Tíminn - 14.12.1960, Síða 7

Tíminn - 14.12.1960, Síða 7
TÍMINN, miðvikudaginn 14. desember 1960. ING FRETTIIRI Ríkistjórnin er eins og fluga í flöskn út af öngþveitinu, sem af „viðreisninni" hefur leitt Frumvarp ríkisstjórnarinn- ar um að láta 2t4% útflutn- ingsgjaldið renna upp í greiðslu á vá- tryggingarið- gjöldum útvegs ins fyrir 1960 var til fyrstu umræöu í neðri deild í gær. — Emil Jónsson sjávarútvegs- málaráðherra fylgdi frumvarpinu úr hlaði með nokkrum orðum. Sagði ráðherrann að svo mjög syrfi nú að útgerðinni, að ekki væri komizt hjá að fella niður út- flutningsgjaldið frá og með 1. jan. n.k. á þær vörur, sem framleiddar væru á þessu ári, en þar sem eftirstöðvar út- flutningssjóðs myndu hrökkva skammt til þess að greiða öll vátrygingargjöldin, hefði ver ið horfið að því ráði að inn- heimta gjaldið áfram af þeim sjávarafurðum, sem framleidd ar væru á þessu ári, þótt þær væru ekki útfluttar fyrr en á þvi næsta. Eysteinn Jónsson kvaddi sér hljóðs. Sagði hann meðal annars, að er ríkisstj. hefði beitt sér fyrir setningu efna- hagslaganna, hefði hún sagzt miða það fyrst og fremst við það að tryggja útflutningsat- vinnuvegunum heilbrigðan rekstursgrundvöll, þannig að ekki yrði þörf á að grípa til uppbóta eða styrkja í nokk- urri mynd á ný. Flóttinn hófst strax Jafnframt var ætlunin að legeja á 5% útflutningsgjald, sem renna átti í halla á út- flutningssjóði. Sagði ríkisstj. að útflutningsatvinnuvegun- um væri ætlaður svo rúmur Frumvarp ríkisstjórnarinnar um að útflutningsgjaldið renni upp í greiðslu á vátryggingariðgjöldum bátaútvegsins til 1. umræðu. Viðaukasölu- skatturinn Fjörugar umræður voru við 2. umr. um viðaukasöUiskatt- inn í efri deild í gær. Til máls tóku Ólafur Björnsson, Ás- geir Bjarnason, Karl Krist- jánsson, Jón Þorsteinsson, Ólafur Jóhannesson og Gunn ar Thoroddsen. Var deilt hart á stjórnina fyrir framleng- ingu skattsins og var fátt um varnir. — 2. umr. lauk í gær og voru greinar frumvarps- ins samþykktar með 10 atkv. gegn 9, að viðhöfðu nafna- kalli og frv. vísað til 3. umr. kostur að hann myndi auðveld lega geta tekið á sig þetta gjald í 2 ár. Reyndar kom fljót lega í ljós að ríkisstjórnin varð að draga í land með áætl anir sínar í þessum efnum, því að hún var svo til strax að lækka útflutningsgj aldið um helming. Kallar yfir sig enn þyngri álögur Það blasir nú ljóslega við hverjar efndir hafa orðið á því loforði ríkisstjórnarinnar að koma framleiðsluatvinnu- vegunum á heilbrigðan grundvöll. Allir atvinnuveg ir landsmanna eru þegar lam aðir og höfuð útflutnings- atvinnuvegurinn hefur dreg izt veru'e^a saman. Það hef ur haft í för með sér minnk andi gjaldeyris- og þjóðar- tekjur og rýrnandi lífskjör al mennings. Þessi þróun hefur svo orðið til þess að ekki hef ur verið unnt að Iétta álög um á almenning, þótt því hafi verið staðfastlega lofað, heldur kallað á enn þyngri álögur. Stjórnarandstæðingar eru ekki einir um þá skoðun að „viðreianln" hnfi algjörlega misheppnast. Stuðningsmenn stjórnarinnar taka undir það, og segja að efnahags- ráðstafanirnar hafi leitt til lömunar þjóðarlíkamans. — Atvinnuvegir landsmanna eru komnir í þrot eftir nokkurra mánaða rekstur við hið nýja kerfi. „Aflaleysi“? Þetta nýja kerfi átti að vera sjálfvirkt og laga sig eftir öll um áföllum. Svo vel var talið fyrir útgerðinni séð að hún var talinn full fær um að standa undir 5% útflutninss gjaldi í tvö ár, en þrátt fyrir það að gjaldið var strax af- numið að hálfu, hrökk það skammt til að bjarga útgerð- inni. Vaxtaokrið, lánasam- drátturinn, verðhækkanirnar