Tíminn - 15.08.1959, Síða 5
T í M I N N, laugardaginn 15. ágúst 1959.
Frú Ingibjörg Pétursdóttir, fyrr
kúsfreyja í Suður-Bár í Eyrarsveit
inningarorð:
]ézt í sjúkrahúsi í Reykjavík 8. þ.
m. Útför hennar fer fram á Set-
bergi í dag.
Frú Ingibjörg var fædd að
Brimilsvöllum á Snæfellsnesi 6.
janúar 1887. Foreldrar hennar
voru Pétur Guðmundsson frá
Hraunlöndum og kona hans Þór-
katla Jóhannsdóttir frá Fossárdal,
Þorsteinssonar. Kona Jóhanns og
móðir Þórkötlu var Þuríður Þórar
insdóttir frá Reykjum í Hrútafirði,
Jónssonar á Skárastöðum, Ólafsson
ar. Kona Jóns á Skárastöðum var
Helga Jónsdóttir lögréttumanns á
Efra-Núpi, Hallssonar; er það
Rauðbrotaætt, -sem mjög er fjöl-
menn i Húnaþingi og víðar. Kona
Þórarins á Reykjum var Þórkatla
Jónsdóttir á Reykjum, Bergssonar,
og konu hans Þórkötlu Þórðardótt
ur frá Brunngiii í Bitru, Ólafsson-
ar. Þau Þórarinn og Þórkatla áttu
mörg börn. Meðal þeirra voru auk
Þuríðar, Guðrún kona Benjamins
Þorsteinssonar í Akurseli í Öxar-
firði, Jón hrepþstjóri á Horni í
Skorradal, Dýrunn móðir Jóhannes
ar Guðmundssonar á Auðunnarstöð
um, Dágur á Skerðingsstöðum í
Eyrarsveit, Þorbjörg, átti Gísla Sig
urðsson í Ei-ríksbúð hjá Arnar-
etapa. Guðríður, átti Ara Gunn-
laugsson i Reynhólum og Einars-
lóni og Helga tengdamóðir Finns
Jónssonar á Kjörseyri.
Albræður frú Ingibjargar voru
Sigurður Kristófer rithöfundur og
skáld og Sigþór síkipstjóri í Ólafs-
vík, én auk þess 'átti móðir henn-
ar nokkur börn í fyrra hjónabandi.
Voru þessi systkin öll atgervisfólk
og samhugur ríkur í fjölskyldunni,
en einkum dáði Ingibjörg móður
sína, sem verið hafði mikilhæf
kona, og Sigurð Kristófer bróð-
oir sinn hinn þjóðkunna gáfumann.
Þegar Ingibjörg var 16 ára, flutt-
jst hún að heiman vestur í Flatey
og dvaldist þar nokkur næstu ár.
En 19. október 1907 giftist hún
Sigurði skipstjóra Eggertssyni frá
Hvallátrum í 'Rauðasandshreppi,
Eggertssonar. Settust þau hjón að
í Ólafsvík, en bjuggu siðan á Brim
lisvöllum og Haukabrekku, unz þau
fluttust að Suður-Bár vorið 1919.
Var Sigurður um mörg ár skip-
stjóri -á fiskiskipum, en síðast
stýrði hann „Svaninum" frá
Breiðafirði. Hann var vel gefinn
atorkumaður og farnaðist jafnan
vel í sjósókn. En hann lézt á bezta
aldri, tæpra 46 ára, 6. júní 1922.
Þau Sigurður og Ingibjörg eign-
tiðust sjö börn, Eitt þeirra dó í
bernsku, en á' lífi eru:
Þorkell, starfsmaður við Búnað-
arbankann, Guðríður símstjóri og
póstafgr.m. í Grafarnesi, Pétur sölu
stjóri kaupfél. s; st., Halldór sveit
arstjóri og alþm. í Borgarnesi,
Margrét gift Asgeiíi verkfræðingi
Markússyni frá Ólafsdal, Þórarinn
Jjósmyndari í Reykjávík.
Ingibjörg Pétursdóttir
Astæður frú Ingibjargar voru
næsta erfiðar, er hún missti mann
sinn og stóð ein uppi, efnalítil með
barnahópinn sinn, hið elzta þá 13
ára, en hið yngsta á fyrsta ári.
