Tíminn - 04.01.1959, Blaðsíða 12
Allhvess norSan, léttskýiaS,
frost 5—10 stig.
loberg kemur
bingað í dag
Sænski rithöfundurinn Vil-
hclm Moberg keniur til Ileykja-
víkur í dag í boði Þjó'ðleikhúss-
ins. Sí'ðasta leikrit Mobergs,
Dómarinn, verður fruinsýnt í
Þjóðleikliúsinu á þriðjudagps-
kvöld, og yerður Moberg við-
staddur sýninguna. Dómarinn
var fyrst sýnt í Stokkhólmi í
fyrravfetúr og vakti mikla at-
hygll. Hefir það sí'ðan verið
sýnt víðar um Svíþjóð og er-
lendis. Nánar er sagt frá Vil-
helin Moherg á sjöttu sí'ðu blaðs-
ins í dag.
Verða skaðlausir
vindlingar bráð-
Iega á boðstólum?
I mörg ár hafa vísindamenn
unnið að því að finna vindlinga,
seni^ á allan hátt hafa eðli þeirra,
sem enn þekkjast, nema hvað
þeir væru ekki skaðlegir. Nú í'ull
yrðir sænskur efnafræðingur, Er-
:ik Ceimertz að nafni, að hann
hafi fundið upp efni, sem gerir
það að verkum, að liægt er að
ráðn', 'hve mikið níkótínmagnjð
yerður í vindlingunum og einnig
hafa áhrif á tjöruna, þannig að
vindlingarnir verða að mestu eða
öllu leyti skaðlausir.
Eðlilega er því haldið leyndu,
hvernig efni þetta er samansett,
en víst er um það, að efnið hefir
verið reynt og þykir þjóna vel
sínu hlutverki. Áætlað er að efni
þessu verði blandað saman við
tóbakið, áður en það er vafið í
vindlingana. Pípureykingamenn
geta fært sór þetta undraefni í
nyt á þann hátt að setja hylki
með efninu inn i munnstykki píp-
unnar.
Færi spillist á Dal-
víkurvegi
Dalvík í gær. -— Gott veður var
hór um hátíðarar, oft þíðviðri,
svo að nokkuð tók af snjónum,
er kom fyrir jólin, og vegir voru
ruddir milli jóla og nýárs. Á ný-
ársdag.og í gær var éljaveður og
komu' nokkrar driftir. Má búast
við að færi spillist, ef svo viðrar
lengi. Mjög fjölmennur og f.jör- j
ugur áramótadansleikur var hér á
gcmlárskvöld, þar sem gamla árið
var kvatt og nýja árinu heilsað.
PJ
2—8 stiga frost um allt land,
í Rvík 4 stig.
Sunnudugur 4. janúar 1959.
Liðssveitir Fidels Castros komnar
til Havana, höfuðborgar Cubu
Bandarísk kerskip vit5 strendur Kúbu
I aðra hnattferð: Þessi hjón ætia til Nýja Sjálands á farkost-
* inum, sem þau eru að feröbúa. Báturinn er
54 feta iangur. Þetta eru Britta og Steen Holmberg frá Gautaborg, sem
fræg urðu fyrir hnattsiglingu sína á bátnum „Víkingur I" fyrir nokkrum
árum. Nú eru þau að búa „Víking ll/y til ferðar, og ef ferðin til Nýja Sjá-
lands gengur vel, ætla þau að halda áfram umhverfis jörðina eins og í
fyrra skiptið.
Efndu til mikillar Ijósahátiðar
þegar rafmagn var komið á alla bæi
Myndarleg samkoma, sem vel mætti vería
fastur siíur í sveitum á rafmagnsöld
Lundúnur^, 3. jan. — Lið-d
sveilir úr uppreisnarher Fidels J
Castros tóku í dag að streyma:
inn í Havana, liöfuðborg Kúbu.
Var búizt við komu Castros j
sjálfs og Manuels Urutia dóm-
ara, sem Castró hefir útnefnt til
forseta uni stuiidarsakir. Alls-
herjarverkfall cr í Havana og
ríkir þar mikil ringulreið, þótt
ekki niuni þar teljandi óeirðir.
Malarskortur gcrir allmjög vart
við sig í höfuðborginni vegna
verkfallsins. Sölubúðir, skrifstof-
ur og verksmiðjur eru lokaðar.
Somgöngur liggja einnig að
mestu niðri.
Rómantísk gleði.
Fréttaritari brezka útvarpsins',
sem staddur er á Kúbu, sagði í
dag, að mikill fögnuður ríkti
meðal manna yfir að loks skyldi
hafa tekizt að hrekja harðstjór-
ann Balista og' klíku hans frá
völdum. Margir eldri menn, sem
Iengi hefðu barizl gegn harðstjórn
inni væru fullir af eldheitum og
rómantískum áhuga yfiir sigrin-
! um. En sumir bæru þó ugg í
brjósti um að aftur myndi sækja
í sama horfið og nýir harðstjór-
ar hrifsa völdin. Sumir foringjar
verkfallsmanna hafa lýsl yfir, að
verkfallinu verði ekki aflétt fyrr
en stefnuskrá byltingarmanna
hafi verið tryggð.
