Tíminn - 10.07.1959, Síða 7

Tíminn - 10.07.1959, Síða 7
TÍMINN, föstudaginn 10. júlí 1959. Það var um daginn að Arn arfellið lá við Ægisgarð. Hafnarverkamenn voru að losa skipið, hífa upp úr því snúningsvélar og önnur hey-. skaparverkfæri. Það var gras sprettuveður og öll skilyrði til að heyvinnuvélarnar kæm ust snemma í gagnið Það var einnig verið að flytja vistir til skipshafnarinnar um borð og þeir voru að bera þær upp landganginn. Fréttamaður blað'sins kom um borð í Arnarfellið í þessum svif- um þeirra erinda að hitta skip- stjórann, Guðna Jónsson, og spyrja hann um siglingar og dag- inn og veginn á sjónum. Honum var vísað upp stigann að íbúð skipstjórans, þar sem stendur ,,að- gangur bannaður“ og skipstjórinn var heima. Hann var að færa inn í bækur skip-sins og gera klárt fyrir aiæstu sjóferð að kvöldi þess dags. Ósagt í landhelgi — Hvað viltu heyra? spurði skipstjórinn, þegar kveðjur voru afstaðnar. — Allt hvað er af sjónum. — Það er svo margvísiegt, er maður segir bara ekki imnan land- helgi. — Búinn að stýra skipi í mörg ár, Guðni? Síðan frá áramótum 1950— 1951. Byrjaði hjá SÍS 1946 og sótti Hvassafellið til ítaliu, þá sem þriðji stýrimaður. 1949 fór ég sem fyrsti strýimaður hingað á Arnarfellið, þegar það var sótt til Svíþjóðar og sólti Jökulfellið til Svíþjóðar ári seinna. Þar var ég skipstjóri í sex ár. Á stríðsárunum —Og þinn sjómannsferill, hvað nær hann langt aftur í tímann? — Til 1934. Þá byrjaði ég á skipi, sem var að koma til iands- ins, Kötlunni. Var á henni í sex ár. — Millilandasiglingar? — Eingöngu. Fórum til Mið- jarðarhafsins, með saltfisk til Spánar, í borgarastyrjöldinni með al annars. Svo fór ég til Eimskip og sigldi fjögur stríðsárin á Brúar fossi. -— Og hefur séð það svart ein- hvern tíma um það leyti? — Uss, já. Við sem ekki féll- um yfir sem taugavejkluð hrök, héldum þessu áfram. — Og sáuð þið oft skip brenna Og týnast úr lestunum? — Úff, o-jú, jú. Þetta fór í gegn um fiokkana, tundurskeyti, sprengjukast. Við sáum olíuskip brenna og skip með hergögn, sem sprengihæta stafaði af, sundrast og hverfa. í hafið. Það var alveg eitrað, baneitrað helvíti. -t~5 í!’!-- Arnarfellið Þeir vilja fá mann helzt upp í pakkhús — Hvert þangað? — Génova. — Hvernig var ástandið þar á fyrsta ári eftir stríð? — Feykileg eymd á Ítalíu eftir stríðið. Lítið að hafa fyrir almúg- ann. Eg var á skipinu í hálft annað ár; Miðjarðarhafstúrar, — Ítalía, Grikkiand, Spánn og þetta vana- lega stopp í Oran til að taka olíu. — Og hafið líklega frá ýmsu að segja frá viðkomustöðum þar syðra? — Við förum nú ekki að skrifa um það. Það væri heldur að minn- ast á leiguferð á Jökulfellinu til bananaflutninga í Suður-Ameríku, sjö mánað'a túr. Það var fyrsta skipið me'ð íslenzkri áhöfn su'ður fyrir línu. Hvað fóruð þið oft yfir lín- una? — Átta sinnum gegnurn Panama skurð og jafnoft yfir línu, það er bezti túr sem ég hef siglt, svo jafn gott veðrið. —- Og hvernig líkaði ykkur að koma til Suður-Ameríkuland- anna? — O, alveg Ijómandi. Til dæmis Chile, ég held það sé bezta land í heimi. Þar er velmegun hjá öllum, sem nenna að vinna. A/laSur lifandi! — Hvar tókuð þið banana? — Tókum banana í Eucador og fórum með þá ýmist til New