Tíminn - 07.02.1960, Page 5
5
TÍMINN, sunnndagmn 7. febrúar 1960.
Fásinna
Efnahagsmálafrumvarp ríkisstjórnarinnar er nú fyrir
þinginu. Eins og að líkum lætur á það hörðum and-
róðri að mæta. Verður fátt um varnir hjá stjórnarlið-
um. í ræðu, sem Eysteinn Jónsson flutti við umræðu
málsins á Alþingi s. 1. föstudag, tætti hann sundur þenn-
an blekkingavef stjórnarsinna. Eystemn sagði m.a.:
„Ólafur Thors reyndi í framsöguræðu sinni ekkert
til þess að skýra hvernig þessar álögur koma niður eða
hvernig fjármagnsflutningurinn yrði í þjóðfélaginu af
völdum þeirra eða hvaða afleiðingar þær hefðu.
1. Nýjar álögur til ríkisins samkvæmt fjárlagafrum-
varpinu verða aldrei undir 370 millj. miðað við fjár-
lög 1959 og er þá búið að draga frá tekjuskattslækk-
unina.
2. Heildarverðhækkun innflutningsins, að frádreg-
inni hækkun á rekstrarvörum útflutningsframleiðslunn-
ar (miðað við innflutningsáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir
1960) verður samkvæmt útreikningi Hagstofunnar 595
milljónir.
3. Hækkun á duldum greiðslum og dreifingarkostn-
aöi innan lands og fleira er lauslega áætlað af Hagstof-
unni 152 millj.
Frá dregst svo hækkun á fjárlögum vegna gengis-
lækkunarinnar og niðurfelling innanlandssöluskattsins
vegna Útflutningssjóðs eða 119 millj.
Samtals verður þetta nettó um 1000 milljónir —
einn milljarður.
Þá er eftir að reikna áhrif vaxtahækkunarinnar og
þau hefur mér ekki tekizt að fá áætluð — það dylst mér
ekki, að stórfelld vaxtahækkun bætir hundruðum millj-
óna við þessar álögur. Enn fremur er mér ljóst. að nýj-
ar álögur verða í reynd meiri en í fjárlögunum er áætl-
að og sömuleiðis verðhækkanir vegna gengisbreytingar-
innar.
Lægstu tölur, sem hægt er því að nefna í sambandi
við álögurnar í heild, eftir því hver vaxtahækkunin
verður, eru því 1200—1300 milljónir.
Getur það verið, að ríkisstjórnin hafi ekki reiknað
þetta dæmi eða því er hún að láta í það skína, að kjara-
skerðingin eigi að verða hverfandi iítil? Hvernig dettur
henni í hug að halda því fram, að 152 milljónir í fjöl-
skyldubætur og 37 millj. til aukinna niðurgreiðslna eigi
að vega upp á móti 1300 millj. Það er að hæða sjálfan
sig, að viðhafa slíkan málflutning".
Með hverjum degi verður mönnum Ijósara hvílíkt
glæfraspil hér er verið að leika með fjárhagslegt sjálf-
stæði þjóðarinnar og afkomu alls almennings Hér er
svo glöggt fram á það sýnt, að ekki verður véfengt að
samkvæmt frv. nema nýjar álögur um einum milljarð.
Svo er þjóðinni sagt, að auknar tryggingar og lækkun
tekjuskattsins komi til með að vega því sem næst á
móti þessu. Hvers konar skynskiptmga heldur ríkis-
stjórnin að hún sé að tala við þar sem íslenzka þjóðin
er? Árlegar þjóðartekjur íslendinga eru áætlaðar um
5 milljarðar. Þegar þess er gætt. nvaða heilskyggnum
manni getur þá dottið í hug, að unnt sé að hækka álög-
ur með einu „pennastriki“ um 1 milljarð og ætlast svo
til að fólk trúi því að í því felist engin kjaraskerðing?