og hinar geysilegu nýju álög ur, sáu fyrir því. Að vísu er borið við afla- leysi. Afli bátanna hefur ver ið svipaður og heldur betri þó en í fyrra. Síldarvertíðin var svipuð og hún hefur ver ið undanfarin ár, að undan- skildu árinu 1959. Það er rétt að afli togaranna hefur verið rýr. En það er fyrst og fremst efnahagslöggjöf ríkis stjórnarinnar, sem að verki er. Afleiðingar „viðreisnar- innar“ hlutu að|verða strand framleiw"’uunar. Eins og fluga í flösku Ríkisstjórninni er nú að verða þetta ljóst og hún er eins og fluga í flösku, flögrar um og reynir að klóra sig á- fram án þess að alltof mikið beri á þeirri staðreynd að hið nýja efnahagskerfi fái hvergi staðizt. Ýmislegt kák er á döfinni og hefur verið í framkvæmd. Ráðstafanir hafa verið gerð ar gegnum bankanna til að bjarga ýmsum framleiðslu- fyrirtækjum frá algjörri stöðv un, í bili. Sagðist Eysteinn vilja beina þeirri fyrirspurn tl ráðherra, hverjar ráðstaf- anir væri verið að sera, eða ríkisstjórnin hyggist gera. Svo virtist sem talsvert víð- tækar ráðstafanir væru í und irbúningi varðandi lánastarf semi til útvegsins með hag- kvæmum lánskjörum til langs tíma. Þrotabúsyfirlýsing í þessu frunivarpi felst þrotabúsyfirlýsing frá ríkis- stjórninni, því samkv. efna- hagsmálafrumv. áttu litflutn ingsgjöldin að ganga til greiðslu á halla útflutnings sjóðs 09 síðan falla niður. Þrotabúsyfirlýsingin felst í því, að hún telur ekki ann- að fært en grípa til upp- bóta, sem hún þó var búin að fordæma, til að forða stöðvun útvegsins. Ef allt hefði verið með felldu þá hefði þessa ekki verið nokk ur nauðsyn, en sjávarútveg- urinn er lamaður af þeim höggum, sem efnahaesað- gerðirnar hafa greitt hon- um. Að óbreyttri efnahagsstefnu er ekki nokkur von til þess að framleiðsluatvinnuvegir landsmanna geti staðizt þessi áföll til lengdar. Enn reynir ríkisstjórnin að dragnast á- fram á sömu braut. enda þótt það sé þegar orðið hverju mannsbarni í landinu ljóst, að stefnt er út í hyldýpið. Hvernig stóð útflutningssjóður? En hver er hagur útflutn- ingssjóðs, sem nú á að taka á sig greiðslurnar á vátrygg ingargjöldunum? Upphaflega var efnt til 120 milljón króna álagana og þjóðinni sagt að þær skyldu renna upp í halla á útflutningssjóði. Var það kannski bara tilbúin saga til að reyna að sætta þjóðina við hinar geysilögu álösur? Fi’am sóknarmenn bentu strax á það er efnahagslögin voru sett. 5% útflutningsgjaldið myndi ríkisstjórnin ætla að nota til að geta gripið til upp bóta í einhverri mynd að nýju. Sú hefur raunin orðið á. Ríkisstjórnin hyggst nota gjaldið til uppbóta meðan hún er að venjast ósigrinum, meðan hún er enn feimin við að viðurkenna að viðreisnin hafi farið út um þúfur. Ríkisstjórnin segist nú engu hafa lofað um það, að greiða vátryggingariðgjöld útvegs- ins. Það er meir en lítið út- breiddur misskilningur með- al þeirra útvegsmanna, sem sátu aðalfund L.Í.Ú., að rík- isstjórnin hafi lofað því. Vextir lækki strax Framsóknarmenn lögðu fram í þingbyrjun frumvarp um að fyrsta skrefið til að bæta úr því böli, sem efnahagsráð- staf anir ríkisstj órnarinnar hafa valdið, verði þegar stig ið. Það er að lækka vexti í sama horf og þeir voru og hætta að frysta sparifé og lina meö því lánsfjárkrepp- una. Vaxtaokrið og lánsfjár- samdrátturinn hefur orðið einna þyngstur í skauti fram leiðslunnar að öllu öðru ó gleýmdu. Þessu frumvarpi Framsóknarmanna hefur ekki verið hreyft í þeirri nefnd sem því var vísað til, þrátt fyrir ítrekuð tilmæli fulltrúa Framsóknarflokksins í nefnd inni. Sagðist