Tíminn - 16.07.1960, Qupperneq 7
7
„Af öHu, s«m prentað er, eiga
menn mest að forðast auðvalds-
blöð, því þau eru málsvari kúg-
unarvaldsíns í heiminum, vítis-
stefnunnar eða helstefnunnar.
Hlutverk þeirra er að teyma al-
þýðuna á nefinu með alls konar
tryllandi kjaftavaðli og lævísleg-
um blekkingum, á samj hátt og
ræningi segir þér smellnar sögur,
meðan hann er að lokka þig út
í hliðargötuna, þar sem hann
drepur þig“.
Halldór Kiljan. Laxness
(Alþýðubókin).
Þriðjudaginin 5. júlí, fyrix viku,
beitti ríkisstjórn íhaldsaflanna
verkalýðshreyfinguna lagaofbeldi
nxeð þeim hætti að svipta eitt af
stéttarfélögunum innan Alþýðu-
sambamds íslands verkfallsréttin-
um. — Þetta ódæði var framið
með setningu bráðabirgðalaga,
sem ekki virðast styðjast við meiri
hluta Aiþingis.
Og síðan þetta gerðist hafa auð-
valdsblöðin, Morgunblaðið Oig Vís-
ir og „liðsauki“ þeirra, sem kennir
sig við aiþýðuna, átt ósköp ann-
ríkt við að telja hrekklausu fólki
trú um, að þetta ihafi ríkisstjórnin
orðið að gera vegna veMerðar þjóð
arinnar, en ekki til þess að vemda
pyngju íslenzkra atvinnurekenda.
— En til þess og einskis annars
var ofbeldisverkið framið. Það
þótti sem sé nokkurn veginn víst,
að atvihnurekendur almennt
mundu ekki komast hjá auknum
v innulaunagre iðslum til verka-
fólks, ef flugmenn fengju ein-
hverja lagfæringu á kjörum sín-
um. Og þessa kauphækkun mátti
íslenzkt verikafólk ómögulega fá,
að áliti Vmnuveitendasamabnds-
ins.
Ful'lt útlit var fyrir, að flúgfé-
lögin ætluðu sér að semja um
D.okkrar kjarabætur 1-1 ’gmönnum
tii handa. — Og hvað gerðist þá?
— Þá gerðist það sama, sem gerist,
þegar brezkur land'helgisbrjótur
er staðim að iðju sinni í íslenzkri
landhelgi. Þá er kallað á brezkt
herskip, til þess að tryggja ofbeld-
inu framgang.
Af löglega umsömdu kaupi laun
þega hafa verið tekin 27 vísitölu-
stig. Aftur var ráðizt á samnings-
rétt verkalýðsfélagaima með af-
námi dýrtíðarupphótar á kaup,
jafnframt því sem trylltri ófreskju
dýrtíðarinnar var sigað á þjóðina.
Og svo, þegar flugfélögin höfðu
lagt fram tiiboð um sn.ávægilegar
bætur vegna þessara þungu búsifja
— þá er kallað á ríkisvaldið í
sama tilgangi og brezki landhelgis-
þjófurmn æpir á bryndrekann sér
til varnar, svo að réttlætið skuli
þó ekki ná fram að ganga.
Þegar svona er í pottinn búið,
er ekki að furða, þó að blekkinga-
meistarar stjórnarblaðanna reyni
að hafa sig alla við til að blekkja
lesendur sína og dylja þeim sann-
leikann varðandi málstað atvinnu-
flugmanna og tilganginn með verk
fallsbanninu.
En þó að blekkingar séu aðal-
mennt ailra skriffinn?. auðvalds-
blaða. þá mun þeim sarnt reynast
ofvaxið að blekkja ístenzku þjóð-
ina í iæim hagsmunaátökum, se:m
nú eru að hefjast hér á landi milli
vinnuaflsins og fjármagnsins.
Ríkisvaldið hefur verið svo hóf-
laust í þeim ásetning: sínum að
auka hlutskipti fjármagnsins á
kostnað vlnnuaflsins, að sú stað
reynd verður ekki falin með nein-
um blekkingákúnstum. — Það
ætlast engiiui sanngjarn eða hugs-
andi mat' r til þess, að launþeginn
skuli búa viiT óbreytt kaup, þegar
svo að segja allar nauðsynjar,
hverju nafni sem aefnast, hafa
hækkað i verði um 40—60, já, jafn
vel um 90—100% vegna aðgerða
ríkisstjómarinnar. — Móti slíkum
tillitstausum fanlabrögðum ríkis-
stjórnar í vesælli þjónkun við fá-
menna auðsöfnunarklíku, rís yfir-
gnæfandi meirihluti þjóðarinnar.
