Tíminn - 28.01.1960, Qupperneq 10
10
TÍMINN; fimiutudaginn 28. janúar líMJð,
VilKjálmur Einarsson: ÍJíróttamenn fyrr og nú
4. grein
í hef ég víst efni á níu“
Lítt kunnur skíðamaður norskur
eistari í 50 km. skíðagöngu
Norðmaðurinn Willy Rögeberg. Myndin er tekin, þegar hann setli
heimsmetið í skotfimi í Berlín 1936.
Hér kemur frásögn af íþrótta-
afreki, sem hljótt hefur verið
um. íþróttagreinin, sem afrekið
var sett í er líka róleg og hl.jóð-
lát, að undanteknum snöggum
mjög háværum hvellum, hér er
um að ræða skotfimi.
Góð frammistaða í þessari ná-
kvæmnisþraut krefst mikils
jafnvægis og afslöppunar á
taugum, útilokun frá umhverfi,
stjórn yfir hverjum vöðva.
Skotin eru alls 30, sem skotið
er úr ákveðinni fjarlægð með
vissu miliibili. Eftir bví sem á
líður keppnina vex spenningur-
inn um hvað hver lokaniður
staðan verði, ef vel hefur
gengið verður ávallt meira og
meira í húfi við hvert skot.
Fregnir berast af keppinautum,
sem liafa verið stálheppnir með
s'kot. Heldur þú ekki, lesándi
góður, að taugarnar fari að
;,titra, eftir að þú hefur hlaðið
6—7 skotum í miðpunktinn?
Það skeði á Ólympíuleikun-
um í Berlín 1936. Markið er 20
cm. í þvermál, og miðpunktur-
inn er á stærð við tveggeyring.
Fjarlægðin er 50 metrar -—
frá miðjum knattspyrnuvelli og
í mark.
Nú víkur sögunni að lágvöxn-
um Norðmanni, Willy Röge-
berg. Með vélrænhi nákvæmni
skaut hann hveriu skotinu af
öðru, öilum beint í miðpunkt-
inn. Milli tilrauna lagði hann
höfuðið á púða, lokaði augun-
um til að hvíla sig á milli skot-
anna. ,
Venjulega eru áhorfendur
hinir rólegustu við slíkar
keppnir, en þegar litli Norð-
maðurinn hafði þannig raðað
26 skotum í miðpunktinn voru
flestir viðs'taddir komnir svo
nólægt honum, sem leyfilegt
var.
Allir skotmenn í siíkri
keppni hafa aðstoðarmenn. sem
hafa það hlutverk, að kík.ja í
sjónauka og segia skyttunn: frá
stigatölu. eða aðstoða á annan
hátt. Aðrtoðarmaðurinn Sverre
Glomes átti bágt með að dyl.ia
eftirvæntinguna, aldrei hafði
nokkur maðúr í sögu skot-
keppninnar áður náð slíkum
árangri. Hinn minnsti misgán-
ingur gat þó eyðilagt heildar-
árangurinn.
Það er enginn barnaleikur
þótt ekki sé nema sjá mið-
punkt-inn í 50 m. fjarlægð.
Rögeberg var nú tilbúinn að
hleypa af því 27. Hann miðaði,
hleypi örugglega af og einu
sinni enn fékk hann 10 stig.
28. skotið reið af. Hönd aðstoð-
armanns;ns' titraði þegar hann
lyfti sjónaukanum:
„Ekki ber á öðru. enn einn
tugur!
Loftið var mettað af tilfinn-
ingum áhorfenda. Það var graf-
þögn. Litli Norðmaðurinn velti
sér til hliðar á koddanum og
sagði: ,,Nú hef ég víst pfni á
níu.“
„Það er engin ástæða til að
spara, af hverju elcki að taka
eina tíu í viðbót?“
Og enn ein tía fylgdi, en þar
skall hurð nærri hælum! E. t. v.
haíði bessi stutta viðræða rask-
að örlítið hugarjafnvægi Röge-
bergs, ef til vill smitaðist hann
örlítlð af stemmningu augna-
bliksins og fann að hér voru að
ske sögulegir atburðir. Farið
var greinilega í níunni að
•mestu, en bíðum við, það snerti
tíuna líka og tilheyrir þá henni
samkvæmt reglunum.
Allir beindu kíkjum sínum að
skífu Rögebergs, enginn vildi
missa af því að sjá met met-
anna, ef
Nú sýndi Rögeberg fyrir al-
vöru sína andíegu yfirburði.
