Tíminn - 06.12.1959, Blaðsíða 7

Tíminn - 06.12.1959, Blaðsíða 7
TÍMINN, sunnúda’ginri 6. deíemfeer 1959. á - SKRIFAÐ OG SKRAFAÐ - Barátta ríkisstjórnarinnar gegn þingræSine - Einstæð tillagaumþingfrestun - Óþekktfyr- irbæri í fiingræSisiöndum ~ Bandormur ríkisstjóraarinnar - BráoabirgSalögin, sem átti að fela -Fjárlagaræðan - Hvar var fjármálaráSherrann? - EinstæS skerSing á máSfrelsi S>ing- manna - Enginn sparnaSur - Hver er tilgangurinn? -* Þjéðin þarf að vera vel á verði - Það er nú komið hátt á þriðju viku síðari núv. rikisstjórn settist í stólana, en ekki bólar þó enn neitt á iþeim eí'nahagsráðstöfunuim, sem ríkisstjórnin lofaði. Samt verð ur að viðurkenna það, að stjórnin hefur gerzt talsvert athafnasöm. Hún hefur sett sér það takmark að losna sem mest við Alþingi. Við það að koma fram þessu áformi hefur hún verið að basla undanfarnar tvær vikur og aðrir eins smámunir og efnahagsmálín horfið í skuggann hjá henni á Irieðan. Vegna þessara vinnubragða ríkis stjórnarinnar hefur þ'ngbyrjunin mi orðið með allt öðrum hætti en áður. Plvert verkið hefur rekið annað, sem er algert einsdæmi í þingsögunni. Nokkur þs:rra skulu rifjuð hér upp staðhæfingu þess- arj til frekari sönnunar. þótt þar væri um hin ólíkustu mál i að ræða, eins og t. d. sjávarútvegs- mál, menntamál, varnarmál og fjárlög. Þetta myndi að sjálfsögðu alveg gérbreyta öllum þingstörf- um og torvelda stórkostlega að- stöðu þingsins t;l ao hafa áhrif á mál, auk þess, sem því imyndi fylgja 'Stórfelldasta skerðing á málfrelsi þjngmanna. Með bandormsfrumvarpi ríkis- stjórnarinnar er því -stigið stórt > spor í þá átt að reyna að þrengja kost þingræðisins og draga úr áhrifum Alþingis og aðhaldi því, sem það á að veita ríkisstjórninni. tiflagan Ekki var liðin nenia vika af þing haldinu, þe.gar forsætisráðherra har fram þá tillögu, að Alþingi yrði sent heim eftir að það hafði setið 10 daga að störfum. Hliðstæð tillaga hefur aldrei verið borin fram hér áður. Slík tillaga mun líka alveg óþekkt í þeim löndum, þar sem þingræði stendur föstum fótum. Engin fordæmi imunu fyrir slíkri tillögu í Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Bretlandi, Hollandi og Belgíu, svo að nokkur helztu þingræðislöndin séu nefnd. í þessum löndum kemur það iðu- lega fyrir, að ríkisstjórnir hafi ekki tillögur sínar strax tilbúnar í ýmsum aðkallandi málum. En ríkisstjórnirnar fara þá ekki þann ig að, að þær sendi þingið heim, heldur vinna í samráði við það að undirbúningi málanna. Þingið er ekki sett til hliðar, heldur höfð isamvinna við það. Þanni.g vann líka vinstri stjórnin hér, sem Mbl. hneykslast nú imest yfir. Þar var aðeins unnið samkv. löghelgaðri og hefðbundinni venju í öllum þ ingr æ ð is 1 ö ndum. Það er líka fuilkominn misskiln- ingur á verksviði þingsins, að það eigi aðeins að s'nna málum, er ríkisstj. undirbýr. Þingið sjálft á að hafa frumkvæði varðandi alla löggjafarstarfsemina. Þingin geta því haft ærið að starfa. þólt ekki liggi fyrir tillögur frá stjórninni. Slík-t gildir líka hér að þessu