Tíminn - 13.07.1960, Side 9
T-jfeM.IN-N, mlgvikudaghm 13. júií lQeO,.
9
Y//X/.ÝX4
Héraðsstjórnin í Lodz hefur samkeppni og námskeið fyrir listafóik úr al-
þýðustétt, og sýningar eru haldnar á listmunum og minjagripum þess.
Hér eru sýndar listavel unnar brúður í þjóðbúningum.
sýnir ihaim persónur í hinum frá-
leitustu stellingum, stundum
áhrifamidar landslagsmyndir, og
n-otar einkum vatnsliti eða gouache
liti á pappa. Nikifor fæddiSt mál-
haltur, og því hefur hann frá barn
æskn lifað í sínum eigin, innra
heimi, einangraður frá umhverfi
sínu, og langanir hans, þrár og
draumar birtast aðeins í málverk-
unum. Þessi prímitívisti hefur öðl
ast mjög frumlegt listaskyn, sem
birtist í þroskuðu formi, og aðeins
uppruni haas veldur því að hann
er hér talinn í hópi alþýðulista-
manna.
Málverkin ein gefa ekki rétta
mynd af því hvernig litir eru not-
aðir í pólskri alþýðulist. Þar ber
einnig að nefna marglitar klipp-
myndir og skreytt hús. Það er t.
d. frægt 'dæmi um forna listhefð,
þegar bændurnir í þorpinu Zalipie,
í héraðinu Dabrowa Tarnowska,
skreyta árlega veggi húsa sinna
með lituðum myndum. Þar prýða
fagrir sveigar af stílfærðum villi-
hlómum eða kornbundinum hús-
veggi, loft, ofna og jafnvel hunda-
kofa. Þá ber að nefna fagurlega
skreyttar kistur og annan húsbún-
að, sem gerir híbýli mianna litrík.
Alþýðulistin glatar ekki gildi sínu;
hún er í meiri metum nú en
nokkru sinni fyrr; hún er mikil-
vægur þáttur í menningararfleifð
pólsku þjóðarinnar og greinir
hana frá öðrum þjóðum. Alþýðu-
listina er víða að finna, einkan-
lega til sveita, en heilsteyptust
birtist hún í tréskurði og málverk
um.
Eins og verzlunarstaðir fyrri
alda, voru sér í lagi reistir
með tilliti til bústaða og hafn-
arskilyrða, hefur seinni tími,
öld bifreiða og flugvéla, skap-
að nýja þróun, verzlunarbæir
hafa risið og einnig greiðasölu
staðir, þar sem ferðamaðurinn
úr ryki þjóðvegarins, getur
hvílzt um stund yfir bolla af
kaffi.
Einn þeirra staða. sem risið
hefur upp um þjóðbraut þvera,
í orðsins fyllstu merkingu, er
héruðum, eða afdrep fyrir
ferðamenn.
Flestir, sem ferðazt hafa um
Ísland í bifreiðum, vita að
víða eru hreiður meðfram veg-
um, þar sem ferðamönnum er
ætlað að stanza og eyða pen-
ingum við misjafnan orðstýr,
svo ekki sé meira sagt. En þó
eru nokkrir staðir, sem enginn
ferðamaður vildi vera án. Stað-
ir, sem áunnið hafa sér óum-
deilanlegan lífsrétt, og Vega-
mót eru einn þeirra. Lítill
Þarfur gisti- og verzlunar-
staður um þjóðbraut þvera
hagnaður mun vera af greiða-
sölunni að Vegamótum, ef allt
árð eir reiknað, en ágóðinn af
viðskiptum sumarsins, þegar
margir koma að Vegamótum, er
notaður til þess að halda uppi
þjónustu fyrir ferðamenn að
vetrarlagi, en þá ferðast svo
fáir, að tap er á rekstrinum.
Blaðamaður Tímans, sem
átti þarna leið um, notaði tæki-
færið til þess að spjalla svolítið
við útibússtjórann áð Vega-
mótum, Einar Guðbjartsson, *til
að fræðast um staðinn. Einar,
sem er Vestfirðingur að ætt,
hefur vertt staðnum forstöðu
síðan árið 1957, og sagðist hon-
um frá á þessa leið:
— Hér á Vegamótum er rek-
in margháttuð starfsemi. Hér
er kaupfélagsbúð fyrir fólkið í
nágrenninu. Að vísu höfum við
ekki nægar geymslur, frystingu
(Framhald a 13 -íðui
Vegamót, sem er greiðasölu-
staður Kaupfélags Stykkisólms,
sem einnig hefur þar útibú frá
verzlun sinni.
Vegamót. — Eins og nafnið
bendir til, eru þarna vegamót.
