Tíminn - 23.07.1960, Blaðsíða 13

Tíminn - 23.07.1960, Blaðsíða 13
TÍMINN, Iaugardaginn 23. jálí 1960. 13 Af svörtum nótum (Framhald af 11. síðu). stokksmunir af fullkomnustu gerð. Mér er reyndar sagt, að nágrannar þeirra, Reyðfirðing- ar e’igi hús, sem standi húsinu á Eskifirði ekkert að baki, en á Reyðarfirði höfum við enn ekki leikið Einn er þó sam eiginlegur galli xneð flestölíum þessum nýju féLagsheim ilum úti á landi. Það er ekki hægt að komast úr salnum sjálfum að tjaldabaki, nema að ganga upp á leiksviðið. Þetta er siík meinloka í teikningu húsanna að engu tali tekur. Píanó eru því miður ekki fyrir hendi í nærri öllum þessara húsa og hátalarakerfi eiginlega hvergi, en það gefur að sjálfsögðu auga léið, að þetta tvennt er aðal- uppistaðan í því að hægt sé að halda frambærilega skenmit un. Þó stendur þetta tvennt til bóta. Á E'Skifirði var einmitt verið að koma upp hátalara- berif, þegar við vorum þar. Var þar að verki Baldur Böðvars- son, sem er útvarpsvirki á Norð fixði. Baidur «r bróðir Bjarna heitins Böðvarssonar, var sjálf ur góður_ hljóðfæraleikari óður fyrr... Á Norðfirði er aðal- hljómsveitin á Austfjöriuin, hljómsveit Höskuldar Stefáns- sonar, með honum eru m. a. Lárus Svéinsson trompetleikari, sem lék með okkur í útvarps- þættinum Nefndu lagið s. I. vetur... Þar hitti Eyþór gítar leikari kunningja sinn, sem lék með honum á Spáni, var það Svavar Lárusson gítarleikari Svavar er kennari á Norðfirði, kennir þar við gagnfræðaskól- ann og er að sjálfsögðu íþrótta- kennari, enda einn af menr.tuð- ustu íþróttafcennurum á land- inu. Svavar veitir sundlauginni í Neskaupstað forstöðu, e.iria fókk hann okkur alla til að synda tvö hundruð m-etrana. . . Sigurður Jónsson píanóleiteari heimsótti okkur á dansleikinn s. 1. laugardag, en Sigurður lék í mörg ár í hljómsveit Karls Jónátanssonar. Hann er nú starfandi tannlæknir, en skrapp á Austfirðina í sumarfríinu. . Hljómsveit er engin starfandi á Eskifirði. Þó eru hér nokkrir ungir menn, sem Ieika stuiu! saman, þar er aðalmaðuriim Óli Fossberg frá Akureyri, sem hefur búið hér á Eskifirði í nokkur ár. ... Hér er mikið hlustað á erlendar útvarps- sföðvar og ber þar hæst Luxem borgarútvarpið, enda Austfirð- ingar vanalega manna fyrstir til að læra nýjustu erlendu lög- in. . . . Keflavíkurútvarpið heyr- ist alls ekki, en Reykjavíkur- útvarpið hins vegar vel, þrátt fyrir það að stundum kemur það fyrir að til þess heyrist illa, er það helzt í skammdeginu.... Enn á hljómsveitin eftir að leika á Austurlandi og reyndar Norðurlandi aftur í tvær vikur, svo að næsta grein verður iíka hripuð í ferðinni. Eigum við m. a. eftir að leika í hinu kunna félagshéimili Skjólbrekku í Mý- vatnssveit og nýju félagsheimili á Tjörnesi, sem var vígt fyrir nokkrum dögum. —essg. í sumarfríið Mataráhöld í töskum Prímusar Vindsængur Tjöld Svefnpokar Bakpokar Austurstræti 1 Kjörgarði, Laugav. 59. Aftalíundur (Framhald af 5. síðu). verið hefur formaður Kvenna sambandsins s.l. 10 ár, og unn ið ötullega að áhugamálum þess, baðst eindregið undan endurkosningu en í hennar stað hlaut kosningu frú Inga Lára Lárusdóttir, Skeggja- stöðum. Með henni eru í stjóm frú Kristín Gunnars- dóttir og frú Gróa Oddsdótt- ir. Voru frú Jósefínu fluttar þakkir fyrir mikil og góð störf í þágu Kvennasambandsins. Alls hefur Kvennasamband ið lagt fram 200 þús. krónur til byggingar sjúkrahússins á Hvammstanga, og að auki 100 þús. kr. fyrir rúmum og rúmfatnaði. Hin árlega skemmtun Kvennasambandsins verður haldin á Hvammstanga sunnudaginn 31. júlí. Verða þar fjölbreyttar skemmtanir. Meðal annars sýnir leikflokk ur Þorsteins O. Stephensens leikritið „Tveir í skógi“. Þá verður hið vinsæla skyndi- happdrætti. Verða 300 vinn- ingar, þar á meðal flugferð til Kaupmannahafnar og heim aftur. Ágóðinn á að renna til kaupa á húsgögnum í sjúkrahúsið á Hvamms- tanga. Ferðir verða frá Reykjavík með Norðurleiðr um. —R. - Lögft fyrir birni (Framhald af 4. síðu). tor skrifar, að hún fjalli um saklausa Bskimóa og öfga- fulla menningarfulltrúa. Að ytri búnaði er hún mjög glæsileg, en heilinn á bak við veldur vonbrigðum. Ádeilan er of bragðdauf eða þá ýkt, persónurnar litið sannfær- andi, og realisminn, ja, hvað er eiginlega realismi? Það er undir því komið, hversu mik ið menn vita um raunveruleik ann, og ekki virðast þeir hafa getað ákveðið, hvorn móral- inn skuli styðja. Þeir áhorf- endur, sem kunna að mislíka, að amman skuli vera lögð fyr ir birnina, þeir ,geta huggað sig við það, að Eskimóamir borða ísbjörninn, þegar hann hefur étið kellu, svo það ná allir saman á endanum. Og þeir, sem ekki geta sætt sig við tilhugsunina um örlög frumburðarins, ef það skyldi verða meybarn (þá er það sett út með ísmola í munn- inum), þeim er það stór létt- ir, að frumburðurinn reynist vera drengur. Anthony Quinn er í London sem stendur, og notaði m.a. tækifærið til að vera viðstadd ur opnun Picasso-sýningarinn ar miklu í Tate Gallery. Þar vakti hann athygli m.a. fyr ir langa skeggbrodda, svo og það, sem hann sagði við einn blaðamanninn: „Ég mála dálítið sjálfur en ekkert sem jafnast á við þetta“. En þess gerist heldur engin þörf, að hann skipti um atvinnu. Bæði hans leikur og leikkon unnar Yoko Tani í „Saklausu villhnönnunum“ er óaðfinn- anlegur. Auglýsið í Tímaniim Það er ekkert sem jafnast á við hina hreinu og hressandi líðan eftir rakstur með Bláu Gillette Blaði í REGD. viðeigandi Gillette rakvél. Ldtið nýtt blað í vélina í fyrramálið og kynnist þvi sjálfir Til að fullkomna s. raksturinn notið Gillette rakkrem Málmhylki með 10 blöðum og hólfi fyrir notuð blöð Gillette er skrásett vörumerki Límpressa vökva-drifin Upplýsingar um verð og afgreiðslutíma hjá framleíðanda. SINDRASMIÐJAN H.F. Borgartúni — Sími 24064 Reykjavík . -V - V

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.