Tíminn - 10.07.1959, Blaðsíða 10

Tíminn - 10.07.1959, Blaðsíða 10
m TÍMINN, föstudagmn 10. júlí 1959. íslenzka sundfólkið, sem keppti í Leipzig ásamt farastjóra og þjálf- ara. — Aftari röð frá vinstri: Theódór Diðriksson fararstjóri, Pétur Kristjánsson, Ágústa Þorsteinsdóttir, Hrafnhildur Guðmundsdóttir, Einar Kristinsson og Ernst Bachmann þjálfari. Fremri röð: Sigurður Sigurðsson og Guðmundur Gíslason. Góður árangur íslenzks sund- fólks á stórmóti í Rostock &.. alþjóðlegu sundmóti, sem haldið var í Rostock í Aústiir-Þýzkalandi 2.—4. júlí s. 1., kepptu fjórir íslenzkir sundmenn og tvær sundkon- ur. Flest bezta sundfólk Evr- ópu tók þátt 1 mótinu, en þátttakendur voru frá Rúss- landi, Þýzkalandi, Póllandi, Finnlandi, Svíþjóð, Hollandi, Danmörku og íslandi Þess má geta, að á móti þessu voru sett 7 sænsk met, sum þeirra frábær. Nú hafa borizl úrslit mótsins, og þó að íslenzka sundfólkið sé hvergi í verðlaunasæti, náði það mjög góðum árangri. Hrafnhildur Guðmundsdóttir keppti í 100 og 200 m. bringu- sundi og náði góðum árangtri, þeim bezta, sem íslenzk sundkona hefur náð á þessum vegalengdum í 50 m iaug. Hún varð 9. í 200 m á 3:09,8 mín., keppendur voru 14. — í 100 m varð hún 8. af 12 á 1:28,5 mín. aðeins 1 sek. frá metinu, sem sett er í 25 m laug. Ágústa Þorsteinsdóttir keppti í tveim gremum, hún varð 19. í 100 m flugsundi á 1:33,7 mín., kepp- endur voru 20, en í 100 m sknið- sundi varð Ágústa 6. af 34 kgpp endum á 1:08,6 mín., sem er góð- ur tími. Bringu.sundsmennirnir Sigurður Sigurðsson og Einar Kristinsson kepptu í 100 og 200 m. Á fyrr- nefndu vegalengdinni varð Sig- urður 13. á 1:21,1 og Einar 15. á 1:21,8 mín., keppendur voru alls 16. — í 200 m varð Einar 17. á 2:53,5 og Sigurður 18. á 2:53,9. Pétur Kristjánsson og Guðmund ur Gíslason kepptu í 100 m skrið- sundi, en þar voru 30 keppendur. Guðmundur varð 7. á 60,4 sek., en Pétur varð 12. á 61,7 sek. — Guðmundur keppti auk þess í 400 m skriðsundi og varð 5. á 4:49,4 mín. Hann sigraði marga þekkta sundmenn. í heild má segja, að íslenzka sundfólkið hafi staðið sig með miklum ágætum. Meistaramót íslands í (rjálsum íþróttKm háð á Laugardalsvelli Aðalhluti mótsins verður 9.—11. ágúst Meistaramót íslands 1959 — aðalhluti — fer fram á Laugardalsvellinum 1 Revkja vík dagana 9. til 11. ágúst. Héfur" stjörn FFíí skipað þá Einar Kristjánsson, Jóhannes Sölvason og Guðmund Sigur- jónsson til þess að siá Um framkvæmd mótsins, og er undirbúningur að mótinu nú þegar hafinn. er niðurröðun keppnisgreina, á dagá, þannig: 9. ágúst (I): Hlaup: 200 m, 800 m, 5000 m, og 400 m grindahlaup, hástökk, lang- istökk, kúiuvarp og spjótkast. 10. áigúst (II): Hlaup: 100 m, 400 m, 1500 m og 110 m grindahlaup, kringluka&t, slcggjukast, þrístökk og stángar- stökk. 