Eysteinn nú skora á rikisstjórnina, að hafa í sér manndóm til að byrja á byrjuninni og lækka þegar í staö vextina. Það hlýt ur að verða fyrsta raunhæfa skrefið og mun greiða mjög úr til að komast út úr því öngþveiti, sem stofnað hefur verið til. Forsendur „viðreisnarinnar“ falsaðar? Lúðvik Jósepsson kvaddi sér næstur hljóðs. Rakti hann all glögglega hag útflutnings sjóðs, eins og hann hefur ver ið sagður vera af ríkisstjórn- inni. Er efnahagslögin voru sett var sagt að skuldahali útflutningssjóðs myndi nema 270 milljónum, en beinn halli sjóðsins myndi nema nokkuð á annað hundrað milljónum þegar allt væri komið inn, sem inn í hann átti að fara. Fyrst var lagt til að leggja á 5% útflutningsgjald, sem talið var að næmi 120 milljónum króna á ári. Það var þó lækk að niður í 2V2% eða 60 millj., fljótlega. Nú er upplýst að út flutningssjóður muni eiga um 88 milljónir kr., en áður en viðreisnin tók gildi var búið að greiða 30 mllj. kr. út úr honum tl togaranna. Samkv. þeim útreikningum, sem nú eru gefnar upp, hefur því eng inn skuldahali verið á útflutn ingssjóði, heldur sjóður upp á 58 miliónir króna. — Annað hvort hafa útreikningar hag fræðinga stjórnarinnar verið með eindæmum heimskuleg- ir og rangir, eða þá að nú er tekinn upp nýr reikningsstokk ur til að reikna tekjur inn í útflutningssjóð. Emil Jónsson, sjávarútvegs málaráðh. tók til máls og end urtók, að ríkisstjórnin hefði aldrei gefið loforð um að greiða vátrygeringargjöld bát anna að fullu. Sagðist ráð- herrann viðurkenna það, að útreikningar á útflutnings- sjóði hefðu verið mjög á reiki. Treysti ráðherrann sér ekki til að reyna að bera á móti því að „viðreisnin hefði farið út um þúfur, en sagði að erf iðleikar útvegsins nú stöfuðu ekki af efnahagsaðgerðum ríkisstjórnarinnar. Kvað hann það ekki ólíklegt að gengis- fellingin hefði ekki verið nógu mikil og virtist sem ráðherr- ann væri að gefa í skyn, að aðeins nýtt gengisfall gæti bjargað útgerðinni. Sagði hann þó, að hann væri þess ekki ófýsandi, að vextir yrðu lækkaðir í áföngum. en eng- in ákvörðun hefði verið tekin um vextina í ríkisstjórn inni ennþá Að lokum kveink aði ráðherrann sér undan bví, að Eysteinn Jónsson skyldi hafa líkt ríkisstjórninni við flugu í flösku. Oaírskrá Albmris DAGSKRÁ efri deildar Alþingis miS- vikudaginn 14. des. 1960, kl. IV2 mlS- degis. 1. Kosning tveggja fulltrúa og jafn- margra varafulltrúa úr hópi þlng- manna í NorSurlandaráS, aS viS- hafSri hlutfailskosningu, samkv. þingsályktun, samþykktri á Al- þingi 29. jan. 1953, um kjör full- trúa í NorSurlandaráS. Gildir kosn Ingin þar tll ný kosning hefur fariS fram á næsta reglulegu Al- þlngi. 2. Söluskattur, frv. — Frh. 3. umr. 3. Heimild til aS veita Friedrich Karl Liider atvinnurekstrarleyfi, frv. — 2. umr. 4. Réttindi og skyldur hjóna, frv. — 3. umr. DAGSKRÁ neSri deildar Alþingis, miSvikudaginn 14. des 1960, kl. IV2 miSdegls. 1. Kosning þriggja fulitrúa og jafn margra varafulltrúa úr hópi þing manna í NorSurlandaráS, aS viS hafSri hlu'tfallskosningu, samkv þingsályktun, samþykktri á Al þingi 29. jan. 1953, um kjör full trúa í NorSurlandaráS. Gildir kosn Ingin þar til ný kosning hefur fariS fram á næsta reglulegu Al- þlngl. 2. Ríkisreikningurinn 1958, frv. — 2. umr. 3. FræSslumyndasafn ríkisins, frv. — Frh. 2. umr. 4. Ríkisborgararéttur frv. — 2. umr. 5. Menntaskóli VestfirSlnga frv. — 1. umr. (Ef deildin leyfir). 6. VeS, frv. — 2. umr. (Ef leyff verSur). 7. Efnahagsmál, frv. — 2. umr. (Ef leyft verSur).

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.