Vegurinn út sunnanvert Snæ-
fellsnes, skiptist þar, og ligg-
ur annar vegurinn vestur til
Ólafsvíkur og umhverfis Snæ-
fellsjökur, en hinn vegurinn
yfir fjallgarðinn, til Stykkis-
hólms og fleiri staða.
Þó eitthvað hafi verið fengizt
við greiðasölu þarna fyrst eftir
að vegurinn var lagður, má
heita svo, að Kristján Breið-
dal, útibússtjóri, hafi reist stað
inn með fádæma dugnaði, og
komið honum á legg, því eftir
að hann tók þar við forráðum
árið 1949, fór staðurinn, að fá
á sig þann blæ, sem haldizt
hefur til þessa dags, og engum
kemur víst til hugar lengur, að
Vegamót verði lögð niður, sem
sveitaverzlun í gróðursælum
Vegamót, elns og þau líta út í dag. Hér hefur mikiS breytzt síðan
Jón Sigurgeirsson hóf þarna greiðasölu og verzlun árið 1934 og byrj-
aði þá í tjaldi. Flest húsin á myndinni eru reist i tið Kristjáns heitins
Breiðdals, sem manna mestan þátt átti í vextl Vegamóta.
eins viSsjárverö og háska-
leg, vegna þess, að þau ræni
tíma frá öSrum merkilegri
og gagnlegri viðfangsefnum,
heldur eru þau oft bemlínis
vermireitir vondra siða; þau
eru ekki aðeins tilgangslaus
sóun á tíma, heldur of oft
ill meðferð á tíma og á vínið
ekki sízt sök á því. Það er oft
í samkvæmum notað sem
eyðufyllir, sem eins konar
flotholt til að forða sér frá
drukknun í úthafi þess
andleysis og tómleika, sem
of oft er hið innsta eðli
slikra samkvæma. Það er um
hönd haft til þess að fram
leiða gerfigleði, af því að
ekki eru til nægilegar birgð
ir af hinni eðlilegu, sönnu
gleði. — Og því er miður,
að stundm er hér um skálka
skjól að ræða. Ef ein-
hvern ábyrgðarlausan mann
og siðferðilega sljóan lang-
ar til þess að gefa
sér lausan tauminn, er
ágætt ráð að flýja á náðir
Bakkusar, sækja til hans
áræði og þor til þess að
brjóta hinar siðferðilegu
hömlur, og skella svo skuld
inni á hann, þegar óráðs-
vfman er rokin burt, og ó-
þægilegar samvizkuspurn-
ingar taka að vakna. „Hann
var fullur! Hann vissi ekki
hvað hann sagði eða gerði !“
Þess konar afsakanir heyr-
ast oft, en í raun og veru
er þá um tvöfalda sök að
ræða, fyrst þá, að drekka
frá sér vitið, og síðan hina,
að haga sér eins og flón sem
reyndar var eðlileg afleið-
ing af hinu fyrra.
Loks nefni ég eina höfuð-
orsökina, sem ef til vill er
frumorsökin, móðurorsökin,
sem svo mætti kalla. Það er
andlaus og lágfleyg efnis-
hyggja. Ef vér erum aðeins
dægurflugur, aðeins líkamir
en ekki ódauðlegar sálir,
hví skyldum vér þá
vera að gera oss lífið of örð
ugt? Hví skyldum vér þá
ekki leita sem mestrar
stundargleði, og drekkja
jafnvel sorgum vorum og á-
hyggjum í sem flestum glös-
um af víni? Tilveran er
hvort sem er á einu alls
herjar fylliríi! — Ég veit,
að sumir segja, að menn eigi
að leggja stund á dyggðir.
dyggðanna vegna, þar á
meðal hóf og jafnvel bind-
indissemi, en ekki vegna ein
hverra launa, hvorki hér né
hinum megin grafar. En hér
er ekki djúpt hugsað. Þvi að
þó að einhver maður sé kom
inn á svo hátt andlegt
þroskastig, að hann hirði
ekki um önnur laun en þau.
sem fólgin eru í sjálfri á-
stundun hins góða, í gleði
góðrar samvizku, skulum vér
segja, losnar hann þó ekki
með öllu við það ámæli, að
hann sé ofurlítið eigingjarn.
því að hann finnur vellíðan
. og hamingju, finnur laun
sín, í ástundun hins góða.
Ef hann legöi ekki stund á
það, sem hann telur rétt og
gott, mundi honum líða illa.
