Tíminn - 22.09.1959, Page 6
6
T ÍM I N N, þriiíjutlaginn 22. scptember 1959.
Útgefandl: FRAMSÓKNARFLOKKURINa
Ritstjóri og ábm.: Þórarinn Þórarin*M&,
Skriístofur í Edduhúsinu við Lindarg6ts
Símar: 18 300, 18 301,18 302, 18 303,1830* og
18 306 (skrifst., ritstjómin og blaðamena).
Augiýsingasími 19523. - Afgreiðslan 12*2*
Frentsm. Edda hf. Simi eftir kl. 18: ÍSM*
Loddaraleikur Sjálfslæðisflokksins
ÞAÐ kemur alltaf betur og
betur í ljós, hvað fyrir forkólf
um Sjálfstæðisflokksins
vakti, er þeir kusu heldur að
veita flokksstjórn Alþýðufl.
stuðning en að mynda sam-
steyþtistjórn flokkanna. Til
gangurirtn var sá að fá rík
isstjórn, sem hægt væri aö
láta, framkvæma ýmsar mið-
úr jréttlátar aðgerðir, er væru
skrifaðar á reikning hennar,
en sjálfur létist Sjálfstæðis-
flokkurinn enga ábyrgð bera
og hvergi nærri koma, enda
þótt stjórnin gerði ekki ann-
að en aö fara eftir beinum fyr
irmælum hans.
Þannig taldi Sjálfstæðis-
flokkurinn sig geta ráðið, án
þess að taka á sig ábyrgð, og
myndi það henta honum vel
fram yfir þingkosningarnar.
HÁMARKI sínu hefur þessi
blekkingaiðja og loddaraleik
ur Sjálfstæðisfl. náð sein-
ustu dagana í sambandi við
bráðábirgðalögin um land-
búnaðarverðið.
Málgögn Sjálfstæðisflokks
ins eru ,nú látin deila rétti-
Iega á ríkisstjórnina fyrir að
„gefá út bráðabirgðalög, sem
fela í sér mikið ranglæti og
misrétti“ (sbr,- forustugrein
Mbl. í- fyrradag), enda hafi
„sú afurðaverðshækkun, sem
bændur áttu rétt á, ekki
þurft að valda nýrri dýrtíðar
skriðu.“ í framhaldi af
þessu lofar Mbl. svo hátíð-
Iega, að þetta ranglæti skuli
leiðrétt — en þó ekki fyrr en
eftir kosningar
Sannleikurinn, sem ekki
verður leyndur, er hins vegar
sá, að ríkisstjórnin gerir hér
ekkert annað en að fram-
fylgja beinum fyrirmælum
S^jálfstæðisflokksins, enda
hefur hann tilveru hennar og
líf i hendi sér og getur vikið
henni frá hvenær, sem hon-
um þóknast. Ríkisstjórnin er
svo algerlega háð stuðningi
hans, að hún gerir ekki ann-
að en það, sem hún veit, að
forkólfar Sjálfstæðisflokks-
ins vilja láta hana gera eöa
beinlínis fyrirskipa henni að
gera.
Það er þannig ekki annað
en fullkomnasti loddaraleik-
leikur þegar forkólfar Stjólf-
stæðisfl. eru að stimpla um
rædd bráðabirgðalög ríkis-
stjórnarinnar „ranglæti og
misrétti", því að þeir eru hin
ir raunverulegu ábyrgðar-
menn þeirra. Loforð þeirra
um að hlutur bænda skuli
bættur eftir kosningar, er
sami skrípaleikurinn, því að
hefði Sjálfstæðisflokkurinn
viljað hindra þetta óréttlæti,
var honum það í lófa lagið fyr
ir kosningarnar.
SANNLEIKURINN er sá, að
forkólfar Sjálfstæðisflokks-
ins eru frumkvöðlar og aðal
ábyrgðarmenn bráðabirgða-
laganna, þótt þeir reyni nú
að villa á sér heimildir í
augum bænda með því að
eigna þau verkfæri sínu,
ríkisstjórn Alþýðuflokksins.
