Tíminn - 02.07.1960, Blaðsíða 2
TÍMINN, laugardagmn 2. júlí 1960J
Blómin hrekjast Óvenjulegur sjávarhiti
nú fyrir norðurlandi
Úr skýrslu fiskifræ'ðinga um hafrannsóknir
ísletndinga, Nor'ðmanna, Færeyinga og Rússa
Ekki virðist vera útlit til þess að Reykvíkingar muni njóta mikillar sólar
i sumar. VeSur stofan spáir enn hægviðri og skýjuðu, og er þetta þó allt í
áttina á meðan ekki er minnzt á úrkomuna, sem menn munu hafa verið
búnir að fá nóg af í bili. Mynd þessl var tekin í Reykjavík fyrir nokkrum
dögum, og sýnir hún hvernig úrkoman og rokið hafa lelkið túlfpanana.
Blöðin hafa ekki staðizt beljandann, og eru því túlípanarnir, sem oftast
eru mlkið augnayndi, orðnir nokkuð hraktir.
Eins og áður hefur verið
skýrt frá, hófst rannsóknar-
leiðangur á Ægi hinn 26. xnaí
og var fyrirhugað að halda
honum áfram til 28. júní, er
sameiginlegir fundir ís-
lenzkra, norskra, færeyskna
og rússneskra fiskifræðinga
skyldu hefjast á Seyðisfirði.
Þvi miður biluðu asdiktæki
skipsins hinn 6. júní og varð
þá að fam til Reykjavíkur
til viðgerðar. Dagana 9.—23.
júní fóru rannsóknirnar fram
' á v.s. Óðni. Féllu ýmsir þætt-
ir mnnsóknanna niður á
Óðni, þar sem ekki var hægt
að flytja ýmis viðamikil tæki
úr Ægi á svo skömmum tíma,
en aðrir þættir rannsóknanna
voru framkvæmdir við enn
lakari skllyrði en á Ægi.
Dagana 28. og 29. júní voru
svo haldnir á Seyðisfirði fund
ir þeirra fiskifræðinga, er
starfað höfðu á rannsóknar-
skipunum Ægi, G. O. Sars,
Johan Hjort, Ternan og
Persej II. Hér fer á eftir úr-
dráttur úr skýrslu fundarins
(um ástand íslenzka hafsvæð
isins):
Um mánaðamótin maí—
júní reyndist ísinn vera
lengra frá landi en undan-
farin 5 ár. Síðari hluta júní
hafði stóra ísspöng rekið suð
ur undir Strandagrunn, en
þar fyrir austan var ísinn
miög norðarlega.
í lok mai var hitastig sjávar
fyrir vestan og norðan land
öllu hærm en meðalhitastig
undanfarinna 10 ára. í júní
var sjávarhitinn einnig tals-
vert yfir meðalhita, og virð-
ist hiti sjávar við Norður. og
Austurland verða hærri á
Fiskur í MjóafirSi
Mjóafirði. — Hér er talsverður
fiskur í firðinum og hefur ekki
verið svo undanfarin sumur. Hér
er um að ræða bæði þorsk og ýsu
og er fiskurinn allvænn. Tveir
n enn hafa nokkuð stundað sjóinn
og veitt á línu, aðallega til héim-
ilisþarfa. Sláttur er hafinn og tíð
hefur verið ágæt að undanförnu.
— Vilhjálmur
Astir í sóttkví
til Vestfjarða
Leikflokkurinn „Nýtt leik-
hús“ er um þessar mundir að
ljúka sýningum á leikritinu
„Ástir í sóttkví“ á Norður-
landi og verður næsti og síð
asti áfanginn á Vestfjörðum.
Hefur leikflokkurinn haldið
samtals 44 sýningar víðs veg-
ar um Norður- og Austurland
við ágæta aðsókn og góðar
undirtektir. í flokknum eru
Emilía Jónasdóttir, Elín
Ingvarsdóttir, Jón Kjartans-
son, Jakob Möller og Baldur
Hólmgeirsson. Leikstjóri er
Flosi Ólafsson.
Akureyringar kaupa togarann
Norðlending frá Ólafsfirði
Kaupverð er 8,2 milljónir króna — togarinn
var áíur sameign þriggja bæjarfélaga
Fyrir nokkru var togarinn
NorSlendingur boðinn upp á
Ólafsfirði. Nú hefur ráðizt
svo að Útgerðarfélag Akur-
eyringa kaupi togarann fyrir
8,2 milljónir króna, og verður
Skógræktarsamkoma
í Vaglaskógi
Á sunnudag minnist Skóg-
ræktarfélag Eyfirðinga 30
ára afmælis síns, með sam-
komu í Vagnaskógi. Þar flytja
ræður prófessor Richard
Beck og Hákon Guðmundsson
hæstaréttarritari, en séra
Sigurður H. Guðjónsson mess
ar. Formaður félagsins, Guð
mundur Karl Pétursson yfir-
læknir, setur samkomuna. —
Dansað verður í Brúarlundi
bæði laugardags- og sunnu-
dagskvöld. E.D.
hann því gerður út frá Akur-
eyri í framtíðinni.
Norðlendingur var ÍSur
sameign bæjarfélaganna á
Ólafsfirði, Húsavík og Sauð-
árkróki. Á uppboðinu átti
ríkissjóður hæst boð í togarj
ann, 8,2 milljónir, en eftir|
samningaumleitanir milli rík;
isstjórnar og Útgerðarfélags- •
ins hefur orðið úr að félagið;
gengi i kaupin og fengi tog-
arann gegn þessu verði. Hef-
ur fundur Útgerðarfélags
Akureyringa nú samþykkt
samningsuppkast um þessi
kaup, sem forstjórar þess,
Gísli Konráðsson og Andrés
Pétursson, gerðu við ríkis-
stjórnina. Togarinn er nýkom
inn úr 12 ára klössun og fer
væntanlega á veiðar innan
tíðar. E.D.