En það hvarflaði ekki að henni að
biðjast hjálpar eða gefast upp. Hún
hélt áfram búskap í Suður-Bár til
vors 1937, með mikilvægum stuðn-
ingi Guðmundar stjúpsonar síns
og barna sinna, eftir þvi sem þau
komust til aldurs. Sjálf hafði hún
tilsjón með hverju st'arfi ,enda
var hún vön því frá þeim árum, er
maður hennar var löngum fjarver-
andi vegna sjósóknar. En það var
ekki aðeins atorka hennar og glögg
forsjá, sem fleytti heimili hennar
yfir þá örðugleika, er á þeim ár-
um komu mörgum á kné, heldur
einnig eða framar öllu hin bjarta
og örugga lífstrú hennar. Henni
varð og að trú sinni. Það birti yfir
og framundan með hverju ári sem
leið, er börn hennar, öll vel gefin
og mannvænleg, tóku æ meira af
starfsbjTðum héim;lisins- á- herð-
ar sínar.
Vorið 1937 hóf Halldór sonur frú
Ingibjargar búskap á Staðarfelli á
Fellsströnd. Fluttist hún þangað
með honum og átti þar heima í
18 ár, en dvaldist síðan hjá börn-
um .sínum á víxl, eftir að son-
ur hennar settist að í Borg-
arnesi. Veittist henni á síðari ár-
um mikil hvíld og gleði, er heim-
ili allra barna hennar stóðu henni
opin og hún var umvafin ástúð
þeirra og tengdabarna sinna og
hafði þá um leið ný tækifæri til að
endurnýja kynni við aðra forna
vini.
Frú Ingibjörg var fríð sýnum,
frjálsleg og um leið virðuleg i
framgöngu. Hún var vel gáfuð eins
.og hún átti kyn til, og hugur henn-
ar næmur fyrir öllu því, er veita
má lífinu fegurð og farsæld í and-
legum sem hagrænum efnum. Trú
mál og bókmenntir áttu rík ítök í
huga hennar. Þjóðfélagsmál kynnti
hún sér af kostgæfni og áhuga, og
var ékki komið að tómum kofum,
cr rætt var við hana um þau éfni.
Hún var staðföst í fylgi við þær
skoðanir, er hún fann vera réttar,
eins og hún var trygg í þeli gagn-
vart þeim samferðamönnum, sem
höfðu áunnið sér traust hennar og
vináttu.
Mikilhæfrar konu er minnzt, þeg
ar frú Ingibjörg er kvödd. Hún
var þróttmikil grein á hinum
sterka stofni þjóðlífs vors, sem
staðizt hefur -raunir margra alda.
Ævistarf hennar, unnið við erfið
kjör, varð mikið og sigursælt, og
ævikvöldið bjart og friðsælt. Minn
ing hennar mun eigi fjunast, en
verða geymd í þakklátum hjörtum
ástvina hennar og annarra .sam-
ferðamanna.
Jón Guðnason.
„Hér féll grein af góðum stofni,
grisjaði dauði meir en nóg“. Það
er ekki ætlun min, enda lítt til
þess fær, að rekja hér hvorki ætt-
ir eða afrek þessarar mætu konu,
hitt er víst að hverju því málefni,
er hún beitti sér fyrir, var vel borg
ið í höfn, ekki síður en þeim skip-
um cr hennar ágæti maður, um
langt skeið, stýrði vandfarnar
leiðir. j
Það, sem fyrir mér vakir er,
að minnast nokkuð á æsku hennar
og bernsku mína þann stutta tíma,
er við áttum samleið, um það skeið.
Ingibjörg, sem var móðursystir
mín, var tíu árum eldri en ég. Hún1
dvaldist á heimili foreldra mjnna,
nokkurn tíma, þá um fermingar-
aldur. Mér þótti þetta merkilegt
fyrirbrigði, ekki það að Imba syst-
ir eða Imba frænka væri þar, hún
var ávallt kölluð svo á mínu æsku-
heimili, heldur hitt, að jafnframt
voru þar tvær aðrar stúlkur á svip
uðu reki, önnur var systir mín
Katrín en hin systurdóttir móður
minnar Sigrún, allar eru þær nú,
horfnar í skaut „móður náttúru".
Ingibjörg mun hafa verið þeirra!
yngst, —- og glæsiíegust '•— tvímæla ’
laust. Allt er nú þetta löngu lið-
ið, — og ritað eftir minni, eins
og það köm mínu afstæði á þeim
tima fyrir. Frómt frá sagt öfund-
aði ég þær fyrir aldur og þroska.'
