Tíminn - 19.10.1960, Síða 8

Tíminn - 19.10.1960, Síða 8
8 T í M I N N, miðvikudaginn 19. október 1960. ☆ Það vakti athygli mína, er ég fékk bók þessa í hendur, að útlit hennar ytra og innra var mjög fallegt. Annars er forstjóri Ríkisútgáfu náms- bóka, Jón Emil Guðjónsson búinn að sýna, að honum er annt um, að bækur útgáfunn- ar séu smekklegar að öllu ytra útliti, pappír góður og marg- ar eru bækurnar mynd- skreyttar. í bók þessafi, sem er þó aðeins 72 bls., eru margar myndir af skáldum og rithöfundum, ennfrem ur skrautrammar yfir aðalfyrir- sögn hvers kafla bókar'innar, en þeir eru alls 15 að tölu, og fleiri myndskreytingar eru í bókinni. Eru þær allar eftir Bjarna Jóns- son, gagnfræðaskólakennara. Það er menntandi að skoða og hand- fjatla vel útgefnar bækur. Öll feg- urð hefur siðbætandi og göfgandi áhrif. Höfundur segir m. a. í formála bókarinnar: „Ágrip þetta hefur smám saman orðið til við kennslu og ber raunar með sér að það er ekki sett saman eftir strangri reglu. Eg hefi þannig tínt það til, sem ég hefi talið forvitnileg- BÆKUR OG HOFUNDAR ast um hvern höfund, án þess að einskorða mig við sams konar upp lýsingar um hvern og einn; t. d. eru æviatriði lauslega rakin er nær færist okkar tíð, einkum þar sem ungir höfundar eiga í hlut‘. Það er mikill vanda að semja greinargott yfirlit í stuttu máli yfir íslenzkar' bókmenntir hin síð- ustu 200 ár, og einkum þó bók- menntir samtíðarinnar. En mér virðist, að höfundi hafi tekizt það nefna í bókmenntasögu, þá verður að taka tillit til þess meðal annars, hve mikil áhrif skáldið hefur haft á þjóðina og önnur skáld og hvort það hefur verið brautryðjandi eða sjálft farið í öllu áður troðnar götur. Þetta þykist ég sjá, að höf- undur þessa bókmenntasöguágrips hafi haft í huga, er hann samdi það, en þó virðist mér, að þar hafi honum sézt yfir, svo að úr þurfi að bæta, er hann gefur þessa Erlendur Jónsson: íslenzk bók~ menntasaga 1750-1950. Ríkisút- gáfa námsbóka, Reykjavík 1960. fremur vel. Að vísu hefði ég kosið sumt sagt á annan veg en hann segir, og hann getur ekki höfunda, sem mér finnst, að ekki mætti sleppa, og jafnvel, að ekki hefði verið nauðsyn að geta sumra þeirra höfunda, sem hann nefnir. En hér er ekki um marga höfunda að ræða. Og enginn er sá mælikvarði, sem er algildur um mat á skáldum og rithöfundum. Dómar hvers manns í því efni fer eftir því, hvort verk skáldsins eða rithöfund arins hafa samhljóm í hans eigin hugarheimi. En þegar meta skal, hvaða skáld og rithöfunda skuli gt I I W/í 1 « i 1 1 S I I I p i I KJARVAL Kvæði þetta flutti skáldið Ásmundur Jónsson listamanninum á fimmtugsafmæli Kjarvais 15. okt. 1935. í grein sem Ásmundur skrifar um líkt leyti kemst hann svo að orði: Kjarva! er braut- ryðjandi, sem hefur sótt fegurð, speki, kraft og festu í grjót og gróður hinna íslenzku fjalla, og goldið móður sinní, íslenzkri náttúru, allar góðar gjafir honum veittar, með ódauðlegum listaverk- um." — Sú tíð er nú liðin, að málverkum Kjar- vals sé ekið á haug og í dag tekur öll þjóðin undir þessi orð, sem Ásmundur Jónsson skrifaði fyrir aldarf jórðungi. bók út aftur, sem vonandi verður. Þetta bókmenntasöguágrip fjall- ar að mestu leyti um ljóð, leikrit, smásögur og skáldsögur og höf- unda þeirra, og um þær stefnur, er hafa haft áhrif á lífsskoðanir þjóðarinnar og þar með bókmennt- irnar.