11. ágúst (III): Fimmtarþraut, 4x100 m, og 4x400 m Doóhlaup og 3000 m hindrunarhlaup. Keppni í t'ugþraut, 10 km hl. og 4x800 m boðhlaupi, fer fram á sama velli 12. og 13. september. Tímaseðill og nánari tilhögun mótsins verður tilkynnt síðar. Þátttökutilkynningar verða að vera komnar í hendur nefndar- innar, eða pósthólf 1099, þriðju- daginn 4. ágúst kl. 18. Jafnframt ■skal, fyrir sama tíma, tilkynna nefndinni, fyrirliða hvers félags, eða héraðssambands. Er það mjög nauðsynlegt vegna framkvæmdar mótsins. Möguleiki er á að nefndin geti útvegað viðlegupláss fyrir utan- bæjarkeppendur. Óskir um slíka fyrirgreiðslu þurfa nefndinni að .berast fyrir 20. júlí n.k. i Að lokum væntir nefndin góðs og gæfuríks samstarfs við héraðs sambönd, félög, keppendur, starfs- menn og alla aðra er hlut eiga að máli við framkvæmd mótsins. Á það tr.eystir nefndin. Úrstlit í bæjarkeppni Malmö og Rvíkur - síðari dagur Á íþróttasíðunni s. 1. sunnu dag var skýrt frá úrslitum fyrri daginn í bæjarkeppni Malmö og Reykjavíkur, sem fram fór í sambandi við vígslumót Laugardalsvallar- ins. Vegna þess, að blaðið kom ekki út s. 1. þriðjudag — og síðan hefur landsleik- urinn við Noreg verið ríkast ur í hugum manna — hafa úrslit síðari dagsins ekki ver ið birt hér fyrr en nú. Lið Reykjavíkur hafði sem kunn ugt er mikla yfirburði og sigraði með 121 stigi gegn 81 stig Málmeyjarmanna. Reykjavík—Malmö, síðari dagur: Sleggjuka'st: 1. Þórður B. Sigurðsson, R 52.00 400 m grindalilaup: 1. Guðjón Guðmundsson R 59.9 2. Per Sjögren M 57.4 3. K.Á. Gunnarsson M 58.5 4. Sigurður Björnsson R 61.5 Spjótkast: 1. Björgvin Hólm, R 56.68 2. Perason M 54.72 3. Jóel Sigurðsson R 54.13 4. Strandberg M 20.00 5000 m hlaup: 1. Kristleifur Guðbjörns. R 14:58.4 2. Stig Jönsson M 15:00.4 3. Kristján Jóhannsson R 15.10.4 4. Ake Nilsson M 15:30.6 Stangarstökk: 1. Valbjörn Þorláksson R 4.20 2. Heiðar Georgsson R 4.10 3. T. Carlssen M 4.00 4. A. Uhler M 3.70 Bezti grindahlaup- ari í heimi Á miðvikudaginn var skýrt frá því hér á íþróttasíðunni, að Þjóð verjiim Martin Lauer hefði sett nýtt heimsmet í 110 m. grinda- hlaupi, hlaupið á 13,2 sek. — Þetta mun fáum hafa komið á óvart, sem fylgzt hafa með frama 2. L. Rocksen, M. 50.23 3. SG Hassland M 47.49 4. Friðrik Guðm.son R 43.71 200 m hlaup: 1. ÍBjörn Malmroos m 22.1 2. Valbjörn Þorláksson R 22.7 3. GBertil Nordbeck M 24.7 4. Þórður B. Sigurðsson R 29.6 800 m hlaup: 1. Svavar Markússon R 1:54.6 2. íBo Karlsson M 1:56.8 3. Olle Sjöström M 1:59.4 4. Reynir Þorsteinsson R 2:02.1 Þrístökk: 1. Ingvar Þorvaldsson, 2. Björgvin Hólm R 3. Jan Strandberg, M 4. Bengt Palm, M Sten Eriksson, gestur R 13.67 13.24 13.16 12.44 14.87 4x400 m boðlilaup: 1. Reykjavík (Hilmar — Val- björn — Svavar — Hörður) 3:24.4 mín. 2. Malmö (Andersson — St'rand berg — Karlsson Johannsson) 3:26.4 mín. Lauers. Hann liafði tvívegis áð> ur lilaupið á 13,5 sek., og fyrir þetta keppuistímabil liafði hann alls 15 sinnum hlaupið inuan við 14 sek. Martin Lauer er 22 ára að aldri, 1,78 m. á hæð og vegur 75 kg. Hann var fyrst kunnur sem góður tugþrautarmaður, en sneri