Hann er að flýja þá vanlið-
an með því að leggja stund
á það, sem gott er. Vér skul
um ekki gera oss að kján-
um! Vér skulum viður-
kenna afdráttarlaust, að vér
losnum aldrei við alla eigin
girni. Ef innsta eðli tilver-
unnar er hamingja — og því
trúum vér sumir — hvers
vegna skyldum vér þá ekki
leita hamingjunnar? — Hitt
er annað mál, að leiðirnar
til hamingjunnar geta verið
margar og mismunandi, og
að skipta má eigingirninni
í tvo flokka, æðri og lægri
eigingirni Lægri tegund
eigi'ngiminnar er heimsk og
þröng, lifir fyrir augnablik-
ið, er nærsýn og persónu-
bundin. Hin æðri eigingirni
er upplýst, víðsýn, leitar
langmiða fremur en stutt-
miða, ópersónuleg og and-
leg. Það hljómar einkenni-
lega, en samt er það satt, aö
hin æðri eigingirni er fólgin
í því að gefa. Hin lægri er
aftur á móti í því fólgin —
að taka, hrifsa til sín. Ég fæ
ekki séð, að til nokkurs sé
að segja við mennina; Losið
yður við alla eigingirni, enda
eru það í raun og veru inni-
haldslaus orð. Hitt væri rétt
ara að segja: Verið eigin-
gjarnir á réttan hátt! En
alveg eins og það er til ills
eins að láta mönnum I té
ávísun á inneign, sem engin
er til, eins er það í raun
réttri háskalegt í andlegum
og siðferðilegum efnum aö
gera kröfur, sem lífið sjálft
viðurkennir ekki, auk þess
sem það er uppreisn gegn
réttri hugsun. Ef vér eigum
að halda fast við þá kröfu
að útrýma skuli allri eigin-
grini, yrðum vér, ef vér vild
um alveg vera sjálfum oss
samkvæmir, að fara fram á
það, að Alföður mætti þókn
ast að láta oss kveljast um
alla eilífð, eða þá að þurrka
oss alveg út úr tilverunni,
og er þó vafasamt, hvort hið
síðarnefnda mundi bera
vott um nógu mikla óeigin-
girni, að dómi sumra þeirra
sem hlakka yfir falsrökum
þeim gegn þroskaviðleitni
mannanna, sem hér hafa
verið gerð að umtalsefni.
Ég hef fjölyrt dálítið um
falsrök þessi vegna þess að
þau ná einnig til þess við-
fangsefnis, sem hér er tekið
til meðferðar. Ef menn
hlusta í heilagri einfeldni
of mikið á yfirborðshjal um
það, að ástundun siðfágaðs
og ræktaðs lífs, þar á meðal
hófs og bindfndissemi. sé
ekki annað en eigingirni,
geta þeir farið að verða hik
andi, og að síðustu láta þeir
sig ef til vill með fögnuði
falla í tálgryfjur Bakkusar.
En nú er bezt að athuga
ofurlítið það, sem nefnt er
,,hófdrykkja“ og ,ofdrykkja‘.
Jafnvel hófdrykkjumennirn
ir kenna að ofdrykkjan eigi
engan rétt. á sér — hún sé
böl, sem berjast eigi gegn
með öllum hugsanlegum ráð
um, það er að segja, nema
með hinu eina ráði, sem dug
ar til fulls; þaö er að segja
algjört bindindi eða útrým-
ingu vínsins af frjálsum
markaði. Það, sem postular
hófdrykkjunnar eru sérstak
lega sekir um, er því það, að
þeir eru ekki raunsœismenn,
venjulega hvorki hvað sjálfa
þá snertir eða aðra. Ég á
við það, að oft er mjög fjarri
því að „hófdrykkja“ þeirra
sjálfra verðskuldi það nafn,
og ekki síður hitt, að það er
hin mesta firra, að.hægt sé
að kenna mönnum yfirleitt
að drekka í hófi. En aðalat-
riðið í þessu sambandi er þó
það, að vínið er ekki nauð-
synlegur hlutur. Það auðgar
ekki lífið að neinum þeim
verðmætum, sem ekki er
hægt að fá annars staðar
eða með öðrum hætti, og
án þess að til nokkurra
mannskemmda leiði. Það,
sem er sérstaklega hættu-
legt og viðsjárvert við hina
svokölluðu hófdrykkju, er
það, að afleiðingar hennar
eru stundum lítt sjáanlegar
öðrum en mjög skyggnum
augum. Eitrið sem seitlar
inn í sál og líkama, fer sér
hægt, læðist, svo að jafnvel
sá, er vínsins neytir, heyrir
ekki fótatakið, og heldur að
engin hætta sé á ferðum. —
Mér dettur þó ekki í hug að
halda því fram, að það hafi
nein veruleg áhrif á likama
eða sál, þótt menn fái sér
eitt eða tvö staup af vini
einstaka sinnum, en aðalat-
riðið í þessu sambandl er
það, að hér er um að ræða
(Framhald á 13. síðu).