Tíminn - 02.04.1960, Side 16
Hann bauð blaða-
mönnum til veizlu
Það er sjálfsagt óþarfi að dreif að og heimtaði romm og port-
. .. „ „ ,,,. vín á ilát sín.
segja monnum, að frettm um Romm |ax og g|æpamaður
rýmingarsölu á áfengi í blað-
inu í gær var fyrsta apríl
frétt. Samt er rétt að geta
þess, og skýra stuttlega frá
viðbrögðum fólks.
Blöðin hafa nú um sinn haft
þann hátt á, að birta eina blekk-
ingafrétt 1. apríl til þess að halda
við þeim gamla og skemmtilega
sið, að glettast við náungann þenn-
an eina dag. Fréttir þessar eru
ekki einu sinni byggðar á flugu-
fæti, hvað þá meira.
Margir fóru í ríkið
Hins vegar fór svo í gær, að
margir áttuðu sig ekki á því,
hvaða dagur var, og örkuðu með|
koppa og kyrnur niður í Nýborg
til þess að ná sér í leka — þótt,
útsölustaður væri hvergi nefndur.
Veslings afgreiðslumennirnir urðu \
hvumsa við, þegar mannskapinn'
Flestir tóku gamninu þó vel, svo
sem siður er á þessum degi, og
höfðu jafnvel gaman af, svo sem
maðurinn, sem hringdi til blaðs-
ins og bauð öllum blaðamönnum
í rommveizlu á Krókastræti 19,
eða hinn, sem spurði hvar hann
gæti fengið romm (Tímafrétt) til
þess að renna niður með laxinum
(Morgunblaðsfrétt), svo að hann
gæti farið út að góma alþjóða-
glæpamanninn (Alþýðublaðsfrétt).
Einstaka maður hringdi þó í reiði;
hafði komið langt að til þess að
ná sér í brjóstbirtu, og svo undar-
lega bar við í gær, að einn maður
sagði upp áskrift að blaðinu, en
slíkt hefur ekki skeð nú í langan
tíma.
Hins vegar er það von og vissa
blaðsins, að flestir hafi haft gam-
an af gríninu.
Hjartanlegar samræður
De Gaulle og Krust joff s
Sprengjutilraun Frakka vekur magnaða
andúðaröldu frjálsra ríkja í Afríku
NTB—París, 1. apríl.
Frakkar sprengdu aðra
kjarnasprengju í Sahara s. I.
nótt. Varð sprengingin aðeins
nokkrum klukkustundum áður
en hófust viðræður þeirra de
Gaulle og Krustjoffs á sveita-
setri Frakklandsforseta utan
við París. Mikil leynd hvíldi
yfir fundi þeirra, en sagt er að
Enginn mælir
S-Afríku bót
NTB—New York, 1. apríl.
Nú þykir nær víst, að til-
laga Equadors í öryggisráðinu
verði samþykkt. Hún er á þá
leið, að atburðirnir í S-Afríku
eru harmaðir og skorað á
stjórn Vervoerds að láta. af
kynþáttaofbeldi sínu. Banda-
ríski fulltrúinn lýsti í dag
stuðningi við tillöguna og fcr
allþungum orðum um fram-
ferði S-Afríkustjórnar. Kvaðst
hann þess fullviss, að áfram-
hald á sömu braut myndi
stofna heímsfriðnum í hættu.
samræður þeirra hafi verið
hinar hjartanlegustu
Sprengiorka þessarar sprengju
er sagður aðeins einn þriðji af
þeirri, sem Frakkar sprengdu
fyrri hluta marz. Hún var sprengd
á jörðu niðri ,en hin fyrri í 100 m.
háum turni.
Mikil gremja Afríkuþjóða
Forystumenn hinna frjálsu
rikja í Afríku, svo sem Bourguiba
Túnisforseti og Nkruhma forsætis
ráðherra Ghana, hafa með sterk-
um orðum fordæmt þessa síðari
tilraun Frakka. Segja að með
henni hafi Frakkar auglýst algera
fyrirlitningu sína á almennings-
álitinu í heiminum og óskum al-
mennings í Afrikulöndum.
Talið er að tíðindunum muni tek
ið með svipuðu fálæti í Washing-
ton og í hið fyrra sinnið, er Frakk
ar sprengdu kjarnorkusprengjuna
en þá liðu fjórir dagar þar til
Eisenhower forseti minntist á tii-
raunina. í Bonn voru menn hvorki
undrandi né óánægðir yfir tilraun-
inni.
Krustjoff varaður við
Miklar getgátur eru um, hvern-
ig Krustjoff^ hafi tekið sprengju-
tilrauninni. f París segja menn, að
Krustjoff hafi ekki yfir neinu að
kvarta, hann hafi verið látinn vita
áður en hann fór frá Moskvu, að
hugsanlega myndu Frakkar
sprengja aðra sprengju meðan
hann stæði við í Frakklandi.