Sannleikurinn er sá, að það er fuiikomin fásinna að
ætla sér að framkvæma slíkar aðgerðir með einni koll-
steypu. Það mun leiða þjóðina út > meiri fjárhagslega
erfiðleika en hún hefur nokkru sinni átt í síðan hún
fór að eiga með sig sjálf.“
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Ritstj6rj og ábm.: Þórarinn Þórarinsson.
Skrifstofur i Edduhúsinu við Lindargötu
Símar 18 300. 18 301. 18 302, 18 303 18305 og
18 306 (skrifst., ritstjórnin og blaðamenn).
Auglýsingasími 19 523. Afgreiðslan 12 323
Prentsm. Edda hf.
57 gerðir dráttarvéia
í notkun hér á landi
Dráttarvél meS íslenzku húsi.
Á síðustu áratugum hafa
orðið miklar og stórstígar
framfarir í atvinnulífi okkar
íslendinga. Hefur þar raun-
verulega orðið bylting, sem
reynzt hefur þjóðinni örlaga-
ríkari en nokkuð annað, sem
fyrir hana hefur komið allt
frá landnámstíð.
Bændur nítjándu aldar á fs-
landi voru járnaldarmenn, er at-
vinnulega stóðu að mestu í sömu
sporum og Egill á Borg og Gunn-
ar á Hlíðarenda. En niðjar þeirra
nú á tímum hafa, á sárafáum ár-
um, fleygt hinum fornu amboðum
og nytja í þess stað jarðir sínar
roeð stórvirkum tækjum vélknún-
um, er gefa margfaldan arð á við
það, er fyrr þekktist.
En tæknin hefur í för með sér
margvísleg vandkvæði, sem taka
verður tillit til ef vel á að fara.
Nýlega barst mér til dæmis í
hendur skýrsla um innflutning
hjóladráttarvéla á tímabilinu frá
1942—1960 Samkvæmt henni hafa
á þessu árabili verið fluttar inn
alls 5220 dráttarvélar. Er hér um
ailmikinn 'nnflutning að ræða, en
þó naumast vonum meiri, þar eð
dráttarvélin hefur fyrir löngu
tryggt sér sæti sem hinn „þarf-
asti þjónn“ í bóndans búi. Það,
sem mér fannst athyglisverðast
við skýrsluna, var hve margar
gerðir þessara véla höfðu verið
fiuttar inn, hvorki meira né minna
en 57.
Langmest hefur kveðið að inn-
fiutningí Ferguson TEA-20. en af
þeirri gerð hefur verið flutt inn
1481 vél. Næstar í röðinni eru
Farmall Cub með 602, þriðju
Ferguson 35 Dies. með 567 vélar
innfluttar Af öðrum vélum hefur
innflutndngur verið minni. t.d.
hefur aðeins ein vél verið flutt
inn að hverri þessara gerða: Case
S, Farmall B-250, Farmall B-MD,
Hanomag-R 22, Hanomag R-45,
Hanomag R-440, Oliver Std. 70,
Ota og Renault.
Hér er greinilega um að ræða
vandamál. sem þarf að leysa fyrr
en seinna. Það segir sig sjálft. að
innflytjendui eru lítt ginkeyptir
fyrir að kaupa inn birgðir af vara-
fclutum í vél, sem ef til vill er
ein á landmu af sinni gerð Allt
öðru máli gegnir með þær gerðir,
sem náð hafa mikilli útbreiðslu.
Fyrir varahiuti í þær er sífellt ör-
uggur markaður Bóndi. sem á
Ferguson eða Farmall, er því ó-
líkt betur c-ettur, ef vél hans bil-
ar, en nágranni hans, sem á Case
eða Renau'.t.
Nú er að sjálfsögðu eðlilegt, að
smekkur manna í vélavali sem á
öðrum sviðum sé misjafn En í
þessu tilfedj virðist þó nokkuð
langt gengið. Hvort hér er um að
kenna bændum sjálfum eða inn-
fiytjendum. skai ekki um dæmt
hér. En hér er um að ræða vanda-
mál, sem haðum kemur mjög við
og ættu því að eiga hægt með að
leysa í sameiningu.
dþ.