á þessu sumri en undanfarin
ár.
Á öllu tímabilinu hefur
þörungagróður verið með
mesta móti og gagnsæi sjávar
ins því lítið.
Rauðátumagn hefur yfir-
leitt haldist mikið, en athug-
anir á aldurdreifingu rauðát
unnar sýna, að enn er aðal
lega um að ræða fullvaxin
dýr, sem brátt munu renna
æviskeið sitt á enda. Yngri
dýra hefur ekki orðið vart í
verulegum mæli. Er því erfitt
að gera sér grein fyrir magni
næstu kynslóðar rauðátunn-
ar og því rauðátumagni, sem
verða mun á Norðurlands-
miðum í náinni framtíð. Mik
ið rauðátumagn er nú
skammt út af Norðaustur og
í vesturjaðri Austur-íslands-
straumsins.
Fyrri hluta júnímánaðar
varð hvergi vart við verulegt
sildarmagn út af Norðurlandi,
nema undan vestanverðu
Norðurlandi, þar sem tals-
vert af smátorfum fannst.
Síðari hluta mánaðarins hef
ur sildarmagnið á djúpmiðum
norðanlands stóraukist, og á
vissum svæðum hafa smátorf
umar þétzt og myndað stærri
veiðanlegri torfur.
Þá sýndu sýndu rannsókn
irnar einnig að síldin í haf-
inu austan og norð-austan
íslands er allmiklu vestar en
á undnaförnum árum og öll
nærri vestur og suðurjaðri
austur-íslandsstraumsins. —
Búizt er við, að það síldar-
magn, sem fannst í suður-
Er þögn sama
og samþykki ?
Stykkishólmi, 29. júní. —
Menn eru hér almennt gramir
yfir því að dragnótaveiði hef-
ur ekki verið leyfð annars
staðar en frá Vestmannaeyj-
um. Til stóð að héðan færi
einn bátur á dragnót, og
verkamenn munu almennt
hafa talið að veiðarnar yrðu
til atvinnubóta hér á staðn-
um.
Aðeins einn aðili, félag
trillubátaeigenda, mun hafa
sent mótmæli gegn dragnóta
veiðum héðan, en sveitarfé-
lagið og kaupfélagið voru með
mælt veiðunum. Hins vegar
hafði Fiskifélagið auglýst að
þeir sem meðmæltir væru
veiðunum skyldu ekki hafast
að, en hinir mótmæla sem
andvígir væru, og yrði þögn
skoðuð sem samþykki. Þetta
telja menn að hafi villt um
fyrir yfirvöldum og iðarr þess
mest að senda ekki meðmæli
mpK rlrno-nðbavfiiðirmi T’ O
jaðri straumsins norður af
Færeyjum gangi norðvestur
á bóginn, þegar líður á sum
arið.
í megindráttum virðist
mega draga eftirfarandi álykt
anir af rannsóknunum:
Sjávarhiti virðist ætla að
haldast hár og þörungagróð-
ur talsverður Rauðátumagn
er nú sömuleiðis allmkiið en
tvísýnt er hve lengi það helzt
á Norðurlandsmiðum, þar
sem aðaluppistaða þess eru
fullvaxin dýr.
Helzta síldarmagnið á is-
lenzka hafsvæðinu er nú að
fihna i smátorfum í köldum
sjó norðan og austan hins
hlýja sjávar við Norðurland.
Nokkurt sildarmagn er þegar
komið suður yfir straummörk
in og hefur veiðin til þessa
aðallega byggst á því. Er hér
fyrst og fremst um að ræða
eldri hluta norska sildar
stofnsins. Minna magn af ís-
lenzkri síld virðist hafa geng
(Framhald á 15 síðu)
nr / 1 •
Ivo ný skip
til Ólafsfjarðar
Ólafsfirði. — Héðan eru nú
gerð út sex skip á sildveiðar
fyrir Norðurlandi: Guðbjörg,
Einar Þveræingur, Þorleifur
Rögnvaldsson, Kristján,
Gunnólfur og Stígandi. —
Vonir standa til að tvö ný
skip bætist í fiskiflota Ólafs
firðinga nú í sumar. Skip það
sem bærinn kaupir verður til
búið um 20. júlí. Hitt skipið,
sem Hraðfrystihús Ólafsfjarð
ar kaupir, er í smíðum í
Noregi og verður ekki tilbúið
fyrr en um mánaðamótin
ágúst—september. Er það 250
lestir að stærð. — Þá hafa
verið keyptir hingað fimm
smærri dekkbátar frá 8>/2—
27 smálestir að stærð. Voru
bátarnir keyptir víðs vegar að
af landinu. Þá eru gerðir héð
an út 20 smærri trillubátar
eins til fimm lestir að stærð.
— Björn.
Synti úr Hrís-
ey til Dalvíkur
Dalvík, 30. júní. — Eyjólf-
ur Jónsson, sundkappi. synti
í gærkveldi frá Hrísey til Dal-
vikur, sem er um 7 kílómetra
leið. Tók sundið réttar fimm
klukkustundir.
Eyjólfur lagði frá Hrísey
kl. 21,10 í gærkveldi og virt
ist hann óþreyttur og hress
er hann náði landi i Dalvík
kl. 2,10. — Mikill mannfjöldi
beið Eyjólfs í lendingarstað
og hyllti hann með húrra-
hrópum, er hann steig á land.
Eyjólfur er fyrsti maður, sem
betta sund þreytir. PJ.