'Þessu er nú snýið við, því: „Nú
vildi margur vera ungur. og vernda
fyrstu gullin sín“, svo sem éin á-
gæt vinkona mín orðaði þáð.
| Þegar þú nú, kæra frænka, hverf
ur af hinu sýnilega sjónarsviði,
þykir mér ekki ótilhlýðilegt að
kveðja þig, 'fyrir mína og systkina
minna hönd með alúðarþökk. Jafn-
, framt vottum við ykkur, frænd-
systkinum og öðrum aðstandendum
okkar dýpstu samúð.
Kristján Andrésson.
Asasigling Rússa
út Stóra-Belti
NTB—Kaupmannahöfn 13. ágúst.
Þrjú rússnesk herskip sáust sigla
á mikilli ferð norður um Stóra-
Belti. Var þar beitiskip af Sverd
lov--gerð og tveir tundunspillar.
Var þá rétt lokið flotaæfingum
NATO, sem þarna fóru fram að
nokkru leyti. Undrast menn, hver
geti verig tilgangurinn með þess
ari asasiglingu herskipanna. Fyrr
um daginn lenti þýzka mótorskip
ið Christél í árekstri við rússnesk
an tundurspilli í þoku við eyjuna
Falstur. Þoka var einnig, er rúss
arnir sigldu út Stóra-Bolti, 'Ekki
er kunnugt, hvort tundmrspiHir
inn laskaðist' í árekistriftpm. v-
-rM—.
Hagerty undirbýr
héimsókn
NTB—Bonn, London og .•.Wáshing.'
ton 13. ágúst. Jaimes 'tíágéi’fcý!
blaðafulltriji EisenhowérsT1 ér 'ini
kominn til Bonn og fer' síðar til
London og Parísar, en é'rlndi Máns.
er að ræða við ráðamenn,; er juncl
irbúa komu Eisenhowers.; Stjórn-
málamenn í Waishington aögðu , í
dag, að Eisenhower vonaðist t'il
ap geta fengið Krustjóff t'il áð
láta svo undan í BerlínardeHuhni,
að hægt yrði aið ganga tU fundat'
æðstu manna. Tilkynnt hefur ver
ið, að Castiello utanríkisráðherra
Spánar, rnuni ræða við Eiseiihow
er meðan hann dvelzt í London.
Kornu þau tíðindi nokkuð flatt upp
á Breta, sem ekki vissu til, ,að
Castiello ætti þangað erindi. .
Annað mót Islenzkra ungtemplara
Sambandið íslenzkir ung-
templarar mun halda 2. Ung-
templaramótið að Jaðri dag-
ana 22. og 23. ágúst n k. Sum-
arstarf íslenzkra ungtempl-
ara hefur verið allfjölbreytt
og hefur sérstök sumorstarf-
og hefur sérstök sumarstarfs-
^J^veÍja vinkonu
Ég þakka, vina, alla elsku þína,
hver yndisstund var dýrmæt minni sál.
Þú stráðir sól og blómum brautu mína.
Þín blessun var mér heilagt friðarmál.
Ég kom til þín og kynni þín mér veittu
þann kæiieiksyl, sem barn ég hafði þráð.
Þín sál og lund mér sorg í gleði breyttu
og særðum huga gáfu trú og náð.
Þú varst sem drottning, djörf og sniöll í orðum
og drenglund þín og tryggð var himingjöf.
Þú treystir Drottni heitt sem Auður forðum,
sem ein með börn sín Iagði sollin höf.
Hvert starf þitt vannstu heil af dug og dáðum,
að dyggð og snilld var engin fremri þér.
Hve farsælt var að fylgja þínum ráðum.
Ég fann í öllu var það hollast mér.
Ég minnist þín og blíðra barna þinna,
hve bærinn þinn var öllunv hæli og skjól.
Hve ástrík hönd þín öllu kunni að sinna,
a£ auðlegð hjartans gafstu vor og sól.
Við krjúpum hijóð að lágu Ieiði þínu,
er ljúfur blærinn kyssh' fjörð og strönd.
Þig e.ngill drottins blessar brosi sínu
og bqr þig ljúft í himnesk vonalönd.
nefnd séð um skipulagningu
þess og framkvæmd að mestu
leyti.