sér síðan alveg að grinda- lilaupinu og er fyrstP'Evrópubú- inn sem staðizt hefur Bandankja mönnum snúning í þessari grein og nú hefur hann náð heimsmet inu í þessari „bandarísku“ grein frjálsíþróttanna. Viðbragðið í 400 m. hlaupinu í bæjarkeppninni.. Þórlr Þorsteoinsson er á yztu brautinni, en sigurvegarinn i hlaup. inu, Hörður Haraldéson, er á milli Svíanna. Malmroos er lengst til hægri. — Ljósmynd: Guðjón Einarsson. Til athugunar fyrir Knattspyrnusambandiíi: Nauðsynlegt að haga vali á knatt- spyrnuskóm eftir aðstæðum á velii Norsku leikmennirnir reyndu tvenn efta þrenn pör áður en leikurinn vií Island hófst Þaö vakti mikla athygli þeirra, sem staddir voru á Laugardals- vellinum um fimm leytið sl. þriðjudag — eða nokkru áður en landsleikur íslands og Noregs liófst — að norska landsliðiö kom inn á völlinn til að reyna knattspyrnuskó, sem lientuðu bezt við þær aðstæður, sem þá voru á vellinum. Hver leikmaður reyndi tvenn eða þrenn pör af skóm áður en endanlega var ákveðið hvaða knattspyrnuskó hver skyldi nota í leiknum um kvöldið. Þjálfari Iiðsins og einhverjir úr farar- stjórninni fylgdust nákvæmlega með þessu, og greinilegt var, að sá fjöldi af skóm, sem þarna var, var ekki í eigu knattspyrnumann anna heldur knattspyrnusam- bandsins norska. Knattspyrnuskór eru dýrir, — munu kosta um 700—800; krón- ur parið, og því ekki hægt að ætlast til, að leikinenn eigi tvenn eða þrenn pör, eða jafnvel meir, til að notast við eftir því, sem aðstæður eru á veili í það og það skipti, sem leikið er. Þar er svo margt, sem kemur til greina, veðurlag, grassvörðurinn og fleira. þarf að lagfæra, því síðar gætl það orðið of dýrt —■ jafnvel kostað sigur í landsleik. — lisím. Snmarleyfis- ferSir Farfugla Hér er því um atriði að ræða, viða fjárhagslega, að eiga nokk ur pör af knattspyrnuskóm á lager, þótt það kunni að vefa einstökum leikmönnum landsliðs ins ofviða. Áhorfendur tóku líka eftir því, að suinum Ieik- mönnum íslenzka liðsins gekk mun verr en Norðmönnum, eða Tvær sumarleyfisferðir verða farnar í ár á vegum Farfugla, og liefjaist þær báðar í júlímánuði. sem Knattspyrnusamband ís- /nn mun unnt að tilkynna þátt- lands þarf að taka til athugunar,/t.ku. Fyri ferðin er Þóramerkur- og það ætti ekki að vera því of- ferð, 11.—19. júlí. Verður henni hagað eins og undanfarin ár, dval ið í tjöldum í Sleppugili og farn- ar þaðan gönguferðir. FélagiS leggur til tjöld og fæði, en kostn aður er 700 krónur. — Seinni ferðin er óbyggðaferð, 25. júlí til 9. ágúst. Verður fyrst haldið til Veiðivatoa, þaðan í Tungnár- öðrum úr íslenzka liðinu, að fóta botna, að Langasjó og um Fjalla sig á, vellinum, og má í flestum baksveg í Eldgjá og austur í eða jafnvel öllum tilfellum kenna Núpsstaðaskóg, en þaðan til baka óhentugum skóm um það. Sem til Reykjavíkur. Verð er 2400 kr. sagt, hér er atriði, sem strax og er.fæði innifalið.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.