Tíminn - 06.12.1959, Blaðsíða 2

Tíminn - 06.12.1959, Blaðsíða 2
'2 í M rWNi' suhnödaginh 6; 'aésemóer HSáT sigraoi bæjarstjórnarforsetann Á fundi bæjarstjórnar á fimmtudagskvöldið bar Þórð- ur Björnsson, bæjarfulltrúi Framsóknarmanna, upp svo- hljóðandi tillögu: „Bæjaistjórn ítrekar fyrri sam- þykktir sínar um nauðsyn þess, að sveitarfélögum verði aflað nýrra tekjustofna. Felur bæjar- stjórn bæjarráði að hefja við- ræður við fjármálaráðherra um þetta mál, þar á meðal um, að sveitarfélög' fái hluta af sölu- skatti. Þá skorar bæjarsíjórn á Alþingi að samþykkja lög um að fjórði hluti söluskatts skuli renna til bæjar- og sveitarfélaga og skiptast milli þeirra eftir íbúafjölda. Væntir bæjarstjórn forgöngu fjármálaráðherra um þetta mál.“ Þórður minnti síðan á, að út- svör væru nú orðin langmesti tekjustofn bæjar- og sveitarfélaga, en aðrir tekjustofnar hverfandi litlir. Alltaf koma fram nýjar og meiri kröf-ur um hvers konar stuðn ing bæjar- og sveitarfélaga við einstaka aðila og hefur sú þróun leitt til stóraukinna útgjalda og þá um leið síhækkandi útsvara til að fylla þá sjóði, sem jafnharðan eru tæmdir. Útsvarsbyrðarnar þyngjast Útsvarsbyrðar Reykvíkinga hafa stórþyngzt á síðustu árum og eru fyrir löngu komnar í það hámark, sem unnt er að þola, bæði á lág- tekjumönnum og atvinnufyrirtækj um. Það er því nauðsyn að fara aðrar leiðir til að afla bæjar- og fcveitarfélögum tekjustofna. Söluskattur, auk tolla, er nú að rverða einn aðaltekjustofn ríkisins. Virðist því eðlilegt og réttlátt, að bæjarfélögin fái að njóta hans að r.okkru leyti svo mjög sem nýir tekjustofnar eru nú nauðsynlegir til að koma í veg fyrir sívaxandi útsvarsbyrðar. Hæg heimafek Bæjarstiórn hefur oftar en einu Einni gert samþykktir um að bæj- arsjóði verði afiað nýrra tekju- etofna, og ættu nú að verða hæg heimatökin að ræða þetta mál við forseta bæjarstjórnar, sjálfan fjár- málaráðherrann, sérstaklega þar eem hann hefur sjálfur áður gert hliðstæðar tillögur um þetta mál. Er Þórður hafði lokið máli sínu reis’ upp Geir Hallgrímsson, borg- arstjóri fjármála, og bar fram frá vísunartillögu á þeim forsendum, eð mál þessi yrðu tekin til end- urskoðunar af núverandi ríkis- fctjórn. BreytingartiHaga komma Þá bar Guðmundur Vigfússon, bæjarfulltrúi Alþýðubandalagsins, fram viðaukatillögu við tilögu Þórðar Björnssonar svohjóðandi: „Jafnframt skorar bæjarstjórn- in á forseta sinn, núverandi fjár- málaráðherra, til að sjá um, að hliðstæðar greiðslur og framlög n'kissjóðs til bæjarsjóðs verði skilvíslega inntar af hendi meðan hann fer með fjármál ríkisins.“ Minnti Guðmundur á, að Gunn- ar Thoroddsen, núverandi fjár- málaráðherra, hefði á Alþingi, 1951, flutt tillögu um að sveitar- íélögin fengju einn fjórða sölu- skattsins. Alfreð Gíslason, bæjarfulltrúi Alþýðubandalagsins talaði næstur og upplýsti að Gunnar Thorodds. hefði snúizt gegn eigin tillögum við umræður á Alþingi nóttina áður, er þessi mál voru til um- ræðu, og virtist nú sem fyrri á- hugi hans og meirihluta bæjar- stjórnar fvrr nýjum tekjustofnum bæjarsjóði til hanua, væri rokinn út í veður og vind, en nóttina áð- ur var feild á Alþingi tillaga um að sveitarfilög fengju hluta af söuskatti, Guíinar Thoroddsen, flutningsmaður hliðstæðrar tiPögu árið 1951, greiáci þá atkvæði gegn tillögunni, Björgvin Frederiksen taiaði mjög á móti söluskatti og taldi að bæjarfélagið gæti alls ekki tekið r móti