Tíminn - 02.07.1960, Qupperneq 3
TjftMPI N;N, laugardaginn 2. jólf 1960.
3
Eru frystigeymslur S. H. í
Bandaríkjunum óhæfar?
Ciljan og Gunnar
(Framh. af 16. síðul.
lagði fé í, séu komin í millj.
tap.
Þá setur blaSið þess, að
bækur beggja skáldanna,
Nóbelsskáldsins Laxness og
Gunnars Gunnarssonar, hafi
selzt vel í Danmörku og því
sé mjög sennilegt, að þeir
hafi átt verulegar fjárupp-
hæðir í vörzlum Jacobsens.
— Aðils.
8ál í Luindey
(Framh. af 16. síðu).
fyrrakvöld, og hefði ætlunin
verið að fara upp í Skerja-
fjörð og huga að sel, en þeir
félagar hefðu hætt við þau
áform áður en langt var kom
ið og haldið út á Kollafjörð.
Þar bilaði vél bátsins, en
benzínstífla mun hafa verið
í henni og eitthvað að kveikju
loki. Náðu þeir félagar bátn
um upp í fjöru í Lundey, til
að þá ræki ekki út á flóa.
Stórgrýtt er þar, og sagöi
Erling að báturinn myndi
vera eitthmð brotinn. Þetta
gerðist áður en þokan skall
á um miðnættið. Tókst þeim
þremenningum að gera við
vélina í fjörunni en um þær
mundir að viðgerðinni var
lokið, hafði fjarað undan
bátnum, sem er um sjö lestir
að stærð.
Sieiktu lunda
Sagði Erling að þeir félag
ar hefðu hafst við í eynni
um nóttina. Hefðu þeir allir
verið sæmilega klæddir, en
orðið kalt, enda suddi og
þoka. Sátu þeir í fjörugrjót-
inu alla nóttina og höfðu
ofan af sér með því að tala
saman. Úr mtarleysinu var
bætt með því að steikja lunda
á eldi, en eins og nafn eyjar
innar ber með sér, er þar
mikið um þá fuglategund.
Sagði Erling að þeir hefðu
verið orðnir sígarettulausir,
en allir munu þeir félagar
reykja.
táturinn fastur
Erling sagði að um morg-
uninn hefðu þeir ætlað að ná
bátnum úr fjörunni á flóði,
en þegar það tókst ekki, hefðu
þeir kveikt bál og notað til
þess spýtnabrak og gamla
hjólbarða, sem þeir fundu á
eynni. Bál þetta sást eins og
fyrr segir frá bænum Móum,
og var Slysavarnafélaginu
gert aðvert. Er Gísli J. John-
sen kom að Lundey óðu þre-
menningarnir á móti honum
og komu að Grandagarði um
þrjúleytið í gær. Virtust þeir
hinir hressustu eftir þessa
ævintýraför.
Að lokum gat Erling þess,
að hann mundi reyna að ná
bátnum út með kvöldflóðinu.
H.
Alþýðublaðið skýrir svo frá í
í gær að komið hafi í Ijós að
frystigeymslur Sölumiðstöðv-;
ar hraðfrystihúsanna í Banda-j
rikjunum séu svo lélegar, að
fiskur stórskemmist í þeim.j
tnn fremur segir blaðið að
creifingarumboð SH vestra
hafi vísvitandi reynt að koma
skaðanum af þessu ástandi
yfir á frystihús hér á landi.
Segir blaðið að dreifingarum-
Loðið hafi fyrir nokkru látið þau
boð út ganga, að búast mætti við
sölustöðvun á framleiðslu frá
í iskiðjuveri Sauðárkróks h.f.
vegna galla sem komið hefðu í
ljós í ákveðinni sendingu af freð-
fiski. — Nánari skilgreining var
ekki látin í té og tókst ekki að
afla hennar, en gefinn var kostur
á að kaupa nefnda sendingu fyrir
háifvirði, segir blaðið.