sinni. Á hínu nýbyrjaða þingi liggja þeg ar fyrii1 margar tillögur, svo að þingið þarf ekki að fara heim yegria yerkefnaskorts. Til þess að finna fordæmi fyrir þingfrestunaitiJlögunni verður að fara t 1 þeirra landa, þar sem einræðissinnaðar stjórnir hafa þok að þingræðinu til hliðar og byrjað á því að senda þ ngið heim. He;m- sending þingsins var eitl fyrsta skrefið í vaidatöku Hitlers. Bandormurinn Það var ekki lieldur liðin nema rétt vika af þinghaldinu, þegar ríkisstjórnin greip tii þess ráðs að skella saman f.mm frumvörpmn, sem hún hafði flutt, í eitt frum- varp til þess að koma í vég fyrir, að þau ’hlytu venjulega þinglega meðferð. Þetta nýja frumvarp rikis stjórnarinnar, sem gengur undir nafninu Bandormurinn, er alveg ■einstætt í allri þingsögunni. Ei lengra væri haldið áfram á þeirri brau-t, gæti ríkisstjórnin lagt fram öll mál. sem hún vildi leggja fyrir þingið, í einu frumvarpi, enda Það eru skýr ákvæði stjórnar- skránni, að rikisstjórn beri að leggja bráðabir.gðalög fyrir Alþingi og á vitanlega að gera það í þeim tilgangi, að þau fái þar þinglega afgreiðslu. Þetta ákvæði ætlaði ríkisstjórnin nú bersýnilega að brjóta og senda þingið heim áður e;i það fiallaði nokkuð um bráða- birgðalögin um afurðaverðið, sem stjórn Emils Jónssonar gaf út á síðastl. hausti. Það var fyrst eftir að stjórnarandstæðingar voru bún ;r að krefjast þess dag eftir dag, að lö.gin vrðu lögð fram, að stjórn- in lét undan síga, en þó ekki fyrr en svo, að hún á.auðvelt með að koma í veg fvrir, að þau fái end- anlega afgreiðslu. Ef til vili stafa þessi vinnubrögð stjórnarinnar eitthvað af ósam- komulagi milli stjórnarflokkanna um bráðabirgðalögin, en öðrum þræði eru þau sprpttin af við- le'fni stjórnarinnar til að draga úr valdi Alþingis. Fjárlagaræðan Samkvæmt lögum og venjum á fyrsta umræða fjárlaga að fara 'fram í þingbyrjun og fjármálaráð- herra að flytja við það tækifæri yfirlitsræðu um afkomu ríkisbú- skaparins og þjóðarbúskaparins. Hinn nýi fjármálaráðherra, Gunn- ar Thoroddsen, hefur nú lýst yfir því, að hann muni bregða út af þes-sari venju, og ekki i'iytja fjár- laigaræðuna fyrr en á framhalds- þinginu. Þetta þýðir sama og að halda fyrir þinginu og þjóðinni upplýsingum, sem þessum aðilum her að fá og að víkjast undan skyldum, sem f.jármálaráðherra hefur haft við Alþirigi. Fyrir þessu háttalagi sínu hefur fjármálaráð- herra enga réttmæta afsökun. Þa'ð, sem hér er að gerast, er það, að verið er af ásettu ráði að sýna Alþingi Íftilsyirðingu og brjóta niður þær skyldur, sem hvíla á ráðherrum gagnvart Al- þingi. Týndi fjármála- ráðherrann Hinn nýi fjármálaráðherra virð- i&t ekki heldur ætla að láta því lokið með 'þessu að sýna Alþingi lítilsvirðingu og traðka á rétti þess. Hingað til hefur þaft þótt sjálfsögð skylda ráðherra að vera viðstadda á Alþingi, þegar rætt er um mál, sem heyra undir ráðú- neyti þeirra. Aðfaranótt föstudags- ins gerðust þeir atburðir á Alþingi að verið var að ræða bráðabirgða- fjárlög eftir kröfu fjármálaráð- herra, án þess að hann væri þó sjálfur