Tíminn - 28.12.1960, Síða 1
293. tbl. — 44. árgang'ur.
ísfenzkir Shakespearo
þýðendur
bfs 8—9
Miðvikudagur 28. dcsember 1960.
• '
Veðurteppt yfir
hátíðisdagana
Tæpast gengt um götur fyrir krapaelg
Þeir, sem hafa átt erindi í Hafn-
arfjörðinn að undanförnu og far-
18 upp me8 læknum, hafa sjálf-
sagt tekið eftir því, að mikið er
um gluggaskreytingar á barna-
skóla staðarins. Hver einasti
gluggi á suðurhliðinni er skreytt
ur með táknmyndum jólanna, sem
börnin hafa sjálf klippt út úr alla
vega litum pappfr. Svo eru Ijósin
inni látin loga, og utan frá að sjá
er skólinn aliur eins og uppljóm-
uð ævintýrahöll. (Ljósm.: TÍM-
INN, K.M.)
Akureyri, 27. des. — Svo
bar tif um jólin aS 7 menn
frá Akureyri urðu veður-
tepptir í Öxnadal, og komust
ekki heim til sín fyrr en í
gær. — Hér er hrakveður í
dag, gengur á með krapahryðj
um, og er ófært um götur
nema á klafstígvélum.
Á aðfangadag fóru 7 menn frá
Akureyri í heimsókn á fremstu
bæi í Öxnadal, Engimýri og Háls.
Þegar þeir hugðust snúa heim á
leið, reyndist orðið ófært, svo þeir
urðu að gista jólin í Öxnadalnum.
Skifti fólkið sér niður á bæi, og
hefur sjálfsagt notið góðra jóla í
Öxnadalnum.
Flughálka
Að sögn lögreglunnar hér á Ak-
ureyri gerðist ekkert stórtíðinda
hér um jólin, en fyllirí var mikið
í gærkvöldi, eins_ og venja er á
öðrum jóladegi. í gær var flug-
hálka bæði innanbæjar og utan,
og fóru margir bílar út af af
þeim sökum, en skemmdir urðu
ekki teljandi, hvorki á fólki né
farartækjum.
Veður í krapi
í dag er hér bleytuhríð mikil,
og veður allt í krapi. Niðurföll í
götum eru öll stffluð, og er helzt
ekki hægt að hreyfa sig utan dyra
nema í klofstígvélum. — Vegir hér
í grenndinni eru flestir opnir enn,
en færðin er mjög að þyngjast.
E.D.
Verður yfirstjórn að-
vörunarkerfisins flutt
til Keflavíkurvallar?
Yfirlýsing Diefenbakers forsætisráöh. Kanada
John Diefenbaker, forsætis-j
ráðherra Kanads, svaraði j
fyrir nokkrum dögum fyrir-
spurn í kanadíska þinginu j
varðandi grein Hanson W. i
Baldwins í New York Timesj
jl9. des. s.l. um væntanlegan j
tlutning aðvörunarkerfis Nato
frá Argentía á Nýfundnalandi
til íslands. Við betta tækifæri
gaf Diefenbaker forsætisráð-
herra eftirfarandi yfirlýsingu:
„Grein Baldwins er ónákvæm
áð því leyti, að hún gefur ! skyn
meiriháttar brottflutning úr Arg
entía-stöðinni. Að þvf undanskildu,
að yfirmaður aðvörunarkerfisins á
N-Atlantshafssvæðinu, mun ef til
vlll í náinni framtíð flytja stjórn-
arstöð sína til fslands verður alls
eegin teljandi breyting á núver-
andi herstyrk og starfsemi Arg-
entía“.
Diefenbaker sagði. að yfirlýsing
(Pramhald á 2. siðu).
Raflínur
sliguðust
Egilsstöðum, 27. des. — Um
jjölin var hér leiðindaveður. snjó-
jkoma og hvasst á jóladag, en í
gær gerði Krapahriðarveður og er
svo enn í dag. Mikið slitnaði nið-
ur hér að rafmagns og símalínum
i veðrinu. T.d. slitnuðu niður flest
ar heimtaugar að bæjum hér á
Völlunum, eða svo til allar þær
lí.cur, sem lágu þvert á veðurátt-
ina, sem var norðaustan. Aðallín-
an liggur í sömu stefnu, og því
slapp hún.
Staurar era hvergi brotnir held-
ur voru það línurnar sem sliguð-
ust undan ísingaþunga. — Það
mun taka nokkra daga að gera við
skemmdimar. ES
Ésing slítur
símalínur
Frá Akureyri er hægt að hringja til
r
Olafsfjarðar og austur yfir Vaðla-
heiði að Skógum
AKUREYRI, 27. des. — ísing
mikil hefur sezt á símalínur
hér austur og norður um, svo
mjög lítið er hægt að hringja
sem stendur. — Erfitt verður
að gera við þær skemmdir, því
veður er vont, færð mjög erfið
og dagurinn stuttur.
í dag voru 9—10 vindstig
hér norður með Eyjafirðin-
um og hiti um frostmark. Af
þessum völdum settist mikil
ísing á símalínur og sleit þær
niður. Sambandið milli Ólafs
rfjarðar og Siglufjarðar er rif
ið, og eins milli Skóga í
Fnjóskadal og Fosshóls í Bárð
ardal.
Sambandslaust austur um
Af þessum sökum er alveg
sambandslaust austur um frá
Akureyri, það er hægt að
hringja yfir Vaðláheiðina að
Skógum og ekki lengra. — Þá
mun einnig vera slitið í Öxna
dal, til Svalbarðseyrar og eitt
hvað frammi í firði.
Óhægt um vik
Það verður óhægt um vik
að gera við þetta. Allt hjálp-
(Framhald á 2. síðu).
Hér á dögunum hringdi maður til blaðsins og fór þess á leit, að Reykvík-
ingar minntust andanna á Tjörninni. Hann kvaðst hafa farið rétt fyrir
íólin til þess að gefa þeim, og þ®r hefðu verið glorsoltnar. Um leið og
hann kastaði smábita til þeirra, þustu þær allar að og slógust um hverja
ögn, sem í Tjörnina féll. — Vlð viljum hér með beina þeim tilmælum tll
borgaranna, að þeir víki góðu að öndunum, og taki manninn hér á mynd-
inni sér tll fyrirmyndar. (Ljósm.: Tímlnn, K.M.)
if!
Hættir við brúðkaupsferðina — bls. 3
iðSMiMMMM