Síðan skýrir blaðið svo frá að
matsmaður frá SH hafi verið send-
ur til Sauðárkróks og þítt þar upp
fjsk en ekkert fundið athugavert.
Hafi framkvæmdastjóri frystihúss-
n;s, Páll J. Þórðarson þá farið
utan og kynnti sér frystigeym'slur
Söiumiðstöðvarinnar í New York
ásamt matsmanni frá SH, og hafi
þeir komizt að raun um að
grymsluskilyrðum væri svo áfátt,
að þar væn ekki fiskur geym-
andi.
Einnig segir blaðið, að þeir fé-
lagar hafi ætlað að hitta Jón
Punnarsson, sölustjóra SH vestra,
en hann hafi farið til Englands
þegar þeir tveir voru væntanlegir.
Þá segir blaðið, að komið hafi
í ljós, að fiskur frá Sauðárkróki,
framleiðsla frá 1958, ónýtur vegna
lólegra geymsluskilyrða, hafi
biandast saman við framleiðslu frá
Sauðárkróki, frá 1959. Að lokum
segir blaðið: — Ef Fiskiðjuver
Sauðárkróks h.f. hefði samþykkt
verðlækkunina hefði dreifingar-
umboðið haft möguleika til stór-
gróða á umræddri sendingu.
Tíminn sneri sér í gær til
Björns Halldórssonar, fram-
kvæmdastjóra SH og spurði hvað
hann vildi segja um skrif Alþýðu-
b.'aðsins. Framkvæmdastjórinn
kvaðst ekki hafa haft tíma til að
kynna sér málið, en kvað skrif
Alþýðublaðsins byggð á reginmis-
skilningi og mundu skaða fisk-
rcarkað okkar vestra ef greinin
yrði þýdd og birt þar. Þá sagði
hann að frystigeymslur Sölumið
stöðvarinnar væru í einni af
stærstu frystigeymslum New York,
þar sem mörg önnur fyrirtæki
heíðu geymslur og taldi þar
rcundi ekki um neitt ófremdará
siand að ræða eins og Alþýðu-
blaðið telur. —B.
Líkur til að síldin
haldist enn vestra
I gær var mest síldveiði út
af Norðfjarðarhorni. Var síld-
in þar á stóru svæði strjál og
stygg, en þó fengu nokkur
skip sæmileg köst þar Þá
fengu fáein skip síld suður af
Langanesi, og síðdegis í gær
fannst síld um 16 sjómílur SV
af Siglufirði. Fengu nokkur
skip ágæt köst þar. Löndunar-
bið er enn á öllum Austfjarða
höfnum, en bræðsla víðast haf
in eða að hefjast.
I Skipin sem síld fengu út
af Siglufirði í gær voru:
Vörður SH, 740; Valafeli SH,
700 og Atli, 500, en vitas var
af fleiri skipum þar að veið-
um. Þessi síld er heldur mis-
jöfn og horuð. Þá komu tvö
skip með síld austan frá
Langanesi: Guðbjörg, ís, 574
og Árni Geir SH, 826. Klukk-
an 6 í gær höfðu SR á Siglu
firði tekið við 143 þúsund mál
um en Rauðka 19.117, og nokk
ur skip biðu löndunar. —
Rauðka hefur nú brætt úr
þróm sínum og SR eiga um
sólarhrings bræðslu eftir,
nema fleiri skip komi í nótt-
i
i AUt fullt eystra
! Enn bíða nokkur skip lönd
! unar á Raufarhöfn, en að-
| eins eitt skip kom þar i gær.
| Fagriklettur. sem fékk um 100
í mál þar rétt fyrir utan. —
Castro
(Framh. af 16. síðu).
olíu sinni frá Venezuela. Þau
neituðu að hreinsa hina
rússnesku olíu.
