Tíminn - 02.07.1960, Blaðsíða 1

Tíminn - 02.07.1960, Blaðsíða 1
, Askriftarsímmn er 1 2 323 144. tbl. — 44. árgangur. Laugardagur 2. |ffl£1960. Skipbrotsmennirnir 9 af Drangajökli, sem komti með Hrímfaxa í gær til Reykjavíkur. — Ljósmynd: Tíminn, I.M. Enginn okkar skilur hversvegna svona fdr Rætt við skipbrotsmenn af Drangajökli við komuna til Reykjavíkur í gærkvöldi var óvenju stór hópur manna samankominn í húsakynnum Flugfélags ís- lands á Reykjavíkurflugvelli. í/ieðan Hrímfaxi renndi sér me8 þungum gný eftir flug- brautinni, þyrptist fólkiS að grindverkinu og þögul eftir- vænting skein úr hverju and- liti. ÞaS var von á skipbrots- rnönnum af Drangajökli. Ættingjar og venzlafólk hróp- i.öu og veifuðu meðan sjómenn- irnir gengu niður landganginn, hlaðnir pinklum og bögglum. Blaðamenn og Ijósmyndarar royna að hindra ferð þeirra, þeir taka öllum spurningum með hægð, leysa greiðlega úr en vilja sýni- lega komast sem fyrst á fund ást- vina sinna. Hefði aldrei trúað því Þeir eru 9 talsins sem komust með þessari ferð, örfáir eru komnir en aðrir bíða enn eftir fari ytra. Fréttamaður Tímans náði sem snöggvast tali af 1. stýri- rc.anni meðan hann beið eftir að komast í gegn hjá útlendingaeftir- l'.tinu. Hann heitir Georg Frankl- ixisson, aðeins 27 árr að aldri, grannvaxinn, ljóshærður og kná- legur. Hann svarar spurningum blaðamannsins út um annað munn vikið meðan hann býr sig undir að útfylla eyðublað. — Áttu ekki penna að lána mér, segir hann, allt okkar dót er á hafsbotni. Við urðum að stökkva fyrir borð eins og við stóðum. Skipstjórinn síðastur Hann fær skriffæri í hendur og segir okkur í stuttu máli hvernig slysið vildi til. Bjarni ioftskeytamaður — gúmmíbátamir — Ég var á vakt segir hann, stóð í brúnni. Þá for skipið allt £ einu að hallast á bakborða. Það hallaðist jafnt og þétt og við sá- um strax að hverju fór. Annars gerðist þetta svo skyndilega að maður hefði aldrei getað trúað því. — Voruð þið langt frá landi? — Við vorum eina og hálfa mílu frá eyjunni Strómu, sem er þarna í Pentlandsfirði. Klukkuna vantaði noxkrar mínútur í hálfníu eftir enskum tíma. Það voru allir komnir í bátana eftir 15 mínútur. Munnskapurinn var rólegur og enginn æðraðist. Nokkrir þurftu að fleygja sér fram af skipinu og svr.da á eftir bátunum. Skipstjór- inn fór síðastur. — Og björgunin barst fljótt? — Skozki togarinn var í 2—3 mílna fjarlægð frá okkur. Þeir sáu hvernig fór og hröðuðu sér til hjálpar. Tuttugu mínútum eftir að skipið fór að hallast voru þeir komnir til okkar. Og þá stóð kjöl- urinn einn upp úr sjónum. Síðan hvarf hann í djúpið. Næst náum við í loftskeyta- rranninn, Bjarna Sigurðsson. Hann er ungur maður, rúmlega þrítugur, bjartur yfirlitum og hógvær í fnsi, svarar greiðlega spurningum okkar þegar hann hefur heilsað Elinu systur sinni. — Ég var niðri í borðsal þegar slysið bar að höndum, segir Kastaöi 14 sinnum — fékk ekki neitt Mikil brögð að gölluöum veiðarfærum — — Verksmiðjur síðbúnar aö taka viö síld Það hefur vakið athygli hve