Orleans eða niður til Valpariso. Einu sinni komum við til Palara í Perú. Þar rignir aldrei, eyði- mörk. Ég spurði einn hvað væri. langt síðan það hefði rignt'. — Ja, rignt, sagði hann, það komu nokkrir dropar fyrir fimm árum. Þar eru miklar olíulindir og við vorum að taka olíu á leið suður. RabbaS við Guína Jónsst — Ilvernig er loftslagið í Chile? — Alveg frábært, það er viður- kennt gæðaloft. — Þið hafið kynnzt Indíánum? Það voru aðallega Indíánar, sem lestuðu hjá okkur. Þeir tala blending af spænsku. — Og skemmtilegt þarna að vera? — Já, askotans skemmtilegir næturklúbbar. — Og kvenfólkið fallegt? — Og maður lifandi! — Vín að drekka og ávextir að borða? Alltaf svona tonn af banön- um til að hafa handa okkur sjálf- um í hverjum túr. Meiriparturinn fór í hafið. Við gátum ekki annað þvi að éta það. Aftur í hráslagann — Hvar þótti ykkur nú vel- sældarlegast þar syðra? — Ja, fallegasti gróður, sem ég hef séð, var við Panamaskurð inn. Þar koma ein og tvær demb- ur á dag níu mánuði ársins, svona eins og hellt sé úr fötu og maður sér ekki út úr augunum. Svo er himinninn jafn heiður og tær. — Og hitinn svo vel mátulegui’? Já, aldrei mjög bagalegur á hafinu. — Fannst ykkur þá ekki hrá- slagalegt að koma norður í kuld- ann aftur? — Hitinn fél'l úr þrjátíu stig- um niður í tíu á einni klukku- stund á leiðinni norður frá Cape Hatteras, það er skammt norðan við Florida. Þá vorum við á heim leið með viðkomu í New Yoi'k. Við týndum á okkur allar þær tuskur, sem til vorú og fannst kalt samt. »n, skipstjóra á Arnarfelli Og úr þessum stóra túr sigldum við beint frá New York til Reykjavíkur. Sitt á hvað — Nú eru að vei-ða þrjú ár síðan ég tók við Arnarellinu, hélt skipstjórinn áfram. — Þetta er ákaflega skemxntilegt skip og skipshöfnin góð. Mér hefur líkað ágætlega hérna. — Hvert hafið þið siglt aðal- lega? — Þetta hefur verið bölvað flakk maður, sitt á hvað. New York, Finnland, Rússland, Mið- jarðarhafið. Engin áætlun, sigl- um um allt. Seinast frá Hollandi með landbúnaðarverkfæri fyrir okkar ágætu bændur. Upp á Akranes að lesta nokkur hundruð tonn af mjöli í kvöld og með það ( til Þýzkalands. Þaðaji til Finnlands til að lesta timbur. Þar er voða-1 legt mál, ekki líkt neinu og ó-' mögulegt að skilja það. Bjargar að þeir tala sænsku. En að mínu viti eru Finnar líkastir okkur í hugsunarhætti af Norðurlanda- þjóðunum. — Munur á túrurn suður á bóg- inn og hér í Noi’ður-Evrópu, finnst ykkur það ekki? — Jú, munar ýmsu, að minnsta kosti hér við land, á lendingar- j skilyrðum og fleira. Og birtan.! Það sem mest fer í taugarnar á okkur, þessum skipstjóraaumingj- j um, eru siglingar við ströndina' hér í skammdeginu. Svo oft stór hætta að fara hér upp að þessum nátittum, sem eiga að heita bryggj ur, en þeir vilja helzt fá mann upp í pakkhús, og maður fær ekki sofið sólai’hringunum saman. B.