Tíminn - 09.03.1960, Side 5

Tíminn - 09.03.1960, Side 5
TfMINN, miCvikudaginn 9. nan 1960. 5 Útgefandl: FRAMSOKNARFLOKKURINN Rítst.iór' og ábm.. Þórarinn Þórarinsson. Skrifstotur i Edduhúsinu vi8 Lindargötu Simar 18 300 18 301 18 302. 18 303 18305 og 18 306 (skrifst ritstjórmn og blaðamenn) Augiýsingasimi 19 523 Afgreiðslan 12 323 Prentsm. Edda hf Augljóst ranglæti Ríkisstjórnin og meiri hluti stjórnar Seðlabankans hafa nú ákveðið, samkv. ákvæðum hinna nýju efnahags- laga, að innlánsdeildir kaupfélaganna skuli hér eftir eiga bundnar innstæður í Seðlabankanum Með þessu er ekki aðeins dregið til Reykjavíkur fjár- magn úr héruðunum, heldur er einmg tekið vald af félags- mönnum kaupfélaganna til þess að ráðstafa sparifé sínu. I umræðunum, sem urðu um þessi mál á Alþingi, sýndi Halldór Ásgrímsson glögglega fram á, að innlánsdeildir kaupfélaganna eru ekki sambærilegar við banka og spari- sjóði. Samkvæmt samvinnulögunum er það takmark inn- lánsdeildanna að „taka við innlögum frá félagsmönnum til ávöxtunar sem rekstrarfé“. Félagsmaður, sem leggur fé sitt í innlánsdeild, gerir það ekki aðeins til þess að fá af því vexti, heldur einnig til þess, að féð sé notað í ákveðnum tilgangi. Maður, sem leggur fé sitt í banka, læt- ur sig það hins vegar engu varða, hvernig bankinn ver fénu, ef hann fær vexti af því og treystir bankanum til að endurgreiða það, þegar þörf krefur. Um þetta sagði Halldór enn fremur: „Samvinnufélagsmaður, sem leggur sparifé sitt inn í innlánsdeild kaupfélags síns, veit fyrirfram til hvers féð verður notað. Hann veit að með þvi að geyma sparifé á þessum stað, gerir hann félagi sínu mögulegra en ella að fullnægja kröfum og þörfum félagsmanna í viðskiptalegu tilliti og gerir sitt til að bæta rekstraraðstöðu þess. Og hann veit, að á þann hátt stuðlar hann að því að hann njóti betri kjara og fullkomnari þjónustu af hendi kaup- félags síns. Hann veit, að með þessu leggur hann sinn skerf til að efla og auka uppbyggingu á félagssvæði sínu, sem kemur honum og félögum hans til góða á þann hátt, sem þeir óska helzt. Kaupmaðurinn, heildsalinn og mgandi í hlutafélagi, mega óátalið hafa alla sína fjármuni í rekstri fyrirtækja sinna, en félagar í samvinnufélagi eiga ekki eftir þetta að njóta sama réttar. Slíkt misrétti er éþolandi og óþekkt í lýðfrjálsu landi og ber vott um blygðunarlausan fjand- skap í garð samvinnufélaganna." Þessum rökum Halldórs hafa stjórnarliðar enn ekki treyst sér til að svara. Þeir vita, að þau eru rétt En þeir hafa samt ekki hikað við að framkvæma það ofríki, sem félagsmenn í samvinnufélögunum eru hér beittir. Látinn segja ósatt Jónas Pétursson er maður nefndur Hann varð frægur fyrir það á síðastl. hausti að bregðast f élaga sínum í sendi- ferð til flokksstjórnar sinnar í Reykjavík. Þannig komst hann á þing. Á þingi fara ekki af honum miklar sögur, sem heldur var ekki búizt við. Aftur á móti notar flokksstjórnin í Reykjavík hann óspart til að segja ósatt. Hann er