Tilgangur íhaldsforingjanna
er að skapa hér fordæmi fyr
ir því að binda kaup og kjör
einnar stærstu vinnustéttar
landsins með löggjöf. Heppn
ist það, verða aðrar vinnu-
stéttir landsins bundnar á
eftir á sama klafann. Þegar
því marki er náð, geta gæð-
ingar Sjálfstæðisflokksins og
fylgifiskar veitt sér enn meiri
hlunnindi og sérréttindi en
þeir gera þó nú sbr. útsvars-
hlunnindi Bjarna Benedikts
sonar, Gunnars Thoroddsens
og Ólafs Thors.
Það er því ekki aðeins
skylda bændanna, sem lög-
bindingin bitnar á í dag, að
hrinda því ofbeldisverki, er
hér hefur verið framið. Það
er jafnnauðsynlegt verka-
fólki og launafólki bæjanna,
því að það mun síöar bundið
á lögbindingarklafann, ef
það heppnast að binda bænd
ur nú. Vinnandi fólk landsins
þarf að sameinast um að
hrinda þessum fyrirætlun-
um.
Fyrsta skrefið' til þess að
hrinda þessum fyrirætlunum
er að láta ekki blekkjast af
umræddum loddaraleik Sjálf
stæðisflokksins nú í kosninga
baráttunni! Eftir kosningarn
ar verður það of seint.
Hlutverk vikadrengsins
BLÖÐ Sjálfstæðisflokksins
reyna að láta líta svo út,
að það sé Alþýðuflokkurinn
og „ríkisstjórn“ hans, er
beri ábyrgð á bráðabirgða-
lögunum um afurðaverðið.
Slíkt er með öllu rangt. Hlut
verk Alþýðuflokksins í þessu
sambandi er hið sama og
vikadrengsins, er framkvæm
ir fyrirskipanir húsbónda
síns. Vitanlega er það hús-
bóndinn en ekki vikadreng
urinn, sem ber ábyrgðina.
í þessu tilfelli er Sjálf-
stæðisflokkurinn húsbónd-
inn, því að hann hefur til-
veru ríkisstjórnarinnar al-
veg í hendi sér.
Það er hins vegar ömurlegt
tímanna tákn, að Alþýðu-
flokkurinn skuli nú kominn
í þá þjónsstöðu gagnvart
Sjálfstæðisfiokknum, að
Sjálfstæðisflokkurinn skuli
geta notað hann til að lög-
binda kaup stærstu vinnu-
stéttar landsins. Þegar Sjálf
stæðisflokkurinn getur notað
hann þannig fyrir kosningar,
mun vafalaust ekki standa á
því, að Sjálfstæð'isflokkurinn
geti notað hann til að lög-
binda kaup annarra vinnu-
stétta eftir kosningar.
Ðraumur Sjálfstæðisflokks
ins er lögbundið kaup allra
vinnustétta landsins, enda
hefur Ólafur Thors sagt, að
engar efnahagsráðstafanir
komi að notum, nema kaupið
sé bundið. Þegar því marki
Skákbréf frá Bled:
Petrosjan ætlar sér næsta
einvígi við Botvinnik
Bled, 14. september.
Degi hallar. Vatnið er slétt sem
spegill. Við förum í gönguferð með
fram því, til þess að auka blóðrás-
ina ,næra sálina. Trén skarta sínu
fegursta rétt fyrir sólarlag. Við
forðumst ailan skarkala, en ;sætt-
um okkur við suð bjallanna.
Enn eru margir á ferli, og þarna
koma tveir kunnugir á móti okkur.
Annar ungur, dökkur á brún og
brá, brosleitur. Hinn miðaldra, feit
laginn, værukær.
Við sláumst í för þeirra.
j Sá ungi er ættaður frá Armeníu.
■ Kunnugir kalla hann Tigran, aðrir
[ Petrosjan. Hinn heitir Boleslavský.
j Eitt sinn tók Boleslavský þátt í
: áskorendamóti. Hann varð efstur
og tapaði engri skák, en Bronstein
nokkur náði honum í síðustu um-
ferð og sigraði í einvígi, með hjálp
j heppninnar, sögðu sumir.
