Tíminn - 26.06.1959, Blaðsíða 3

Tíminn - 26.06.1959, Blaðsíða 3
1 f MIN N, föstndagiim 26. júní 1959. „Hvað á að gera á sunnu- í dögum? Ég meina að sjálf- i sögðu, hvað er hægt að haf- ast að sem vekur andann og þroskar manninn"? Þannig spurði Valli bróðir minn um daginn. Ég var ekki reiðubú- inn að svara þessu. Ég hafði hingað til taiið það fullgott að slá garðinn á sunnudög- um, fara með krakkana nið- ur að tjörn að sjá Bra-Bra eða þegar mest er viðhaft: Upp i sveit til þess að sjá Me-Me, Mö-Mö, Ho-Ho og tína ber. En við nánari at- hugun málsins var það greini legt, að þess háttar vekur ekki andann eða þroskar manninn. EiÐIFERÐIN jiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiui | Pistill til athugunar fyrir áhugasama ( I sportveiðimenn - Krónumaðkar og ( I veiðileyfi - Sunnudagsfiskirí, sem I næstum endaði með skelfingu... I miiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii „Ég skal segja þér,“ sagði V-alli bróðir, „að í gær hringdi einn flok'ksbróðir minn í mig; hann heldur sjálfsagt, að ég sé ekki á sama máli og flokkurinn í kjör- dæmamálinu. „Valdemar,“ sagði hann, „Valdemar, ef þig langar til að skreppa einhvern tíma út undir almennilega bert loft á sunnudegi skaltu bara tala við mig. Ég væri til með að lána þér bátinn minn, þú veizt, þennan með utanborðsmótornum, sem hægt er að hvolfa upp á þak.“ Svo nú datt mér í liug, hvort það væri ekki þjóðráð, að við fengjum bátinn á sunnudaginn, og settum hann upp á þak á bílnum þínum og færum eitthvað út í náttúruna að veiða. Eg get lánað þér veiði- stöng.“ í morgunljómann er lagt af sfað Þetta er ástæðan til þess, að snemma í morgunn förum við Valli bróðir á kreik, troðum veiði stöngum, nesti, ánamöðkum og pokum undir veiðina inn í Ren- óinn minn og leggjum af stað heim til mannsins, sem á bát- inn með utanborðsmótornum, sem hægt er að hvolfa upp á þak. Hann tekur á móti okkur með kostum og kynjum. Báturinn er fyrir tvo að bera. Við tökum hann og hvolfum honum upp á þak. Þetta er nánast kassi, með stefni framan á. Svo leggjum við af stað að leita að vatni. Gott vatn „Ég veit um gott vatn,“ segir Valli bróðir. „Maður fer fyrst upp í Mosfellssveit og fram hjá Alafossi, svo beygir maður til hægri þangað til maður kemur að vatninu.“ Við förum upp í Mosfellssveit og fram hjá Álafossi, svo beygir maður til hægri þangað til við komum að vat’ninu. Þar tökum við bátinn niður, setjum í liann mót- orinn og ætlum að leggja af stað. Þá datt mér nokkuð í hug, sem eiginlega er skrítið, því að venju Furðulegir fuglar Ekki fljúga allir fualar. Sumir nota reiðhjól eða róla sér í frítímum, en tvífættum fuglum með myndavélar, þykir þetta harla skrítið og láta það ekki afskiptalaust. lega er það Valli bróðir sem fær hugdetturnar, þegar við erum sam an: „Heyrðu, vantar ekki árarn- ar?