Tíminn - 09.03.1960, Page 1

Tíminn - 09.03.1960, Page 1
Þegar Tímlnn stækkar aftur upp i sextán sfSur á fhnmtudag, verSur þaS fjöibreyttasta og skemmti- legasta dagblaSið. 44. árgangur — 55. tbL Tíminn flytur daglega meira af innlendum frétt- um en önnur blöð. Þeir, sem vilja fylgjast meS, kaupa Tímann. Miðvikudagur 9. marz 1960. eimila H verkfall Eins og getið hefur verið um í fréttum fór nýlega fram atkvæðagreiðsla um vinnu- stöðvun í sjómannafélaginu Jötni og Vél- stjórafélagi Vestmannaeyja. Skyldi vinnu- stöðvun, ef samþykkt yrði og samningar næðust ekki áður, koma til framkvæmda frá og með mánudeginum 14. þ.m. Ástæðan til atkvæðagreiðslunnar er sú, að ekk- ert er ennþá um það vitað, hvað sjómeinn og vélstjórar koma raunverulega til með að bera úr býtum á vertíðinni. Um það hefur ekki verið samið ennþá. Gamla kerfið er nú úr leik. Út- gerðarmenn semja við frysfihúsin og sjómenn við útgerðarmenn. 76 atkvæíi gejfn 50 Sjómenn og vélstjórar i Vestmannaeyjum hafa nú krafizt nýrra samminga um fiskverð við út- vegsbændafélag Eyjanna. Samþykkt var með 76 atkv. gegn 50 að fylgja þessari kröfu eftir með verkfalli frá 14. þ.m., ef ekki næðust áður samn- iagar, sem teldust viðunandi. Samningaviðræður munu nú að hefjast. Engu skal hér um það spáð, hvort ákvörðun Vestmannaeyinganna er upphaf að nýrri verk- fallsöldu. En fjöldi félaga er nú með lausa samn- mga sem þýðir, að þau geta farið á kreik ef og þegar þeim sýnist. Menn leituðu gjarnan í var meðan þeir biöu eftir aS lesta bíla við Reykjavíkurhöfn í gær. Veður var hvasst og gekk á meS regnskúrum. Þessi mynd sannar máltækið, að lakur skútl sé betri en úti. (Ljósm.: Timlnn, KM) Lézt vera skip í nauð í fyrrakvöld heyrði amer- íska strandgæzlan í New York hjálparbeíðni frá loftskeyta- manni sem kvað skip sitt vera að sökkva 200 mílur undan íslandsströndum. Var beðið um skjóta hjálp og þess getið að margir af áhöfninni væru iila slasaðir og mikill sjór kominn í skipið. Var sam- stundis hafizt handa um að skipuleggja leitar- og björgun- arstarf, flugvélar frá Prest- vík og Keflavík fóru á vett- vang ásamt veðurathugunar- skipinu India. Urn hádegi í gær kom opinber tiiikynnmg um að hætta leitinni. Það hafði komið í ljós að hér var um að ræða ósvífið gabb. Svika- skeytið mun vera frá áhugaloft- skeytamanni í New Jersey. Blaðið átti í gær tal við Björn Jónsson flugumfeiðastjóra, en hann sikýrði svo frá að flugum- ferðastjórninni hefði borizt hjálp- arbeiðni frá varnarliðinu hér. — Hafði sú beiðni komið frá aðal- stöðvunum í New York. Þar hafði strandgæzlan móttekið neyðar- skeytið sem reyndist uppspuni einn. Var það sent á bylgjulengd 6997,5 sem liggur á mörkum þeirra bylgjulengda sem flugmenn og áhugamenn nota. f fyrsta skeyt (Framhald á 2. síðu) ísinn farinn Eins og skýrt Hefur verlð frá í fréttum, lagði Poll inn og Eyjafjörð út að Krossanesi i kuldakastinu. Myndin er af Heklu að brjótast Inn að Torfunes- bryggju. Hægt að stór auka laxveiði Á fundi Búnaðarþings í gær flutti Þór Guðjónsson, veiðimálastjóri fróðlegt erindi um fiskeldi. Veiðimálastjóri lagði áherzlu á aukna ræktun ferskvatnsfiskjar og benti á nauðsyn þess að hér yrði komið upp til- raunaeldisstöð í því skyni. Kynbætur á silungi færast einmig mjög í auk- ana og hefur komið í ljós, að með þeim er hægt að auka vaxtarhraða fiskanna, auka fjölda hrogn- anna að miklum mun, svo að jafnvel nemttr 5 hrognum á móti einu, o. s. frv. Ýmislegan áburð er farið að nota í veiðivötn, með góðum árangri. Má gera ráð fyrir að inn- an skamms þyki jafn sjálfsagt að bera áburð í slík vötn og á ræktað land. Auka má stórlega veiði í íslenzkum ám með því að sleppa í þær gönguseiðum. Þá ættu að vera möguleikar á þvi að koma upp laxabúum. Nauðsyn ber til þess, að komið verði upp til- raunaeldisstöð hið fyrsta Hefur veiðimálastjóri skrifað landbúnaðarráðherra um það mál. Verk- efni slíkrar stöðvar má í stórum dráttum flokka í sex þætti: 1. Gera tilraunir með klak og eldi laxkynjaðra fiska í fersku vatni, sjóblöndu og sjó. 2. Taka þátt í að reyna nýjar fiskræktaraðferðir. 3. Kenna hirðingu og fóðrun fisks í eldi. 4. Framkvæma kynbætur á laxi og silungi. 5 Sjá um útvegun og eldi á heppilegum stofn- um lax og silungs til þess að sleppa í ár og vötn og til notkunar í öðrum eldisstöðvum. 6. Framleiða fisk til sölu á erlendum markaði. Enginn vafi er á því, að með réttum tökum á þessum málum má stórauka lax- og silungs- veiðina hérlendis tU hagsbóta fyrir veiðibændur og þjófQna alla. Starfsenii tilraunaeldisstöðvar getur haft úrslitaþýðingu um það hve ört og vel fiskeldi breiðist út hér á landí og hve arðvæn- Iegt það verðnr. Verðhækkanir Kakó hefur hækkað f verði, og nemur hækk- unin rúmlega 52 af hundraði. Eins punds dós, sem áður kostaði kr. 23,00, kostar nú kr. 35,00. Hækkunin er kr. 12,00 á pundið. Feðgar finnast lifandi í Agadír — bls. 2

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.