Nú er Bionstein aðstoðarmað-
'ur Tigrans, og Tigran fetar í fót-
spor félaga síns. Eftir sigur hans
yfir Keres í fjórðu umferð, er hann
heilum vinning á undan næstu
mönnum. Við spyrjiun hann um þá
skák.
— Þú fékkst erfiða stöðu upp úr
byrjuninni á móti Keres?
— Já, ég hafði lakara lengi vel,
svo tókst mér að jafna, en 39. leik
ur minn var mjög slæmur afleikur.
í stað þess að, leika peðinu fram,
hefði ég átt að leika Dh4 og hefði
þá enn haldið jöfnu.
— Já, staðan var ekki sérlega
góð hjá þér, þegar hún fór í bið,
en svo var Keres of hægfara?
— Já, hann hjakkaði allt of lengi
í sama farinu, segir Tigran, — og
svo kom þetta---------, bætir hann
við brosandi. Meira þarf hann ekki
að segja, við vitum að hann á við
hina glæsilegu hróksfórn og drottn
ingarfórn, sem knúði Keres til upp-
gjafar vegna óverjandi máts.
— Meðal annarra orða, ekki
manstu líklega hvað þú hefur teflt
margar skákir við Keres?
— Nei, ekki man ég nú töluna,
þær eru orðnar nokkuð margar, en
ég mun hafa eina yfir, það er að
segja þessa, segir Tigran.
— Þú ættir heldur að spyrja Smý
sloff hvað hann hefur teflt margar
skákir við Botvinnik, skýtur Bole-
slavský inní.
— Þær rnunu vera eitthvað um
áttatíu, segjum við.
— Meira — segir Tigran þeir
hafa teflt þrjú einvígi.
— Já, og margar skákir þar fyrir
utan, segjum við.
Svo fara þeir félagar að rifja
upp fyrir sér, hvað þeir Botvinnik
og Smýsloff hafa teflt margar kapp-
skákir saman. Niðurstaðan verður
nálægt níutíu.
— Ef þeir téfldu eitt einvígið
enn, myndu þeir fylla hundraðið,
og vel það, segjum við.
Petrosjan verður hugsi. Sjálfsagt
hefur hann hug á að tefla sjálfur
næsta einvígi við Botvinnik. Við
erum þeirrar skoðunar, að líklega
fái hann því framgengt, en óþarfi
er að skjalla hann, með því að
segja honum þá trú okkar.
Brátt kveðjum við þá félaga, vilj
um ekki eiga á hættu að valda
þeim ónæði.
Ef til vill eru þeir að brugga ein-
hverjum banaráð — á skákborðinu.
Við höfum áður, eitt sinn við
matborðið, spurt Tigran um skák
hans við Friðrik í fyrstu umferð.
— Var það ebki tiltölulega auð-
veldur sigur? spurðum við.
er náð, geta flokksforingjar-
nir og flokksgæðingarnir út-
hlutað sér enn meiri fríðind
um en ella, sbr. útsvarsfríð-
indi Ólafs, Bjarna og Gunn
ars.
En illt er hlutskipti Al-
þýðuflokksins orðið, þegar
hann gerist vikadrengur
Sjálfstæðisflokksins við fram
kvæmd slíkrar stjórnar-
stefnu.
— Jú, því verður ekki neitað,
svarar Tigran.
— Friðriki hættir til að nota of
mikinn tíma á byrjunina, finnst þér
það, ekki? spyrjum við.
— Gegn mér eyddi hann einni
klukkustund og fjörutíu mínútum
á fvrstu 13 leikina, sem alla
hefði mátt leika án umhugsunar,
svarar Tigran.
Við höldum áfram göngunni við
vatnið og hugsum í fyrstu um verka
mannssoninn frá Armeníu, sem átti
í miklum erfiðleikum í uppvexti,
en náði svo heimsfrægð á sínu
sviði. Hann hefur hrífandi persónu-
leika, lítillátur, ljúfur og kátur.
Ef Friðrik hefði hraða hans, tækni
og stöðumat, þá væri hann ekki
á flæðiskeri staddur. 1 leikfléttum
stendur Friðrik engum að baki.