viðstaddur. Þingmenn undu þessu að sjálfsögðu illa og Icröfð- ust þess af forseta, að hann gætti Þessi mynd var tekin í neðri deild Alþingis í fyrrinótt, þegar Eysteinn Jóns- son mótmæiti því gerræði a3 láta ræða bráöabirgðafjáriög í deildinni að fjármálaráðherra fiarstöddum. Stjórnarliðið lét hefja leit að Gunnari, en hann fannst ekki, og það varð að gefast upp fyrir réttmætri kröfu um að taka málið af dagskrá, þegar svona stóð á. róttar þingsins í þessum efnum. Hvorki forseíi né flokksbræður ráðherrans kunnu skýringu á fjar- veru ráðherrans og mikil viðlsitni forseta til þess að fá ráðherraun til að mæta bar ekki árangur. For- seti tók því þann kost að slíta fundi. eru nú lið:n 10 ár síðan það var seinast ger.t á Alþingi. Til slíks bragð? hefur aldrei ver'ð gripið I þ ngbyrju i fyrr en nú. Hér hefur ríkisstjórnin því stigið nýtt, alveg e:p'ta;U -kref í þá átt, að skerða málfrelsi þingmanna og þar með réit Alþ-ngis. Þegar ráðherrann mætti svo í þinginu daginn eftir, .gaf hann enga skýringu á þessari fjarvist sinni og ít'ÍnStíPtf baðS't síður en svo afsökunar á henm': í .stað þess var hann sá hortugastj og kvað ráðherra hafa engar skyldur við Alþingi í þess- um eínum. Hér virðist því vera að ræða urn e'nn þáttinn í þeirri við- leitni rikisstjórnarinnar að lítils- virða Alþingi og auka yfirgang ríkisstjórna gagnvart því. ofríkisverk Niðurskurður umræðna Hina sömu nótt og hin leyndar- dómsfivlla fjarvist fjármálarað- herra átti sér stað. gerðist sá at- burður á Alþingi, að stjórnarliðið í neðri deild ákvað að tillögu for- seta, er byg.gð var á fyrirmælum ríkiss'tjórnai’innar, að skera niður umræður. Þetta verk var byggt á algerri rangtúlkun þingskapanna. Þingskp heimil,, að skera nið- ur umræður, ef „umræða hefur dreg:zt úr hófi fram“, en viðkom- andi umræða hafði aðeins staðið í 61.2 klst,,1 sem ekki þykir löng urnræða á Alþingi, ef um melri- háttar mál er að ræða, eins og var að þessu s:nni. Því valdi forseta og þingdeildar að skera n:ður um- ræður hefur yfirleitt ekki verið beitt nema um alveg sérsíaklega knýjandi nauðsyn sé að ræða, énda Þá gerðist það á Alþingi á mið vikudaginn, að'stjórnarliðlð felldi í same' iuðu Aiþingí að taka á dag krá mál, sem var miðað við afgreiðslu fvr'r áramct og því þurfti að r-æða fyrir þingfrestun- ina. Þetta mál var tillaga Fram- sóknarmánna um fjáröflun t.sl byg'gingarsjóða. Allir þ'ngflokk- arnir telia sig slíkri fjáröflun fylgj andi og því hefði meðferð þessa máls ekkj átt að þurfa að tefja þ'ngstörfn. Stjórnin fyrirskipaði samt þingliði s.’nu að fella það, að þetta mál væri tekið á dagskrá. Slíkt ofríki hefur aldrei áður átt spr stað .