Fréttabréf frá S.Þ.:
Miðar í rétta átt í málum flóttamanna
Bólusetningarherferð í Sovétríkjunum
Góður árangur af flóttam.anna-
hjálpinni í Austurríki.
FlóÆtamannavandamálið í
Ausiturriki er enn aivarlegt,
samkvæmt s'kýrsliu frf skriif-
stofu Flófctamannahjálpar Sam
einuðu þjóðanma í Genf, en á
undanföinum árurr. hefur mið
ag vel í áttina til lausnar á
vandanum. f fehrúar 1952 voru
280.000 fLóttaimemn í landinu
— hluti þeirra hafðist við í
flóttamannabúðum — en í jan
úar 1959 var taian komin nið
ur í 65.000, þrátt fyrir það að
bætzt höfðu í hópinn 180.000
ungverskir flótitamenn og all-
mikidl fjöldi (noikkrir tugir
þúsunda) annarra flóttamanna.
f lok júlí 1959 voru aðeins
7.100 flóttamenn í búðum, en
53.800 í janúar 1953. Búðirnar
hafa verifi tæmdar með full-
tinigi flóttamanna til annarra
landa, heimsendingu þeina
sem þess ósfcuðu og öflun ríkis
fangs í Austurríki til handa
allstórum hópi flóttamanna.
Samkvæmt áætlun sem aust-
uiTÍsk stjórnarvöld hafa gert
í samvinnu við Flóttamanna-
hjálp S.Þ., verða alls 12.000
flóttamenn búnir að fá ný
heimili innan ska'mms, segir
í skýrsl.unni.
Síðan 1952 hefur Flótta-
mannahjálp S.þ. eytit 11,2 millj
dollara til aðstoðar við flótta-
menn í Austurríki (þar með
talin fjáitframlög til íbúða og
menntunar, en þau eru yfir-
lei'tt I formi lána). Austurrísk
stjórnarvöld hafa á sama tíma
varig til flóttamannahjálpar
upphæð sem nemur 11,3 mÚlj
dollara. í þessum öilum er ekki
falin sú skyndihjálp sem veitt
var ungverska flóttafólkinu um
áramótin 1956/57, en hún nam
alls 4.250.000 dollurum.
Bólusetning mcð li/andi
veirum í Sovétríkjunum.
Víðtæk bólusetningarherfeið
gegn lömunarveiki með lifandi
veiru-bóluefni er hafin í Sovét
ríkjunum. og er árangurinn af
henni sagður góður. 10 milljón
ir manna hatfa þegar verið
bóiusettar, og ráðgert er að
aðrar 15 milljónir verði bólu-
settar fyrir lok janúar. í lok
þessa árs á að vera búið að
bólusetja -88 millj.ónir manns.
þar á meðal öl'l börn og ung-
linga innan við tvítugsaldur.
Hið nýja bóluefni er tekið
inn um munninn. Aðferðin hef
ur verið rannsökug af alilmörg
um vísindamönnum í Banda-
ríkjunum — þekktastur þeiira
eru Sabin, Koprowski og Cox
í samráði við sovézk stjórnar-
völd hefur AlþjóðaheUbrigðis-
stofnunin (WHO) fengið leyfi
bandarískra heilbrigðisyfir-
valda til að bjóða bandaríska
sérfræðingnum Dorothy M
Horstmann að heimsækja Sovét
ríkin með það fyrir augum að
meta árangurinn atf bólusetn-
ingunni. Hún hefur ferðast til
margra staða í landinu þar sem
íbúarnir voru bólusettir með
hinu nýja efni. og hún skýiir
svo frá að allsstaðar hafi greini
lega dregið úr lömunarveikis-
ti'lfeHum. Hins vegar bendir
hún á að ekki sé hægt afi segja
neitt endanlegt um málið fyrr
en að ári ,3nu.