Tíminn - 21.09.1960, Qupperneq 8

Tíminn - 21.09.1960, Qupperneq 8
8 T í MIN N, miðvikudaginn 21. september 1960. Á undanförnum árum hefur mikið verið rætt og ritað um að landbúnaðarframleiðsla okkar þyrfti að verða fjöl- breyttari en nú er. Á tilrauna- stöðvum ríkisins t. d. á Sáms- stöðum í Fljótshlíð hafa verið reyndar margar nytjajurtir, en þar hefur kornið þó lengst af skipað einna stærst rúm. Kornrækt hefur verið stunduð á fxeiri stöðum á þessu sumri en e. t. v. áður, og í stærri stíl. Mig fýsti því að hitta Klemenz Kr. Kristjánsson tilraunastjóra á Sámsstöðum, til þess að ræða við hann um kornrækt, og óska hon- um til hamingju með það að n argra ára starf hans, sem for- ustumanns á sviði kornrækfar á fslandi virðist nú vera að bera rík- ari ávöxt en áður. Ég lagði því loið mína að Sámsstöðum föstu- daginn 16. sept. s. 1. ásamt félaga mínum Steinþóri Runólfssyni á Hellu á Rangárvöllum. Við hittum Klemenz mitt í önnum uppskeru- tímans en þrátt fyrir miklar annir leyfði hann að við legðum fyrir sig nokkrar spurningar varðandi korn- ræktina: — Hvað hefur þú ræktað korri í mörg ár Klemens? — Ég hef ræktað korn síðan árið 1923. Fyrstu árin aleinn í til- raunaskyni en síðan 1927 í allstór- um stíl. Stærstu akrarnir hjá mér voru 20 hektarar. Hélzt sú stærð í 6ár. Hin árin hafa þeir verið frá 6—10 hektarar. Mesta uppskera af hektara hefur verið 35 tunnur, en meðaltal allra áranna er 16 tunnur ai hektara. f tilraununum hjá mér, hafa byggtegundir skipað mest rúm. Reynd hafa verið yfir 100 af- brigði af byggi öll árin. f ár er ég með 30 afbrigði í kornræktar- tilraununum. Það byggafbrigði sem hér hefur reynst árvissast er Sigurkornið sem ættað er frá Fær- evjum. Það hefur alltaf þroskast hér og aldrei misst ax. Þetta af- brigði hefur verið ræktað hér á landi síðustu 15 árin. Önnur bygg- rfbrigði sem hér hafa gefið góða raun eru t.d. Dönnerbyggið, Flöja- byggið, Hertabyggið, tvíraða. Hafr ax þroskast hér einnig, og má nefna þar beztu afbrigðin, sem hér hafa verið reynd, en það eru „Svalöv oríon“, Nítarhafrar og Favorithafrar Síðast liðin 8 ár hef ég verið með sænskt vetrarhveitiafbrigði hvernig stunda eigi kornrækt hér á landi? — Jú, sumarið í fyrra, sann- íærði mig um hve kornræktin er árviss ef rétt er að henni staðið. Kornið þroskaðist þá, þrátt fyrir nð sumarið væri það versta sem lomið hefur, með tilliti til korn- þroskunar. Korn getur að vísu brugðist, en það bregzt ekki oftar cn annar groður sem við ræktum, það hefur 3V ára reynsla kennt mér. Ég er alveg viss um að við hér á landi gætum ræktað allt okkar Korn sjálfir Með ræktun skjól- belta, sem tekur 10—12 ár að koma upp, eftir minni reynslu, má auka gróðurmagn jarðar verulega, og gera með því bæði kornrækt tg alla ræktun jarðargróða örugg- Fullþroskuð, stór og bústln kornöxin falla á akrinum Kornþreskivélin sjálfsögð — Hafa ekki verið reynd hér á tilraunastöðinni margs konar verk- færi, til að uppskera kornið með? Á fyrstu árum kornræktarinnar hér var sigðin, eins og annars stað- ar í heiminum, fyrsta uppskeru- verkfærið ásamt mannshöndinni, r.iðan kom sóporfið, þá sláttuvélin með safnara. Með sláttuvél og ssfnara var um 15 dagsverk að uppskera einn hektara. Eftir safnsláttuvélinni kom sjálfafleggjari. Hann lagði kornið í bindi en batt það ekki. Árið 1945 kom hingað fyrsti sjálfbindarinn. Fyrsta árið sem ég notaði hann tel ég að hann hafi borgað sig, svo mikla vinnu sparaði hann við upp- sterustörfin. Ennþá nota ég sjálf- bindara en hann er fullkomnari og áornræktarinnar bundin því að slá inegi fræið og þreskja bað strax af jörðinni. En kornrækt og fræ- rækt á að reka hér svo að fullnægi a. m. k. þörfum landsmanna. Korn- þreskivélin á Egilsstöðum á Völl um er önnur vél sinnar tegundar sem kemur til landsins, og er hún sögð hafa reynst vel, og fagna ég því mjög. Tækni á sviði