Ilann vissi að sjöa mundi nægja
til að hljóla gullið, en mark
hans var hærra en það, met
hans skyldi verða óyfirstígan-
legt, aðeins yrði hægt að jafna
það. Með þetta í liuga lagði
hann skeftið að öxl og kinn og
miðaði lengi og vel. Það var
eins og tíminn s'tæði kyrr. Að
lokum reið skotið af. Það var
þrítugasta tían í röð, dómarinn
kom og staðfesti dóminn. Einn
frábærasti atbirrður íþróttasög-
unnar hafði skeð utan við
glaum íþróttavallarins og minn-
ir á spakmæli Leonardos Da
Dincis: „Stærstu fljótin falla
neðanjarðar“.
Frjálsíjiróttama^urinn Reidar Andreasen sigr-
a$i opí komst með því í Olympíuiið Morðmanna
Á sunnudaginn fór fram í
Noregi 50 km skíðaganga í
norska skíðameistaramótinu.
Úrslit urðu mjög óvænt, því
hinn kunni frjálsíþróttamaður
Reidar Andreasen bar sigur
úr býtum með nokkrum yfir-
burðum, og tólcu þó þátt í
göngunni flestir beztu skíða-
göngumenn Noregs.
Andreasen, sem er landsliðs-
rnaður í 3000 m hindrunarhlaupi,
fór heldur rólega á s'íað og var
Hinn kunni markmaður Manch.
United, Harry Gregg, sem er írsk- j
ur landsliðsmaður, og var talinn
bezti markmaðurinn í síðustu
heimsmeistarakeppni, var fyrir
nokkru síðan settur út úr Manch.
liðinu þar sem hann hafði staðið
sig heldur illa í leikium. Hann lék
í varaliðinu sex leiki, en ér nú!
aftur komir.n á sinn rétta stað,
cg hefur sjaldan leikið betur. I
lengi framanaf í fimmta sæti.
Þegar 40 km höfðu verið gengnir
var hann í þriðia sæti, en á síð-
ustu 10 km hafði hann langbezt
úthald og komst þá langt fram úr
keppinaUtum sínum. Sverre Sten-
heim hafði verið fyrstur til þess
tíma, en tapaði rúmum tveimur
mínútum á síðustu 10 km miðað
við Andreasen. í þriðia sæti varð
Ingmund Holtas, og Hallgeir
Brenden í fjórða sæti, en h.ann
sagði eftir keppnina.' að þetta
hefði verið ein erfiðasta skíða-
ganga, sem hann hefði tekið þátt
í. Hinn kunni skíðagarpur Odd-
mund Jensen varð siötti, Harald
Grönningen áttundi og gamla
kempan Martin Stokken i ellefta
sæti.
Eftir þessa keppni er öruggt. að
Reidar Ar.dreasen verður í &lymp-
íuliði Norðmar.na, en fyrirfram
hafði ekki verði reikr.að með því.
Einnig er ákveðið, að Hallgeir
Brenden keppi á öllum vegalengd-
um í Sauaw VaHey, það er 15 km,
30 km og 50 km.
Það er athyglisvert hjá Norð-
mönnum hve margir íþróttamenn
leggja bæði stund á friálsar íþrótt-
ir að sumrinu og skiðagöngu að
j vetrinum. Má í því sambandi minn-
; ast á Martin Stokken og Hallgeir
! Brenden, sem báðir hafa hlaupið
3000 m hindrunarhlaup vel innan
við níu mínútur, en Stokken var
^einnig um árabil bezti langhlaup-
ari Noregs og norskur methafi
bæði í hindrunarhlaupinu, fimni
cg tíu km hlaupum.
nskar kr.
Nýlega var greiddur stór
vinningur hjá dönsku getraun-
unum. Fyrir 12 rétta voru
greiddar 36.300 danskar krómir,
og "átu nokkrir rétt á alla 12
leikina. Kaupmannahafnarbúi
einn var þó sérlega heppinn í
því sambandi, því á einum séðli
hafíi hann tvisvar 12 rétta,
einu sinni ellefu rétta og einu
sinni 10 rétta, af átta röðum.
Fyrir það hlaut hann 76.145
danskar krónur og er því ríkur
niaður.
Skífurnar hans Rögeberg voru 15 og hann skaut tveimur skotum
í hverja. Staersta skífan sýnir þau öll faerS saman. Á 5. skífu sést
hve litlu munaði i 29. skotinu.
Eins og skýrt var frá hér á síðunni í gaer, voru aSstæður mjög erfiðar
(J fyrir skautahlauparana á EM í Osló. Tveggja sm. vatn var á brautunum.
Myndin hér að ofan er af Evrópumeistaranum, Knud Johannesen, er hann
kemur í mark í 1500 m. hlaupinu, og ef myndin prentast sæmilega, sést
„spegHmynd" hans í vatninu á ísnum. Knud sigraði í 1500 m. hlaupinu, og
var það einn óvæntasti sigurínn á mótinu, því langhlaupin hafa verið
sterkasta hlið Knud hingað til.