Tíminn - 02.07.1960, Síða 8

Tíminn - 02.07.1960, Síða 8
8 TÍMINN, laugardagmn 2. júli 1960. Barðaströnd til Patreksfjarð ar en hin uppá Dynjandis- heiði. Við leggjum á heiðina og förum upp með ánni, með- fram Þverdalsvatni og fyrir Hornatær, en það eru háir tindar sem sagan segir a-5 Hrafna-Plóki hafi gengið uppá og séð þaðan fjörð full an af ísi, fyrir hvað hann nefndi land okkar því kulda lega nafni sem það hefur bor- ið síðan. Þykk og grá fjalla- þokan á heiðinni byrgði út- sýn og þama í kófinu hittum við brúargerðarmenn sem spjölluðu við okkur stundar- korn. Af heiðinni er komið niðurí dalbotninn svo vel gat að líta Dynjandisfossa, sem flestir íslendingar munu hafa séð á mynd eða á bláu frí- merki, sem gefið var út af póstmálastjórninni fyrir mörg um árum og er sennilega kom ið í gott verð. Vagninn stoppar við Skálmarnesmúla, Ásmundur upp á þakið og afhendir farangur. Tímamót í samgöngu- málum Vestfiröinga Síðast liðinn mánudag var ekið með farþega Vestfjarða- leiðar h.f. til ísafjarðar og er það í annað sinn að áætlunar ferð Vestfjarðaleiðar fer þá leið um hinn nýja veg yfir Dynjandisheiði fyrir Arnar- fjörð um Þingeyri og Flateyri og allt til ísaf jarðar. Fyrsta á- ætlunarferðin var fyrir skömmu farin á þessu sumri. Með ópnun hins nýja vegar og áætlunarferðum til ísa- fjarðar eru mörkuð tímamót í samgöngumálum hérað- anna á Vestfjörðum og einnig má slá því föstu að þar verði um eftirsótta ferðamannaleið að ræða, þar sem vegurinn liggur um eitt stórbrotnasta fjalllendi sem getur á íslandi, slóðir sem flestum eru lítt kunnar. Préttamenn frá blöðunum fóru í þessa ferð í boði Vest- fjarðarleiðar og Bifreiðastöðv ar íslands. Aðaleigandi Vest- fjarðarleiðar, Ásmundur Sig- urðsson frá Efstadal í Laugar dal, var með í förinni og ók hann sjálfutr til ísafjaröar við annan mann. Frarstjóri var Haraldur Teitsson forstj. Bifreiðastöðvar íslands. Áætlunarferðir Vestfjarðaleið annast sér- leyfisakstur i Dali, Reykhóla- sveit, Patreksfjörð og til Þing eyrar, Plateyrax, ísafjarðar ’ og Melgraseyrar við ísafjarð adjúp. Pyrirtækið er stofnað árið 1955 af Júlíusi Sigurðs- syni, Jóhanni Guðlaugssyni, Sturlu Þórðarsyni og Kj artani Guðmundssyni. Árið «1958 hvarf Júlíus úr fyrirtækinu og kom Ásmundur Sigurðsson í hans stað. Pyrri sérleyfishafi Vestfjarð aleiðar, Guðbrandur Jörunds son, sem annaðist sérleyfið allt frá 1930, seldi fyrirtæk- inu bílakost sinn, en það voru fimm bifreiðar. í dag er bíla- kostur Vestfjarðarleiðar mjög góður, þrjár nýjar eða nýleg ar bifreiðar, sem taka um eða yfir 40 manns í sæti hver og ein bifreið ný væntanleg í næsta mánuði, og verður hún eins og bifreið sú, er félagið fékk á þessu vori, þ. e. 36 manna Scania Vabis, yfir- byggð samkvæmt nýjustu og ströngustu kröfum, sem gerð ar eru til fólksflutningabif- reiða. Einnig á fyrirtækið 2 minni og eldri bifreiðar og er önnur þeirra með framdrifi' og mikið notuð á vetrum þeg ar snjóar eru. Um Þverfirði Ferðafólk mátti kallast heppið með veður. Birti yfir þegar komið var í Dali og eft ir ag hafa setið að snæðingi í Búðardal var haldið áfram í glampandi sólskini allt í Bjarkarund, þar sem kaffi var drukkið. Síðan liggur leið in vestur á bóginn um hina svipmiklu firði, sem kallaðir eru Þverfirðir í Landnámabók. Þar er svipmikið útsýni til Breiðafjarðareyja og þegar komið er uppá Þingmanna- Önnur ferð Vestfjarðaleiðar til ísaf jarðar heiði milli Vattarfjarðar