í vor var haldið unpi skemmti-
samkomum, sem stúkurnar geng-
ust fyrir á víxl. Og um mánaða-
mótin maí og júní Var fyrsta árs-
bing íslenzkra ungtemplara hald-
ið' í Hafnarf'rði. Það var fulltrúa-
þing og mjög vel sótt miðað við
rnannfjölda samtakanna, scm nú
er í örum vexti-og hafa verið stofn
uð í vor tvö ungtemplarafélög. Fé-
lagafjöldi sambandsins hefur auk-
izt um 50% á síðast liðnu starfs-
ári. Á þinginu voru rædd ýmis
mál og gerðar samþvkktir viðvíkj
andi framtíðai'starfinu. Lögð verð
ur mikil stund á að efla fjöl-
breytta tómstundastarfsemi og
hollar skemmtanir, efnt til nám-
skeiða í ýmsum greinum og út-
búnir og útvegaðir verðlauna-
gripir til að veita fyrir afrek bæði
í íþróttum og félagsslarfi, stofnað
verður til listkynningar meðal fé-
lagsmanna, efnt til gróðursetning-
ar og fegrunar t.d. á Jaðri o. fl.
Farnar hafa verið' tvær meiri
háttar skemmtiferðir í sumar,
bæði í Landmannalaugar og Þórs-
ivörk og tekizt mjög veí, þóttu
l.æ'ði mjög ódýrar og skemmtileg-
ir. Komust færri að cn vildu, sér-
staklega í séinni ferðina, og er
nauðsynlegt að þátttaka í slíkum
ferðum sé kynnt í tæka tíð.
Utanför ungtemplara
Merkasti viðburður sumarsins í
‘elagsstarfi ungtemplara er vafa-
laust hópferð þeirra til Noregs,
cn þangað fóru 13 ungtemplarar,
fiestir á aldrinum 16—19 ára.
Fararstjóri var Kristinn Vilhjálms-
,son. Hópurinn tók þátt í fjölbreytt
um hátíðahöldum norskra ung-
templara, sem minntust 50 ára af-
mælis samtaka sinna Hátíðahöld-
in fóru fram í bænum Skien, sem
er á Þelamörk. Voru þau fjöisótt
og glæsileg. íslendingarnir sáu
þarna og lærðu margt, sem að
(Framhald á 7. síðu)
Földuásér .i
skotvopn
NTB—Little Rock 13. ágúst. í
dag var allt með kyrrum kjörurn í
Little Rock eftir rósturnar daig
inn áður, er lögreglan beitti hörðu
og handtók 24 unglinga. I kvöld
handtók lögreglan þó þrjá' full-
orðna svertingja, vel metna borg
ara og menntamenn, en á þeirn
fundust skotvopn innaai klæ)ða.
Er slíkt óleyfilegt. Mennippir
voru teknir í námunda við bústað
formanns samtaká 'blökkumahna.
Á.
Fulltrúar á ársþlngi íslenzkra ungfetnplara
Reiðir meiðyrðum
Kínverja
NTB—Nýju Delhi 13. ágúst. .Ind
iandsstjórn hefur opinberfega mó’t
mælt því við Kínverjá, að þeir
hafa í opinberum málgögnum si'n'
um kallað Indverja heimsvéMa
sinna. Skýrði Nehru frá þéssu' á
þingi í sambandi við tillögur Jrá
stjórnarandstöðunni, sem vjll .hafa-
sérstakar umræður um .samband
Indlánds og Kína. Fulíýrti einn
þingmaður stjórnarandstöðunhar,
aið Kínverjar hefðu nú liðsáfnað
mikinn við landamæri Sikhím og
Bhutan í Norðaustur-Indlándi; og
alkunna væri, hversu mikið lið
kommúnistar hefðu í Tíbet. Væri
þetta greinileg ógnun vig. Ind
land.
Ágæt ufsaveiði í
grunnnót nyrðra
Þrír bátar hafa stundað ufsa-
veiði með grurinnót fyrir Norður
landi 1 sumar. Hafa þeir al'iað ága-t
lega og héfur ufsirin , áðálléga
veiðst við Grímsey. Einnig hefur
nokkur veiði verið út' af Drarigey
í Skagafirði. é ■■ t1 '
Bátarnú.' leggja afla sinn upp á
Eyjafjarðarhöfnunr og qr ááriri
frystur til útflutnings.. Mjqg gott
verð fæst fyrir ufsartn. og.fá^jjó
menn 1,40 fyrir kílóið. , Há'sýta
hlutur er orðinn'ágáetÚT'á ^eásúni
bátúm. ' ’ Aá .1