slíkum tekjustofni. Forseti bæjarstjórnar, Gunnar Thorodtlsen, fjármálaráðherra, sté rú úr forsetastólnum og tók til rnáls. Leyndi það sér ekki, að það var ekki bæjarfulltrúinn. sem tal- aði, heldur fjárniálaráðherrann. Taldi hann ekki fært að saTn- þykkja framkomna tillögu Þórðar Björnssonrr, og hefði hann þegar skipað menn til að hefja endur- skoðun á tekjustofnum bæjar- og sveitarfélaga. Kæmi mjög til álita hvort bæjar- og sveitafélög ættu ekki að fá aðra tekjustofna en hluta af söluskatti. Þórður Björnsson tók nú aftur til máls. Kvað hann viðbrögð bæj- arstjórnarnieirihiutans í umræð- unum nú vera alleinkennileg. Gunnar Thoroddsen hefði átt uppá stunguna að því, að krefjast þess, að bæjar- og sveitarfélög fengju hluta af söluskatti. Hefði hann hvað eftir annað látið meirihluta bæjarstjórnar samþykkja áskor- anir til Alþingis og ríkisstjórnar um þetta, seinast 6. desember 3956. Nú væri hann allt í einu kominn í þá aðstöðu sem fjármála ráðherra að koma máli þessu á- leiðis og í framkvæmd, en þá gerðist það einkennilega, að allur áhugi fyrir málinu virtist vera horfinn. Fylgismenn bæjarstjórn- armeirihlutans virtust jafnvel ekki vilja fá söluskaitinn í bæjarsjóð. Að lokum kvaðst Þórður ekki trúa þv ífyrr en á reyndi í atkvæða- greiðslu, að bæjarstjórnarmeiri- hlutinn þyrði að vísa tillögu hans frá eftir allt það, s'em á undan væri gengið. Endalok tillögu Þórðar Björns- sonar urðu svo þau, að fjármála- ráðherrann svínbeygði alla -sam- flokksmenn sína í bæjarstjórn til fylgis við sig um að-vísa tillögu Þórðar Bjcrnssonar frá, þegar til atkvæðagreiðslunnar kom. Þannig sigraði fjármálaráðherr- ann bæjarstjórnarforsetann. Meiin til tunglsins (Framhald af 12. síðu). við heimsókn Eisenhowers. Vís- indamenn Sovétríkjanna gera sér nckkrar vonir um að geta náð geimförunum aftur tii jai'ðar með eldflaug, sem sentl yrði upp til að sækja þau í september eða október! 1 Menn út í geiminn fyrir áramót | Prófes-srarni'r tveir segja, að sem undirbúning að þessari tunglreisu muni tveir menn i verða sendir upp í elöflaug og látnir fara umhverfis jörðina í gerfitungli. | Fjórum vikum seinna munu tveir geimmenn útbúnir sjón- varpstækjum fara tvisvar um- hverfis tunglið og snúa síðan aftur til jarðar. Reynslan af þessum ferðum mun verða nýtt til að senda hjónaleysin tvenn til tunglsins. Til Marz 1961 Önnur áform sovétzkra vís- indamanna eru þau meðal ann- árs að senda eldflaugar til Marz og Venusar ,á árinu 1961 og til Mei'kúr og Júpíters ári seinna. Þess utan er ráðgert að geimför með tveimur til sex mönnum fari til Marz og undirbúin er bygging geimfars, sem á að geta flutt um 100 manns hnatta á milli. er miðja athafnarinnar Ný gerð helgitónleika kynAt í Hafnaríjarðar- kirkju annað kvöld Næstkomanéli mánudags- kvöld verður fitjað upp á ný- breytni i helgiathöfnum hér- lendis, með því að flutt verð- ur sérstök gerð helgitónleika i Hafnarfjarðarkirkju. Fyrsta átriði er stutt helgi- stund safnaðarprest-s, en síðan hefjast kirkjutónleikar. Páll Kr. Pálsson, organisti kirkjunnar leikur á orgel, og dr. Hallgrimur Helgason tónskáld sýnir nýja hæfileikahlið með því að leika á fiðlu. Athöfninn lýkur með bænastund prests. Þýzk að uppruna Þessi tegund helgiathafnar er upprunnin í Þýzkalandi um 1920. Upphafsmaður hennar var kant- or nokkur i Krosskirkjunni í Dresden, Otto Richter að naíni. Varð athöfnin þegar vinsæl og breiddist fljótt út