og | byggðar, en yzt í firðinum Vatnsfjarðar má segja as út-,vestan megin er Brjánslækur sýn hið næsta gerist æði stór- hið forna höfuðból Gests Odd skorin. Þingmannaheiði er leifssonar hins spaka. mikill farartálmi á þessari Einhver samferðamann- leið, verður alófær í fyrstu I anna hafði orð á því, að væn snjóum og opnast ekki fyrr ilegt þætti sér að reka sumar en seint á vorin. Síðan er kom dvalarhótel í Vatnsfirði. ið niður í Vatnsfjörð. Hann er vestastur Þverf jarðanna og | Dynjandisheiði þeirra fegurstur. Þar er mik Vi3 Penná innarlega og ið skógarkjarr, vatn í daln-, vestan Vatnsf jarðar skiptast um og einskis manns land til' leiðir og liggur önnur um Mjólkárvirkjun Síðan er ekið fyrir Meðal- nes í Borgarfjörð og er þá komið að Mjólkárvirkjun, orkuveri Vestfirðinga. Vegur- inn liggur rétt við stöðvarhús ið en ofan úr hárri hlíðinni steypast Mjólkárnar. Vatns- leiðslan að stöðvarhúsinu liggur ofan af fjallsbrúninni norðan ánna, en þar uppi er fyrirstaðan. Þaðan er ekið út Arnar- f jörðinn og rétt neðan við tún fótinn á Rafnseyri, fæðingar stað Jón Sigurðssonar. Klukk an er nú farin að nálgast 12 en lagt var af stað í þessa ferð um kl. 8 um morguninn. Ekki ber þó á þreytu hjá far þegunum, gleði er haldið hátt á loft í aftursætunum en þrj'ú ung böm á ferð með móður sinni frá Reykjavík til Flat- eyrar sofa vært. Þessir litlu ferðafélagar stóðu sig með prýði' á þessari löngu leið og heyrðist aldrei frá þeim óá- nægjuhljóð. Til Flateyrar Leiðin úr Rafnseyrardal til Dýrafjarðar liggur yfir einn fjallveginn enn, Rafnseyrar- heiði, sem er 552 metrar yfir sjávarmáli og er þá komið niðurí Brekkudal fyrir ofan Þingeyri. Þar hefur bifreiðin viðkomu. Síðan er ekið fyrir Dýrafjörð og um Gemlufalls heiði og komið í Bjarnardal og fer þá að styttast leið til Flateyrar. Pramh. - b. Vorþing Umdæmisstúkunnar Vorþing Umdæmisstúkunn- ar nr. 1, var haldið í Bind- indishöllinni í Reykjavík dag ana 28. og 29. maí s.l. — Kjör bréf höfðu borizt frá 3 þing stúkum, 16 undirstúkum, 5 barnastúkum og 1 ungmenna stúku, með samtals 98 full- trúa. Af þeim mættu 68 á þinginu. — Á þinginu voru lagðar fram skýrslur embætt ismanna, voru þær mikið 1 ræddar, og jafnframt ýms á- hugamál Reglunnar og fram tíðarstarfsemin í umdæminu. Þá voru lagðir fram reikn- ingar Barnaheimilis Templ- ara, en barnaheimili Templ- ara rekur heimili fyrir van- þroska börn að Skálatúni i Mosfellssveit. Þar er og rek- inn nokkur búskapur af sama aðilja. Ákveðið var að halda mót bindindismanna í Húsafells- skógi um verzlunarmanna- helgina, og er vonast til að. sem flestir Templarar og bind indissinnað fólk mæti þar. Þá var 70 ára afmælis Umdæmisstúkunnar minnst hinn 31. mal með samsæti í Góðtemplarahúsinu í Reykja vík, var það mjög fjölmennt. Pramkvæmdanefnd Um- dæmisstúkunnar nr. 1 fyrir ! næsta ár skipa þessir menn: I Umdæmistemplar: Hreiðar i Jónsson. Umdæmiskanzlari: Kjartan Ólafsson. Umdæmis- varatemplar: Margrét Sig- mundsdóttir. Umdæmisritari: Sigurður Guðmundsson. Um- dæmisgjaldkeri: Páll Kol- beins. Umdæmisgæzlumaður unglingastarfs: Hilmar Jóns- son, Keflavík. Umdæmis- gæzlumaður löggiafarstarfs: Karl Karlsson. Umdæmis- fræðslustjóri: Jón Hjörtur Jónsson, Hafnarfirði. Um- dæmiskapelán: Kristjana Benediktsdóttir. Umdæmis- fregnritari: Guðmundur Þór arinsson, Hafnarfirði. Fyrrum Umdæmistemplar: Þórður Steinþórsson.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.