Tíminn - 06.09.1960, Blaðsíða 13
T;ÍM I N.Nj þriðjudaginn 6. september 1960.
13
Vilhjálmur keppir í dag
í dag fer fram á Ólympíu-
leikjunum í Róm sú keppnin,
sem íslendingar munu fylgjast
með af mestum áhuga, þrí-
stökkskeppnin, en þar keppir
Vilhjálmur Einarsson, einasti
íslendingurinn, sem möguleika
hefur til að hljóta verðlaun á
leikjunum — jafnvel þau allra
eftirsóknarverðustu, gullverð-
launin. Undankeppni í þrí-
stökkinu hefst kl. átta cftir ís-
lenzkum tíma, og til þess að
komast í aðalkeppnina, sem
hefst kl. tvö um daginn þarf
Vilhjálmur að stökkva 15.50
metra — en það er 1.20 m.
styttra en hann á bezt í grein-
innL Vilhjálmur er af erlend-
um sérfræðingum talinn liafa
mikla möguleika til að verða
einn áf þremur fyrstu — og
sxunír, eins og Braziliumaður-
inn da SUva, sem sigrað hefur
í þrístökkinu á tveimur síðustu
Ólympíuleikjum, eru á þeirri
skoðun að Vilhjálmur beri sig-
ur úr býtum.
Hættulegasti keppinautur
hans verður án efa Pálverjinn
Sclimidt, sem stokkið hefur
17.03 metra — og Rússar eiga
nokkra góða menn og ekki má
gleyma da Silva í þessari
keppni — þótt hann reyndar
hafi aðeins stokkið rúma 16
metra að undanförnu. Þá gæti
og Bandaríkjamaðurinn Ira
Davis orðið meðal fremstu
manna í dag. En það þýðir lítið
að vera með spádóma — úr
þessu öllu fæst skorið í dag.
Vilhjálmur Einarsson er ein-
asti íslendingurinn, sem lilotið
hefur verðlaun fyrir íþrótta-
afrek á Ólympíuleíkjum. Eins
og öllum er kunnugt, stökk
hann 16.26 metra á Melbourne-
leikjunum og varð annar. Þessi
árangur Vilhjálms var Ólympíu
met í rúman klukkutíma eða
þar til da Silva tryggði sér sig
urinn í fimmtu umferð með
16.35 metrum. Síðan hafa orðið
stórstígar framfarir í þessari
grein, og Vilhjálmur er nú með
annan beztan árangur í heimin-
um, 16.70 metra, en jafnlangt
Iiefur Rússinn Fedosov stokkið.
Aðeins Schmídt einn er betri,
en þess má þó geta, að ekki var
sótt um staðfestingu á afreki
hans, 17.03 metra, sem heims-
meti á nýafstöðnu þingi frjáls-
íþróttaleiðtoga í Róm.
Vilhjálmur Einarsson er ný-
Iega orðinn 26 ára gamall,
fæddur á Egilsstöðunv 5. júní
1934. Hann varð stúdent frá
Menntaskólanum á Akureyri
1953. StundaðE síðan nám í
Bandaríkjunum og nam bygg-
ingalist. Hann mun þó hafa
hætt nárni í þeirri grein — og
síðustu árin hefur hann stund-
að kennslu, fyrst við Laugar-
vatnsskólann, en síðan við gagn
fræðaskóla í Reykjavík.
Vilhjálmur er mesti frjáls-
íþróttaimður íslands — og
liann hefur hvað eftir annað
vakið mikla atliygli heima og
erlendis fyrir árangur sinn í
þrístökki. Ef til' vill verður
hann til þess í dag, að varpa
miklum Ijóma á nafn fslands.
Hann hefur áður gert það, fyrst
með silfurverðlaununum í Mel-
boume, síðan með bronzverð-
Iaununum á Evrópumeístara-
mótinu í Stokkhólmi 1958. Og
eitt er víst, að íslendingar
munu fylgjast með þessum
mesta afreksmanni okkar í dag
af miklum áhuga, og honum
fylgja beztu óskir í þessa kep
keppni, sem liann mun heyja
í dag.
í gær var keppt í stangarstökki
á Ólympíúleikjunum í Róm, en
kcppnin tók mjög Iangan tíma, svo
úrslit voru ekki kunn, þegar blað
ið fór í prentun. Valbjörn Þor
láksson tók þátt í keppninni og
gekk honum fremur illa, þar sem
liann stökk aðeins 4.20 m. — en
til þess að komast í aðalkeppnina
þurfti Valbjöm að stökkva 4.40
metra — en þag er hæð, sem hann
hefur stokkið margsíinnis í sumar.