— RétUætískennd þjóðarinnar
styður launþegana til fulis sigurs,
þegar ranglætinu og arðráninu er
dillað og 'hossað, svo taumlaust,
sem nú hefur verið gert.
Ríkisstjórn íhaldsins og Alþýðu-
flokksins mun sanna það fyrr en
varir, að hún fær ekki umflúið
réttlátan dóm þjóðarinnar vegna
framkomu sinnar við launastéttirn
ar og bændastéttina, samvinnu-
hreyfinguna og verkalýðshreyfing
'Una. — Hún hefur nú þegar yfir-
fyllt svo bikar synda sinna, að út
af flóir.
Og sízt af öilu bætir hún hlut
sinn með setningu bráðabirgðalaga
til að svipta verka’lýðshreyfinguna
lög'helguðum rétti sínum. Með slík
um aðgerðum kemur hún ekki í
veg fyrir vin'nustöðvanir til lengd-
ar. Setji hún fleiri slík bráðabirgða
lög, verður hún að athlægi. Og
uppskera stjórnarinnar af slíkri
ofbeldislöggjöf verður aðeins ein:
þ. e. forsmán og fyrirlitning allra
sæmilegra manna. — Slík upp-
er þannig höfðu skapazt. Leiddum
við getum að því, hvað valdið
gæti þessu framferði flugfélaganr -.
í stað þess að gera tilraun til að
brúa það tiltölulega mjóa bil, sem
óbrúað var milli aðila.
En í þeim svifum, sem þetta var
rætt, barst sú frétt inn á fundinn,
að ríkisstjórnin hefði sett bráða-
birgðalög, sem bönnuðu boðað
verkfall flugmanna, er hefjast
skyldi þá eftir nokkrar klukku-
stundir. Við þessa frétt varð öllum
Ijóst, hvers vegna slitnað hafði
upp úr samningunum. Atvinnurek-
endur höfðu fengið vitneskju um
bráðabirgðalögin og eftir það
töldu flugfélögin öll tilboð í til-
slökunarátt óþörf af sinni hendi.
Flugmenn hafa krafizt þess af
Morgunbiaðinu, að það leiðrétti
framangreinda skröksögu sína. En
í stað þess að taka heldur það,
sem sannara reynist, siglir þetta
höfuðmálga'g'n íhaldsins undir
af vinmi'brögðum auðvaldsblaða.
Víkjum þá örfáum orðum að
„liðsauka“ Morgunblaðsins: A1
þ/ðublaðinu.
Þann 7. júlí lá blaðtetrið á hleri
að vanda og hafði það upp úr
krafsinu að geta frætt lesendur
sína á, að hæsta árskaup atvinnu-
flugmanna hefði orðið 287.000 kr.
ef gengið hefði verið að öllum
kröfum þeirra.
En þegar þetta verkalýðsmál-
gagn 'hafði þessar fréttir að færa,
var búið að neita ölluin kröfum
flugmanna fyrir tveimur dögum.
— Þær voru því harla léttar í vasa
til að lifa af.
Hverjum skyldi svona frétta-
flutningur vera til skammar nema
verkalýðsmálgagninu, Alþýðublað-
inu?
Næst kom Alþýðublaðið við sögu
á þann ihátt, að það fullyrti: Hanni-
bal ætlaði að banna verkfall. —
Síðan var Ieiðari blaðsins helgað-
ur þessari fullyrðingu, og seinustu
Hannibal Valdimarsson, forseti. AlÞýðusambands íslands:
Skamma stund verður
hönd höggi fegin
skera er henni heldur ekki of góð
— aðeins makleg.
Svo 'heillum horfin er ofbeldis
stefna stjórnarinnar gegn launþeg
unum, að jafnvel leigðir þrælar
hennar við Morgunbla'ðið og Al-
þýðublaðið ná sér nú ekkert á
strik, hvorki með lygasögur eða
blekkingar, móts við það, sem
þeim hefur .stundum áður tekizt.
— Vísispiltum sleppi ég. — Þeim
er alls vamað, eins og jafnan áður.
Smá skröksaga eins og sú, að ég
hafi „ráðizt óboðinn“ inn á fund
flugmanna og hafið yfirheyrslur
yfir fundaimönnum daginn, sem
tipp úr samningum slitnaði milli
‘flugfélaganna og flugmanna, er
langt frá því svo snjöll, að hún
megni að Ieiða athygli blaðlesenda
frá blygðunarlausu ofbeldisverki
ríkisvaldsins: verkfallsbanninu.
