Tíminn - 05.01.1961, Qupperneq 1

Tíminn - 05.01.1961, Qupperneq 1
iigrow«g«ap íaTSSSfiSB æx Áskriftarsímínn er 1 2323 minn er » 3. tbl. — 45. árgangur. Tókst að bjarga 12 kindum en 59 fórust A3 kvöldi hins annars janúar varð árekítur á Vatnsleysustrandarvegi milli bíls og hests, með þeim afleiðingum fyrlr bílinn, sem sjá má hér á myndinni. Sagði ökumaður bílsins, J-20, frá árekstrinum eitthvað á þessa leið: Hann var á leið frá Keflavíkurflugvelli til Reykjavíkur, og ók greitt. Allt í einu sá hann hest koma inn í Ijósgeislann á veginum, og skipti það engum togum, að bíllinn skall utan í hestinn, er hinn siðarnefndi hafði snúlð sér við til þess að fara út af veginum. Skall hrossið upp á vélarhús bilsins og datt þaðan i götuna. En er klárinn hafði komið fótum fyrir sig brá hann við hart og hvarf óhaitur út í móa. Lögreglan á Keflavíkurflug- velli var kvödd á staðinn. Náði hún hestinum og skoðaði hann í krók og kring, en fann engan áverka. Billinn varð hins vegar að flytja til Reykjavikur, og segja fróðir menn það með ólíkindum að hross geti valdið einum bil slíkum skaða og sloppið sjálft ómeitt úr viðureigninni. (Ljósm.: TÍMINN IM). Vertíð hvergi hafin nema í Sandgerði Ágætur afli fyrsta daginn Sandgerði er eina útgerð- arstöðin, þar sem verfíðar- róðrar hafa hafizt þrátt fyrir það, að ekki hefur verið samið um kjör sjómanna. Fjórir bát- ar réru í fyrradag og fimm voru á sjó í gær. í fyrradag var ágætis afli, allt upp í fimmtán tonn. í gær var hann heldur lakari 7—10’/2 lest á bát. Ekki er ijóst með hvaða launa- kiörum sjómenn fara í þessa róðra, hvort heldur þar er um að rœða kjör fyrra árs eða kjör þau, sem væntanlega verður samið um. •Þrír Sandgerðisbátar til viðbótar voru reiðubúnir að hefja róðra, svo að líkindum eru 8 Sandgerðis- bátar á sjó í dag. í öllum hinum verstöðvunum á Suðvesturlandi bíða menn átekta. í Vestmannaeyjum og Horna- firði hafa útvegsmenn neitað að fallast á fiskverðið og róðrar hefj ast ekki. Á Austfjörðunum em menn almennt að undirbúa róðra eg bíða og sjá hvað setur. Fundur um sjómannakjörin hafði verið boðaður í verkamannafélaginu á Eskifirði í gærkvöldi. Á Snæfellsnesi munu bátar sumir um það bil að verða full- búnir til veiða. Á Vestfjörðum eru róðrar sums staðar hafnir. Á ísa- firði var fyrst farið á sjó í gær síðan fyrir jól, enda hafa gæftir engar verið. Sjómenn ætla að róa fvrst um sinn a.m.k. Annars er mikil óánægja með verðið, sérstak lega, hvað lítið fæst fyrir færa- fisk. — Vitað var, að róðra myndu hefjast frá Skagaströnd í dag. Suðurnesjasjómenn samþykktu FRESTUNÁ AFSTÖÐU.. er eldur kom upp í fjárhúsi austur í Ölfusi til samningsuppkastsins, sem rætt var á sameiginlegum fundi þeirra í Keflavík í fyrrakvöld Hveragerði, 4. jan. —; Rétt fyrir átta í gærkvöldi kom upp eldur í fjárhúsi í Auðs- holti í Ölfusi, þar sem inni var 71 kind. Út björguðust 12 kindur, en tvær þeirra'eru nú dauðar og fjórar aðrar liggja Á fundi bæjarráðs 30 des. s.l. var lagt fram bréf frá vegamálastjóra varðandi nýtt vegarstæði milli Reykjavíkur og Lækjarbotna á Suðurlands- vegi. TÍMINN spurðist fyrir hjá vegamálastjóra um þenn- an nýja veg og fékk þessar upplýsingar: fyrir dauðanum. — Einnig eyðilögðust 300 hestar af heyi, sem voru í stabba fyrir utan fjárhúsið. í gærkvöldi fór piltur til að gefa fénu, og notaðist hann Þetta er einn liður í lögn hins nýja austurvegar, en í sumar fóru fram rannsóknir á því, hvar hann ætti að liggja í framtíðinni. — Ekki er þó búizt við, að nærri strax verði hafizt handa um lagn- ingu nýs vegar milli Reykjavíkur cg Lækjarbotna, en rétt er að hafa vaðið fyrir neðan sig og vita hvar hann á að koma, svo ekki (Framhald á 2. síðu) við ljós af kerti. Vildi þá svo illa til, að hann missti kertð ofan í garðann og kviknaði í. Beið um hríð Piltinum tókst þó að slökkva eldinn, og beið hann síðan um hríð í myrkrinu til þess að ganga úr skugga um, hvort enn leyndist eldur í. Þegar hann þóttist öruggur um, að ekki væru neinar glæður eft ir, fór hann heim til annarra verka. 59 köfnuðu Um hálftíma síðar átti mað ur nokkur leið þarna framhjá og stóð þá fjárhúsið í ljósum loga. Hann hljóp þegar heim að Auðsholti og tilkynnti eld inn. Var þá þegar brugðið við, og slökkviliðið fór á staðinn. Tókst að bjarga 12 kindum lifandi, en hinar höfðu kafn að af reyk. Húsið brann að mestu. í morgun logaði enn í glæðunum, en um hádegi var (Framhald á 2. síðu). Á hinum sameiginlega fundi sjómannafélaganna í Keflavík, Grindavík og Sandgerði, sem haldinn var í Keflavík í fyrra- kvöld var samþykkt tillaga frá Hannibal Valdimarssyni, for- seta ASÍ um frestun á afstöðu til samningsuppkastsins, sem samninganefndir sjómannafé- laganna á Suðurnesjum ann- ars vegar og fúlltrúar útvegs- manna hins vegar höfðu undir ritað með fyrirvara. Samningsuppkast það, er fulltrúar sjómanna höfðu und irritað með fyrirvara, er í höf uðdráttum á þá leið, að 28% af heildarverðmæti brúttóafla kæmi til skipta milli háseta (6) og landmdanna (5). Ef aflaverðmætið yrði meira en sem nemur 1.3 milj. kr. á ver tíðinni skyldu hásetar og land menn fá 30% til skipta. Út- gerðin greiddi hins vegar hluti skipstjóra, stýrimanna og vél stjóra. — Hið óstaðfesta fisk verð, sem verðlagsráð og fram kvæmdastjórn LÍÚ hefur á- kveðið að leggja fyrir fram- haldsaðalfund LÍÚ mun hafa verið lagt til grundvallar í samningsuppkastinu. Umræður um samningaupp kastið á fundinum stóðu fram undir miðnætti og í fundarlok var samþykkt eins og fyrr seg ir að taka ekki afstöðu til málsins. Nýr vegur að Lækjarbotnum tí

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.