um Þýzkaland og viðar, t. d. kynntist sr. Qarðar Þorsteinsson, prófastur í Hafnar- firði henni á stúdentsárum sín- um í Stokkhólmi. A striösárunum fóru athafnir þessar úr skorðum svo sem allt annað, en voru hafnar að nýju eftir stríð og eiga miklum vinsældum að fagna. Hinir lötu koma Er helgiathöfn þessi þannig mjög frábrugðin hinni venjulegu messu, er heíur hugvekju prests- ins að þungamiðju, því með þessari athöfn verður tónlistin þungamiðja. Reynsla erlendis hefur sýnt, að þessar athafnir eru mjög fölsóttar af mönnum, sem annars sækja ekki kirkju. — Páll Kr. Pálsson hefur tekið að sér allan undirbúning að þessari fyrstu helgiathöfn með þessu sniði, séð um útvegun •tónlisar- manna og kóra. Á mánudaginn Fyrstu tónleikarnir verða sem sagt á mánudagskvöldið kl. 21.00 og er aðgangur ókeypis. Hins vegar er samskotabaukur í kirkj- unni og því, sem kann að safn- ast í hann, verður varið til kaupa á úrverki með klukkuspili, sem sett skal í turn kirkjunnar. Ný miólkurstöð Stíflan (Framhald af 12. sfðu). Teikningar grandskoöaöar j í rannsóknarnefndinni sem stjórnin hefur skipað eru auk land búnaðarráðherrans tæknisérfræð- ingar frá ráðuneyti því, er fer með vega- og brúarmái og frá verkfræðideild landbúnaðarráðu- neytisins, en ráðuneyti þetta kost aði og stjórnaði byggingu stíflunn ar. Þá var því haldið mjög á lofti að stíflan væri einstæð í heimin- um, vegna þess' hve hún væri þunn, en stíflan átti að þola þrýsting frá 55 milljón rúmmetr- um af vatni. Þegar hún brast var þrýstingurinn aðeins 49 milljón rúmmetrar. Verkfræðingur sá, sem hafði byggingu stíflunnar með höndum liefur ekkert viljað láta uppi um j málið að svo stöddu, en allar íeikningar að stíflunni verða at- ; hugaðar gaumgæfilega af rann- j sóknarnefndinni og búast má við j að nefndin geti skýrt orsakir slyss jis að því loknu, sagði verkfræð- 1 ingur þessi. j Undirstöðurnar brugðust Yfirmaður ráðuneytis brúa- og vegamála flaug yfir slysstaðinn í þyrlu. Sagði hann að svo virtist jsem undirstöður stíflunnar hefðu j látið undan tvo tii þrjá metra öðru megin. Ki.is vegar er sagt, i að verkfræðin hafi athugað stífluna daginn áður er hún brast i og ekki orðið varir við neitt mis- i jafnt. Gagnrýnd í smíðum Meðan ú smíði slíflunaar. stóú 'var verkið gagnrýnt af ýmsum í ráðamönnum ráðuneytísins, sem j héldu því fram, að stcinsteypar væri ekki nægjanlega sterk fyrir jþsnn vatnsþrýsting, sem hearn var ætlað að þola ; i (Framhald af 12. síðu,. ar, og er hún nú upp komin og hin vandaðasta. Eru þar geril- sneyðingartæki' fyrir 500 lítra á klukkustund. i Húsig er 126 fermetrar. Er þar móttökuklefi og vélasalur, svo og mjólkurbúð, ketilhús og snyrti- j herbergi, allt mjög vandað að frá i gangi og flísalagt. í kjallara er : kæligeymsla o.fl. Þórilr Baldvin I son arki'tekt teiknaði húsið, en Erlingur Ólafsson var yfirsmiður. Raflagnir annaði'st Kristján Lund berg en múrverk að mestu Hans Steffensen. Vélarnar eru frá Silkiborg í Danmörku. Daglegan rekstur mjólkurstöðvaxinnar mun Ingi Sigmundsson annast. For- maður kaupfélagsins er Guðjón gahlíí VS Aðalfundur LÍÖ hefst á morgun Dregizt hefur a3 halda fundinn vegna dráffar á ákvörSunum í efnahagsmálunum Neitar atí Iétta ... Framhald af 1. síðu. lán að fjárhæð rúmar 30 millj. kr. á þessu ári en árið 1956 námu þau 63,6 millj. og s. 1. ár tæpum 49 millj. Þó hefur byggingarkostn aður farið hækkandi á þessu tima bili. Staðreyndin er líka sú, að , hreint neyðarástand ríkir í þess- i um málum víða um land. Hjá j Húsnæðismálastjórn lágu 1999 umsóknir um ný lán og viðbótar- lán þann 1. des. s. 1. og þau lán, sem veitt hafa verið á þessu ári, 1 eru að meðaltali aðeins um 40— 50 þús. kr. eða um Va hluti af verði ódýrustu 3—4 herbergja íbúða. Þegar ríkisvaldið er ekki fært um að halda í gangi starfandi veðlánakerfi til íbúðabygginga og lánastofnan’r eru auk þess lok- aðar að me.