“ j Valli bróðir rekur upp stór augu og ldórar sér í höfðinu. En I hann er aldrei í vandræðum með að kippa svoleiðis smámunum í j lag: „Við finnum obkur béra I spýtur, og auk þess höfum við utanborðsmótorinn. Við finnum okkur spýtur, sem reyndar er alveg óþarfi, því eins og Valli bróðir segir höfum við utanborðsmótor. En það er alltaf eitthvað öryggi að hafa spýtur. GóSir maðkar Úti á miðju vatni beitum við önglana og förum að renna. Valli bróðir dregur strax og dregur meira. Allra fallegasta silung. En ég verð ekki var. Hvernig stendur á þessu? Valli bróðir notar alveg samskonar veiðarfæri og ég, meira að segja sams konar maðka. Við keyptum þá á krónu stykkið af stráknum í næsta húsi. Allra almennilegasti strákur, hann sést yfirleitt ekki meðan sólin skin, en kemur oft þegar fer að skyggja, yfir í garðinn til mín að skoða rósarunnana mína, sem eru, þó ég segi sjálfur frá, skratti fall- egir. — En er það nú alveg víst, að ég sé jafn fundvís á góða maðka og Valli bróðir? Eg laum- ast til að setja tvo á öngulinn hjá mér. Allt kemur fyrir ekki. Eg tek tvo stóra og læt þá detta í vatnið .Eg sé hvar þeir sökkva í hægum sveiflum, en enginn sil- ungur. Ég reyni að kasta lengra frá bátnum — enginn silungur. Ég reyni að lauma önglunum nið ur með bátnum — enginn árang- ur. Silungarnir hans Valla bróðir sprikla og gapa í bátnum en ég fæ ekki bröndu. Nú gerist ég reið ur. Hverslags derringur er þetta eiginlega í fiskinum? Er þetta bara af þvi Valli bróðir er skrif ■stofustjóri en ég bara venjuleg skrifstofublók? Nú geri ég ykkur úrslftatilboð, ágætu silungar: Ef þið bítið ekki á núna, skal ein- hver annar en ég verða til þess að ausa í ykkur krónumöðkum! Ég kasta færi mínu og kasta langt'. Svo er að bíða. Ég man það núna að laxveiðimaður, sem ég þekki, sagði mér einu sinni, að veiði- ■skapur vaeri ekkert annað en þol- inmæði. Ég bíð. Valli bróðh- dreg- ur sem fyrr. Ég dotta. Valli bróð- ir dregur enn. Skyndilega finn ég kippt í færið hjá mér. Laust að vísu, en kippt samt. Ég vind inn færið í gríð og erg. Og viti menn! Á önglinum er silungur! En „lofaðu engann dag fyrir ;sólartag£|3(tund.,“ Silungujrinn minn er ekki stærri en mannsfing ur. Bölvuð forsmánin. Þú átt alls ekki skilið að vera étinn, lagsi minn. Ég fleygði honum fólsku- lega í vatnið aft'ur og er hættur að veiða. Skyldu bátar mínir róa í dag? „Hver er að kalla?“ spyr Valli bróðir allt í einu. Ég hrekk upp af værum blundi. Báturinn er orð inn hálffullur af fiski og uppi í landi stendur einhver maður og kallar á okkur af ölíu þvi lofti sem hann á yfir að ráða. „Settu mótorinn í gang,“ segir Valli bróðir, „báturinn er orðinn fullur hvö'rt sém er, svo við skul- um vita hvað hann vill.“ En nú er eitthvað að. Utan- borðsmótorinn góði vill ekki ganga. Eftir að hafa margvafið snæi'inu utan um snúðinn og kippt í, gefumst við upp, emía virðist okkur háskalegt að láta mikið fara í þessari skel, og tök- um að róa með spýtunum. Þetta vissi ég alltaf, að það gæti verið gott að hafa með sér spýtur. (Mað urinn í landi er heldur að i'óast (Framhald á 8. aíðu) Krústjoffs Prá Kreml kom á dögun- um boðskapur til norsku og indversku sendiherranna í Moskvu, að þeir létu vfirvöld unum þegar í stað í té segul- band á hverju heyra mátti þrumandi brennivínsbassa Krústjoffs, syngjandi ætt- jarðarlög. Söngurinn var tekinn upp í kvöldboði í sendi ráðunum. Norski sendiherrann ga£ út yfirlýsingu þess efnis að hann hefði fyrir löngu þurrkað söng Krústjoffs út af þandin'u. Á bak við tjöldin hefur sendiherrann látið í það skína, að honum hafi verið boðnar stórar fjárupphæðir fyrir bandið. Krústjoff söng þessi lög til þess að skemmta gestum að afloknum kvöldverði. Tokyo færð út neðansjávar Japanir eiga í