Þess vegna er hún gagnslaus sem
blekkingarbragð, þó að Morgun-
blaðið hafi marg endurtekið hana,
svo sem væri hún höfuðatriði í
deilu fl'Ugmanna. Má þar um segja,
að flest er 'hey í harðindum.
Sannlei'kurinn er hins vegar sá,
að fram'kvæmdastjóri Alþýðusam-
bandsins, Óskar Hallgrímsson og
ég komum á umræddan fund flug
manna í fullu samráði við for-
mann félagsins, fengum þar vin-
samlegar móttökur og hlýddum á
ýtarlega skýrslu formianns samn-
inganefndar til stjórnar og trúnað-
armannaráðs um gang samning-
anna og um það, hvernig upp úr
samningum slitnaði, þegar flugfé-
lögin tóku skyndilega aftur öll
fyrri tilboð sín til flugmanna. Um
þetta ræddum við í bróðerni á
nefndum fundi og um þau viðhorf,
Hannibal Valdimarsson
hefur beðið blaðið að birta
eftirfarandi grein og þykir
Tímanum rétt að verða við
þeirri beiðni, þar sem höf-
undur er forseti Alþýðu-
sambands íslands, allsherj-
arsamtaka verkalýðsstétt-
anna og túlkar þar af leið-
andi sjónarmið þeirra sam-
taka til bráðabirgðalaga
ríkisstjórnarinnar um verk-
fallsbann.
fána lyginnar og reyrir hann hátt
við hún.
Svona er sannleiksást Morgun-
blaðsmanna farið um þýðingar-
laust smáatriði. Og hvernig hyggja
menn þá að .sé um meiriháttar
málsatvik?
Dettur nú ekki einhverjum í hug
það, sem nóbelsverðlaunaskáldið
sagði?:
jtAf öllu, sem prentað er, eiga
menn mest að forðast auðvalds-
blöð, því þau eru málsvarar kúg-
unarvaldsins og mannhatursins í
heiminum“ . . .
Morgunblaðið villir sannarlega
ek'ki á sér heimildir, samkvæmt
skilgreiningu skáldsins í Gljúfra
steini.
Tvo seinustu daga hefur Morg-
unblaðið svo tekið fram sitt
stærsta fyrirsagnaletur til að fjalla
um sitt gamla og nýja vandamál:
Hannibal Valdimarsson.
Því fer fjarri, að ég kunni illa
slíkri viðhöfn, því að morgunblaðs-
níðið hefur alltaf orðið mér til
fraimdráttar. Eins og morgunblaðs-
lof verður ávallt mönnum úr verka
lýðssamtökunum til hnjóðs og
smánar.
En falsanir Morgunblaðsins eru
au'gljósar. Blaðið tilfærir réttilega
eftir mér ummæli úr seinustu
skýrslu Alþýðusambandsins, þar
sem ég jafna l'aunakjörum verk
fræðinga, skipstjóra kaupskipaflot-
ans og flugstjóra til ráðherralauna.
— Sannleikurinn er sá, að á árinu
1957 var þetta ekki fjarri lagi.
Nú hef ég sagt, að ósanngjarnt
sé að jafna kaupi flugmanna til
almennra verkmannalauna. Rétt-
ara sé að bera kaup þeirra saiíian
við kaaip .stéttarbræðra þeirra er-
lendis. — Erfitt er að finna ósam-
ræmi milli þessara ummæla. En
Morgunblaðið er leikið í fölsunar-
og blekkingaíþróttinni. Þess vegna
setur það síðar í greininni orðið
flugmenn í stað flugstjóra í von
um, að' lesandinn taki ekki eftir
því. í framhaldi af þessu eru svo
teknar upplýsingar mínar nú um
kjör fullnumi flugmanna (byrj-
enda), sem ég réttilega segi, að
séu ámóta og vellaunaðrar skrif-
stofustúlku. Og síðan klykkir Morg
unblaðið út með því að herma upp
á mig fullkomið ós..mræmi milli
fyrri ummæla og nú, með því að
segja: Áður: Flv -?nn ':afa hærri
laun en ráðherrar — nú ekki í
hærri launaflokki en allvel ' unuð
skrifstofustúlka.
Þarna hafa menn ósvikna mynd
dagana hefur Morgunblaðið mat-
reitt þetta á hinn fjölbreytilegasta
hátt fyrir sína lesendur.
Og berum nú saman þá og nú:
Þá söðvuðust fólks- og vöruflutn-
ingar til landsins um 7 vikna
skeið, vegna verkfalls á farskipa-
flotanum.
Allir vissu, að verkfall þetta var
undirspilað af pólitískum skemmd-
aröflum gegn vinstri stjórninni.