Offjár úr landi.
Castro hefir lýst hershöfðingja
þann, sem tók við stjórn hersins
af Batis'ta, föðurlandssvikara og
látið handtaka hann. Segir Castro,
að Ramon Barquin hafi gefið lof-
orð um að Batista og klíka hans
skyldi ekki sleppa úr landi.' Þetta
hafi hann svikið. Batista og vild-
arvinir hans, sem nú eru fleslir
flúnir til Bandaríkjanna, hafa
dregið sér óhemjufé á undan-
förnumi árum, sem geymt er er-
lendis. Nemur það hundruðum
milljóna dollara.
Allmörg bandarísk herskip
liggja nú við Kúbustreudur, að
því er sagt er til að vernda
bandaríska borgara þar. Hitt
kann líka að vera, að Banda-
ríkjamenn óttist um hagsmuni
auðnianna, sem eiga mikiim
hlut í sykurekrum þar og öðr-
um frainj,eiðslufyrirtækjum.
Leiðtogar uppreisnarmanna liafa
sumir krafizt þess, aö sykurekr-
urnar yrðu þjóðnýttar og tekiu
upp rótta’k stefna í þjóðfélags-
málum. »
Telpa verður fyrir
strætisvagni
í gær vildi það til, að telpa
varð fyrir afturenda strætisvagns,
sem rann til á hálku hjá biðstöð-
inni við mót Búslaðarvegajr og
Rcttarhollsvegar. Telpan sayðist.
á fæti og var gert að meiðslum
hennar á Slysavarðslofunni. Ekki
var um greinanlegt bcinbrot að
ræða.
Þá fór maður í færiband í Fisk
iðjuveri ríkisins við Grandagarð.
Hann skaddaðist nokkuð á hendi.
Frá fréttaritara Tímans
í Landeyjum.
Þann 13. des. s.l. var hald-
in ljósahátíð í félagsheimilinu
Gunnarshólma í tilefni þess,
að rafmagn hefir nú verið
leitt heim á alla bæi í Aust-
ur-Landeyjum utan tvo, sem
ekki hafa möguleika íil að fá
það eins og stendur,
Hreppurinn gekkst f.vrir þess-
ari S'amkomu. sem var fjölsótt og
mjög ánægjuleg. Oddvitinn, Er-
lendur Árnason, selti samkomuna
og stjórnaði henni. í byrjun var
selzt að kaffidrykkju, en síðan
voru ræður fluttar. og gerðu það
oddvilinn, Finnhogi Magnússon.
Lágafelli, og Magnús Finnhoga-
son, Lágafclli. Almennur spngur
Öll 7 ára börn tekin frá foreldrum
sínum og sett í heimavistarskóla
.\TH—Osló. 2. jan. Sovétríkin eru reiðubúin að minnka
herafla, s'inn um 70%. sagði Noel Baker í viðtaii, sem frétta
menn norska ríkisútvarpsins áttu við hann eftir komu
hans frá Moskvu, Ræddi Baker lengi við Krustjoff og
byggir þessar staðhæfingar á ummælum hans.
Noel Baker er einn af elztu þing
m'önnum Verkamannafl. brezka og
oftar. en einu sinni ráðherra. Hann
og sonur hans, Philip Noel Baker
komu frá Sóvétríkjunum rétt fyrir
iólin.
Verði ein milljón.
Baker héldur því fram, að vest-
urveldin eigi að bera fram aö nýju
tillögur sínar frá 1954 í afvopnun-
armálum. Krustjoff hafi auk held-
ur aðspurður fallizt á, að lækka
herstyrk Rússa í eina milljón
manna að því tilskyldu að heildar
styrkur austurs og vesturs yrði
ívipáðúr. Þetta myndi jafniglda
70% minnkun herafla Rús.sa.
Börn í heimavistarskóla.
Philip Noel Baker skýrir frá við
ræðum sínum við Mikojan um
skólamál. Mikojan kvað Sovét-
stjórnina gera sér vonir um að
geta sett öll börn í heimavistar-
sköla að sjö árum liðnum. Færu
þau þá frá foreldrum sínum við j
7 ára aldur. Aðspurður, hvort hörn
in væru ekki of ung lil að yfirgefa
foreldra sína, svaraði Mikojan þvi
til að foreldrar kynnu lítið til
harnauppeldis og því væri vafa-
laust betra að fela sérfróðum
mönnum þettá starf.
var milli ræðanna. Þá hófst sam-
íelld dags'krá um sögu rafmagns-
ins og rafvæðingu á íslandi, tek-
in saman af yngri mönnum í
sveitinni og ílutt af segulbandi.
Dagskránni lauk með gamanþætti.
