Tíminn - 23.12.1958, Blaðsíða 11

Tíminn - 23.12.1958, Blaðsíða 11
T f M I N N, liriðjudaginn 23. desember 1958. 11 ísieitdingabók eftir Gunnar Hall Æviágrip og brautryðjenda saga merkin íslendinga, Rvík 1958, 202 bls, i stóru broti og meS 12 myndum. I>að er aimennt haldið, nð Gunnar Hall muni eiga mesta ogl bezta bókasaín í eins manns -eigu hér á landi. Einnig er hann bald- inn vera einhver snjallasti bóka- safnari vor á rneðal, en mikillar kunnáttu og sniili -er þörf við þa‘ö, að safna bókum. Nú virðist svo, sem hann íetli að gerast stórvirk- ur rithöfundur. Og vissulega skort ir hann ekkert til þess að geta orð- ið það. En Gunnar er þó vissulega það, sem enn meira er um vert en þetta þrennt, því að hann er einn af ágætustu drengskaparmönnum vor á meffia-1, brennandi af áhuga, rækfarsemi og ást til vorrar fá- mennu, en þrátt fyrir mannfæð- ina, miklu þjóðar. Þetta leyndi sér eklú í bók hans „Sjálfstæðisbarátta íslendinga“, er út kom 1&58. En þessi bók, sem nú er úl' komin, er lireint og beinl eg'gj'unaróður til allra íslenzkra manna, en ]>ó sérstaklega allra ís- lenzkra æskumanna, til ósér- plægni, hugrekkis, dáða, dreng- skapar og framsóknar á nýjar brautir, loísöngur til binnar ís- lenzku manngildishugsjónar. Við slík skrif sem þessa bók Gunnars eiga vissulega þessi orð dr. Bjargar C. Þorláksson í kvæð- inu „llvað eigum við“; - Iljá öðrum þjúöum auð og virðing allur þorrinn metur lyæst. - Hann hríeíog eitir. - Ándanshirð- óviti þykir ganga næst. [ing. Um allan heim þótt fráir feti'ð, þið finnið bara um ísaláð heiío þjóo, sem h'efir metið, a'ö hasst og mest sé andans dá'ð! Qg þetta ma,t til brunns að bera, er bjarmi aí nýrri Söguöld! í lítillæli sínu segir Gunnar Hall, að hann hafi skrifað þessa bók til þess, að bjarga minningu ágætra íslenzkra brautryðjenda, sem annað hvort séu gleymdir, vanmetnir, eða hætt við að lendi í gleymskunni. Vissulega væri þetta ærið efni. En þetta er þó aðeins „sagan hálf“. Þessar mimi- ingargreinar um menn og málefni, er skifta mörgum tugum, eru ást- arljáning á manngildishugsjón- inni og hæsta iuós á „andans dáð“. Hér er enginn prédikari á ferð. En fordæmin eru notuð til eggj- unar hinna nýju kynslóða. Og þarna kennir margra grasa, en af öllum þeim mikla fjölda get ég aðeins af handahófi nefnt örfá nöfn: Þarna er Grindavíkurklerk- urinn síra Oddur V. Gíslason, sem alla daga mun verðá þjóð vorri ógleymanlegur fyrir baráttu sína gegn sjóslysunum. Þarna er Gísli J. Johnsen, pilturinn, sem milli fermingar og tvítugs gerðist braut ryðjandi í atvinnulífi í Veslmanna eyjum, lyfti þar grettistaki, og ég heyrði stórkaupmenn í Kaup- mannahöfn dá fyrir það, að hann næði jafnaðnriega beztum sölum á íslenzkum afurðum, því hann forð- ist að eltá „topprísana“ út í öfg- ar. Þarna er stórskáldið Guðmund- ur Kamban, sem ég þekkti allra manna ófáanlegastan til þess að beygja sig undir nokkurn isma eða kreddur. og sem íslenzka landssljórnin hefði auðveldlega getað bjargað undan ofsókn öf- undarmanna hans í Khöfn og dauða fyrir höndum danskra morð ingja, hefði hún viljað unna hon- um verndar útlendingsréttar við aðra livora sendisveit íslands, í Slokkhólmi eða Khöfn. En svo mikils var hann ekki metinn af þeim íorustiunönnum þjóðar vorr- ai', er þá réðu hér i'íkjum. Þarna er Frímann B. Arngrimsson, gáfu piHurinn mikli úr Fljótum, er ■fyrstur íslendinga í Norður-Am- eríku brauzt áfram háskólabraut- ina og það aigeriega af eigin ram- leik, en síðar gamalmennið og fá- tæklingurinn, sem bókaverðh'nir í Bibliteque National i París dáðu og bái-u dýpstu virðingu fyrir af því að hann las hin eríiðustu tækni- og náttúruvisindarit á hvaða tungu Suður- og Vestur- Evrópu, sem var, fórnfúsi ætt- jarðarvinurinn þar sem ísland át’ti ætið fremsta sæti i hug og hjarta, og knúinn af þvi seið- magni, sleppti glæstum Jramtíð- armöguleikum í heimsálfu alls- nægtanna og hélf heim, til þess að reyna að rafvæða Reykjavík og ísland (1894—1895), en var misskilinn af öllum. Þar er dr. Björg C. Þorláksdóttir, einskonar Auður Vésteinsdóttir vorra tíma, er varði 20 árum ævi sinnar til ,að semja ísl.-danska orðabók, fór að því verki loknu heim og fékk skap aðan grundvöll fyrir útgáfu orða- bókarinnar sem sjálfseignarstofn- un, og gaf svo bónda sínum bók- ina í von um, að hún veiti honum aukið gengi í framtíðinni. Mun mér vera alira manna kunnugast um þetta, og eins það, að hún gat ekki, þótt hún hefði fegin viljað, orðið við bón bónda síns um að safna fyrir hann heimildum í Vær- ingjasöguna, því öll þau 20 ár, sem hún barðist við að koma orðabók- inni af, hafði hún orðið að leggja sín eigin hjartfólgnu og umfangs- miklu hugsjónamál til hliðar. Nú kallaði skyldan, að hún gerði þeim skil, eftir því sem lif og kraftar entust. Með óbilandi drengskap og skyldurækni tókst henni það, áður en „ómar drottins“ „dundu henni í eyrum“. Sért þú svo hamingjusamur, að eiga iingan vin eða unga vinstútku þá gefðu honum eða henni þessa nýju íslendingabók Gunnars Hall. Þú þarft elrki að kvíða því, að hún verði ekki lesin spjaldanna á milli og lesin upp aftur og aftur, því snjallari og einlægari her- ’hvöt til sjálfstrausts og óttaleys- is, til drengskapar og dáða á lifs- braut þeirri, sem liggur fram und- an, getur ekki. Og hún er í sam- ræmi við þetta „faðir vor“ alda- mótaskáldsins, sem fyrst af öllu ætti að kenna öllum íslenzkum sveinum og meyjum: ^ Því gæt þess vel, DENNI DÆMALAUSI — PABBI : : : MAMMA . . . þetta er aldeílis gaman. . . . mífljón fólk hér fyrir utan aS syngja HEIMSUMBÓL . . . gaman, gaman .... scm göfgast með þcr finnst, og glæddu vel þann neista, sem iiggur innst. Sé méi'kið hreint, sem liátt og djarft þú ber, snýr hindrun sérhver aftur, sem mætir þér. Jón Dúasori. Þriðjudagur 23. des. Þorláksmessa. 357. dagur árs« ins. Tungl í suðri kl. 22,42. Árdegisflæði kl. 3,43. Síðdeg- isflæði kl. 15,53.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.