Þess er nú beðið með nokk
urri eftirvæntingu til hvaða
ráða Bandaríkjastjórn gríp-
ur. Fyrir nokkru samþykkti
Bandaríkjaþing lög, sem
heimila forsetanum að gera
breytingar á sykurkaupa-
samningi ríkjanna, en Banda
ríkin hafa keypt helminginn
af sykurframleiðslu Cubu á
verði, sem er yfir heims- (
markaðsverði. Talsmaður;
bandaríska utanríkisráðu-
neytisins sagði í dag, að á-,
standið á Cubu væri að verða
alvarlegt. Þar væri nú mið-
stöð áróðurs frá Sovétríkjun
um meðal lýðvelda Suður- og
Mið-Ameríku.
13 fjúse km
á kajak
S.l. míðvikudag hófu tveir ungir
menn æviniýralegt ferðalag frá
I'arís til Karachi, 13 þús. km vega
lengd. Þeir ætla þessa leið á kaj-
ak, sem hægt er að brjóta saman
ug vegur þá aðeins 34 kg. Hann
er gerður úr gúmmí og lérefti,
hefur tvö siglutré og þrjú segl.
Ævintýramennirnir eru David
Pierre, 28 ára, sonur kanadíska
sendiherrans í Belgiu og Victor
I-into 26 ára frá New York. Þeir
félagar sigla eftir skipaskurðum
írá Paris' til Rhone-dalsins og það-
ar. út á Miðjarðarhaf, eftir skipa-
skurðum frá Genúa til Feneyja,
fra Adríahafi þvert yfir Miðjarðar
haf til Kairó og þaðan eftir Súez-
skurði til Rauðahafs og yfir Pers-
r.eska flóann til Karachi.
Á Vopnafirði var stanzlaus
'Síldarlöndun í gærdag, og um
hádegi höfðu borizt þangað
13.850 mál en mörg skip
höfðu boðað komu sína. Þróar
pláss er þar fyrir 20 þúsund
mál, en bræðsla hefst ekki
fyrr en í dag. — Þrír bátar
komu til Seyðisfjarðar í gær:
Sídon VE, 700; Þorlákur ÍS,
750 og Sindri VE, 700.
Þrær verksmiðjunnar fyllt
ust í gær, en 4 bátar biðu
með um 2000 mál. Landað er
jafnóðum og þrær losna, en
verksmiðjan afkastar 2500
málum á sólarhring. — Þrær
síldarverksmiðjunnar á Nes-
kaupstað fylltist þegar í fyrra
dag, en 4 bátar komu í dag
og bíða löndunar. Þrærnar
taka 10 þúsund mál, en verk
smiðjan á að afkasta 2500
málum. Vonir stóðu til að
bræðsla gæti hafizt í gær-
kvöldi. — Þá stóð til að
bræðsla hæfist á Eskifirði í
dag, en verksmiðjan var
reynd í gser.. Von var á fyrstn
sí’dinni þangað í nótt. —ó.
Síðustu fréttir kl. 22,45. Síld-
arleitin á Rauíarhöfn fékk þær
vpplýsingar frá Norðurfara frá
Vág í Færeyjum, að skipið hefði
séð margar síldartorfur norðaust
ur frá Kolbeinsey. Um sama
leyti var Tjaldur að kasta 50
• jóm. NA frá Hraunhafnartanga
og liafði séð þrjár torfur. Bendir
þetta til að síldin ætli að hald-
ast kyrr vestra.
Skipbrotsmenn
(Framh at 1 síðu).
neyðarskeyti. Allur mannskapur-
inn, 16 manna áhöfn og 3 farþeg-
ar, þar á meðal kona skipstjórans
og ungur sonur, fóru upp á þilfar.
Á bátadekkinu voru tveir gúmmí-
bátar, þeir voru blásnir upp á
svipstundu með því að taka í
snúru. Flestir komust í bátana við
skipið. Ég fór næstsíðastur og
varð að synda dálítinn spöl.
