Tíminn - 26.08.1960, Síða 14

Tíminn - 26.08.1960, Síða 14
14 TÍMINN, föstudaginn 26. ágúst 1960. ykkur vánti þetta lífsviður- væri, o.g sendir yður þennan sekk, svo þér getið bakað yð- ur brauð. Svo afhenti hann mjölsekkinn. Óvinurinn fór sína leið. Það er ógerlegt, frk. Ketty, að sigra Dublé með sulti. Ketty kastaði sér í hæginda stól, krosslagði fætuma og hallaði aftur höfðinu. — Þér eruð athyglisverður maður, sagði hún með löng- un í rómnum. Filimario hristi höfuðið. — Það er ómögulegt að sigra Dublé með ást, fröken. Langa lang afi minn . . . — Það er allavega hægt að gefa Dublé kinnhest, hún hrópaði þetta i skyndilegu reiðikasti. Svo áttaði hún sig og bætti við, heldur rólegri: — Bg finn það á mér að ég mun fljótlega, já mjög fljót- lega gefa yður kinnhest. Það var alvara 1 ógnuninni, þó hún segði þetta með lágri röddu og lokuðum augum, en enginn skyldi treysta loforð- um kvenna um of. Óveðrið stóð f viku og litli smyglarabáturinn lék -sér á ölduföldum flóans eins og lít- ill hvolpur. Áttunda daginn brauzt sólin aftur fram úr skýunum. — Þá förum við, skipaði Ketty. Eftir örfáar mínútur voru mennirnir reiðubúnir með sjó pokana sína. Á bök þeirra Filimarios, Gettambres og Pio Pis voru settir kassar, sem Ketty hafði verið svo vin- samleg að fylla úr fataskáp herra Trolls. — Og þeir þama? spurði Bill og benti á þremenning- ana. — Þeir koma með okkur, við meigum ekki sftilja eftir vitni, sagði Ketty. — Ef það er aðeins það, sagði Bill, og strauk skamm- byssuhlaupið sitt, veit ég betri aðferð til . . . . — Eg veit betri aðferð til að fá hálfvita eins og þig til að halda kjafti, sagði Ketty. — Hvað þá? spurði Bill. — Það ætti að skera úr þeim tunguna. — Auðvitað, samsinnti Bill. Eg er alveg á sama máli. Skipið skreið á haf út. Fili- mario og Ketty stóðu við borð stokkinn afturá, og sáu hvem ig eyjan Bess hvarf í sæ. — Fil, sagði Ketty allt í GiOVANNI GUARESCHI : Clotilde Troll B 15 t einu, og rétti honum kíkinn. — Vittu hvort þú sérð nokk- uð í gegn um þetta. Filimario horfði lengi í kík inn, og fékk Ketty hann svo aftur. — Ketty, veizt þú hvað þetta er? Þetta er Dolpung- urinn, snekkja Clotilde Troll. Og veiztu hvað það er þetta hvíta á stjórnpallinum. — Kona, svaraði Ketty. — Nei. Það er Clotilde Troll, leiðrétti Filímario, myrkur á svip. Hér kynnumst við Clot-ilde Troll og ska-pgerð hennar — Skipstjóri Dolpung&íns gefur skýrslu. Við höfum nú um skeið haldið okkur við Filimario Dublé. Við höfum fylgst með hverri hans hreyfingu, látið hann tala við sjálfan sig, vini og óvini, meira að segja kast að honum út í ævintýri til þess að sýna hvernig hann kemur fram við kvenfólkið. i Nú er næst fyrir dyrum að kynna hana, sem varð örlaga dís hans, Clotilde Troll, sem meðan Filimario fjarlægð- ist Bess stöðugt kemur þang að með Dolpungnum. Þegar þessi saga skeður, var Clotilde Troll tuttugu og fimm ára, fegursti og ríkasti ibúi Nevaslippe. Hún var einn ig sérvitrasta stúlkan í Neva- slippe. En það hafði hún bara varið síðustu tuttugu árin, 'því fyrstu fimm ár ævi henn ar hafði hún verið eins og aðr ar manneskjur. Að kvöldi síns fimmta afmælisdags