Myrkrið er að skella á. Við mæt-
I um ungu pari með vorbros á vör, I
J og gömul hjón sitja á bekk með(
( haustkyrrð í hjarta. Þau horfa útj
á vatnið. Ljósin kvikna eitt af |
öðru. Vatnið iogar. Staki turninn í
eyjunni ljómar í. birtu ijóskastar-
anna. Kastalabergið brennur. Fisk-
ur stekkur upp úr vatninu, og trén
standa leyndardómsfull í myrkrniu.
Við höldum heimleiðis. Hverfum
aftur til efnisins.
Þriðja umfcrð 10. september:
Keres — Tal biðskák
Petrosjan — Smysloff biðskák
Benkö — Fishcer biðskák
Keres og Tal tefla Kóngsind-
verja. Sá fyrrnefndi leggur í peða-
sókn á kóngsvæng, gerir flest til
að flækja taflið og hafnar jafn-
teflisboði í gruggugri stöðu. Tal
tekst að opna sér línu á drottning-
arvæng, og litlu síðar leggur hann
út í ævintýri, fórnar riddara til
að koma drottningu sinni i tæri við
kóng andstæðingsins. Þrjú peð fær
hann fyrir manninn, en meiri usla
fær drottningin ekki gert, enda er
Tal í tímaþröng. Keres teflir alla
skákina af ískaldri ró og hafnar
enn friðarboði, er skákin fer í bið.
Hann hefur þá náð drottningar-
kaupum, heldur enn manni fyrir
þrjú peð og staða hans er betri,
þar sem peð Tals á drottningar-
væng er veikt, og frípeð hans
kóngsmegin eiga enn langt í land.
Petrosjan og Smýsloff tefla
Enska leikinn. Framan af er eink-
um stundaður skotgrafahernaður
með einstaka taktískum brellum, en
brátt verða mikil mannakaup og
kemur upp endatafl með fjórum
riddurum. Eitt sinn standa allir
riddararnir fjórir í ferningi saman,
svo nálægt hverjum öðrum, að þeir
koma ekki við vopnum hver á ann-
an, heldur snúa lensunum að peð-
um andstæðingsins og halda þeim
í skák. Peðstaðan er lokuð, og
Petrosjan býður jafntefli, en Smý-
sloff þraukar áfram í leit að smugu.
Fischer beitir Kónsgindverjanum
gegn Bankö. Enn sem oftar flæm-
ist flóttamaðurinn frá öllum ákvörð
unum á miðborði, þar til hann sér
sér leik á borði. Með því að fara í
drottningakaup, varna hrókum and
stæðingsinus, en hróka sjálfur með
skák, vinnur hann ekki einungis
tíma, heldur umflýr nær alla tap-
hættu og heldur frumkvæðinu. Mis-
litir biskupar setja þó brátt jafn-
teflismark á skákina.
Friðrik teflir Nimzo-indverjann
gegn Gligorie. Hinn síðarnefndi
fær einbúa á d-línunni, en heldur
frjálsu tafli. Brátt verða drottn-
ingarka'up, og fær þá Gligoric færi
á að skipta upp á einbúanum, en
á meðan verða enn mannakaup.
Loks kemur upp endatafl, þar sem
Gligoric hefur hrók og riddara á
móti hrók og biskupi Friðriks. Með
lausum peðum á báðum vængjum
er biskupinn sízt lakari en riddar-
inn, og þar sem hvorugur á frí-
peð, er jafnteflið líklegasta höfn-
in, þegar lagzt er við akkeri bið-
skákarinnar.
1 Fjórða umferð 11. september:
Tal — Friðrik 1—0
• Fischer — Gligoric 1—0
Smýsloff — Benkö V2—V2
Keres — Petrosjan biðskák
Ekki er ofsagt, að nú sé Sikil-
eyjarvörnin í tízku. Henni er beitt
í öllum skákum dagsins. Lengi
fylgjast þeir Friðrik og Benikö að
á móti Tal og Smýsloff, og kepp-
endur taka að brosa, því þetta er
upphafið að Gautaborgarleiðinni
frægu, sem varð þremur Argentínu-
mönnum að falli samtímis gegn
Rússum á mótinu í Gutaborg 1955.