Ó. Ætluð góðgjörð r — Urðuð þið aldrei fyrir árás- um? Nei, við s'luppum áfallalaust. Ekki vegna þess, að Þjóðverjar væru að hlífast við að hafa okkur að skotspæni, býst ég y;ð, heldur af því, að skipin voru lítil og t'undurskeytin lentu frekar í stærri möi'kunum. Þetta var tauga stríð, en svo má illu venjast að gott þyki, og maður vandist því. Flugvélar og eilíf skothríð og djúpsprengjur, sem herskipin köst uðu; þá var eins og maður ætlaði að rekast á sker. Einu sinni byrjaði þýzk steypi- flugvól að skjóta á okkur og kast'- aði sprengju, en hitti ekki betur en það, að sprengjan fór í togara, sem lá við hliðina á okkur undir Englandsslrönd. Og hann fór nið- ur með þessu, en okkur var nú ætluð sú góðgjörð. Yfir línuna — Hvað svo í stríðslok? — Þá var ég í landi í heilt ár, þangað til ég réðzt til SÍS og fór til Ítalíu að sækja Hvassa- fellið. Búnaðarfélag Aðaldæla sextugt Vorið 1959 er að verða runnið í aldanna skaut og sumar sama árs að að renna upp til að uppíylla þær vonir, sem vorið hefur vakið. Þetta vor hefur haft óvenjulega fjölbreytni í veðurfari að bjóða. Þann hlýjasta og bezta maímánuð, sem rnenn minnast um langan aldur. En júní hefur verið mánuð- ur andstæðnann'a. Þá hafa dunið yfir hríðai’byljir og stórrigningar. Fé farið í fönn og vorfuglar. krókn- að á hreiðrum sínum. Hann hefur líka átt yndislega sólskinsdaga, og þrátt fyrir fleiri frostnætur en í maí, mun hann skila júlí surnar- grænni jörð og þroskamiklum gróðri. Einn af þessum yndislegu dög- um var sunnudagurinn 21. júní — sól'stöðudagurinn sjálfur. Hann heilsaði og kvaddi með gullinni miðnætiu’sól milli rósi’auðra skýja- banda kvöldroðaus eða morgun- roðans eða hvers? Því þessi dagur á sér hvorki kvöld né' morgun. Búnaðai’félag Aðaldæla efndi til mannfagnaðar þennan dag í hinu snotra samkomuhúsi, sem byggt var fyrir aldar þriðjungi á grá- um hraunhx-yggjum fyrir austam Hólmavað. Nú hefur verið gróður J sett svo mikið birki í ki’ingum1 það, að heitá má, að það standi! ,,í birkilaut bakkanum á“, því svo nærri Laxá stendur það, að sjá mætti út um gluggann þegar lax- inn stekkur í ánni. Allt var húsið nýmálað, og víðáttumikið bílatorg hinum megin við birkiskjólið heim an frá húsinu séð. Félagið var að minnast 60 ára aldurs síns og starfs. Þangað var öllum boðið, sem einhvern tíma liöfðu verið í félaginu. Kaupfélagsstjóra, al- þingismanni og Mjólkursamlagsi stjóra. Stjórn Búnpðarsambands Suður-Þingeyinga og öllum for- mönnum Búnaðarfélaga í sýslunni, ■ og auðvilað konum allra þessara rnanna. Þar að auki var boðið full- trúum frá Búnaðarfél. íslands, en þaðan gat enginn mætt. Húsið var blómskrýtt og uppi yfir hliðinu að því var skráð fögru Íetri: „Vel- komin“. Lagt hafði verið á borð fyrir 220 manns með mikilli hag- sýni, því húsið er ekki eins stórt eins og nýjustu félagsheimilin. Gestir voru boðnir kl. 3 e. h. og var stutlu síðar isetzt að borðum. Stjórnaði formaður félagsins Her- móður Guðmundsson, bóndi í Ár- nesi, hófinu, og hafði ráðið Pál H. Jónsson kennara á Laugum til að stjói’na söng. Steingrímur Bald- vinsson, bóndi í Nesi, flutti mjög fi-óðlegt erindi um sögu og starf félagsins. Þá sögu hefur hann sam- ið fullkomna, og las þarna ýmsa kafla úr henni. Auk hans tóku 'Fratnhalrt * ° <rfhr ■ Hverjir berjast í' gegn auðhringum? NOKKRIR FÁFRÓÐIR MENN hafa öðru hvoru tekið sér fyirir hendur að sverta samviumistaíd'ið í landinu með því að kalla sám- band kaupfélaganna „auðhri*tg“. Það furðulegasta við þetta von- lausa verk er, að penna og tutigu þessara manna stjórnar flokkur auðmanna og