Tíminn - 09.03.1960, Qupperneq 2

Tíminn - 09.03.1960, Qupperneq 2
TÍMINN, nuílvíkudaginn 9. mars 1960. Hin nýja Cloudmastervél LofHei'öa „LEIFUR EIRÍKSSON" kom vestan um haf kl. 6 I gærmorgun. Flugvélin tafðist nokkuS vegna smávægilegra bilana og fór héSan áleiðis tll Glasgow kl. 6 I gærkveldi. Vegna þessara tafa komst orSrómur á kreik um ýmsar stórfelldar skemmdir á vélinni, m.a. eS hjólastellið væri brotið. Þessi mynd var tekin í gær skömmu eftir aS flugvélin lagSi upp tll Glasgow. — (Ljósm.: Tíminn, KM). Dregnir lifandi undan rústunum í Agadír að 7 solarhringum iiðnum Feðgar fundust lifandi í rústum Agadírborgar í gær Agadír og Rabat, 8. marz. (NTB) — Þau furðulegu, en gleðilegu tíðindi bárust frá Agadír í dag, með staðfestingu í Rabat, að enn hefðu fundizt tveir Marokkóbúar á lífi í rúst- unum í Agadír, sjö sólarhringum eftir jarðskjálftann mikla, sem eyðilagði borgina á dögunum. Þeir tveir, sem fundust á lífi eru faðir og sonur, og voru þeir grafn- ir í rústunum í þeim hluta borgar- innar, sem nefnist Talboroj, en þar bjuggu bæði Marokkómenn og Evrópubúar. Þessi hluti borgarinnar varð verst úti í hörmungunum miklu. Leitin hert Björgunarmenn gengu í dag enn vasklegar fram í hinni áköfu leit að þeim, sem enn kynnu að vera lifandi í rúsunum, en björgun feðganna hefur nú hrundið því áliti manna, að ekki væri mögu- leiki á að nokkur mannleg vera gæti lengur legið lifandi undir rústunum. Enginn hafði fundizt á lífi, síð- an tveimur smástúlkum var bjarg- að á föstudag s.l. í tilkynningu frá sjúkrahúsun- um í Marakkesh greinir, að 11 þeirra, sem bjangað var á dögun- um hafi látizt af meiðslum. Tals- maður Moulay Hassan krónprins sagði í dag, að tala dauðra væri nú um 12 þús., en 5—7 þús. lík lægju í rústunum. Sprengja Kínverjar kjarnorkusprengju? NTB—Nýju Dehlí, 8. marz. Sú fregn hefur farið eins og eidur í sinu um mörg lönd, Skemmtifundur Framsóknar- kvenna Félag Framsóknarkvcnna í Reykjavík heldur skemmtifund í Framsóknarhúsinu uppi í kvöld klukkan 8,30 síðdegis. — Kaffl- drykkjia og skemmtiatriði. — Aðgöngumiðar afhentir í Fram sóknarhúsinu í dag eftir klukkan 5 síðdegis. — Félagskonur fjöl- sækið og takið með ykukr gesti. að Kínverjar ætli sér að sprengja kjarnorkusprengju hinn 28 þ.m., en þeir teldu heppilegt að þetta væri gert, áður en fundum þeirra Chou En-lai og Nehrús ber saman í Nýju Dehlí 16. eða 17. apríl n. k. Þessar fregnir hafa verið tíðræddar með stjórnmála- mönnum víða um heim. en þær hafa ekki enn fengið staðfestingu. Á fundi í efri deiid indverska þjóðþingsins kom það fram, að miklar líkur væru til þess að Kínverjar hugsuðu sér að sprengja kjarnorkusprengju hinn 28. þ. m. með tæknilegri aðstoð Sovétrí1'’- anna. Samkvæmt fregninni á ! sprengja að verða jafnstór og sem Bandaríkjamenn sprengdu i Hírósíma á sínum tíma. Endar kosningin með hlutkesti Verkamenn í Fram á SauSárkróki hafa nú kosiS tvisvar án árangurs Erfiðlega hefur gengið að kjósa stjórn í verkamannafé- laginu Fram á Sauðárkróki. Kosið er um tvo lista og er annar þeirra borinn fram af uppstillingarnefnd, en hinn af Ola Aadnegaard. Fyrsta kosningiin fór fram á að- alfundi félagsins og lauk henni með jöfnum atkvæðum. Önnur kosning fór fram um síðast liðna helgi og kusu þá humdrað og fjór- ir af tvö hundruð og átta, sem kosningarétt hafa. Leikar fóru þannig að atkvæði skiptust jafnt milli lista, fimmtíu og tvö á hvorn. Hlutkesti? f gærkveldi stóð yfir fundur í stjórn félagsins, þar sem ræddir voru þeir erfiðleikar á að Ijúka kosningu með árangri. Mun þar hafa verið samþykkt að reyna einu sinni enn, og mun sú kosning væntanlega fara fram um næstu helgi. Talið er alveg eins víst, að þeirri kosningu ljúki með jöfnum atkvæðum. Mun stjórnin að lík- indum hafa sett þann varnagla í gærkveldi, að verði atkvæði jöfm ) þriðja sinn, skuli varpað hlut- kesti. Formannsefnið í upp- ■'llingarnefnd Formannsefnið