Tíminn - 26.04.1960, Side 16
Þriðjudaginn 26. apríl 1960.
91. blaJt.
Sandbylur veldur
tjóni á Jótlandi
Múhameístrúarmenin í Danmörku byggja mosku
Khöfn, 23.4. — Einkaskeyti,
til Tímans. — Á síðasta sólar-!
hring gekk mikið hvassviðri
yfir Norður- og Mið-Jótland
og hefur það orsakað stór-
kostlegt sandfok, það versta, j
sem komið hefur í 25 ár.
Sandurinn liggur í sköflum á
ökrum og grónu landi og víða
hefur hainn eyðilagt uppskeru-
möguleikana. Stundum varð byl-
urinn svo svartur, að bílstjórar
þurftu að aka með ljósi til að
komast leiðar sinnar. Sums stáð-
ar reyndu bændur að stöðva fram-
ras sandsins með því að moka
snjó upp í garða.
Dönsk moska
Safnaðarformaður Múhameðs-
trúarmanna í Danmörku hefur
(Framhald á 15. síðu).
Dauðastríð
Chessmans
hafið á ný
NTB—Washington, 25. apríl.
Hæstiréttur Bandaríkjanna
vísaði enn í dag á bug enn
einni beiðni frá Caryl Chess-
man um frestun á aftöku hans
og upptöku málsins að nýju.
Chessman hefur setið 1 Quint-
in-fangelsi í 12 ár og 8 sinn-
um heífur aftöku hans verið
frestað. Sakargiftir eru bama
rán og kynferðisafbrot, en
skv. núgildandi lögum í Kali-
forníu myndi Chessman ekki
hafa verið dæmdur til lífláts.
Aftökudagurinn hefur að
þessu sinni verið ákveðinn
snemma í maí og er því enn
eitt dauðastríð Chessmans
hafið.
SKATTHEIMTUMADUR VERÐUR
FYRIR LlKAMSMEIÐINGUM
Svíinn braut ljósaperu á andliti hans
Kaupgjaldsvísi-
talan 104 stig
Kauplagsnefnd hefur reiknað
vísitölu framfærslukostnaðar í
byrjun apríl 1960 og reyndist
hún vera 104 stig eða 3 stigum
hærri en hún var í marzbyrjun
1960. Verðhækkanir síðan 1. marz
1960 af völdum gengisbreytingar
c-g vegna hins nýja söluskatts-
námu 6,6 visitölustigum, en þar á
móti kom 2,8 stiga vísitölulækk-
un vegna hækkunar fjölskyldu-
bóta frá 1. apríl 1960. Vísitölu-
lækkun vegna hækkunar fjöl-
skyldubóta nemur alls 8,5 stigum
og hefur því í vísitöluna 1. apríl
1960 verið tekinn þriðjungur þess
arar lækkunar.
(Frá Hagstofu íslands.)
Skattheimtumenn hafa oft
og lengi orðið fyrir aðkasti
svo sem greinir í Biblíunni.
Margir Ísíendingar hafa litfar
niætur á skattheimtunni, en
þó munu fáir skattheimtu-
menn hér hafa orðið fyrir
líkamsmeiðingum vegna þess-
arar atvinnu sinnar.
Þó bar svo við fyrir helgina,
að einn af starfsmönnum þess op-
inbera varð fyrir líkamsmeiðing-
um af henöi manns af sænsku
þjóðemi og á skattheimtumaður-
inn nú um sárt að binda í raun-
hæfustu merkingu.
Skattheimtumaður þessj vinnur
hjá útlendingaeftirlitinu og tekur
við svokölluðum gjaldársskatti af
útlendingum, sem stunda hér
vinnu. í s'.l. viku var hann stadd-
ur í samkvæmi í húsi einu hér í
bæ og hittí þá fyrir Svía nokkurn,
sem lengi hafði tregðast við skatt
greiðsluna. Blaðinu er ekki kunn-
ugt um nánari tildrög önnur en
þau, að Svíinn laust skattheimtu-
manninn með ljósaperu, sem brotn
aði á andliti hans, skar hann og
stórskaðaði.
Liggur hann nú rúmfasfur og
má ekki 'sinna skattheimtunni.
— b.
Ástir í sóttkví — Elín Ingvarsdóttir á æfingu.
Leikritið fjallar um
ástir og hlaupabólu
í kvöld frumsýnir Nýtt leik-
hús enskan gamanleik sem
nefnist „Ástir í sóttkví“. eftir
Kay Bannerman og Harold
Brooke. Leikstjóri er Flosi
Ólafsson, en leikendur Elín
Ingvarsdóttir, Jón Kjartans-
son, Baldur Hólmgeirsson,
Nína Sveinsdóttir og Jakob
Möller.
Þessi gamanleikur var sýndur í
Englandi fyrir þremur árum og
náði þá miklum vinsældum. Leik-
urinn gerist í frönsku Ölpunum
og fjallar einkum um ástir og
hlaupabólu
„Ástir í sóttkví“ verða fyrst
um sinn sýndar í Framsóknarhús-
inu, en síðai mun í ráði að sýna
ieikinn út um land.
Þetta er annað verkefni Nýs
ieikhúss, en fyrsta verkefnið var
eins og kunnugt er söngleikurinn
„Rjúkandi ráð“, eftir Pír O. Man,
sem náði miklum vinsældum.
Þýðanda að „Ástum í sóttkví”
er ekki getið, en Flosi kvað þýð-
inguna ágætlega vel gerða.
LISTMUNA-
KJALLARI
. Vilhjálmur frá Skáholti opnaöl kjailara sinn í
Aðalstræti, „Listmunakjallarann" á laugardaginn.
Mjög ^estkvæmt var hjá Vilhjálmi þennan dag eins
og myndin sýnir og lék gestgjafinn á als oddi. Kjall-
ari Vilhjálms verður opinn daglega frá kl. 10—6 og
verSa þar til sölu málverk, Ijóðabækur og blóm. Mál-
verk verða þarna eftir: Kjarval, Jón Þorleifsson,
Sverrl Haraidsson, Jón Engilberts, Veturllðá, Einar
Baldvinsson, Hafstein Austmann, Sigfús Halldórsson,
Svein Björnsson og fieiri.
Ekki er að efa að þessi nýbreytni I bæjarlifinu
mun mælast vel fyrir hjá listunnendum, og margur
mun án efa leggja leið sína niður I kjailarann til
Vilþjálms, gleðja augu við falleg málverk og- fá and-
iegan yl frá hinum skrafhreifa húsbónda.
Létfskýað
Vonandi rætist nú spá veð
urstofunnar, að það létti
til I dag og stytti upp. Um
vindáttina er það að segja,
að hún á að vera breyti-
leg, en senniiega blées
ekki af nema einni átt I
senn.