-tu fyrir húsbyggjend- um, er full.iomlega óréttlátt að hið opinbera skattleggi bygging- arkostnað jafn slórkostiega og r.ú er gert. Því er hér íagt til að -fiiuskatfur og útfluvningssjóðs- -iald =em nú neinur 9% af verð- .æti attskyidrar vinnu og efnls v ‘v,,dur niðuv.“ /. i ímJ . ÍMANUM Aðalfundui' L.Í.Ú. hefst hér í bænum kl. 2 síðdegis á morg un í Tjarnarkaffi og sækja hann um 80 fulltrúar víðs veg ar að af landinu. Er þetta 20. 1 aðalfundur sambandsins, en það var stofnað 17. janúar 1939 og varð því 20 ára á þessu ári. — Búizt er við, að fundurinn standi til miðviku- dagskvölds. Formaður L.Í.Ú., Sverrir Júlíus ' son, setur fundinn með ræðu, en að því loknu verður gengið til nefndakosninga. Aðalfundir L.Í.Ú. hafa að jafn- aði verið haldnir nokkru fyrr en nú eða í nóvembermánuði, en þar sem víst þótti, að dráttur mundi verða á ákvörðunum í efnahags- málum nú, var ákveðið að draga fundinn nokkuð. Sjómannaeklan Eins og venjulega verður rekst- úrsgrundvöllur siávariútvegsinís á framtíðinni aðalviðfangsefni fund arins. Einnig mun mörg önnur mál bera á góma, svo sem land- helgismál, öryggismál o. fl. og síð ast en ekki sízt sjómannaekuna, sem nú e'ins og mörg undanfarin ár virðist vera yfirvofandi. Gert er ráð fyrir að sjávarút- vegsmálaráðherra ávarpi fundar- Bruninn Framhald af l. síðu. o.g Ragnar Vignir, fonstöðumað- ur tæknideildar austur að Litla- Hrauni í gær til að ranmsaka málið og grafast fyrir um það, hver eða hverjir eru valdir að íkveikjunni, en það er ckki vitað. 20—30 faogar eru nú á Litla- Hrauni, ,og sagði Frím;um Sig- urðsson, að gæzlumenn litu þennan atbur'f mjög aZvarleg- um ausgum þar sem sýnilegt þyk Ir a® kvelkt hafi verið í skömmu óður en fangarnir áttu að lokast ianL menn og að dr. Jóhannes Nordal, bankastjóri, haldi ræðu um liorf- ur í verzlunarmálum Vestur-Evr- ópu. Blaðið mun birta nánari fréttir af fundinum. Skyndihapp- drætti og heima- bakaðar kökur Á undanförnum árum hefur Kvenfélagið Hringuriinn haft þann si'ð að efna til jólakaffis fyrsta sunnudag í desember, og verður það nú haldið sunnudag- inn 6. þ.m. í Sjálfstæðishúsinu kl. 2 e.h. Ágóðinn rennur vitan lega allur, sem fynr, til Barna- spítalasjóðs Hringsins. í salnum verður fagurlega upp búið jólaborð með gómsætum kökum og jólabrauði, sem Hring konur hafa sjálfar bakað, en í litla salnum verða seldar heima bakaðar ismákökur, heimatiibúið sælgæti, jólagreinar og annað skraut á jólaborði'ð. Eins og að undanförnu verður margt annað til skemmtunar. Spá kona spáir fyrir gestum og efnt verður til skyndihappdrættis um 'leikföng, og er aðalviinningurinn skíðasleði. Jólakaffi Hringsins hefur jafn an verig vel sótt, enda ávallt vel til þess vandað. Bæjarbúar hafa, ungir sem gamlir, sótt þessa samkomu vel og sýnt með því hug sinn til Barnaspítalans og vilja sinn til þess aö hann verði sem bezt búinn öllum tækj um. Les»é Tímaíí^

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.