Tíminn - 27.04.1960, Síða 3

Tíminn - 27.04.1960, Síða 3
Tg|iWa^jgP*Bvita»Jaginn agra 1960. 3 Mótmæla veltuútsvari á skipti félagsmanna Aðalfundur Kaupfélags Sigl- firðinga var haldinn 24 apríl s. 1. Fóru þar fram venjuleg aðalfundarstörf. Vörusala fé- lagsins s. 1. ár nam 14,300 þús. | Ákveðið var að úthluta í stofnsjóð 3% af ágóðaskyldri vöruúttekt félagsmanna. Á fundimim kom fram svohljóð- andi till. og var samþ. með 26 sam- hlj. atkv.: „Aðalfundur Kaupfélags Sigl- firðlnga, haldinn 24. apríl, 1960, skorar á háttvirt Alþingi að fella úr framkomnu frumvarpi um breytingar á útsvarslögunum það Nýr bæjarsfjóri Á Akranesi hefur verig kjör inn bæjarstjóri í forföllum Daníels Ágústínussonar, sem tekið hefur sæti á þingi í fjar veru Halldórs E. Sigurðsson- ar. Fyrir valinu varð Hálfdan Sveinsson, og mun hann gegna störfum bæjarstjóra meðan Dáníel situr þing. ákvæði frv., að veltuútsvar verði Iagt á viðskipti meðlima kaupfé- laganna. Aðalfundur Kaupfélags Sigl- firðinga álítur að óréttlátt og þjóðhagslega rangt sé að lögleiða veltuútsvar, sem lagt er á án til- lits til rekstrarafkomu eða ann- arra aðstæðna. f þessu sambandi má benda á þá staðreynd, að samvinnuverzlanir víðsvegar um landið, hafa orðið að taka að sér ýmis viðskipti, sem eru bein þjónusta við fólkið, en sannan- legur baggi fjárhagslega fyrir viðkomandi kaupfélög og verzl- anir í einstaklingseigu taka ekki að sér af þeim sökum. Veltuút- svar á öll viðskipti meðlima kaupfélaganna myndi því verða alveg sérstök refsing á þá, sem mesta þjónustu inna af hendi við fólkið á hverjum stað. Enn fremur má benda á, að á meðan ekki er stóraukið eftir- lit með framtölum verzlunarfyr- irtækja í eigu einstaklinga eða hlutafélaga frá því sem nú er, verður fyrst og fremst þarna um að ræða auknar og ósanngjarnar álögur á kaupfélögin, sem Iögum samkvæmt eru háð strangari end- urskoðun og árlegum aðalfund- um.“ Eins og iyrr segir var till. þessi samþ. með samhljóða atkv. og þar á meðal atkv. eins aðalforingja Al- þýðuflokksins í verkalýðsmálum á oiglufirði, Jóhanns Möllers. Fyrirlestrar í háskólanum Prófessor Ralph Turvey, próf- essor í hagfræði við háskólann í London (London School of Econ- omics); er staddur hér í boði Há- skóla íslands og Biitish Council. Prófessor Turvey mun flytja tvo íyrirlestra í háskólanum, og verð-! ur fyrri fyrirlesturinn fluttur í! dag, miðvikudag 27. apríl kl. 5.30 e. h- og nefnist hann „Budget Pol- iey in Britam“. Síðari fyrirlestur- inn verður fluttur föstudginn 29. apríl kl. 5.30 og nefnisi hann „A Kew Approaeh to interest The- ory“. Fyrirlestrarnir verða fluttir í I. kennslustofu háskólans, og er öll- um heimill aðgangur. Sjóréttarráðstefnan (Framh. af 1. síðu). en Wan prins', forseti ráðstefnunn- ar færðist undan og sagði, að sam- þykki % á ráðstefnunni yrði að fást til þess að tillagan yrði aftur borin fram. HarðorS mótmæli Fulltrúi Saudi-Arabíu andmælti þessu harðlega og sagði, að hér væri aðeins um að ræða framhald af þeim víðtækasta áróðri, sem nokkur ráðstefna hefði orðið fyrir. Þá reis fulltrúi Sovétríkjanna, Tunkin, á fætur og sagði, að úrslit atkvæðagreiðslunnar sýndu það, sem hann hefði oft áður bent á, að ráðstefnan væri of snemma haldin, ekki væri tímabært að ræða þessi mál, eins og nú stæðu sakir. Sagði hann og að þessi málalok væru viðunandi, því betri væri engin lausn en slæm lausn. Sagðist hann vera furðu lostinn vegna kröfu USA um nýja at- kvæðagreiðslu, en þetta minnfi óneitanlega á sams konar vinnu- hrögð þeirra á fyrri ráðstefnunni. Var síðan borið undir atkvæði hvort veðra ætti við kröfum Bandaríkjanna um nýja atkvæða- greiðslu og var það fellt. Já sögðu 50 fulltrúar, 29 mæltu gegn, en 8 sátu hjá. Tillögur íslendinga Áður