í Mbl. látinn leggja nafn sitt við það að Fram- sóknarmenn hafi reynt að spilla fyrir því, að bændur væru losaðir úr bráðabirgðalögunum um verðlækkun afurðanna, sem Alþýðuf’okksstjórnin setti á síðastl hausti með fulltingi Sjálfstæðisflokksins Þetta er hlálegur uppspuni, þar sem öll þjóðin veit, að það var baráttu Framsóknarflokksins að þakka, að bændur voru losaðir við þetta helsi, og því skilað aftur, sem átt.i að stela af þeim. Lítill karl er það, þótt hann þurfi að borga fyrir sæti Sveins á Egilsstöðum, er lætur nota sig til að búa til og breiða út slikar lygasögur. Heimavistarskólar í sveitum verði sumar- dvaiarheimiii fyrir kaup- staðabörnin Þingsályktunartillaga Jóns Skaftasonar og Þórarins Þórarinssonar Þeir Jón Skaftason og Þór- arinn Þórarinsson flytja til- lögu til þingsályktunar um dvalarheimili kaupstaðabarna í heimavistarskólum. Tillagan hljóðar svo: „Alþingi ályktar a'ð skora á ríkisstjórnina að leita samnlnga við hlutaðeigandi skótanefndir og sveitarstjórnir um það, að • bæjarfélög eigi þess kost að fá til afnota á sumrin heimavist- arskóla í sveitum til að hafa þar sumardvalar- og námsheimili fyr ir kaupstaða.rbörn.“ í greinargerð segir: Á síðustu árum hefur fólks- fjöldi í þéttbýli hér á lándi vaxið hröðum skrefum. Við það hefur atvinnulífið í Iandinu orðið fjöl- þættara en áður. En þessari þróun fylgja annmarkar m.a. á sviðum j uppeldismála. Börn, sem ávallt | dveljast í þéttbýli fá litla kynningu af landinu og og njóta ekki þeirra þroskaskilyrða, sem fjölbreyttni sveitalífsins veitir. Stálpuð börn í þéttbýli vantar og tilfinnanlega verkefni við sitt hæfi þegar skólar starfa ekki. Sumardvöl Mjög er að því keppt af hálfu foreldra að koma börnum úr kaup stöðum á sveitaheimili til sumar- dvalar. Yfirleitt er góð reynzla af því. En með vaxandi þéttbýli verða hcimilin þar æ fleiri í hlutfalli við sveitabýlin og þeim mun erfiðara að fá aðsetur fyrir öll hörn kaupstaða og kauptúna, sem aðstandendur þeirra vilja koma í sveit á sumrin. Þarf því að leyta fleiri ráða í þessu efni. Á síðari árum hafa verið reistir heimavistarskólai víða í sveitum, og standa þau hús yfirleitt auð á sumrin. Hér er lagt til, að af hálfu fræðslumálastjórnarinnar verði teknir upp samningar við skóla- nefndir og sveitarstjórnir um það, að bæjarfélög eigi þess kost að fá til afnota á sumrin heimavistar skóla í sveitum tii að ha.fa þar sum ardva.lar- og námsheimili fyrir kaupstaðabörn. Nauðsynlegt að setja iieild- arlöggjöf um vinnu-og vist- heimiii aldraöra og öryrkja Starfshæfni yfirnefndar veröi tryggð Frumvarp þeirra Jónasar Rafn ar og Biigis Finnssonar um breyt ing á lögum um erfðafjárskatt var tíl fyrstu umræðu í neðri deEd í gær. Lögin um erfðafjár- skatt kveða á um að honum skuli varið til að koma upp vinnuheim ilum, vinnustofum og vinnutækj um fyrir öryrkja og gamalmenni, en í frumvarpinu er lagt til að einnig verði heimilað að lána úr erfðafjársjóði tU byggingu elli- heimila. vinnur nú að