lýsti hún yfir því, að hún vildi hafa Jósefínu með sér i rúmið. Herra Troll rak upp rokna hlátur, en frú Troll sagði að Clotilde .yæri undarlegt barn- Tíu mínútum seinna, þegar herra Troll hafði tekið sér göngutúr niður í hagann, heyrði hann hróp að baki sér. Hann leit við, og i tungls ljósinu sá hann Clotilde sitja á þakbrún hússins og dingla fótunum út í Ijósvak- ann. Frú Troll, herra Troll, ráðs maðurinn, einkaritarinn og öll áhöfn býlisins féll á kné í malborið hlaðið og báðu Clotilde að hreyfa sig ekki, fyrr en brunaliðið kæmi. Clotilde lofaði að hreyfa sig ekki um fet fyrr en bruna liðið kæmi, þá fyrst ætlaði hún að stökkva niður, fyrr ekki. Það leið yfir frú Troll og hinn kvenlega hluta starfs liðsins. Herra Ttroll sendi hins vegar boð til brunaliðs- ins um að hreyfa sig ekki, þó að stórbruni yrði einhvers- staðar. Svo hóf harm samn- ingaumleitanir við Clotilde. — Um leið og Jósefína ligg ur í rúminu mínu, kem ég nið vr, svaraði sú stutta. Það var hreint ekki auð- velt verk að koma Jósefínu gömlu í skilning um, að hún ætti að fara upp í herbergi Clotilde, en heppnaðist þó um síðir. Verra var að fá hana til að leggjast upp i rúmið. Þá dugðu engar fortölur. Nauð synlegt reyndist að beita valdi, og Jósefína var bundin með sverum kaðli. Hvernig svo sem þetta allt saman gekk til, svaf Clotilde fyrstu nótt síns sjötta ævi- árs við hliðina á elztu og nyt hæstu kýr Trollssetursins í Nevaslippe. Þessi sérvizka kom enn bet ur í ljós vegna þess að Clot- ilde var mjög viljasterk. En við ætlum ekki að fylgja Clot ilde gegnum allt hennar líf til tuttugu og fimm ára ald- urs, en getum ekki komist hjá að minnast á atvik, sem kom fyrir, þegar Clotilde var sex ára. — Clo, spurði herra Troll litlu dóttur sína. — Leikur þú þér alltaf við Louis? — Nei, svaraði Clotilde. - Louis er skíthæll. Eg leik mér við strákana slátrarans. Þeir eru svaka gæjar. Svona talaði fólkið í lægri stéttunum, og dóttir herra Trolls var farin að tala eins. Herra Troll varð skelfingu lostinn. Hann greip til nýrra ráða. Og brátt birtist þar upp þurrkuð kennslukona með gleraugu. Herra Troll sagði hinni gegnmenntuðu konu, hvað skeð hefði, og hún lof- aði honum hátíðlega, að slikt skyldi ekki koma fyrir aftur. — Hér eftir skal ekki koma eitt orð út af munni dóttur yðar, sem ekki er viðurkennt af liáskóla vorum. Að viku liðinni gaf kennslu konan skýrslu um framfarir Clotilde: — Það gengur flott með stelpuna yðar, hún kjaftar alveg eins fínt og ég. Það gekk bara hálfskítt fyrsta daginn. Og eftir aðra vikuna varð að leita í kránni niður við höfnina, ef tala skyldi við kennslukonuna. Þar sat hún oftast, með fjaðrahattinn aft ur á hnakka, pípuna í munn inum, og spjallaði við hafnar verkamennina. Þetta gefur svolitla hug- mynd um viljastyrk og af- kastagetu Clotilde Troll. Þegar hún var tuttugu og fimm ára var hún ekki að- eins sérvitrasta og fegursta heldur einnig hættváegasta unga stúlkan í Nevaslippe, því hún var svo rík, að hún gat án umsvifa framkvæmt allar sínar fáránlegu hugdett ur. Og henni datt svo margt í hug, að helmingur íbúanna í Nevaslippe hataði hana eins og pestina. Hinn