en gengið var til atkvæða um sjálfa bræðingstillöguna voru tiliögur fslands og tillaga Brazilíu Kúbu og Uruguay bornar undir atkvæði. Fyrst fór frarn atkvæðagreiðsla um tillögu íslendinga, sem fól í sér forgangsréttindi utan 12 mílna. Fór nafnakall fram uim hana, eins og allar síðari tillögur og fór svo, að hún var fedld með 37 atkvæð- um gegn 25, en 26 sátu hjá. Með þessari tillögu greiddu Júgóslavar atkvæði einir Evrópu- ríkja, Austur-Evrópuríkin sátu hjá, Danir og Finnar ,sátu sömu- leiðis hjá, en Svíar og Norðmenn voru á móti. Næst til atkvæða varð svo hin tiMaga íslendinga, breytingartil- lagan við sambræðing Bandaríkj- anna og Kanada. Fjallaði hún um það' eins og kunnugt er að ákvæðin um söguleg réttindi giddi ekki um þjóð sem er að mestu háð fiskveið um um afkomu sína. Þessi tildaga var einnig felld. 24 greiddu atkvæði með henni, 48 voru á móti en 15 sátu hjá. Einn var fjarverandi, fulltrúi Líbanons. Ekkert Vestur-Evrópuríki greiddi atkvæði með breytingartllögunni, nema Júgóslavía, en hjá sátu: Austurríki, Kúba, Finnland, G-ueademala, Páfaríkið, Indland, íran, fsrael, Kórea, Laos, Líbería, Paraquay, Tyrkland og Uruguay. Er fudltrúar gerðu grein fyrir atkvæði sínu á eftir, sögðu margir þeirra, áð þeir skildu vel sénstöðu ísdendinga, en hefðu greitt atkv. gegn tillögunni, þar eð þeir álitu, að hagsmunum íslendinga hefði verið borgið með tillögu Brazilíu, Kúbu og Uruquay eða að undan- tekningarákvæði ættu ekki að vera innan aðaltllögunnar. Tunkin, fulltrúi Sovétríkjanna, sagði, að þau hefðu stutt ísdend- inga með því að viðurkenna út- fær.sluna í 12 mílur, og hefði það verið vegna skilnings Rússa á sér- stöðu íslendinga, en hins vegar gæti hann ekki fallizt á forréttinda tillöguna, því að með henni yrðu sett undantekningarákvæði inn í aðaltillöguna. Fyrri tillögu íslend inga hefðu Sovétríkin ekki heldur getað stutt, því að þeir væru and- vígir aðadtillögunni. Aðrar tillögur Þriðja tidlagan, sem borin var undir atkvæði var fyrrnefnd til- laga Brazilíu, Kúbu og Uruquay, en hún var breytingartillaga við USA-Kanada-til'löguna og fjallaði um forréttindi strandríkis. Var hún samþykkt með 58 atkvæðum gegn 19, en 10 ríki sátu hjá. ísland greiddi atkvæði með til- lögunni. Þá kom að sjáifri bræðingstil- lögunni, en um úrslit þeirrar at- kvæðagreiðslu er áður getið. Var ekki laust við að glimuskjálfti færi um menn er nafnakallið hófst, enda ekki að ástæðulausu, því að aðeins eitt atkvæði vantaði á sam- þyfcki hennar. Þau 5 ríki, er hjá sátu við atkvæðagreiðsluna, voru Cambódía, E1 Salvador, íran, Jap- an og Filippseyjar. 28 rikin, sem atkvæði greiddu á móti, voru: Albanía, Búlgaría, Burma, Hvíta-Rússland, Ohile, Tékkóslóvakía, Equador, Guinea, Ungverjaland, ísland, Indland, Indónesía, írak, Líbía, Mexíkó, Marokkó, Panama, Perú, Pólland, Rúmenía Saudi-Arabía, Súdan, Ukraina, Sovétríkin, Arabiska Sam bandslýðveldið, Venezuela, Yemen og Júgóslavía. Fimmta tillagan, sem kom til atkvæða var tillaga Ghana og Eþí- ópíu og Líberíu um tæknilega að- stoð til handa tæknivana þjóðum. Sú tillaga var samþykkt með 68 atkv. gegn engu, en 20 sátu hjá. Var þet'ta ema tillagan, sem fékk samþykki og fullnaðarafgreiðslu. Loks kom svo 10-rikja tillagan um frestun á ákvörðun um land- helgi, en leyfa ríkjum að hafa 12 mílna fiskveiðilögsögu. Var hún felld með 38 gegn 32 og 18 sátu hjá. ísland greiddi atkv. með til- lögunni. Með þessu lauk hádegisfundi í gær, en ákveðinn síðdegisfundur tii að afgreiða forréttindatillögu Kúbu. Lok ráðstefnunnar Á síðdegisfundinum var tillaga Kúbu felld með 33 atkv. gegn 22, en 24 sátu hjá. Var þá atkvæða- greiðslum lokið og tóku fulltrúar að gera grein fyrir atkvæðum sín- um. Var allmikið málaþras, því surnir