athugun þ&ssara mála. Halldór taldi að það frumvarp, sem hér væri til umræðu kæmi inn á þetta svið, en mjög brýnt væri, að sett yrði heildariöggjöf um þessi mál og vonandi drægist það ekki um of úr hömlu, að viðunandi heildarskipulag yrði fundið. Frumvarpið gæti að vísu bætt úr til bráðabirgða, ef sam- þykkt yrði, — en það drægi ekki úr þeirri nauðsyn að setja lieildar löggjöf um þessi mál. Þeir Ásgeir Bjarnason og Páll Þorsteinsson flytja breyt- mgartillögu við frumvarpið um breytingu á lögunum um framleiðsluráð landbúnaðar- íns, verðskráningu, verðmiðl- un og sölu á landbúnaðaraf- urðum o. fl. Bi'eitingartillaga þeirra Ásgeirs og Páls er við ákvæði fiumvarps- ins um það, ef samkomulagsslit verður í eex manna nefndinni, en þar segir að ágreiningsatriðum skuli vísað til yfirnefndar, sem skipuð er þremur mönnum, ein- um tilnefndum af fulltiúum fram leiðenda, öðrum af fulltrúum neyt enda og hagstofustjóra sem odda manni. Yfirnefndin fellir úrskurð um ágreiningsatriðin. í breitingariillögunni er lagt til ið við þetta ákvæði bætist nýr málsliður svohljóðandi: „Nú neitar aðili að tUnefna mann í yfirnefnd, og skal þá landbúnaðarráðherra skipa niann í nefndina samkvæmt tilnefningu hæstaréttar.“ Þessi breytingariillaga er flutt til að koma í veg fyrir, að aðili geti gert yfirnefndina óstarfhæfa og komið þannig í veg fyrir að úr Halldór E. Sigurðsson minnti á, að á síðasta þingi hefði verið sam þykkt þingsályktunartOlaga, sem flutt var af HaUdóri E. Sigurðs- syni, Ágústi Þorvaldssyni, Karli Kristjánssyni, Björgvin Jónssyni, Páli Þorsteinssyni og Sigurvln Einarssyni, um skipun 5 manna nefndar er athuga skyldl þessl atriði: 1. Stofnun vinnuheimUa fyrir aldrað fólk og þá, sem hafa skeria starfsorku. 2. Stofnun vist- og hjúkrunar helmila. 3. AðUd .að greiðslu stofnkoshi- aðar. 4. Fyrirkomulag á rekstri þess- ara heimila. Að athugun lokinni skyldi ríkis stjórnin leggja fyrir Alþingi frumv. um þetta efni. — MiUi- þinganefnd sú, sem skipuð var skurður verði kveðinn upp um ágreiningsatriði, en $ú varð raun in í haust, þegar neytendur sviptu fulltrúa sína umboði og neituðu að skipa i yfirnefndina, en ríkis- stjórn Emils Jónssonar gaf þá út úráðabirgðalög um óbi'eytt verð- lag landbúnaðarafurða, eins og kunnugt er. Hláka fyrir norSan Akureyri, 7. marz. — Afbragðs veður hér i dag, þítt og blæjalogn. Stórhríðarveður reið yfir á laug- atdagskvöldið og lokuðusf þá gjör- samlega allar leiðir en nú er tekið til við að ryðja vegina. E.D. Nýtt skip til Húsavíkur Húsavík. 7. marz. — Húsvík- ingar fagna í dag nýju og glæsi- legu fiskiskipi, sem bætzt hefur í flota þeirra. Skipið hefur hlotið nafnið Helgi Flóventsson og er um 112 lestir að stærð. Eigandi þess er Svanur h.f. Skipið kom tE Húsavíkur frá Noregi árla í morgun og í allan dag hefur fólk streymt fram í hinn fallega farkost til að skoða hann. Flaggað er í bænum og sjálft er skipið fánum prýtt. Þ. J.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.