Tíminn - 31.12.1960, Blaðsíða 2
Þessi mynd var tekin eftir a3 Kennedy, kjörinn forsetl Bandarfkjanna,
hafði skipað Adlai Stevenson sendiherra Bandarikjanna hjá S.Þ. Skipun
Stevenson's í þetta embætti hefur verlð fagnað víðast hvar í Vesturálfu.
Svellbunki á Akureyr-
arflugv. tefur flugvélar
Viscouint-vél í sjúkraflugi til Meistaravíkur
Flugfélaglnu barst í gær beiðni
um að sækja botnlangaveikan
mann til Meistaravíkur á Græn-
landi. Beiðni mun einnig hafa
borizt bandaríska flughernum á
Keflavíkurvelli, en hann tr’eysti
sér ekki til fararinnar, enda var
fannkoma mikil í Mei’staravík í
gær. í gærdag beið Douglas-vél
frá flugfélaginu ferðbúin á Reykja
víkurvelU eftir því að veðr’i slot-
aði í Meistaravík.
í gærkveldi gekk veður niður í
Meistaravík, en á leiðinni var ís-
ing upp í 20 þúsund fet, og var
því ekki talið ráðlegt að senda
Douglas-vél, en ákveðið að senda
aðra Viscount-vélina, Hrímfaxa,
sem getur flogið ofar 20 þús. fet-
um. Var áætlað að vélin legði upp
kl. 8 í gærkveldi, en til Meistara-
víkur er um 2 stunda flug.
Straumurinn
gleymdist á
Laust eftir miðnætti í fyrrakvöld
var’ slökkviliðið kvatt að Vestur-
vallagötu 2 hér í bæ, en þar þpfði
straumur gleymzt á þvottapotti og
lagði af stybbu, svo fólk hélt að
um eld væri að ræða. Skemmdir
ur’ðu engar.
Innanlandsflug gekk vel í gær
að undanteknu flugi til Akureyrar.
f sing er mjög mikil á flugvellinum
þar, þar var’ ausandi rigning , gær
og glerungur yfir öllu. Ljós á flug
vellinum eru einnig klén vegna
rafmagnstruflana þeirra, sem orð
ið hafa vegna skemmda á raflín-
um af völdum isingar. Af þessum
sökum tepptust tvær flugvélar
nyrðra í gær. Ein á Akureyrar-
flugvelli og ein á Sauðárkróki á
leið til Akureyrar. Unnið var að
því í allan gærdaga að ber’a sand
yfir svellið á flugvellinum, og var
vonazt til að flugvélarnar kæmust
suður í nótt.
Fjórar aftaná-
keyrslur
Er blaðið hafði samband við um
ferðardeild lögreglunnar siðdegis
i gær höfðu fjórir árekstrar orðið
í bænum, allt aftanákeyrslur, og
allir vegna hálku. Skemmdir urðu
þó litlar í öllum tilfellum. Rétt
er að minna ökumenn enn einu
sinni á að far’a varlega í hálkunni,
ekki sízt í dag, þar sem búast má
við mikilli' umferð.
Björn Pálsson flutti
125 sjúklinga 1960
Sótti tvo sjúklinga í gær
Björn Pálsson skýrði biað-
inu frá því í gær að samtals
hefði hann flutt 125 sjúklinga
á þessu án. Sjúkraflug munu
hafa verið heldur færri, því
að í einstaka ti'tellum hefur
hann flutt tvo sjúklinga í
senn.
Þetta voru heldur færri
sjúkraflutningar hjá Birni en
1959. Sagði Björn það stafa
af því, að hann hefði dvaliö
erlendis í fimm vikur á arinu
í sambandi við kaupin á hinni
nýju flugvél. Hefði þá annar
hlaupið í skarðið á meðan, en
ekki hafði Björn tölur yfir
flutninga hans.
Sótti 2 í gær
Björn flaug til Stykkis-
hólms í morgun og sótti þang
að sængurkonu. Einnig flaug
hann vestur á Barðaströnd og
sótti þangað sjúka, þun'nða
konu frá Neðri-Gufudal.
T fVlljiJN.iIaugardagjim, 31.:;dejembefi|l960i
45 MANNS FÖRUST AF
SLYSFÖR
ARINU
23 drukknuðu, þar af 14 í ám og vötnum.
11 fórust í umferðarslysum og 11 í öðrum
slysum - 70 manns var bjargað á árinu.
Árið 1960, sem hófst með
hörmulegu sjósíysi er m.b.
Hrafnkell frá Sandgerði fórst
í Miðnessjó með 6 manna á-
höfn og einnig með því að öll
þjóðin beið í örvæntingu eftir
afdrifum togarans Úranusar,
sem hætti að heyrast í eftir
óveður á Nýfundnalandsmið-
um, — hefur þó reynzt eitt
hið minnsta slysaár í sögu
þjóðarinnar og það ár sem
lengi mun verða munað eftir
fyrir eindæma gott veðurfar,
því varla gat heitið að sá dag-
ur kæmi á árinu sem ekki gaf
á sjó eða sem ekki var hægt
að stunda útivinnu á sjó og
landi.
Árið 1959 létust ’ 04 hér á landi
af slysförum en árið 1960 urðu
banaslysin 45. Sjóslys og drukkn-
anir urðu 23 að jíjörtjóái, þar með
tcldír tveir erlendir menn, annar
I'æreyingur er tók íít af íslenzku
fiskiskipi og hinn var skozkur
ferðamaður er drukknaði við að
sundríða á. 11 manns biðu bana í
umferðarslysum á árinu en 11
liafa látizt vegna annarra slysa þar
með talinn einn útlenzkur maður.
