Tíminn - 16.07.1960, Side 1

Tíminn - 16.07.1960, Side 1
1B6. fW. — 44. árgswigur. Laugardagor 16. Jðll 1960. Síld frá Vopnafirði til Kolbeinseyjar í gær var veður orðið gott á síldarmiðunum, og varð síld ar vart á mjög stóru svæði, allt frá Vopnafirði norður til Kolbeinseyjar. Veiði var þó heldur lítil í gærdag, en búizt við að hún glæddist með nótt inni. í fyrrinótt var allmargt skipa við Kolbeinsey, og fengu mörg ágæt köst, þ.á.m. Heiðrún, ís, 1000 tunnur. — Þessi síld var mjög misjöfn. Eitt skip fékk gott kast út af Hraunhafnartanga á Sléttu í gær, en missti mikinn hluta þess aftur úr nótinni. Þama mun hafa verið væn söltunar síld. Þá var enn veiði' út af Bjamarey, og fengu nokkur skip slatta þar í gær, en síld in er léleg. Verksmiðjan á Vopnafirði hefur nú tekig við 29 þús. málum. Á Siglufirði hefur ekki ver ■ ið mikið um að vera undan i farið, en von var á síld þang 1 að í gær. Þar hefur ekki verið saltað síðustu daga. Síldar- verksmiðjur ríMsins þar höfðu í gær tekið við 174.280 þús. málum, en 15. júlí 1959 höfðu þær aðeins fengið 70.872 mál. Það er full ásfæða til þess að birta mynd af þess- ari flugfreyju. Það er ekki eingöngu það, að hún er falleg og í sérkennilegum stellingum, heldur er hún eini íslenzkumælandi starfs maðurinn hjá SAS, og þeg- ar íslenzkar flugvélar koma til Kasfrup, þar sem hún vinnur, er hún fyrsta mann eskja út að vélinni til þess að bjóða íslendingana vél- komna á Danagrund. Hún er íslenzk í aðra ættina, og hefur nokkrum sinnum komið hingað heim, en því miður vitum við ekki hvað hún heitir. Kannski er ein- hvér lesenda svo vel að sér, að hann geti frætt okkur á því. Skrítin frétt Morgunblaðsins Meðal annarra „skjala“, sem brennt var, voru þvæld Morgnnblöð í fyrradag birti Morgun- blaðið fregn af íkviknun í miðstöðvarherbergi Sambands hússins. Hafði kviknað þar í bréfarusli framan við mið- stöðvarketil. Eldurinn var fljótt slökktur og skemmdir nær engar. Svo kynlega bregffur við, að Mbl. birtir fregn þessa undir fyrirsögninni: „Bréfum brennt hjá SÍS í fyrrinótt“, og í fréttagreininni er sagt, að eldurinn hafi kviknað er verið var að „brenna bréfum og skjölum". Er ótvírætt reynt að gefa í skyn, að þarna hafi menn veriff aff brenna einhver bréf og skjöl, sem einhver leynd hvíldi yfir, effa að um óhreinan verknað hafi verið að ræða. Þess má geta, að einhver hluti þeirra „bréfa og skjala", sem Mbl. talar um, hefur vafalaust verið Morgun blaðið og önnur dagblöð er menn lesa aff degi og fleygja aff kvöldi. Er þetta einhver óþokkaleg asta og furðulegasta meffferð á frétt, sem sézt hefur í ísl. blaði hin síðari ár. Af tilefni þessa undarlega fréttaflutnings barst blaðinu í gær eftirfarandi athuga- semd frá SÍS: Stutt frétt á baksiðu Moxgun- blaðsins s. 1. fimmtudag um smá bruna í kyndiherbergi Sambands- hússins ber fyrirsögnina: „Bréf um brennt hjá SÍS í fyrrinótt' f fréttinni er sagt, að bruninn hafi orðið meðan verið var að brenna „skjölum". — Til að fiira misskilningi, má geta þess, að slík brennsla „skjala“ fer þama fram hverja nótt og hefur svo veríð undanfarin ár. „Skjöl in“, sem svo eru nefnd, eru það affall, sem kemur við ræstingu hússins og tæmingu pappírskarfa að kvöldi hvers vinnudags. Verkfalli aflýst Verkfall hófst hjá þernum á skipum Eimskipafélags ís- lands á miðnætti í fyrrakvöld, en í gærmorgun var verkfall- inu aflýst eftir næturlanga fundi sáttasemjara með deilu- aðilum. Féllust þernumar á aff af- lýsa verkfalli'nu eftir aff stjóm EimsMpafélags ís- lands hafði lagt fram svo- hljóðandi yfirlýsingu: „Eimskivafélag íslands lýsir því hér með yfir, að er nœsti kjarasamningur verður gerður við Kvenna- deild Félags framreiðslu- manna, skuli ákvœði þeirra- samninga um grundvöll fyr ir þjónustugjaldi þeirra á skipum félagsins gilda frá 15. júlí 1960“. Samkvæmt þessu hefur ver ið tekið þaff ráff að sam- þykkja óákveðna kauphækk un hjá þessari' stétt þegar í stað, þótt ekki komi hún til greiðslu fyrr en nýir kjara- samningar hafa verið gerðir í haust. Er þar með farið inn á þá braut að samþykkja kauphækkanir þegar til greiðslu síðar, svo að þær komi ekki fram á pappírn- um þegar í stað. Yrffi það ný og óvenjuleg afgreiðsla ef far ið yrffi að afgreiða kjaramál fleiri stétta meff þessum hætti og samþykkja, ao síðari kjarasamningar gildi langt fram í tímann. Slíkt kallast hengingarvíxlar og annað ekki og hafa aldrei þótt til fyrirmyndar. , bls. 3

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.