Það þurfti aldr'ei að grípa tii
neyðarsendis og ljósvélin var virk
til hins síðasta. Fólkið var rólegt
og enginn sýndi á sér fum né
fáí.
— Geturðu nokkuð sagt okkur
um orsakir slyssins?
— Enginn okkar skilur hvernig
í þessu liggur, svarar Bjarni.
— Sumir hafa talið að farmur-
inn eigi sök á því hvernig fór,
skipið hafi ekki verið rétt hlaðið.
— Það er útilokað, svarar
Bjarni og endurtekur: — Enginn
okkar skilur þetta.
— Þið hafið misst allan ykkur
farangur?
— Við misstum allt, svarar
hann, urðum að fara eins og við
stóðum.
— Hvað álítur þú að hafi átt
helztan þá'tt í því að björgunin
tókst svo vel og giftusamíega?
— Gúmmíbátarnir, sagði Bjarni,
það er mjög hæpið að okkur hefði
tckizt að koma út venjulegum
björgunarbát, enda var það ekki
reynt. Ég fullyrði hiklaust að
gummíbá'tarnir hafi bjargað lífi
okkar. — En við megum ekki
gieyma skozka togaranum, okkur
var vel tekið um borð og hjálpin
barst fljótt.
Jökull
Loksins burrkur
VÍK f MÝRDAL. — í gær og
dag kom loks langþráður
þurrkur hér í Mýrdal. Sláttur
er nú almennt hafinn og er
spletta góð. — Unnið er að
brúargerð og vegagerð á Mýr
dalssandi og er það von
manna, að brúargerðin verði
langt komin eftir hálfan mán
uð eða svo, en nokkuð vatn
hefur komið niður sandinji
að undanförnu og háð um-
ferð lítilsháttar. Er ekki gott
að segja hversu fer um vatns
gang á sandinum í framtíð-
inni. Óskar.
Málar fyrir kóng
og drottninguna
Grænlenzki málarinn Hans
Lvnge mun innan skamms
verða fluttur á bát út í smáey
óbyggða á Góðvonarfirði. Þar
verður hann skilinn eftir með
málaratrönur sínar og nokk-
urn vistaforða. Tilefni þess-
arar útilegu er, að Lynge hef-
ur tekið að sér að mála stórt
málverk, sem bæjarbúar í
Góðvon ætla að gefa dönsku
konungshjónunum og Mar-
grétu ríkisarfa, þegar þau
koma í heimsókn í sumar.
Hans Lynge er mjög fjölhæfur
maður, talinn jafnvígur málari,
myndhöggvari og rithöfundur, m.a.
eftirsóttur fyrirlesari í grænlenzka
útvarpinu og hefur þýtt mikið á
grænlenzku.
Málar við sólarupprás
Hans Lynge verður raunar ekki
mikið fyrir því að bjarga sér í ó-
ibyggð svona um hásumarið. Eins
og aðrir Grænlendingar er hann
góður veiðimaður. Hann á að mála
Imálverk, sem skal vera IVz x 1
Imetri að stærð. Það á að vera af
j fjöllunum í kringum Godthaab,
þekktust þeirra eru Hjartarhornið
j og Söðullinn. Þessi fjöll hafa lengi
verið helztu siglingamerki sjó-
manna við Godthaab og auðvitað
eiga þau að koma á kóngsmálverk-
ið. Málarinn ætlar að mála lands-
lagið eins og það lítur út um sólar-
upprás og verður því að vera ár-’
risull.
Fulltrúafundur
Framsóknar-
manna nyrðra
Um helgina fer fram full-
trúafundur Framsóknarfélag
anna í Norðurlandskjördæmi
eystra að Laugum í Reykja-
dal. Þar verður rætt um
skipulagsbreytingar félagianna
vegna hinnar nýju kjördæma
skipunar. 50—60 fulltrúar
sækja fundinn, sem hefst kl.
2 í dag. E.D.