Tíminn - 21.09.1960, Blaðsíða 12
12
T f MIN N, miðvikudaginn 21. september 1960.
RITSTJÓRI. HALLUR SIMONARSON
Sig. Björnsson setti
met í 400 m. grindahl.
— og Dan Wearn nýtt NortSurlandamet í 1500 m.
hlaupi á íþróttamóti i Gautaborg á sunnudaginn
Dönsku knattspyrnumönnunum, sem hlutu silfurverSIaunin á Ólympíuleikunum í Róm, var fagnað mjög er
þeir komu til Kaupmannahafnar eftir leikana. Hér sjást þeir stíga út úr flugvélinni. Næsti stórleikur þeirra
verður við Svia i Gautaborg siðast i október, og er áhugi gífurlegur fyrir þeim leik í Gautaborg. Áhorfenda-
svæðin rúma yfir 50 þúsund áhorfendur, en allir miðar eru uppseldir.
Norðmenn unnu Svía í iands-
leik í knattspyrnu með 3—1
Það var mikil gleði i Nor-
egi á sunnudaginn. Svíar voru
sigraðir i knattspyrnu með
þremur mörkum gegn einu í
Osló — liðið, sem varð í öðru
sæti í heimsmeistarakeppn-
inni varð að lúta í lœgra haldi
fyrir áhugamönnum Noregs.
Og sigurinn var fyllilega verð
skuldaður. í B-landsleiknum
í Uppsaila sigruðu Svíar með
1—0, en unglingalandsleikn-
um á Bislett-leikvanginum
la-uk með jafntefli 3—3.
Gleði Norðmanna er skilj-
anleg, því þeim hefur sjaldan
tekizt að sigra Svía í knatt-
spyrnu — fyrir þennan leik
voru fjögur ár, síðan Norð-
menn höfðu sigrað, þar áður
fimm, og fyrir þann leik 13,
að vísu komu þá styjaldarár-
in á milli. Annað mark Noregs
var hig 100., sem Norðmenn
skora gegn Svíum. Áður höfðn
Svíar skorað 198 mörk gegn
Noregi, og var mikið rætt um
það fyrir leikinn hver. myndi
skora 200. markið. Það kom
ekki j bessum leik og Svíar
verða >'5 bíða í eitt ár enn.
Norðmenn léku með sama
liði og hafði unnið F inna ný-
lega með 6—3. Strax byrjun
hóf liðið sókn og ekki leið á
löngu þar til Rolf Birger Ped
ersen frá Bergen skoraði, en
markið var dæmt af vegna
rangstöðu. Á 17. mínútu var
dæmd vítaspyrna á Orwar
Bergmark en hann hindraði
Pedersen í góðu færi. Harald
Hennum skoraði örur/;lega
úr vítaspyrnunni.
Eftir markig voru Svíar
hættulegir um stund, en þeim
Þorbirni Svensen óg Ásbirni
Hansen tókst að bægja hætt-
unni frá marki Noregs. Norð
menn áttu hins vegar yfirleitt
meira í vallarspilinu og mega
þakka þag aö miklu, hinum
smávöxnu innherjum frá
Bergen, þeim Pedersen og Ro
ald Jensen, se mléku mjög vel.
Á 31. mínútu tókst Norðmönn
um aftur að skora og var Ped
ersen þar að verki. Fögnuður
áhorfenda var gífurlegur —
og sjaldan hafa önnur eins
suðræn óp heyrzt j Osló. En
fimm mínútum fyrir hálfleiks
lok var dæmd vítaspyrna á
Norðmenn og Rune Börjeson
skoraði öfugglega. Staðan í
hálfleik var þvf 2—1 Norð-
mönnum í vil.
Norðmenirnir byrjuðu einn
ig mjög vel í siðari hálfleik.
— og fengu strax opin færi,
en skotin mistókust. En eftir
þag náðu Svíar yfirhöndinni
og sóttu fast, en þeir Þorbjörn
og Ásbjöm voru virði þang,a
síns í gulli og björguðu öllu.
En af og til náðu Norðmenn
upphlaupum, sem reyndust
mun hættulegri en þau
sænsku, en það var þó ekki
fyrr en á síðustu mínútu hálf
leiksins ag mark var skorað.
Hinn 17 ára Roald Jensen lék
á þrjá sænska varnarleik-
menn og lagði knöttihn fyrir
fætur Björns Borgen, sem
skoraði þriðja mark Noregs
í leiknum.
Auk þeirra leikmanna
norskra, sem hér eru nefndir
á undan, léku framverðirnir
Arne Legernes og Ame Nat-
land mjög vel og höfðu góð tök
á miðjunni. Natland lék sinn
25. landsleik og hlaut því gull
úr eftir leikinn. Arne Bakker
var traustur bakvörður, en
Roar Johany n frá Fredrik-
stad tókst' ekki eins vel upp
vinstra megin. Þorbjöm lék
sinn 94. landsleik og hefur
sjaldan eða aldrei verið betri,
og Ásbjörn varði stórglæsi-
lega i markinu. Hennum, Berg
og Borgen voru einnig hættu
legir — en leikurinn var þó
fyrst og fremst sigur fyrir
hina ungu Bergen-búa, Jens-
en og Pedersen — og hinn 17
ára Jensen er sagður hafa ver
ið bezti maðurinn á vellinum.
Hinn frægi miðherji Svía,
Agne Simonsson, leikur nú
ekki lengur með sænska lands
liðinu, þar sem hann er byrj
aður að leika meg Real Mad
rid. Og Svíum tókst ekki að
finna leikmann, sem gat kom
ig í hans stað. Reyndur var
miðherji Hammarby, Lars
Ove Johansson, en hann
komst ekkert áíeiðis gegn Þor
birni. Yfirleitt fær sænska
vörnin góða dóma, en fram-
línumennirnir og framverö-
Þrír íslenzkir frjálsíþrótta-
menn tóku þátt í miklu alþióð-
legu frjálsíþróttamóti í Gauta-
borg og náðu ágætum árangri.