vildu halda ráðstefnunni áfram „til að ræða málin“. eins og fulltrúi Kanada komst að orði, en aðrir vildu slíta henni strax, þar á meðal öll 12 mílna ríkin. Fór svo, að Wan prins sleit ráð- stefnunni um kl. 6 í gær og sagði í lokaræðu, að mikill samkomu- lagsvilji hefði komið fram, þótt engin tillaga næði fullnaðarsam- þykki. Heimildir þessar eru að mestu hafðar eftir fréttastofu Ríkisút- varpsins og NTB. Næst síðasta sýning á hinum skemmtilega gaman- og söngleik „Deleríum búbónis" eftir þá bræður Jón Múla og Jónas Árnasyni verður í Iðnó í kvöld. — Leikurlnn hefur notið fádæma vinsælda að maklegu. Þessi mynd er af kápu utan af plötu þeirri, sem íslenzkir tónar hafa gefið út með lögunum úr leiknum og sýnir hún aðalleikendurna. Norðurlönd styöja framboð Thor Thors Utanríkisráðherrar Norður- landa héldu með sér fund í Helsingfors, dagana 25. og 26. apríl. Utanríkisráðherra ís- lands gat ekki komið því við áð sækja fundinn, en í hans stað sátu fundinn fyrir íslands hönd þeir Thor Thors sendi- herra, fastafulltrúi íslands hjá Sameinuðu þjóðunum, og Magnús V. Magnússon. sendi- herra íslands í Finnlandi. Á fundinum voru rædd viðhorf í alþjóðamálum, einkum afvopn- unarmálin, sem öll Norðurlönd vilja beita sér fyrir. Einnig voru rædd viðskiptamál í sambandi við breytingar á skipulagi Efnahags- samvinnustofnunar Evrópu og efl- ingu hennar. Þá voru rædd ýmis mál, sem verða á dagskrá næsta allsherjarbings Sameinuðu þjóð- anna. Ráðherrafundurinn lýsti einróma ánægju sinni yfir fram- boði Thors Thors sendiherra til forsetakjörs á næsta alisherjar- Ummæli Hare’s Fréttastofan NTB greindi svo frá í gærkveldi, að John Hare, landbúnaðar- og sjávarútvegs- málaráðherra Breta og aðalfull- trúi þeirra á hafréttarráðstefn- unni í Genf, sagði í gærkveldi á síðdegisfundi ráðstefnunnar, að þar seni ráðstefnan hefði ekki komizt að neinu samkonuilagi, myndu Bretar halda óbreyttri afstöðu sinni til reglugerða þjóða réttarins á hafinu og viðurkenna aðeins þriggja mílna landhelgis- línu. í blaðaviðtali skömmu síðar sagði ráðhcrrann, að nú hefði alþeimurjnn við að glíma fjölda vandamála, sem möguleiki hefði verið að ráða að nokkru fram úr, ef samstarfsvilji hefði ríkt á ráðstefnunni ,og henni auðnazt að ljúka með alþjóðasamkomu- lagi. þingi og hétu allir ráðherrarnir s'tuðningi við framboð hans. Næsti fundur utanríkisráðherra Norðurlanda mun verða haldinn í Oslo að hausti. Árnaðaróskir til Togolands Togoland í Afríku veiður sjálf- stætt lýðveldi um þessar mundir. Forsætisráðherra, Ólafi Thors, hefur verið boðið að vera við- staddur hátíðahöld í sambandi við iýðveldisstofnunina 25.—28. þ. m., sem hann hefur eigi getað komið við að þiggja. Hefur hann sent svofelldar ámaðaróskir í sím- skeyti til forsætisráðherra hins nýja lýðveidis: „Mér er það heiður og ánægja að senda yður, herra forsætisráð- herra, og þjóð yðar alúðarkveðjur og árnaðaróskir íslenzku ríkis- stjórnarinnar og þjóðarinnar allrar í tilefni lýðveldisstofnunar í Togo- landi. Aðems hin mikla fjarlægð niilli landa okkar og óvenju mikl- ar embættisannir hindra mig í því að sækja heim land yðar og flytja persónulega heillaóskir hins unga íslenzka lýðveldis." Tai vinnur enn 17. skákin í einvígi þeirra Botvinniks og Tals var tefld í Moskva í gær. Botvinnik beitti enn sem- fyrr Caro-Kan vörn. Reyndi Tal aS ná kóngssókn en varð ekkert ágengt. Botvinnik náði góðri stöðu og vann tvö peð. Síð- ustu leikirnir voru tefldir í timaþröng. Lék þá Botvinnik hrottalega af sér, og gaf Tal kost á tiltölulega einfaldri leikfléttu, sem leiddi til von- lausrar stöðu fyrir heims- meistarann. Bovinnik gafst upp í 41. leik. Staðán er því 10:7 Tal í hag.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.