framtíðinni a9 húa í steinsteypfum strokk Tokyo er í þann veginn að sprengja af sér öll bönd og er í stökustu vandræðum með að koma nýjum milljón um íbúa fyrir. Þar eru nú vísindaleg ráð á lögð, sem minna mesf á loftkastala Jules Verne og annarra slíkra. Japanskir verkfræð- ingar eru staðráðnir í að byggja nýjan iðnaðarbæ í flóanum milli Tokyo og Chiba. Plóinn er víðlaslt hvar aðeánis 10—15 mteitrla1 djúpur. Fyrirhuglað er, iaið 5 bm. ultian við ste'öwdima veriði igerður geysiillegur steteteypt ur isltnoikíkfuir 30 km. í þvermál. Steypa síkal þúsumdir steinstenga mJður d hafsbotníiinm, og þegar þær hafa mynda'ð samfeHuflm hrimg, á að dæla sjónum úr þrónni og byggja iðtniaðarbæimto nýja á þéáim gmuminá, semi þar er uindir. Þessi atrökku'r fær svo siambamid við Toflcyo með míeðalnijarðarbraiutum fyrilr bíla og jámnbriaiutir. Þarna á lífið að fara fram með sama hætfti og uppi á jörð'inni. Str-oíkikiuiitlnin verðiur ca. 25 metra djúpur til jafnaðiar, fær loft og hiita með mýjuan tækmiilegum að- íerðum. Þetir. aem aið þessu statoda, tellljia þeilltia' mí'kíllu ódýnana í fnaim- kvæmd en aðrar tillögur sem fram hefiir flcom'iiið, sem sé að spremgja kfliétteinia vilð Toflcyoflóamm niðiur í h'amln í uppfylffiiiniglarskynii og . £á þaininiig mýtt Uaimd. Áætlað er, að þes-Ji n'eðlainisjávarbong konii til með að koslta ca. 5Y2 miillljaxð kx. Ár munu líða áður en þessi hug myimd klelmst í friamikvæmd, em húm ■er lefldki leingiur l'öfllikaisitailar drlaiulm- ónaimlainma. Hún liiggur fuillLformuð á taiknliborðum vemkfræðiinga'nma japöniiikiu'. Eldhúsinu dreift um alla íbúðina I Ameríku er áríðandi aá finna stöðugt upp á ein- hverju nýju, því að neytend- ur vilja ekki kaupa hluti og drasl, sem minna á það, sem fyrir er heima í koti. j Við skulum líta á nokkrar nýj- ungar þeirra: a) Lítil sendistöð, sem luismæð- ur geta haft í pússi sínu, og notað til þess að auka eða minnka hitann í steikarofninum heirna, þótt þær sjálfar séu staddar í nokkirra kíló- metra fjarlægð frá heimilinu. b) Þokkaleg blanda af ísskáp og eldavél. Húsmóðirin gengirr frá matnum og stingur honurn í ís. skápinn. Því næst stillLr hún hita Nokkrar einkar hugvitssamiegar uppfinningar amertskra — „HljóðiausarH hijóðbylgjur og tima áhaldsins og gengur rólega sínar götur. Á tilteknum tíma sveiftast maturinn úr ísskápnum í eldavélina, og þegar hann er full- tilreiddur, kemur hann sjálfkrafa fram á bakka. Hljómfögur bjalla tilkynnir þenna gleðilega atburð. c) Sjálfvirk ryksuga og gólf- þvottavél, sem eftir ákveðinni stillingu sprettur úr bæli sínu í veggnum og þvær gólfið, skrúbbar og þerrar, snýr síðan aftur í sitt far í veggnum og safnar orku fyrir j næstu törn. d) Undra-uppþvottavél, sem sendii' „hljóðlausar" hljóðbylgjur gegnum uppþvottavatnið og 111100. ar með þeim bæði óhreLnindi og flnnan klíning, meira að segja gler- harða eggjarauðu. Út með eldhúsið •Bak við allar þessar uppfinning- ar má greina óskir amerískra um að sundra eldhúsinu, þessum mið. punkti hvers hehnilis, og dreifa því út um alla íbúðina, t. d. ís- skáp/eldavél við hliðina á sjón- varpstækinu o. þ. h. Því miður eru uppfinningarnar enn svo dýrar að engir geta veitt sér þær utan uppfinningamenn- irnir sjálfir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.