Þegar almennt var orðið viður-
kennt, að stöðvun flutninganna
var að verða þjóðarvoði, var haft
um það nái'ð samband við verka-
lýðshreyfinguna, með hvaða hætti
honum yrði bægt frá dyrum.
En það, sem úr sker, og Morg
unblaðið og liðsauki þess þegja
vandlega um er þetta:
Þrátt fyrir allt þetta var far-
skipaverkfallið ekki bannað með
lögum.
Nú eru samningar yfirstandandi
milli aðila. Útlit ekki óvænlegt
um samkomulag og friðsamlega
lausn. Miðlunartillaga ekki fram
komin.
Hér var um algerlega faglega
deilu að ræða, sem engin pólitísk
öfl höfðu nærri komið að hrynda
af stað.
Og samt sem áður eru- nú í
fyrsta sinn á landi hér gefin út
bráðabirgðalög, sem banna verk-
fall flugmanna og stöðva allar
samkomulagsleiðir í einu vetfangi.
Hér er svo gersamlega öðruvísi
að verki verið en á dögum vinstri
stjómarinnar, að enginn saman-
burður kemur til greina, nema i
þeim augljósa og auðvirðilega til-
gangi að falsa staðreyndir.
En sá er líka ávallt tilgangur
auðvaldsblaða, þegar þau ræða
hagsmunamál vinnandi stétta.
Ekki ihækkar heldur hróður „liðs
aukans", sem kennir sig við alþýð-
una, þegar þess er minnzt, að blað-
skömmin kom ,sér hjá að birta
skýrslu fiugmanna og bar við
„plássleysi"!! En fyrir falsanir og
blekkingar um málið er ærið rúm
á degi hverjum. — Þannig er
svartasta soramark auðvaldspress-
unnar fallið á blaðið, sem fátækir
alþýðumenn stofnuðu fyrir nokkr-
um áratugumi til að verja málstað
stéttar sinnar, Iaunþeganna í land-
inu, gegn árásum afturhaldsafl-
anna og máltóls þeirra, Morgun-
blaðsins. — Þessi staðreynd er
alþýðustéttunum á íslandi mikið
áfall. En það á við enn sem fyrr,
að ekki tjóar að hanma eða gráta.
— „heldur safna Bði“.
Látum auðvaldsmál'gögnum
■ekki takast að fela kjarna þeirra
átafca, sem hafin eru með deilu
flugmanna og verkfallsbanni rikis-
stjórnarinnar. Þetta eru átökín um
skiptalilutföllin í þjóðfélagi okk-
ar milli vinnu og fjármagns. Og
um þau skipti skal fjármagninu
ekki selt sjálfdæmi. Vinnan á
sinn ríka rétt og mun verja hann
með afli samtakanna.
Hög'g það, sem nú hefur verið
greitt „Félagi íslenzkra atvinnu-
flugmanna" l er jafnframt greitt
verkalýðshreyfingunni allri. —
Það er ekki á valdi Alþýðusam-
bandsins að ráða því, hvaða félög
hefja barátt’una. Sérhvert stéttar-
félag innan Alþýðusambands ís-
Iands „hefur fullt frjálsræði um
sín innri mál“. — Það er eitt af
mörgu röngu hjá Alþýðublaðinu,
að ráðstefna Alþýðusambandsins
hafi falið láglaunastéttum landsins
að bíða. Um það voru allir sam-
mála, að nú væri svo komið kjara-
málum launastéttanna. að óhjá-
kvæmilegt væri fyrir verkalýðs-
hrevfinguna „að láta til skarar
skríða, hækka kaupgjald og 'irinda
þannig þcirri kjaraskerðingu, sem
orðið hefur“, eins og í einróma
gerí. samþykkt ráCstefnunnar
segir.
Ríkisstjórn íslands væri hollt
að fara eftir heilræði meistara
Jóns Vídalíns, er hann gaf „stolt-
um gæðingum veraldar þessarar“.
Hann kvað þá skyldu skoða sig
í spegli og hyggja að, hversu fá-
nýtir þeir væru, nær þeir vildu
troða lítilmagnann undir fótum.
En verkalýðssamtökunum ber í
einhuga styrk að sanna ríkisvald-
inu, að „skamma stund verður
hönd höggi fegin“.
Reykjavík, 14. júlí 1960.
Hannibal Valdimarsson.
Fyrirliggjandi
Ú t i — Teakhurðir í karmi
— Mahognyhurðir í karmi
— FuruhurSir í karmi
KROSSVIÐUR
TEX
Harðviður vænfanlegur í þessari viku.
Eik — Afzelia — Afromosia —
Gr.area — Cam-wood
Saphele-mahogny
Teak — væntanlegt í september
Samband ísl. byggingafélaga
Sími 17992 — 36485