Tíminn - 13.07.1960, Side 11
T Í MIN N, mi8vikudagSnn 13. jýjí 1980.
11
VW-verksmiðjurnar gera
tilraunir með nýjan og
stærri bíl
ERU ÞETTA NÝIR FÓLKSVAGNAR?
Þessa dagana þjóta tveir
bílar með 140 km hraða á
klukkustund eftir reynslu-
brautum Fólksvagnaverk-
smiðjunnar í Wolfsburg.
Enginn óviðkomandi fær að
vera nálægur og enginn
sem hefur með þessa bíla
að gera má segja eitt auka-
tekið orð um hann. En
samt sem áður hefur ein-
hver af hinum 50 vélfræð-
ingum, sem að tilraunum
standa „lekið" og menn eru
almennt farnir að tala um
nýjan Fólksvagn, eða
„stóra bróður"
Myndirnar hér á síðunni
eru líklegast þær fyrstu,
sem teknar hafa verið af
honum og komið fyrir augu
almennings. Það var ljós-
myndari frá þýzka blaðinu
Der Stern sem tók þær frá
háhýsi nálægt reynslubraut
inni og notaði sterkar að-
dráttarlinsur við myndatök
una. Eínnig má heyra á dag
inn vélarhljóð út frá braut-
inni sem líkist hinu vel
þekkta hljóði Fólksvagns-
ins.
GÓÐ SALA ENN
Forstjóri útflutnings-
deildar verksmiðjanna
sagði nýlega: — Fólksvagn-
inn selst enn mjög vel og
hann verður framleiddur
enn um sinn Ef til vill
verður það árið 1961, sem
stór og dýrari Fólksvagn
kemur á markaðinn.
Síðan hefur ,.pressan“
verið að skrifa um orðróm-
inn um nýjan Fólksvagn.
ítalskir blaðamenn hafa
skrifað mikið um miklar
endurbætur á sportmódel-
inu „Ghia“ sem framleidd-
ur er af Fólksvagnaverk-
smiðjunni. Nokkrir Ghia
bílar eru til hér á landi.
Ghia-bíllinn var teiknaður
af ítölskum arkitektum.
Fimm til sex sinnum hafa
stórir innsiglaðir kassar
verið sendir til teiknaranna
í Torino á Ítalíu Einum
blaðamanni tókst að sjá
innihald eins kassans sem
reyndist vera teikningar af
nýjum sportbíl með svipuð-
um línum og Ghia.
MEIRA PLÁSS
Stórt ítalskt myndablað
hefur eftirfarandi eftir
heimildarmanni sínum sem
eflaust hefur greiðan að-
gang að Fólksvagnaverk-
smiðjunum.
„Stóri bróðir" verður
með vélina að affan eins og
Fólksvagninn sem við
þekkjum öll, en benzín-
geymir og varahjó! verður
framaní honum og meira
rúm verður fyrir farangur
en verið hefur. Hann verð-
ur með fjórum hurðum,
fram- og afturrúður verða
afturbeygðar, og verða þær
settar í sérstaka gerð af
vatnsþéttri umgerð Einnig
sagði þetta sama blað frá
því að til stæð> að fram-
leiða minni gerð af núver-
andi Fóiksvagni með sama
útliti, en aðeins með 700
ccm vél. En þessum upplýs
ingum blaðsins mótmæltu
verksmiðjurnar strax, en
minntust samt ekkert á
„stóra bróður". Og það
styður þann grun að bílarn-
ir tveir sem aka með 140
km hraða eftir reynslu
brautum í Wolfsburg séu í
raun og veru „Stóru bræð-
ur" Fólksvagnsins.
VERÐ 150.000 ÞÚSUND?
En samt sem áður verð-
ur Fólksvagninn framleidd-
ur enn um sinn í sinni nú-
verandi mynd Umboðs-
menn um allan heim hafa
fengið boð um það að þeir
geti rólegir haldið áfram
að selja hann í nokkur ár í
viðbót. Svona góðan sölu-
varning er ekki hægt að
taka af boðstólnum, hvað
sem öðru líður
Sá stóri verður eins og
auga gefur leið mun dýrari
og eflaust er óhætt að
segja að hann muni kosta
hingað kominn um eða yfir
150.000 krónur.
En hversu míkið maður
fær fyrir peningana verð-
ur tíminn að leiða í Ijós.
Kannski kemur það í Ijós
á bílasýningunni sem verð-
ur í Frankfurt eftir hálft
ár.
Þessar myndír eru af reynslumódelunum, þar sem þau þjct<i efrir brautunum í Wolfsburg. Að vísu eru
myndlrnar ekki fyrsta flokks, en þær náðust samt sem áður, og er það ef til vill mest um vert.
Kvikmyndahátí'ðin
(Framhald at 7 síðu)
Söguþráðurinn er svipaður,
tveir karlmenn og ein kona,
— klassiskur þríhyrningur.
Andlega kreppan er alveg hin
sama og í ofangreindri
franskri kvikmynd. Vegna
spilandi léttleika síns er kvik
myndih þó ekki léleg. Hún er
góð skemmtun, en ekkert
meira.
Það sem af er Berlínarhá
tíðinni hefur valdið mér mikl
um vonbrigðum. í fyrsta lagi
eru kvikmyndir rótgróinna
kvikmyndalanda-allt of slapp
ar. í öðru lagi er allt of mikið
af kvikmyndum frá löndum,
sem eru algerir nýliðar í kvik
myndagerð. Hér eru kvik-
myndir frá Kóreu og Kúbu,
Filipseyjum og Viet-nam,
Tailandi og Tyrklandi, Pakist
an og Súdan. Eru kvikmyndir
þessar oftast rétt í meðallagi.
Forsvarsmenn kvikmyndahá-
tíðarinnar hafa rembst allt
of mikið við að fá sem flest
lönd með. Jafnvel þótt þeir
fái 30 langar kvikmyndir, auk
óteljandi stuttra, verður lítið
gagn í því, ef allt er lélegt eða
rétt í meðallagi. Svona fjór-
um sinnum færri kvikmyndir
— fjórum sinnum betri hátið
og sennilega að þeir komist
yfir að sýna allar á aðeins
10 dögum.
Jörðín Klambrar
í Vesturhópi, Húnavatnssýslu er til sölu og laus
til ábúðar, nú þegar. Jörðinni fylgir veiðiréttur í
Vesturhópsvatni. Tilboð sendist Sigurbirni Guð-
mundssyni, Harrastöðum, Vesturhópi eða Guð-
mundi Jónssyni, Stórholti 25, Rvík, sími 14013.
Skriff&tofusfarf
Samband íslenzkra samvinnufélaga óskar að ráða
skrifstofustúiku með prof frá Samvinnuskóla,
Verzlunarskóla, eða hliöstæðum skóla
Upplýsingar gefur Starfsmannahald SÍS, Sam-
bandshúsinu við Söivhólsgötu