*í byrjun hvers kafla greinir höfundur frá straumhvörfum og stefnubreytingum og getur síðan að nokkru þeirra manna, er hann telur, að þar hafi mest orkað. Bygging sögunnar er ágæt. Stíll höfundar er látlaus og léttur. En ekki kann ég við orðið' „tilsvar- andi“ á bls. 6. Betri íslenzka finnst mér sa.msvarandi eða hliðstætt. Á bls. 23, þar sem höfundur telur upp ástæður fyrir óíáni Kristjáns Fjallaskálds, segir hann „síðast en ekki sízt“. Finnst mér þetta ekki fara vel í góðu ritmáli. Mér finnst fara betur að skrifa en eink um þó. En líklega er þetta hvoru- ÞORSTEINN M. JÓNSSON tveggja, tilsvarandi og síðast en ekki sízt, búið að vinna sér hefð í mæltu máli. Um Steingrím Thorsteinsson segir höfundur m. a.: „Kvæði hans eru ekki frumleg og stundum stirð- kveðin“. Eg tel hæpið að telja þetta eitt af einkennum á kvæðum Steingríms, að þau séu stundum stirðkveðin. Ef svo hefði verið, hefðu þau ekki fallið eins við sönglög og raun ber vitni. Eg hygg að ekkert íslenzkt skáld á 19. öld, annað en Jónas Hallgrímsson, hafi haft eins mikil áhrif til mál- fegrunar og Steingrímur. Hann var svo málhagur, að þýðingar hans, svo sem Þúsund og ein nótt, Sawitri, Sakúntala, Nal og Damaj- anti, Ævintýri H. C. Andersens, Undína, Pílagrímur ástarinnar o. fl., o. fl., eru ritaðar á unaðsfögru máli. Um stíl Einars Kvaran farast höfundi þannig orð: „Stíll Einars er alþýðlegur og óbrotinn, en sums staðar nokkuð óákveðinn". Eg skil ekki hvað höfundur telur óákveðið í stíl Einars. Samtíða- menn Einars töldu flestir, og ef u! vill allir. hann vera í ræðu og riti slyngasta áróðursmann sam- tíðar sinnar og afburða málhagan. Stíll hans var mjúkur, blæfagur og hnökralaus. Þar sem höfundur talar um Þor- gils gjallanda og nefnir sögu hans Upp við fossa, getur hann þess ekki, hve stór bókmenntaviðburð- ur útkoma þessarar sögu var. Eg sakna þess í ummælum höf- undar um Davíð Stefánsson, að hann vekur ekki athygli á dýptinni og lífsspekinni í skáldskap hans. Þar sem höfundur skýrir frá efn- inu í Sálin hans Jóns míns og Gullna liliðinu nefnir hann ekki einu orði, hvað skáldið túlkar með ritum þessum. Hann sleppir alveg að geta um lífsskoðun þessa mikla ag vitra bragsnillings og þjóð- skálds. Höfundur getur ekkert um á- deilukvæði Tómasar Guðmunds- sonar, sem eru þó meðal hans beztu kvæða. Af nútíðarhöfundum, sem höf- undur nefnir ekki, sakna ég eink- um Guðmundar Frímanns. Guð- mundur er mikill listamaður í ljóða gerð. Kvæði hans eru myndræn. Hann er og all sérstæður. Áhrifa frá Guðmundi gætir hjá mörgum yngri skáldum á Norðurlandi. Ekki kann ég við, þar sem talað er um höfunda, sem tekið hafa sér rithöfundsheiti, að nefna aðeins hluta af rithöfundsheitinu, svo sem. Þorgils, í stað Þorgils gjall- andi, og Jón, í stað Jón Trausti. Ekki er samræmi í því hjá höf- undi að geta um sagnaritun Jóns Espólíns, en geta ekki um aðra sagnaritara og fræðimenn, sem (Framhald á 13. síðu). Séra Jakob Jónsson: Er þörf á nýrri kirkjuskipan? | I ( 1 1 l i i i 1 § I i I I I I « ísS Engum manni Setið höfum vlð Ú ert þú líkur. og saman drukkið þeim er eg lífsdrykk Ijóstæran þekkt hefi. lífs andvöku. S Því er mér vandara Setið höfum við við þig að mæla. að sumbli Braga, — vinur og bróðir. séð dagroða en veröld Hyggur. yfir dísafjöllum. * Séð hefi eg þig Seð hefi eg þig A söðla fákinn. í sóllundi fara loftvegu sumri fagna || og söngheim lofa, É með Ijóshraða, — svífa yfir