Sigurður Björnsson setti nýtt
islenzkt met í 400 m grinda-
hlaupi, hljóp á 54.6 sek. — en
eldra metið var 54 7 sek. sett
af Erni Clausen 1951 og var
það í eina skiptið, sem Örn
bljóp þessa vegalengd Þá
hljóp Guðmundur Þorsteins-
son 800 m. á 1:52.0 mín., sem
er langbezti tími hans á vega-
iengdinni og Einar Frímanns-
son stökk 7.02 metra í lang-
stökki.
Afrek Sigurðar Björnssonar
kemur talsvert á óvart, þrátt fyrir
það að haxm náði ágætum tíma í
landskeppninni við Austur-Þjóð-
verja, hljóp þá á 54.9 sek. Sigurður
Bjömsson er 31 árs að aldri, og
var „upp á sitt bezta“ fyrir 10 ár-
um. En sökum veikinda varð
hann a,ð hætta íþróttaæfingum um
langt árabil, en hóf keppni aftur
fyrir tveimur til þremur árum.
Hann hefur verið í stöðugri fram-
för í sumar — og þegar áhugi og
þrautsegja fara saman stendur
ekki á áramgrinum. Afrek Sigurðar
er lýsandi dæmi fyrir unga menn.
Guðmundur Þorsteinsson frá
Akureyri byrjaði mjög vel í vor
og sigraði þá Svavar Markússon í
800 m. Síðan féll hann í einhvern
öldudal, þar til nú að hanm stór-
bætir árangur sinn. Stendur þvi
óhaggað, sem sagt var hér á síð-
unni í vor, að Guðmundur væri
líklegur til stórafreka á þessu
sviði — og sannarlega verður
gaman að fylgjast með honum
næsta sumar.
Glæsilegasta greinin á mótinu
í Gautaborg var 1500 m. hlaupið
og þar sigraði Ólympíumeistarinn
Herbert Elliott frá Ástralíu, eftir
mjög harða keppni við Svíamn Dan
Wearn, sem setti nýtt sænskt og
Norðurlandamet. Elliott hljóp á
3:38.4 mín., en Wearn hljóp á
3:38.6.
Glenn Davis, Bandaríkjunum,
sigraði í 400 m. grindahlaupi eftir
mikla keppni við landa sinn
Southern. Davis hljóp á 50.1 sek.,
en Southern á 50.2 sek. Trollsas,
Svíþjóð, varð þriðji á 52.4 sek.
Sigurður varð sjötti í hlaupinu á
nýjum íslenzkum mettíma, en 2
aðrir Svíar voru einmig á undan
honum.
f langstöklkinu sigraði silfur-
maðurinn frá Róm, Robimson,
stöfck 7.91 m. Annar varð Wahl-
ander, Svíþjóð, með 7.42 m. og
Einar Frímamnssonþriðji með 7.02
m.r
f hástökki sigraði Petterson, Sví
þjóð, stökk 2.09 metra. George
Kerr, Jamaica, sigraði í 800 m.
hlaupinu á 1:49.0 mín. Annar varð
Per Knuts, Svíþjóð, á 1:49.8 mín.
Guðmundur Þorsteinsson varð 5.
í hlaupinu, en blaðinu er ekki
kunnugt um h'verjir voru í þriðja
og fjórða sæti. í 3000 m. hindrun-
arhlaupi sigraði Gunnar Tjörnebo
Svfþjóð, á 8:49.9 mín. Annar varð
George Yuong, Bamdaríkjunum, á
8:56.0 mín.
Hafnfirðingar sigr-
uðu Keflvíkinga
Á laugardag og sunnudag
fór fram bæjarkeppni í frjáls-
um íþróttum milli HafnfirS-
inga og Keflvíkinga og var
keppt á Hörðuvöllum í Hafn-
arfirði. Leikar fóru þannig, að
Hafnfirðingar sigruðu með 62
stigum gegn 57, eftir mjög
harða keppni. Þetta er í annað
irnir komust ekki sérlega vel
frá leiknum.
Norðmenn haf a mikla mögu
leika til að verða Norðurlanda
meistarar f ár. Aðeins einn
leikur er eftir, milli Danmerk
ur og Svíþjóðar í Gautaborg
23. október. Staðan er þann-
ig:
Danmörk
Noregnr
Svíþjóð
l Finnland
2 2 0 0 5— 1 4
3 2 0 1 9— 7 4
2 10 14—42
3 0 0 3 5—11 0
skipti, sem slík bæjarkeppni
er háð milli þessara bæja. í
fyrra sigruðu Keflvíkingar
með 61 stigi gegn 56.
í nokkrum greinum í keppninni
náðist athyglisverður árangur, og
keppmi var víða mjög hörð. Úrslit
í einstökum greinum urðu þessi:
100 m. hlaup.
1. Guðmumdur HaUgrímsson, K, 11.7
2. Höslkuldur Karlsson, K, 11.8
3. Ragnar Magnússon, H, 11.9
4. Guðjón I. Sigurðsson, H, 12.0
Kúluvarp.
1. Sigurður Júlíusson, II, 13.66
2. Halldór Halldórsson, K, 13.43
3. Björn Jóhansson, K, IB.16
4. Kristján Stefánsson, H, 12.32
Þrístökk.
1. Kristján Stefánsson, H, 13.02
2. Egill Friðleifsson, H, 12.89
3 Ei-nar Erlendsson, K, 12.84
4. Höskuldur Karisson, K, 11.72
(Framhald á 15. síðu).