi 5. Áttundi vinningur,
húsgögn eða heimilistæki fyrir
15 000 kr., á miða 5.605. umboð
Keflavík_ Eigandi Haraldur Magn
ússon þar. Níundi vinningur, út-
varpsgrammófónn með segulbands
tæki, á miða nr. 15.264, umboð
Kópasker. Óendurnýjaður miði.
Tíundi vinningur, húsgögn eða
heimilistæki fyrir 10,000 kr., á
n.ða nr. 39.639, umboð Vesturver.
Eigandi Auður Axelsdóttir, Njarð-
argötu 29.
I Rvík 2 stig, Akureyri 0 st„ bond,
3 st„ Khöfn 3 st„ Hamb. 1, N-Y 3.
Fiinmtuáagur 4. desember 1958.
111 vist hjá brezkum
togurum í stórviðri
Landhelgisbrjótarnir Iétu reka í ofsaroki
út af Glettinganesi í gær
jræðzt sín á milli eftir að veður
j skall á. Una þeir blutskifti sínu
heldur illa ,enda vanari að geta
leitað skjóls við landið þegar
stormar eru á miðunum.
Landhelgisgæzlunni er þó ekki
kunnugt um að neinn hrezkur
togari hafi gert tilraun til þess
að leita í var.
(Frá landhelgisgæzlunni).
1 ■ * «*| I 1 1 Hér er veriö aS draga saman úr
JÖlSlfC lll ISianOS. skógi jólatré, sem höggvin hafa
verið til þess að senda tii Færeyja og íslands. Þau eru viða fengin að í Dan-
mörku, en mikill hluti þeirra safnast þó saman á járnbrautarstöðinni í
Lygten. Nokkur hluti jólatrjáaforðans er þegar kominn til íslands.
Gott gos fékkst úr f jórðu holunni,
sem opnuð var austanf jalls í gær
Síóri borinn bvrjar aí bora í Reykiavík
á föstudaginn
Um klukkan þrjú í gærdag
var fjór'ða holan opnuð í
Hveragerði og Ölfusi. Verður
þetta síðasta holan, sem bor-
uð verður að sinni á þessum
slóðum. Borinn hefir nú verið
fluttur til Reykjavíkur og er
gert ráð fyrir því, að hann
taki til að bora á íöstuiíjag
á lóð mjólkurstöðvarinnar,
sem er skammt fyrir sunnan
mjólkurstöðvarhúsið.
Ekki er hægt að segja með vissu,
hve öflug þessi síðasta hola er,
þar sem farið var með hana á
annan hátt en hinar fyrri, það er
að segja dælt miklu meira vatns-
magni niður í hana, á meðan bor-
otóa Fóru í holuna 500 tonn
a£ köldú vatni. Er jietía gen yu
þess að hægt sé að bora hiður;
fyrir sjálfa æðina og ganga þannig
úr skugga um, hvort æðarnar eru
hver upp af annarri. Vegna þessa
mikla vatnsmagns, sem fyrir var
í holunni. verður að láta holuná
„blása sig“, og á meðan það stend
ur yfir er ekki hægt að mæla
orku gosins.
Þessi hola, sem er sú fjórða í
röðinni ,sem stóri borinn borar.
stendur á eystri bakka Varmár
miðja vegu milli Hveragerðis og
Gufudals, um 160 metra frá ann-
arri holunni,sem var sú kraftmesta.
Holan er 690 metrar á. dýpt, og
hefur ekki verið farið dýpra með
aðra holu.
Segja má, að gos það, sem
fékkst, þegar holan var opnuð í
gær, sé gott, þó að það sé ekki
slíkl sem tvö af hinum fyrri gosum
sem eins og menn muna af frá-
sögnum blaða og útvarps, voru stór
v.aatw Gosið úr annari holunni
er eitl. hlö mesfá SBfit aSgg* £ara
af.
I gær var versta veður á mið-
unum og voru togarar ekki
að veiðum af þeim sökum.
Út af Gletiinganesi voru síð-
degis í dag 13 brezkir íogarar.
iÞarna var vestan ofsarok, en hins-
vegar ekki mikill sjór. Létu
ibrezku togararnir reka aþrna, eða
ihéldu sjó ásamt tundurspillinum
DIAMOND. Voru skipin 4—6 sjó-
mílur frá landi. Þess má geta, að
varðskipið, sem þarna var, mældi
um kvöldið yfiv 14 vindstig í
hryðjunum.
Á verndarsvæðinu út af Langa-
nesi var þá enginn togari, enda
hefur verndarsvæðinu verið lokað
vegna veðurs. í fyrrinótt voru
þarna 5 brezkir togarar að ólög-
legum veiðum, en þegar veður
versnaði fóru þeir af svæðinu á-
samt herskipinu.
Út af Vestfjörðum hefir verið
versta veður í gær, t.d. voru 10
vindstig og' hafrót út af Hvallátr-
um í gærkvöld. Þarna voru engir
brezkir togarar, enda hfeur vernd
arskipið, seni þarna gætti hrezkra
togara við ólöglegar veiðar, frei-
gátan LLANDOFF, nú siglt austur
fyrir land.
Ensku togaraskipstjórarnir hafa
Tregur afli 30 línu-
báta í Eyjum
Vestmannaeyjum í gær. — Hór
hefir verið ákaflega stormasamt
og 'síðustu viku ekkert flogið hing-
að. Um 30 bátar hafa stundaö
hnuveiðar, en afli lítill.