liljumál þýða sögustöðvar. í Ijóstóna, A nema fræði úr lífsþáttum búa litaspeki. N | norðurstorðar. Myndir glæstar, Framar þú stendur frægum hverjum myndir eilífar. unnið þú hefir í fagurtúni / og ættlandi gefið. þíns föðurlands. Feta munu fáir Of aldir allar sem árroði dýr 'Á í fótspor þín að hagleikssnilli Ijómar þín lífsstjarna huldumála. á lista himni. o | Lengra og hærra, Því ber að þakka. lengra og enn hærra, þakka og virða. líða þínir verk þín | lífsvöku-tónar. vel framborin — Lita Ijóðstafir, og þess gæta, lofsöngvar dýrir er þú gróðursettir 8 himni og jörð, í fagurlundi eru hugsjónir þínar. frónskrar menningar. B Síí fslenzk þjóðmenning er sennilega i enn fastari tengsl um við kirkjuna, heldur en þjóðmenning flestra ná- grannalandanna Þessi menn ingartengsl hafa átt sér föst og óhagganleg form í marg- ar aldir. Bæði kirkja og þjóð félag héldu starfsháttum sínum og allr? skipan ó- breyttri kynslóð tram af kyn slóð. Nú er þjóðfélagið óðum að taka stakkaskiptum, og við liggur. að hin gamla kirkja geti varla stungíð nið- ur fæti, án þess að drepa honum á tær einhverjum öðr um stofnunum, sem áður viku undan í hæversku þeg- ar hin helga móðir átti í hlut. Af þessusu draga sumir þá ályktun, ag kirkjan eigi ekki lengur neinu hlutverki að gegna, og megi gjarnan lognast út af í þögn. í þessu er nokkur sannleikur ef mið að er við gamla, staðnaða starfshætti kirkjunnar í nýju þjóðfélagi á örum breyt ingatímum. En það þýðir ekki að kirkjan megi missa sig, heldur hitt, að hún verð ur að eignast starfsramma og starfsform, sem eru í sam ræmi við þarfir þjóðfélags- ins, eins og það er í dag, en ekki eins og það var fyrir mörgum öldum. Þessi ein- földu sannindi hafa í raun inni ekki verið viðurkennd. Með þessu er ég ekki að halda því fram, ag kirkjan hafi staðið í stað. Hér hef- ur verið hafin margskonar kirkjuleg starfsemi sem ekki þekktist fyrir svo sem hálfri öld, en flest af því er aðeins vísir þess, sem koma skal, og fátt eitt hefur hlotið fullkomna viðurkenn ingu sem sjálfsagður hlut- ur innan ramma þjóðkirkj- unnar. Þegar ég rifja upp öll þau áhugamál og ágætar hugmyndir, sem fram hafa komið á prestafundum og öðrum kirkjulegum fund- um frá því ég man eftir mér, get ég ekki annag séð en að hér hafi andinn verið að verki, og knúið fram skiln ing kirkjunnar á þörfum tímans í mörgu tilliti, — en jafnvíst er hitt, að merki- lega lítið hefur komizt í fram kvæmd, nema að því leyti sem um er ag ræða tilraun ir einstakra manna, safn- aða eða félaga, allt á víð og dreif, og án þess að nokkur heildaráætlun sé gerð til frambúðar. Að sumu leyti stafar þetta af starfsmanna fæð kirkjunnar, fjárskorti hennar til að framkvæma þá hluti, sem ekki hafa til- heyrt starfsramma gamla tímans, — og loks af því, að kirkjan hefur þrátt fyrir það fé, sem veitt er til henn ar, ekki verig frjálsari eða óháðari en það, að hlaupa þarf til Alþingis með svo að segja hvaða smábreytingu, sem gera skal. Stjórn kirkjunnar er í höndum bæði andlegra og veraldlegra yfirvalda. Er þar gengig út frá þeirri hugs- un Lúthers, að bæði hið ver aldlega og andlega vald séu — eða eigi að vera — i þjón ustu guðs. Það á því ekki ag þurfa að gera því skóna. að ríkisvaldið, ef það skilur köllun sína rétt, þrengi oksti kirkjunnar. Þó sýnir kirkju sagan, að konungsvaldið fór

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.