helmingurinn var all ir karlmenn bæjarins. Þeir dýrkuðu Clo. Á hverjum degi fékk hún að meðaltali tuttugu bréf frá aðdáendum sínum, jafnt ung um sem öldnum. Hneykslis- og slúðursö/.i dálkar blað- anna höfðu þaðan nægjan- legt efni. Kvenfólk Nevaslippe gat hreint ekki fylgst með því öllu, og hataði Clotinlde af öllu hjarta. Dag nokkurn las Clotilde um unga stúlku í Kaupmanna höfn, New Jersey, Mosambi- que, eða hvar sem það nú ann ars var, sem hafði skipt um kyn, og um leið fékk hún á- gæta hugmynd. Strax sama kvöldið hringdi hún í blöðin, og kvöldútgáfurnar gáfu ná- kvæma lýsingu á því, hvern ig Clotilde Troll hefði skipt um kyn og væri nú karlmað ur. Sum birtu jafnvel mynd- ir af henni í karlmannsföt- um. Þetta var gleðikvöld hjá konum í Nevaslippe. Þær komu saman á kaffihúsum og hver hjá annarri, og hlógu dátt að Clo. í leikhúsinu söng hin fræga revýju stjarna Meliby grínkvæði, sem minnti lítillega á fröken eða ekki fröken Troll. Þetta vakti fá- dæma hrifningu hjá dömun- um á fremstu bekkjum, og hattar og kventöskur svifu um leikhúsið. Daginn eftir fékk Clotilde Troll ekki eitt einasta bréf frá karlkynsaðdáendum sín- um, en aftur á móti yfir þrettán hundruð frá kven- aðdáendum, víðs vegar að. Þetta sýnir, að Clotilde var í rauninni dáð af öllum. Það UTVARPIÐ 8,00 Morgunútvarp. 12,00 Hádegisútvarp. 13,15 Lesin dagskrá næstu viku. 13.25 Tónleikar: „Gamlir kunningj- atr“. 15,00 Miðdegisútvarp. 16.30 Veðurfregnir. 19.25 Veðurfregnir. 20,00 Fréttir. 20.30 Sel og selfarir; — fyrri hluti (Ólafur Þorvaidsson þingvörð- uir). 20.50 Frá píanótónleiikum í Austur- bæjarbiói i sumar: Rischard Cass frá Bandaríkjunum leik ur. a) Sónata eftir Lou Whiite. b) Konsert-etýða í f-moll eft ir Liszt. c) Poloanise-fantasie í As-dú.r op. 61 nr. 7 eftir Chopin. d) Btýða í As-dúr op. 25 nr. 1 eftir Chopin. e) „Á sæluvikunni" eftir Strav insky. 21.30 Útvarpssaigan: „Djáíkninn i Sandey" eftir Martm A Han- sen; xvi. (Séra Sveinn Viking- ur). 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Kvöldsagan: „Trúnaðaimaður í Havana" eftir Gnaiham Greene; VI. (Sveinn Skorri Höskuldsson). 22.30 Harmonikuþáttur (Henry J. Eyland hefir umsjón á hendi). 23.00 Dagskrárlok. EIRÍKUR VÍÐFÖRLI og GUNNAR GRIMMI 24 Eiríkur skipaði Halfra jarli að taka við stjórn búðanna um hríð. Þegar hann hafði fullvissað sig um, að Haraldur var úr hættu, hélt hann af stað til konungshall- arinnar. Halfra fylgdi honum á leið. Enn einu sinni minnast þeir á undan- farna atburði. Þeim kemur saman um, að Gunnar og Gnupa hljóti að hafa verið í félagi hvor með öðrum. Sennilega hafi þeir síðan orðið ósáttir um skiptingu þýfis- ins og Gunnar þá lokað Gnupa inni í felustað þeirra. Nú skilja leiðir með vinunum. Halfra ríður til búðanna, þar sem hann á að bíða komu konungs manna. — Gættu Gnupa vel, áminn ir Eiríkur iiann. Haltu áfram leit- inni að Gunnari. Konungurinn ríður hratt gegn- um hrikalegt landslagið, hann hlakkar til að koma heim. En hann er sár yfir því, að honum skyldi líka vel við Gunnar í upphafi. Hann er vanur að vera góður mann þekkjari.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.