á lista Óla mun ekki hafa neytt atkvæðisréttar síns við kosninguna um helgina. Hann er í' uppstiilingarnefnd og stendur því að lista fráfarandi stjórnar félagsins. Það mun aftur á móti ekki hafa komið í veg fyrir að honum yrði stillt upp sem for- mannsefni á lista Ola. Nú er eftir að vita hvom listann harnn kýs, eða hvort hann kýs yfirleitt nokk- uð. Minkaeldi (Framhaid af 8. síðu). vatn. Ólafur taldi að innan : ára væri hægt að koma hér minkaeldi, er gæfi af sér árlega gjaldeyri á borð við síldina a.m. 50 tríó Ef keypt væru 50 trio, en þau munu 6'ennilega kosta nálægt 10 þús. ísl. kr. hvert trio, má reikna með, að eftir 5 ár yrði hvolpatal- an komin upp í 9 þús. og með 1400 kr. verði á skinninu næmi það 12,6 millj. kr. Munar um minna. Eins og stendur, höfum við kvikindin hér um allt land, en vel vinnst á með fækkun þeirra. Við höfum skömmina og skaðann en neitum okkur með lagaboði um hagnaðinn og gieðina af að reka þá framleiðslu, eem nú er hin arðsamasta í hinum menntaða heimi, sagði Ólafur að lokum. Loftskeytagabb (Framh. af 1. síðu). inu sagði að það værl frá Skipinu VALIANT og væri mikill leki kominn að skipinu. Það myndi ekki haidast á floti lengur en 6—7 klukkustundir og þyrfti á skjótri aðstoð að halda. Staðarákvörðun var gefin upp. Margir slasaöir Rétt fyrir miffnætti lagði veður skipið India af stað til hjálpar. Flugvél frá Prestvík var eend á staðinn og önnur frá Keflavík. Seint á fyrsta tímanum barst ann að skeyti og sagði þar að 67 manna áhöfn væri með skipinu og allmargir alvarlega slasaðir. Einn ig var tilkynnt að loftskeytamað- urinn gæti ekki eent út nema í 15 mínútur í viðbót. Hann þyrfti að aðstoða hina slösuðu á þilfari skipsins. Heimahöfn ekipsins var sögg Osló. Skipið ekki til Héðan var sent skeyti frá Os!ó og spurst fyrir um 6kipið. Klukkan 5 í morgun kom svar um að ekk- ert skip með þessu nafni værl £rá Osló. Á skipaskrá Lloyds fannst ekki heldur neitt skip sem átt gæti við þetta. Og inn hádegi f gær kom opinber tilkynning vest- an um haf um að hætta ailri leit. Stöðin miðuð uppi Það tókst að rniða stofTina sem skeytin scndi mefj nokkurri ná- kvæmni og reyndust þau koma frá Prenton, höfuðborginni í New Jersey. Er um að ræða gabb edn- hvers áhugamanns þar í borg en í gær var ekki vitað hvort búið var að hafa uppi á dólgnum. Svívirðilegt athæfi Athæfi þetta er á allan hátt svívirðilegt og ekki hægt að af- saka á neinn hátt. Þó það virtist grunsaimlegt í fyrstu að neyðar- skeytin 6'kyldu heyrast eingöngu vestanhafs þótt skipið væri statt miili íslands og Skotlands, var ekki lóku fyrir það skotið, að allt væri með feildu, því hlustun- anskilyrði eni stundum betri í fjarlægð en nálægð. íslendingar og Irar (Framhald af 8. síðu). indaveður, og ég sa-gði við sjálfan mig: guð minn almáttugur, ég fer heim á morgun. En um leið og ég var kominn innan um ís- lendinga fann ég að ég var 100% velkominn, og síðan hef ég ekki tekið eftir veðrinu og vil helzt ekki fara aftur. Fólkið er svo alúð legt og gestrisið hérna. — En það er gamla sagan hér, að við eigum lítf boðleg hótel. Fólkið er svo gott — Það skiptir ekki öllu máli. Bara að koma gestunum fyrir á heimilum. íslenzk heimúi eru sér- staklega hiýleg og notaleg. Ég bjó fyrst á hóteli, en nú er ég kominn tii fjölskyldu, og það finnst mér reglulega gott. Fólkið er svo alúðlegt. Námsmannaskipti Ég held að það vær'i athugandi að hafa námsmannaskipti á sumr- in. Það myndi efla bræðraböndin og kynni milli þjóðanna, ef náms- menn frá írlandi kæmu til fslands í sumarfríinu og gengu til vinnu með íslendingum, en fslendingar færu í sömu erindum til írlands. Það sem ég held að standi mest fyrir ferðamannaskiptum milli landanna, er hve langt er á milli og dýrt að komast. Þó trúi ég ekki öðru, en það gæti verið hægt að laga með góðri samvinnu við flug- og skipafélög.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.