Tíminn - 13.07.1960, Síða 10
10
MINNISBÓKIN
LÆKNAVÖRÐUR
i slysavarSstofunnl kl. 18—8, sími
15030.
Sklpadeild SÍS:
Hvassafell fer væntanlega í dag
frá Arehangelsk til Kolding og Aar-
hus. Arnarfell fer væntanlega 11.
þ. m. frá Archangelsk til Swansea.
Jöbulfell fór frá Kaupmannahöfn í
gær til Hull' og Rvíkur. Dísarfel! fór
frá Reykjavík 11. þ. m. til Dublin,
Coa-k og Esbjerg. Litlafell er vænt-
anlegt til Rvíkur í dag. Helgafell er
í Leningrad. Hamrafr er væntan-
legt til HafnarfjarSar 14. þ. m.
SkipaútgerS rikisins:
Hekla er væntanleg til Kaupmanna
hafnar árdegis á morgun. Esja er
á Austfjörðum á suðurleið. Herðu-
breið er væntanleg til Rvíkur í
kvöld að vestr.n úr hringferð. Skjald-
breið fer frá Rvík kl. 17 í dag til
Breiðafjarðar og Vestfjarða. Herj-
ólfur fer frá Rvík kl. 21 í kvöld fil
Vestmannaeyja og Hornafjarðar.
Hf. Jökiar:
Langjökull er í Hafnarfirði. Vatna
jökull er á Akranesi.
Eimskipafélag íslands:
Dettifoss kom til Rvíkur 11. 7. frá
Flateyri. Fjallfoss fór frá Huil 9. 7.
Væntanlegur til Rvíkur kl. 4,30 í
fyrramálið 13. 7. Skipið kemur að
bryggju kl. 8,00. Goðafoss er í Ham-
borg. Gullfoss fór frá Leith 11. 7.
til Rvikur. Lagarfoss fór frá Akra-
nesi 10. 7. til N. Y. Reykjafoss kom
til Hull 9. 7. Fer þaðan til Kalmar
og Aabo. Selfoss kom til Rvíkur 9. 7.
frá N. Y. Tröllafoss kom til Rvikur
4. 7. frá Hamborg. Tungufoss er í
Reykjavík.
Flugfélag íslands:
Millilandaflug: Millilandaflugvélin
Hrímfaxi fór til Oslóar, Kaupm-mna-
hafnar og Hamborgar kl. 8,30 í morg
un. Væntanleg aftur til Rvíkur kl.
23,55 í kvöld. Flugvélin fer til Lond-
on kl. 10,00 í fyrramálið. — Milli-
landaflugvélin Gullfaxi fór til Glas-
gow og Kaupmannahafnar kl. 8,00 i
morgun. Væntanleg aftur til Rvikur
kl. 22ý30 í kvöld. Flugvélin fer til
Glasgow og Kaupmannahafnar kl.
8,00 í fyrramálið.
Innanlandsflug: í dag er áætlað að
fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Egils
staða, Hellu, Hornafjarðar, Húsavik-
ur, ísafjarðar, Siglufjarðar og Vest-
mannaeyja (2 ferðir). — Á morgun
er áætlað að fljúga til Akureyrar (3
ferðir), Effilsstaða, ísafjarðar, Kópa
skers, Patreksfjarðar, Vestmanna-
eyja (2 ferðir) og Þórshafnar.
Loftlelðir:
Snorri Sturluson er væntanlegur
kl. 6,45 frá New York. Fer til Amster
dam og Luxemburg kl. 8,15. Leifur
Eiríksson er væntanlegur kl. 23,00
frá Stavangri. Fer til New York kl.
00,30.
Bifreiðasalan
Sala er örugg hjá okkur
Símar <9092 og 18966
Ingólfsstræti 9
T í M1 N N, miðvikudaginn 13. júli 1960.
GLETTUR
— Var ég ekki búinn að margsegja þér að þú mættir ekki nota háfjallasól
inni í húsinu.
Úr góðu, hvítu pokalérefti,
eða hvítum dúk, sem tekinn
er að slitna sums staðar. má
búa til snotran borðdúk með
því að sauma á hann kant úr
mislitu, þvottheldu bómullar-
efni. Skemmtilegt er að útbúa
tehettu — eða pentudúka úr
mislita efninu.
— Ég er með bráðsnjalla hugmynd,
auðvitað fáum við okkur smá snari
fyrir matinn???
DENNí
DÆMALAUSI
(Jr útvarpsdagskránni
Klukkan 20,30 í|
kvöld flytur Eiín
Pálmadóttir blaða-
maður erindi, sem ;
nefnist Á götu í
París. Elín er víð-'
förul og hefur oft
dvalpt i París.
Hún kann vel að
^egja frá, og litill
vafi er á því, að
frásögn hennar
*af litriku götulífi
Parísar verður hin
skemmtilegasta.
Helztu atriði önnur:
8,00 Morgunútvarp — tónleikar —
fréttir.
12,00 Hádegisútvarp.
12.55 Við vinnuna — tónleikar.
19,30 Óperettulög.
20,00 Fréttir.
20.55 Waldstein-sónatan .— Wilhelm
Kempf leikur.
21,20 Afrek og ævintýr — VSV rek
ur frásögn John Ilun.ters.
21,45 Léttir tónar frá Berlín.
22,10 Kvöldsagan: Vonglaðir veiði-
menn eftir Ósikar Aðalstein.
.Steindór Hjörleifsson, les.
22,30 Um sumatrkvöld.
Notið sjóinn og
sálskinið
K K
I A
D L
D D
e i
Jose L
Salinas
20
— Þessi glæpamaður hlýtur að vera
draugur, hann kcMna frá hvergi og fór
aftur til hvergi. Hann er draugur.
— Rólegur félagi, draugar stela aldr-
ei epningum.... en eitt veit ég, þó ég
viti ekki hvert hann fór, þá er eitt víst,
að hann kom út úr farangursgeymslunni.
En af hverju stoppaði Kiddi hann ekkí?
— CARAMBA! Pancho hugsaði ekk-
ert um það. Eitthvað hlýtur að hafa
komið fyrir Kidda . . og MADRE MIA.
Marga kílómetra frá bækistöðum
gæzluliðsins er kofi og þangað stefna
þau.
— Þið þekkið mig, ekki satt?
— Jú, við þekkjum þig, andinn, sem
gengur aftur.
— Gott. Geymið þessa konu fyrir mig.
Enginn má sjá hana eða frétta af henni
hér og þið farið vel með hana, látið
hana hafa nógn mat og þess háttar.
— Skai gjört, sem andinn sem geng-
ur segir.
Ég skil ekki orð af því, sem þeinri fer
á milli, en rödd hans er sem konungur
væri að gefa fyfirskipanir.