Ungmennafélagið gekkst fyrir
þjóðdansasýningu, en dansi-
kennsla hafði l'arið fram næsta
hálfan mánuð á undan samkom-
unni. Kennari var Valborg Sigurð
ardóttir, íþróttakennari frá Sáms-
stöðum. Sýningin vakti mikla að-
dáun. Almennur dans' var stiginn
til kl. fimm um nóttina og mátti
þá gjörla sjá, hve danskennslan
hafði borið góðan árangur. Þátt-
laka unga fólksins í þessu sam-
komuhaldi var sérstaklega ánægju
leg. Samkomtugeslir, er fögnuðu
ljósum í skammdeginu, voru uin
120 eða allir, sem að heiman
komust í s'veilinni.
Sótt um stöður
landlæknis
og yfirlæknis
á Kleppi
Umsóknarfrestur var útrunnin
1. janúar. Þessir liafa sólt um land
læknisisembætti: Jóhann Þorkels-
son, héraðslæknir á Akureyri, Páll
G. Kolka. héraðslæknir á Blöndu-
ósi og dr. Sigurður Sigurcisson,
berklayfirláeknir.
Um stöður yfirlæknis við Klepp
spítalann hafa sótt: Esra Péturs-
son, Alfreð Gíslason, Þórður Möll-
er (heíur gegnt embættinu síðan
Helgi Tómasson lézt). Jakob Jónas
son ystarfandi í Svíþjóð, Karl
Strand, starfandi í Englandi, Agn-
ar Karlsson. Starfandi í Bandaríkj-
unum og Tómas Helgason, sem
stundar framhaldsnám í Bandaríkj
unum.
Útgerðarmenn í Eyjum fá miklar upp-
bætur á fiskverð frá fiskvinnslustöðv.
Vinnslustöðin í Vestmannaeyj-
um, sem er sameignarfyrirtæki
niargra útgerðarinanna i Eyjum, i
hélt aðalfund sinn milli jóla og
nýárs. Var þar samþykkt að end
urgreiða miklar upphæðir til út-!
gerðarnianna, sem iac/t hafa inn ,
fisk til vinnslu hjá fyrirtækinu. I
Ákveðið var að endurgreiða út- j
vegsniönmiin 10 krónur á liverja j
smálest af svonefndum aðgerðar
kostnaði, en auk þess var sain-
þykkt að endurgreiða útger'ðar-
mönnum af hagnaði fyrirtækis-
ins um eina og hálfa milljón kr.
af fiskverði ársins 1957. Mun
þetta geta orðið 10—12% verð-
hækkun á fiski. Auk þess var
samþykkt að ieggja hál/a millj.
kr. af hagnaði fyrirtækisins í
sameignarsjóð þess, en þá höfðu
auk þessa farið fram allar lör/-
boðnar afskriftir af eignuni fyrir
tækisins.
Gert er ráð fyrir að aðrar fisk
vinnslustöðvar í Eyijum igreiði
útgerðarmönnuin seni Iagt hafa
upp lijá þeirn svipaaðr uppliæð-
ir.
Kviknar í íbóSarhúsinu að Svelgsá í
Helgafellssveit - hósinu bjargað
Stykkishólmi í gæi'. — Um
klukkan tíu í morgun kom
upp eldur í íbúðarhúsinu aS
Svelgsá í Helgafeilssveit.
Ui'ðu nokkrar skemmdir á
þaki og rishæð hússins.
Hús þetta er gamalt, byggt úr
timbri, en í liaust lauk gagn-
gerðri viðgerð á því. Var það þá
múrhúðað utan, sett nýlt járn á
þakið og nýir gluggar í allt húsið.
Strax og elds'ins varð vart, var
símað á' næslu bæi og óskaö eftir
aðsloð. Einnig var símað til Stykk
ishólms og beðið um slökkviliðið
þar. Slökkviliðið og margt manna
úr nágrenninu kom fljótlega á
vetlvang og gekk greiðlega að
ráða niðurlögum eldsins, scm
var í rishæð hússins og þekju.
Talið er að kviknað hafi í út
frá :gaslampa, sem notaður var
við að þýða vatnsleiðslu, á þann
hátl, að neisti hafi komizt í ein-
angrun hússins, sem er úr þurr-
um mosa. Varð að rífa gal á þak-
ið. Skemmdir urðu cngar á neðri
hæð hússins nema al' vatni og
reyk.
Bóndi á Svelgsá cr Guðbrandur
Sigurðsson, hreppstjóri. Þrennt
annað er þar í heimili fyrir utan
Guðbrand. KBG
Arekstur í höfninni
i
| Síðastliðið þriðjudagskvöld varð
árekstur milli Akraborgar og Sæ-
fara frá Grundarfirði í Reykjavík-
urhöfn. Talsverðar skemmdir urðu
á Sæfara ,sem er 44 lesta bátur.
Skemmdir á Akraborginni voru ó-
I verulegar. Skipstjórinn á Akra-
borginni hélt því fram, að Sæfari
hefði siglt í veg fyrir sig með fyrr
greindum afleiðingum. Grunur lék
^ á. að skipstjórinn á bátnum hefði
verið undir áhrifum vins. Var farið
I
með hann til rannsóknar í Slysa-
varðstofuna .Við áreksturinn kast
j aðist maður um horð úr Sæfara
í sjóinn. en var bjargað áður en
* honum yrði meint af. Málið er enn
í rannsókn.