Þremur keppendum í stangar-
stökkinu tókst ekki að stökkva 4.20
metra og voru tveir þeirra Björn
Andersen, Danmörku, og Van
Dyck, Belgíu.
Rudolph sigr-
aði í 200 m.
í gær var keppt til úrslita í 200
m. hlaupi kvenna á leikjunum í
Róm. Bandaríska blökkustúlkan
Rudolph sigraði með miklum yfir-
burðum eins og í 100 m. hlaupinu
(sjá mynd). Hún hljóp á 24,0 sek.
— en mótvindur var síðari hluta
hlaupsins. Önnur varð þýzka otúlk-
an Heine á 24.4 sek. Þriðja Hay-
mann, Englandi á 24.7 sek. Fjórða
Ikina, Sovét, fimmta pólsk stúlka
og sjötta Leone, Ítalíu.
Sigurvegararnir 1960 og 1936
Wilma Rudolph sigraSi með yfirburðum í 100 m. hlaupi kvenna og hún
hljóp á hinum frábæra tíma 11.0 sek., en sá tími verður þó ekki viðurkennd-
ur sem heimsmet, þar sem vindhraði var of mikill.
Johnson var fyrstur
eftir þrjár greinar
Fræknastur allra á Ólympiuleikjunum í Berlín var Bandarikjamaðurinn
Jesse Ovvens, en hann hlaut fern gullverðlaun. Eftir 100 m. hlaupið í Róm
sagði Owens að sigurvegarinn í 100 m. hlaupinu, Þjóðverjinn Armin Hary
gæti náð miklu betri tímum i framtiðinni. Hér sést meistarinn frá 1936,
sem á hljóp á 10.3 sek. við hliðina á meistaranum 1960, sem hljóp á 10.2 sek.
Keppni hófst í tugþraut á
Ólympíuieikunum i gær Veð-
ur var slæmt, rigning og rok,
og tókst aðeins að Ijúka þrem-
ur greinum um daginn — en
reyna átti að halda þrautinni
éfram í gærkvöldi.
Svavar
setti met
Svavar Markússon keppti í
1500 m hlaupinu á Ólympíu-
Ieikunum og þótt hann setti
nýtt, ísienzkt met í hlaupinu
féll hann samt úr í undan-
keppninni. Svavar hljóp á
3:47,1 mín., sem er 7/10 betra
en eldra íslandsmev hans. Sigur
vegari í þeim riðli, sem' Svav-
ar hljóp i, var Frakkinn Bern-
ard á 3:41,2 mín. Annar varð
Grelle, Bandaríkjunum, á
3:43,5 mir,. og þriðji Hammers-
land, Noregi, á 3:44i,4 mín. Það
vakti gifurlega athygli, að Þjóð
verjinn Valentin, sem talinn
var einna sigurstranglegastur í
þessu lilaupi, var rneðal þeirra,
sem féllu úr keppninni i þess-
um riðli. Ástralíumaðurinn
Thomas varð einnig fyrir hinu
sama.
Formósu-Kínverjinn Yang náði
beztum árangri i 2 fyrstu greinun-
um, 100 m. og langstökki. Hann
hljóp 100 m,- á 10.7 sek. og stökk
7.57 metra í langstökkinu. Eftir
þessar greinar var Yang með 130
stigum meir, en Johnson, Banda-
ríkjunum, en í þriðju greininni,
kúluvarpi, náði Johnson miklu
betri árangri en Kínverjinn, og
hafði forustu eftir þrjár greinar.
Rússinn Kuznetsov, fyrrverandi
heimsmethafi í þrautinni náði
ekki góðum árangri í fyrstu grein-
unum og engar líkur til að hann
geti gefið þeim Johnson og Yang
keppni um fyrsta sætið — eins og
búizt hafði verið við. Eftir tvær
greinar var Kuznetsov í fimmta
sæti.
Meðal keppenda í þrautinni
var Björgvin Hólm. Hann hljóp
100 m. á 11.8 sek. — sem cr Langt
frá hans bezta áyangri í þeirri
grein. f laugstökki náði Björgvin
hins vegar 6.93 m., sem er aðeins
lakara en hans bezta í þeirri
grein.
Óiympíumef
I kringlukasti kvenna sigraði
rússneska stúlkan Nina Panomari-
eva (hatta-Nína) og setti nýtt,
ólympískt met í greininni,, kast-
aði 55.10 metra. í öðru sæti var
einnig rússnesk kona, Press,, en
rúmensk í þriðja.