Okkur vantar aðeins
stálið, sagði Einar
Hinar og hjóllð.
Með aukinni vélvæðingu
á íslandi hefur vélaiðnaði
fleygt fram og vélsmiðjur
risið upp hér sem inna hin
erfiðustu störf af hendi.
Einkum hefur þessarar
kunnáttu verið þörf í sam-
bandi við stórvirkar jarð-
yrkjuvélar. Eitt af þeim
verkstæðum, sem hefur
annast ýmis konar vélgæzlu
á þessu sviði er vélaverk-
stæði Einars Guðbrands-
sonar
Blaðið leit inn til Einars
í gær og var hann þá að fræsa
eitthvert stærsta tannhjól sem
fræst hefur verið hér á landi.
Þetta verk var hann að vinna
fyrir Ræktunarsamband Kjal
arnesþings. Var hér um að
ræða stóran tannhjólakrans
úr skurðgröfu. Einar hefur
unnið mikið fyrir Vélasjóð rík
isins og þarf að sinna verk-
efnum víða að af landinu.
Smíðaði fræsivélina
Tíu ár eru síðan Einar hóf
rekstur á eigin spýtur, og hef
ur viðgerðarkostnaður hækk-
að mikið á þeim árum, þó
s-agði Einar að hækkanir á við-
gerðarkostnaði myndu aldrei
verða meiri en nú og gerði
hann sér bókstaflega enga
grein fyrir því hverju sú hækk
un myndi nema. Eins og dæm
in stæðu kostaði nýr kransi
í stóra skurðgröfu um 26 þús
und krónur, en með því að
gera hann upp kostaöi við-
gerðin 11 þúsund krónur. Sér
stakar vélar þarf til að ann-
ast viðgerðir þessarar tegund
ar og fræsivélina, sem slíkpr
tennurnar í hjólinu hefur
Einar smíðað sjálfur að mestu
leyti. Sagði Einar að nú væri
mikið meira um það en áður,
að gerð væru upp á verkstæð
um ýmis stykki úr vélum í
stað þess að kaupa þau ný.
Hið rétta stál
Aðvífandi manni finnst að
vélsmiðjur á borð við velsmiðju
Einars Guðbr'andssonar, hljóti
að eiga bágt með að annast
öll þau verkefni, sem ber
ist þeim, þegar haft er í huga
sá árangur sem slíkar vél-
smiðjur hafa náð á undanförn
um árum um smíði ýmissa
dýrmætra vélarhluta. En við-
gerðir slíkra hluta eru ekki að
alatriðið fyrir mönnum eins
og Einari. Hann sagði: „Ef
við fáum rétt stál, getum við
engu síður smíðáð vélarhluta
en útlenzkir; okkur vantar
bara stálið.“
Freðfiskur
Nýtt brezkt fyrirtæki, Grimsby
Fish Merchants Ltd., hefur gert
samning við Færeyja Fiskasölu
um að annast alla sölu á hraðfryst
um fiskflökum á Bretlandseyjum
fyrir Færeyinga. Brezka fyrirtækið
sendi nýlega tvo menn til Færeyja
til að ganga frá áætlunum viðvíkj
andi samningi þessum og skoða
fisk og vinnslustöðvar. Menn þess-
ir voru mjög hrifnir af færeyska
fiskinum og sögðu að erfitt væri
að finna nokkurn mun á frysta
fiskinum og nýjum fiski
Þrír svartir drepn-
ir I Durban í gær
NTB—Durban, 1. apríl
Óeirðir og manndráp sem
orðið hafa síðustu vikur og
daga í Höfðaborg og nágrenni,
virtust vera að fjara út í dag.
Aftur á móti blossuðu upp
kröfugöngur og óeirðir í borg-
inni Durban og þar voru að
minnsta kosti þrír svertingjar
skotnir til bana af lögreglunni,
þar af ein kona.
Annars er ástandið í Höfðaborg
og héruðunum þar umhverfis
mjög óljóst og fregnir sundur-
leitar. í Transvaal virðist at-
vinnulífið vera að komast nokk-
urn veginn í eðlilegt horf.
Heiftin logar undir
Fréttaritarar segja, að það sé
raunar aðeins her og lögregla
stjórnarinnar, vopnuð nýtízku
vopnum, sem hafi kúgað upp á
blökkumenn nokkurs konar
reglu, en undir logi heiftin og
geti brotizt út hvenær sem er.
T.d. gerðist það í Durban, að
4—5 þús. svertingjar söfnuðust
saman á hæðardrögum utan við
borgina. Gengu þeir síðan í fylk
ingu í átt til borgarinnar. Kom
þá á móti þeim fjölmennt lög-
reglulið. Sló í bardaga og skutu
lögreglumennirnir minnsta kosti
3 svertingja til bana, en margir
særðust. Einn hinna myrtu var
kona. Undir kvöldið tókst að
tvístra blökkumönnum.