kornrækt- ar er að sjálfsögðu undirstöðu- aíriði fyrir því að hún geti þrifist. svo er um alla framleiðslu, bæði her á okkar landi, og hvar sem er annars staðar í heiminum. Þjóðfélagið styðji kornrækt — Hverju spáir þú um framtíð komræktar hér á landi? — Ég tel misráðið af þjóðfélag- inu að styðja ekki kornrækt, vegna þess að hún hefur mikla efnahags- lega þýðingu bæði fyrir bænda- stéttina og landið í heild, þar sem verulegum gjaldeyri er nú varið ti; kaupa á mjölvörum, sem spara mætti að verulegu leyti ef korn væri ræktað í landinu sjálfu. Ég hafði mesta trú á kornrækt hjá hverjum bónda, en e. t. v. er kornræktin ekki síður verkefni íyrir sérstök kornræktarfélög eða samvinnufélög bændanna. Afkasta- miklar vélar þurfa að komast í notkun og þuxrkunarstöðvar þarf að byggja. Eg fagna því mjög að S.Í.S skuli ætla sér að koma upp grasmjölsverksmiðju hér í Rangár- vallasýslu, e. t. v. á Hvolsvelli. Slik stöð mundi auðvelda korn- rækt í nágrenni sínu, en stöðin ætti að geta þurrkað korn fyrir lændur á haustin. Ég reikna með að fyrsta grasmjölsverksmiðjan fæði fljótlega af sér fleiri slíkar „Hér ætti að rækta korn á hundruðum hektara lands“ sem barizt hefur við vetrarveðrátt- i:na hér á Sámsstöðum og hefur það lifað hana af flest árin. Af því á ég nú nokkurn stofn sem ég bind miklar vonir við. — Hvað er að frétta af korn- ræktinni í ár? — Kornið nær góðum þroska, en ég er með akurinn á votlendi í ár, svo að uppskeran hér er ekki yfir meðallag. Akrarnir eru 8 hektar- ar að stærð, kornið varð fullþroska byrjun september, síðustu dagar ágústmánaðar og fyrstu 10 dagar septembermánaðar hafa venjulega úrslitaþýðingu varðandi mjölmynd un kornsins Kornþyngdin hefur oft aukizt um helming síðustu þrjár vikuniar, þegar veðráttan hefur verið hagstæð. — Hefur ekki reynsla allra þess- ara ára kennt þér margt um Rætt við kornbændur í Rangárþingi, Klemenz Kristjánsson á Sámsstöðum og Stefán Jónsson á Kirkjubæ Kornsláttuvélin vinnur sitt verk trúlega afkastameiri en sá sem kom hing- að fyrst. Árið 1947 var reynd hér korn- þreskivél. Sú fyrsta sem kom hing- að til landsins. Vél þessi sló og þreskti kornið úti á akrinum. Vél- in var reynd hér á gulþroskuðu sigurkorni og reyndist hún skila góðu verki. Árið 1947 hafði ég ekki umráð yíir ftægilega aflmikilli dráttarvél til að knýja kornþreskivélina með, og hamlaði það mjög því að full- komin reynsla fengist af notkun hennar. Samt sannfærðist ég þá um að þetta var afbragðs verkfæri sem vel má nota til uppskerustarfa h.ér í flestum árum. Óhöpp hög- uðu því hins vegar þannig, að vél þessi varð ekki fullreynd hér á Sémsstöðum. Ég tel samt að kornþreskivélin eigi hér eins og á Norðurlöndum, mikla framtíð fyrir sér. Á Norður löndum eru bindararnir næstum þ'ú fallnir úr notkun við kqrnupp- skeru, hefur það skeð á siðustu ár- i'in. Framtíð fræræktar er eins og verksmiðjur, líkt og hringurmr. Draupnir fæddi af sér marga hringa. Grænmjölsframleiðsla, fræ- x ækt og kornrækt eru framleiðslu- greinar sem þurfa að styðja hverj- ar aðra í framtíðinni. Fyrir síðasta Aíþingi lá frum- varp sem miðar að stuðningi hins opinbera við kornrækt. Þiátt fyrir þriggja daga tilraunir sem allar sýna að korn þrífst hér, tel ég að þetta frumvarp hafi mætt litlum trúnaði þingmanna. miklu frem- ur mætti fiumvarpið vantrú og skilningsleysi, sem varla getur talizt benda til þess, að þingmenn- irnir meti eða treysti tilraunum sem reknar eru í þágu atvinnuveg- anna. Samt er ég vissari nú en nokkurn tíma áður um að korn- rækt verður stunduð á íslandi. Virðist mér margt benda til þess, að drungi sá sem um betta mál hefur verið, sé nú að hverfa og g'eðst ég yfir þvi. Við þökkum Klemens á Sáms- s'töðum fyrir fróðlegt rabb. Hann liefur unnið vel og lengi fyrir mál- efni sem hann hefur öðlast meiri

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.