Bæjarsjóður hefir styrkt þessa
útgerð síðuslu vikur til þess að
órfa atvinnu. Hefir hann tekið
þátt í trygginga- og beitukostnaði
bátanna. Þrátt fyrir litlar gæftir
og tregfiski hefir orðið að þcssu
rokkur atvinnubót í landi á þeim
tíma, sem daufastur er hér í Eyj-
um. Nú eru bálarnir að hætta og
sumir komnir á reknel eftir að
síldaraflinn glæddisl. SK
Áðalfundur Landssambands ísl. út-
vegsmanna hófst í Reykjavík í gær
Aðalfundur L*ndssambands
ísl. útvegsmanna hófst kl. 2
síðdegis í gær í Tjarnarkaffi.
Fundurinn hóst með setningar-
ræðu formanns sambandsins,
Sverris Júlíussonar. í upphafi
ræðu sinnar mir.ntist hann sjó-
n.anna, sem drukknað hafa við
síörf sín síöan síðasti aðalfund-
ur var haldinn og þeirra útvegs-
manna, er látizt, hafa á saina
tjma. Risu fundarmenn úr sætum
ti; a-ð VOUa «jinningii þeÍlTa VÍl'ð-
Allt að fjórir bílar í sama árekstri
Árekstrar eru nú orftnir rúm 3000 á árinu
— og enn eru nokkrir eftir til áramóta
Síðast liðinn föstudag lentu
fjórar bifreiðir í árekstri á
Suðurlandsbraut með þeim ó-
líkindum, að nær liggur að
halda að umferðarmönnum
okkar á vegum sé ekki leng-
ur orðið sjálfrátt. Eins og
menn geta nærri, þá er oft
•óslitinn straumur bifreiða um
Suðurlandsbraut, og þeir
sem aka í slíkri röð hafa þá;
skyldu, að aka sem hnökra-'
lausast, til að valda ekki öðr-
um óþægindum í umferðinni,
og stanza ekki á slíkri um-,
ferðargötu nema til að koma
í veg fyrir slys.
Vitað. mál er að þessar sjálf-
sogðu reglur eru þverbrotnar hvað
eftir annað og menn virðast hafa
ósegjanlega ríka náttúru til að
hegða sér eins og þeir séu einir á
í'erð. I-Ilýtur líka að liggja eitt-
hvað til grundvallar því, að á-
rekstrar i Reykjavík einni eru nú
komnir yfir þrjú þúsund, það sem
aí er þessu ári.
Tengslið fast
Svo aftur sé vikið að þeim
(iæmalausa árekstri sem varð á
Suðurlandsbraut, þá upphófst
hann með því, að bifreið kom á
ofsahraða á leið úr bænum og
var henni ekið fram úr öðrum við
síöðulaust. Lögregluþjónn á bií'-
hjóli var þarna staddur til að
íylgjast með ljósaútbúnaði bif-
rtiða. Var hann stiginn á hjólið
og ætlaði að fara að elta þenn-
an ökugapa, þegar mann bar að
í bifreið, sem þurfti endilega að
fcenda lögregluþjóninúm á þenn-
an ökufant, sem hann ætlaði að
fara að elta. Fjórum bifreiðum
aftar í röðinni gerðist það, að
n.aður í vörubifreið ætlaði að
stíga á tengslið og hemilinn til
að stöðva, en tengslið stóð á sér
cg fipaðist hann við þetta, svo
bifreið hans skall á næstu bif-
reið fyrir framan og síðan áfram
riiðina, unz allt var kornið í eina
bcndu stórskemmdra bifreiða.
Tveir stigu ekki út
Þegar svona á sér stað, er það
venjan að menn þjóta út úr bif-
reiðum sínum og eru óskaplega
rciðir, berja gjarnan einhvern
íyrir mistökin og skammast að
(Framh. á 2. síðu.)
ingu sína og vandamönnum þeirra
samúð.
I stningarræðu sinni ræddi for-
maður ei'nahagsmálaþróunina hór
íi landi undanfarin ár og afstöðu
sjávarútvegsins í því sambandi.
Kvað hann verðbólguþróunina al-
gerlega óviðunandi fyrir útflutn-
mgsframleiðsluna og benti á að
framleiðendur hefðu hvað eflir
annað varað við afleiðingum
hcnnar. Hann kvað atburði á
þessu ári i þessu sambandi, óhjá-
kvæmilega mundu ieiða til þess,
fyrir naestu áramót þyrfti að
gera raöstafanir til po»s ;aft fyrra
sjávarútveginn stöðvun aí' þessúm
sökum.
Enníremur ræddi formaður um
þá vá, sem fyrir dyrum stæði
vegna skorts á vinnual'li í sjávar-
útveginum.
Loks vék hann að iandhelgis-
málinu og vítti framkomu Breta
í sambandi við það.
Að lokinni ræðu formanns fór
fram kosning fundarstjóra, fund-
arritara og nefnda. Fundarstjóri
v«r kosinn Jón Árnason, útgerð-
armaður frá Akranes'i.
Þá var iesin skýrsla sambands-
stjórnar.
(Framh. á 2. síðu.)
Fundi Framsóknar-
kvenna frestað
Fundi, sem átti að halda {
kvöld, er frestað til næst
komandi fimmtudags, 11.
þessa mánaðar.
St jórnin
Innritið ykkur á stjórnmálanámskeið Frams óknarfélaganna
Stjórnmálanámskeií) Framsóknarfélaganna í Reykiavík hefst í kvöld kl. 8,30 með sameiginlegri kaffidrykkju. Innritun
fer fram í dag í Framsóknarhusinu, sími 15564, og eru allar nánari upplýsingar gefnar í þeim síma.