Skrifstofa Slysavarnafélags ís-
lands hefur flokkað slysin bannig:
Sjóslys og drukknanir
Með skipum sem fórust 7,
drukknanir við iand í ám og vötn-
um 14, féllu útbyrðis í rúmsjó 1,
v:ð störf um borð 1, eða samtals
'2a.
i
| UmferSarslys
, Urðu fyrir bifreið 5, við árekst-
u- 4, undir dráttarvél 1, við akstur
fram af bryggju 1, eða samtals 11.
Önnur slys
Létust af byltu og höggum 7,
vt.gna brunasára og sprengingar 2,
af öðrum ástæðum 2, eða samtals
11.
Samtals tórust af slysförum 45
œanns.
Það sem er sórstaklega 'eftir-
tektarvert við þessi slys eru, hvað
drukknanir suertir, hin háa tala
þeirra, sem drukkna við land.
Þetta eru siys, sem í flestum til-
felium eru óaðgæduslys og slys
sem mikið ;r hægt að fyrirbyggja
ef ýtras'ta aðgæzia er viðhöfð
Sama má segja um umferðarslysin
en meira en helmingur þeirra er
fcrust eru ung börn eða 6 talsins,
oí ung til tig skynj; hætturnar af
umferðinni e'ða kunna að varast
þær.
KviknaSi í bíl
Laust eftir miðnætti i fyrrinótt
var slökkviliðið kvatt inn í Blesu-
gróf, en þar hafði kviknað í striga
ábreiðu yfir vél R 1000. Tekizt
hafði að' slökkva er liðið kom á
vetlvn" -kemmdir urðu sama
og 0"
Bjarganir
Á árinu 1960 hefur alls verið
bjargað 70 manns hér við land af
ísienzku fólki, og þar að hafa
unnið bæði konur og börn er sýnt
bafa snarræði á réttu augnabliki
vð björgun. 16 hefur verið bjargað
Lá drukknun við land, við skips-
sckkvandi skipum hefur 17 verið
bjargað, úr brennandi skipum 11,
einum úr snjóflóði og einum úr
etdsvoða, efíir því sem skrifstofu
Siysavarnafélagsins er kunnugt.
Þer að auki bjargaði skozkur tog-
arí Moant Eden 19 manna áhöfn
aí Drangajökli er sökk í Pentlands
f.rði, St. 4ppolo brezkur togari
bjargaði 19 mönnum af belgíska
togaranum Ruben, er sökk við
Austurland, íslenzki togarinn
Geir bjargaði 15 Færeyingum við
Grænland. Við þetta bætist og
hin mikla og margvíslega aðstoð
íalenzku björgunarskipanna við
sírönd hefur verið bjargað 24, úr bátaflotann.
GAMLÁRSKVÖLD
(Framh. af 16. síðu) .
Ári síðar segir í fyrsta jan
úarblaðiau:
Fámennt
götum
Reykjavíkur-
.... fólk með fæsta móti
á ferð í bænum .... ungling
ar köstuðu kínverjum o.g
sprengjum að vegfarendum
í mtðbænum .... lögreglan
tók nokkra unglinga í gæzlu
. . . . þegar fólk kom af dans-
leikjum bar mikið á ölvun
. . . . lögreglan tók 36 ölvaða
borgarbúa og veitti þeim húsa
skjól í bili ....
Sífellt rólegra
Þremuir næstu áramótum
segir fátt, enda hvert gamlárs
kvöldið öðru rólegra. 1957
greinir þó frá því að maður
nokkur hafi flúið af sjúkra-
húsi, þar sem nýbúið var að
taka úr honum botnlaryrann,
kvaddi dyra i Hegningarhús-
inu og baðst þar gistingar.
Sprengja :nn um glugge
í janúar 1959 greinir frá
því að sprengju hafi verið
kastað inn um glugga á húsi
við Flókagötu. Kom hún inn
þar sem bam lá í vöggu, en
barnið sakaði ekki. Sprengjan
var heimatilbúin. Ölvun var
mikil .... 12 ára drengur fékk
haglabyssuhylki í lærið. Fór
það í gegn um fötin og sat
fast í lærinu. Munu höglin
hafa verið tekin úr skotinu
* *;
M'
og síðan kveikt í . . . . hálka
var á gamlársdag og margir
hlutu slæmar byltur ....
Hafmeyjan í loft upp
1960 gekk í garð með þeím
ósköpum að hafgúan í Tjörn-
inni var sprengd 1 loft upp um
hálf eittleytið á nýársnótt . . .
rúður brotnuðu í þremur hús-
um á Flókagötu. 19 ára piltur
setti rakettu í járnhólk ....
rétt eftir að kveikt var í kvað
við ógurleg sprenging' ....
pilturinn skall flatur og rúð
ur í næstu húsum brotnuðu
af loftþrýstingnum . . . pilt-
urinn mun hafa farið í einu og
öllu eftir leiðbeiningum um
meðferð rakettunnar, en hún
sennilega gölluð ....
Hvað gerisi í| kvöld?
Þá er árið 1960 að kveðjá
og nýtt ár að heilsa. Gamlárs
kvöld það, sem í garð er að
ganga er óskrifað blað. Ugg-
laust verður mikið sprengt af
kínverjum og öðru slíku smá-
dóti, enda hefur slíkur varn-
ingur legið á lausu síðustu
tvær vikurnar eða svo.
Vonandi flytur fyrsta tölu-
blað Tímans á nýja árinu
betri fréttir af áramótunum
en fyrr á árum, enda heyra
skrílslæti, sem betur fer, að
mestu liöinni tíð.
Gleðilegt ár.