Brátt breyta þó Friðrik og Benkö
út af þvi afbrigði og hafa í huga
peðsrán, sem hefur gefið svörtum
nokkra sigra, þótt andstæðingurinn
fái sókn. Ekki koma þeir þó að
tómum kofunum hjá Rússunum
hér. í níunda leik kemur Tal með
nýjung, sem hann ségir að sé eftir
forskrift Smýsloffs, og verði hann
að treysta því, að fyrrveraridi
heimsmeistari vaði hér ekki reyk.
Svartur getur nú ekki tekið peðið
vegna drottningartaps, og Friðrik
verður að tefla stöður, sem eru
andstæðingi hans þegar kunnar.
Tal hefur teflt þetta eitt sinn áður
í heimalandi sínu. Eyðist nú mjög
á tíma íslendingsins.
Smýsloff teflir að sjálfsögðu
einnig nýjung sína, en I 15. leik,
er leiðir skiljast, velur Smýsloff
laltara framhald en Tal og lendir
brátt í erfiðleikum. Benkö vinnur
peð og litlu síðar brý.tur hann
‘kógnsstöðu andslæðingsins með
skiptamunsfórn. Smýsloff <sér nú,
að staða hans er verri, og .tekur
þá þann kosíinn að bjóða jáfritefli.
Þiggur Benkö boðið. Hann á aðeins
tvær mínútur eftir fyrir 13 leiki.
Tal tekst að ná drottningarkaup-
um við Friðrik, sem verður að
leika hraðskák í lokin. Tekst Tal
síðan að njóta liðsmunar á drottn-
ingarvæng, þar sem Friðrik'er veik-
ur fyrir.
Gligoric velur aðra leið en þeir
tvímenningar, en uppsker þó ekki
meira. Fischer teflir byrjunina
mjög vel. Eftir 18. leik hefur hann
opnað sér sóknarlínu að kóngi and
stæðingsins, sem hann einnig press
ar á tíma. Algengt er, að Fischer
eigi eina klukkustund til góða
gegn gegn andstæðingum sínum,;og
virðist hann stundum leggja meira
kapp á hraðann, en gæði leikjanna.
Gligoric tekst ekki að ná gagnsókn
að marki. Grípur hann þá til þess
örþrifaráðs, að kasta góðum kóngs-
biskupi fyrir riddara og peð. Litlu
siðar fórnar Fischer. skiptamun, og
er þá endirinn augljós. Gligoric
fær það erfiða verkefni, að leika
10 leikjum á mínútu í tapaðri
stöðu. Ratar hann þá skiótt í eitt
af mátnetum síns unga andstæð-
ings.
Um skákina Keres Petrosjan var
rætt áður.
Biðskákir 12. september: .
Gligoric — Friðrik V2 —V2
Benkö — Fischer V>—Vz
Petrosjan — Smýsloff V2—-V2
Keres — Tal 1—0
Keres — Petrosjan 0—1
Eftir aðeins einn leik bauð Frið-
rik jafntefli. Gligoric þáði, og fékk
Friðrik þannig sinn fyrsta hálfa
púnkt, og mátti helzt ekki seinna
vera. Fischer náði brátt þráskák á
Benkö. Hefði mátt semja fyrr í
þeirri skák. Smýsloff þraukar enn
lengi í riddaraendataflinu við Pgtro
sjan, en einnig þar verða áætluð
úrslit, er keppendur þráleika.
Keresi tekst brátt að vinna hið
veika peð á drottingarvæng Tals,
og verður það hinum síðarnefnda
að falli.
Loks hefst síðasta skákin, bið-
skák þeirra Keresar og Petrosjans.
Petrosjan hefur látið .svæ ummælt.
að staða hans í biðinni hafi verið
hlutlægt töpuð. Víst var um það,
að flestir töldu stöðu hans lakari.
Keres sá sér enga hættu búna og
fór að engu óðslega. Síðar ‘kom í
Ijós, að sumir leikir hans hjálpuðu
andstæðingnum dyggilega í ráða-
gerðum hans. Keres átti nógan