braskara, flokkur, sem er sá eini og réttborni erf- ingi liinnar gömlu 'verzlunarkiig- unar á íslandi og vinnur nxark- visst að auðsöfnun gæðinga sinna, meðal annars með stofnun auðhringa. Samvinnustefnan hefur barizt gegn auðhringum um allan heim. Þess vegna er það hreint öfug- mæli að tala um auðhring sam- vinnumanna og lirein móðgun við meðalgreint fólk að halda slíku fram. Allir vita, að fyrir skömmu var Brunabótafélag fslands eitt um brunatryggingar húsa utan.Rvík ur, og allt þar til samvinnu- menn liófu samkeppni við hið öfl- ugá félag og með þeinx afleiðing* um að iðgjöld stórlækkuðu. Éim- skipafélagið hafði einokunarað- stöðu á millilandasiglingvun þar til skip samvinnumanna veitlu því holla samkeppni og þannig mætti nefna fjölda dæma um það, að eiumitt samvinnumenn hafa unnið að bættum hag borg- aranna með því að stófna til harðrar samkeppni á mjög niörg- um sviðum viðskiptalífsins'. Þetta er framhald af því starfi, sem Þingeyingar hófu gegn yerzlunax’- kúgun og algei’ðri einokun á Húsavík. Hinar 30 þúsundir kaupf'élags- manna í landinu stjórná ' sam- vinnusamtökunum og velja sér forystumenn á eins lýðræðisleg- an hátt og framast má verða. Auð Iiringum stjórna oftast örfáir menn og þar ræður fjármagnið. Þar getur ríkur maður „rétt. upp 10 hendur“ eða greitt 10 atkvæði og jafnvel enn fleiri, ef hanu er nægilega ríkur. Hjá sainvinnu- mönnunum liafa allir jafnan rétt, livort sem þeir eru snauðir' eða efnaðir og er þar ólíku sainan að jafna. Samvinnufélög og káupfélög liafa allt annan tilgang en auð- hringar og eru alger andstaða þeirra og vinna gegn þeim. Mark- mið auðliringa er fjársÓfnun. Auðhringar íeyna að útiloka sam- keppni til þess að skapa gróðaað- stöðu, bæði í viðskiptum og fram- leiðslu og safna auði í skjóli ein- okunarinnar. Sá auður lendir í fárra manna liöndum, því að auð- hringar eru „lokuð“ fyrirtæki al- menningi. Samvinnnfélög eru öll- um opin og eru mynduð vegna þarfa fólksins og stofnuð af því. Öllum má því Ijóst vera hver. i ök- leysa það er að halda þyí fram, að SÍS sé auðhringur. Eini skyldleiki SÍS við auð- hring er sá, að SÍS er sterk stpfn- un og rnjög að vonum, þar sem hún cr byggð upp af 30 þúsund mönnum. Rógtungur andstæðing- anna, þeirra rnanna, sem raun- verulega eru vikapiltar regiu- legra auðmanna og jafnvel auð- hringa, geta ekki fundið meiri skamniaryrði á SÍS, en að það sé auðhringur, og kemur það úr liörðustu á,tt. Raunar er það í senn broslegt og þó einkar lákn- rænt, að þjónar auðvaldsins í þessu landi skuli klína eigin nafni á samvinnumenn í niðraudi merkingu. Þegar stóreignaskatturinn frægi var lagður á, kom í ljós. að SÍS átti rúmlega 50 milljóna króna skuldlausa eign,. en Eimskipafé- lag fslands þrisvar sinnum meira. Þá-varð það líka Ijóst, að G00 ein- staklingar, og flestir í Rvík voru milljónamæringar. Tuttugu óg níu þessara manna áttu til dæmis 250 milljónir sainanlagt. Þessir menn gefa út Morgunblaðið og gera út Sjálfstæðisflokkinn og láta vikapilta sína halda fram þeirri fjarstæðu að SÍS með sína 50 niillj. kvóna eign, sem er sam- eign 30 þús. ínánna í 56 kaup- félögum, sé hættulegur auð- hringur. (Dagurj.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.