á nýbyrjuðu þing', en mun e'ga sér örfá fordæmi í sambandi við þinglok, þegar um meiriháttar deilumál hefur verið að ræða. Hér er því um alveg einstæðan atburð að ræða, sem sýnir vel. hvernig rík:'ssljórnin reynir nú á allan háll að draga úr íhlutun Alþingis og veikja áhrif þess. Enginn sparnaður, nema síður sé Það, sem hér hefur verið rakið. sýnir það o.g sannar, að ríkisstjórn in hefur sett sér það mark og mið að þoka Alþingi sem mest til hlið- ar og draga valdið frá því í hend- ur ríkisstjórnarinnar. Fyrir slíkri þingfrestun, sem hún fer fram á, er t. d- hvergi fordæmi að finna í neinu þingræði'slandi. Ei-nu for- dæmin er að f:.nna í löndum, þar sem einræðissamar stjórnir hafa brotizt ti'l valda og byrjað á því að senda þingin heim. Stjórnarliðar eru líka farnir að gera sér ljþst, að þeir hafa hér hæpinn málstað í nxeira lagi. Því eru þeir nú far.nir að hafa sér það einkum til afsökunar, að þingfrest- un:n muni hafa hinn mesta sparn- að í för með sér og því sé hún rétt- lætcnleg. Þetta sparnaðarhjal heyrðist að vísu ekk:. þegar þeir voru að fj'ölga þingmönnum í 60 úr 52. Sannleikurinn er líka sá, að enginn sparnaður mun fylgja þingfrestuninni. Lögum samkv’. nunu þingmenn halda kaupi sínu 3 meðan og hreint rr.nglæti væri að svipta starfsfólk þingsins laun- um á meðan, þar sem það hefur ráðið sig með t:lliti til þess, að um ■samfelldan starfstíma yrði að ræða o? því slermt öð-nui störfnm. Vegna þingfrestunarinnar má hins vegar búast við lengra þingi í vet- ur en ella, og verður þó niðurstað- an 'SÚ, að þingfrestunin mun að- eins hafa aukin útgjöld í för með sér eða sem svarar því kaupi, sem gre'tt verður, meðan hún stendur yfir. Þannig falla allar þær afsakanir um si’álfar sig, sem stjórnarsinnar nota scr til afsökunar vegna að- farar ríkisstjórnarinnar gegn Al- þingi. Þingið og þjóðin Raunar þarf það ekki að koma á óvart, þótt hin nýja ríkisstjórn taki 'sér til fyrirmyndar þær er- lendar ríkisstjórnir, sem hafa kom- ið þ'ngræð'nu á kné. Það forys'tulið, sem nú er að taka völdin í Sjálístæðisflokknum, var gegnsýrt af nazisma, þegar vegur Hitlers var mestur í Þýzka- landi. Guanar Thoroddsen lét svo ummælt, þegar íslendingar höfðu Öllu me'ri verzlunarviðskipti við Þýzkaland H'tlers en nokkurt land annað, að íslendingar yrðu áð haga stjórnarháttum sínum með hliðsjón af stjórnarfari þeirra þjóða, er þeir hefðu mest verzlun arviðsklpti við. Augljóst var hvrið Gunnar meinti með þessu. Vinnu brögði ná Alþirigi seinustu daga tienda til þess að Gunnar hafi enn ekki gleymt barnalærdómi sínum. Ýmsir munu haí'a gert sér von. um, að slík vinnubrö.gð myndu sæta mótspyrnu af hálfu Alþýðu- flokksms. Það verður.ekki af AI- þýðuflokknum haft, að hann hef- ur fram að þessu verið eindreginn lýðræðisflokkur. Þau ósköp hafa hins vegar grlpið forystumenn hans í sei'nni tí3, að þeir verði í öllum höfuðmálum að bjóða upp á sömu stefnu og Sjálfstæðisflokk- urinn og helzt að vera hægra meg- in við hann. Meðan Alþýðuflokkurinn er haldinn riíkum álögum, getur þing ræðl cg lýðræði ekki vænt mikils stuðnmgs frá honum. Þjóðin verður því að fylgjast vel með aðför ríkisstjórnarinnar gegn Alþingi og vera reiðubúin til að grípa í taumana, ef þörf krefur. Takist stjórninni að lama áhrifamátt Alþingis, mun inargt illt á eftir fylgja fyrir alþýðustéttir land'sins og tii þess' eru refiraií! líka skornir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.