síldarverksmiðjur á Austur- landi hafa verið vanbúnar að taka við síld síðan hrotan hófst nú á dögunum. Bræðsla er fyrst nú að hefjast á sum- um stöðum en alls ekki hafin á öðrum, allar þrær standa fleytifullar og skipin verða að fara langan veg til löndun- ar. Við þetta bætist að stöðugt ber- ast nýjar fregnir af veiðarfæra- tjóni bátanna, nýjar og- dýrar síld- arnætur rifna eða reynast svo gall aðar í upphafi að mikilla viðgerða er þörf á þeim. Þannig hafði blað- ið spurnir af kunnum aflamanni nyrðra er fór á miðin með nýja nælonnót og kastaði 14 sinnum án þess að fá bröndu. Eftir að hafa farið í land og fengið nótina lag- færða fékk hann þegar síld. Fleiri slikar sögur hafa fréttaritarar blaðsins sagt síðustu dagana. Þyk- ir mönnum að vonum hart að ekki skuli vandað meira til framleiðslu þessara dýru veiðitækja. Nætur rifna Þá er algengt að nætur rifna, Georg stýrimaður — hefði aldrei trúað því Bjarni. Það voru allir búnir að borða fyrir góðri stundu, sumir farnir í koju og sofnaðir. Skipið hallaðist stöðugt meira á ör- skammri stundu og vissum við srrax hvað var að gerast. Ég hljóp upp í loftskeytaklefa og sendi út Frp^1'--',-1 á 3. síðu. og mun mestu valda að þær eru svo djúpar, 60—65 faðmar, og langar, 300 faðmar, að þær þola ekki að fyllast af síld. Menn eru h:ns vegar óvanir að fara með þessar nýju nætur, taka of mikið fyrir og sprengja þar með næt- urnar. Hlýzt af þessu hið mesta tjón, enda kosta nýjar nælonnæt- ur rúmar 600 þúsund krónur. Clag á verksmiðjum Verksmiðjur eystra hafa margar verið seinar í gang eða vanbúnar að taka við síld. Þnnig er þróar- pláss fyrir 30 þúsund mál á Rauf- arhöfn, en þar standa ófullgerðir síldargeymar sem eiga að taka 37.500 mál. Hefur orðið að vísa mörgum sldpum frá löndun vegna þess að tankamir voru ekki til reiðu, en unnið hefur verið að þcim síðan f haust, hvað sem þess- um seinagangi veldur. Vonir standa þó til að smíði þeirra ljúki næstu dagana. — Þá hafa víða staðið yfir viðgerðir og endur- bætur á verksmiðjum sem fyrst er að ljúka þessa dagana, þótt tími hefði átt að vera ærinn til undir- búnings. Þannig eru verksmiðj- umar í Neskaupstað, Vopnafirði og Eskifirði fyrst nú að verða til- búnar til bræðslu og Seyðisfjarð- arverksmiðj? nýbyrjuð, en alls staðar bíður mikil sOd bræðslu. — Blaðið spurðist fyrir víða eystra í gær hvað þessum mistök- urc ylli og fékk víðast þau svör að ráðizt hefði verið í miklar framkvæmdir, byrjað of seint á þeim, enda hefði lánsfjárskortur tafið fyrir. Liggur í augum uppi að slíkur seinagangur er háska- legur, og kostar enda mikið fé og erfiðisauka. — 6 Duncan til Akureyrar Veikur sjó- litSá um borð í gærkvöldi fór brezka herskipið HMS Duncan þess á leit við Landhelgis- gæzluna að því yrði leyft að setja í land sjóliða sem væri veikur af botnlanga- bólgu. Að ákvörðun dóms- málaráðuneytisins var leyf- ið veitt og var herskipið væntanlegt til Akureyrar í nótt. Tímamót í samgöngumálum Vestfirðinga — bls. 8 jj

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.