Tíminn - 24.01.1961, Page 2

Tíminn - 24.01.1961, Page 2
2 TÍMINN, þriðjudaginn 24. janúar 1961. Heitar umræður á bjór- fundi Stúdentafélagsins Stúdentafélag Reykjavíkur hélt fjölmennan fund um bjórmálið á sunnudaginn og háðu þar fylgismenn og and- stæðingar áfengs bjórs all- snarpa sennu. Tóku fjölda- margir til máls í þessum um- ræðum. Matthías Jóhannessen, formaður Stúdentafélagsins var fundarstjóri, er. framsögumenn Benedikt Bjark lind stórtemplar og Friðfinnur Ólafsson forstjóri. Benedikt Bjarklind taldi ein- sætt, að með áfengum bjór myndu risa hér upp bjórknæpur, og höf- uðstaðurinn myndi á ný eignast staði eins og Svínastíuna, er forð- um daga var í hjarta Reykjavík- ur. Mættu menn minnast þeirra daga, eT hér var leyfilegt að selja áfengt öl, þegar rætt væri um að leyfa nú bruggun þess og sölu. Hann dró ekki heldur dul á það álit sitt, að áfengum bjór myndi fylgja aukin slysahætta og aukinn fjöldi afbrota. Hann skír- skotaði í því efni til reynslu Svía, þar sem afbrot hafa tvöfaldazt síðan sterkt öl kom þar til sög- unnar fyrir nokkrum árum. í Itaupmannahöfn væri þriðjungur umferðarslysa og 70% glæpa og afbrota talið stafa af áfengis- neyzlu. Ætti bjór vafalaust þátt í því. Hann taldi það og haldlausa röksemd, að íslendingar myndu geta flutt út áfengan bjór vegna þess, hve vatn hér er gott, því að önnur hefði raunin orðið í Noregi, þótt ekki brysti þar gott vatn. Aftur á móti hefði öldrykkja fætt þar sums staðar af sér vand- ræðaástand. Friðfinnur Ólafsson lagði aftur á móti áherzlu á, að hér sé meira at boðum og bönnum en góðu hófi gegni og tími til þess kom- inn að veita persónufrelsi manna aukið svigrúm. Hann sakaði góð- templara um að ógna svo alþingi, að það hefði ekki þorað að leyfa bruggun og sölu áféngs bjórs. Um margt fleira þótti honum góðtemplurum mislagðar hendur. Fyrir þeirra tilstiili fengist til dæmis ekki brennivín í minni SKÖmmtum en þriggja pela flösk- um. Hann deildi og á héraða- bönnin, er- hefðu haft það í för með sér, að menn á Akureyri og Eyjafirði urðu að kaupa áfengi frá Siglufirði og Vestmannaeying- ar að fá sitt brennivín sent með pósti. Hann taldi algerlega ósannað, ao unglingar myndu frekar leið- ast til áfengisneyzlu, þótt áfengt öi væri leyft, og yfirleitt vær'i það á getgátum einum bygg-t, hvernig menn brygðust við tilkomu öls. Að lokum mælti hann eindregið með áfengum bjór. Margir tóku 'til máls, er frum- mælendur höfðu lokið ræðum sín- um. Skiptust þeir nokkuð jafnt í tvo hópa — þá, sem mæltu með bjórnum, og þá, sem töluðu gegn honum. Þó voru þeir heldur fleiri, er ekki vildu bjórinn. Ræðumenn voru þessir: Ezra Pétursson, Guðlaug Narfadóttir, Ólafur Matthíasson, Þorleifur Gíslason, Björn L. Jónsson, Helgi Sæmundsson, Helgi) Tryggvason, Sigurjón Bjarnason, Ómar Ragn- arsson, Freymóður Jóhannsson og Stefán Þór Guðmundsson. OANÆGJA MEÐ STRANDFERÐIR Breiðdalsvík, 23. jan. Hér um slóðir ríkir mikil óánægja með það, að ríkisskipin Esja og Hekla eru hætt að koma við nema í annarri hverri strandferð Hins vegar kemur Herðubreið hér við í hverri ferð, en í staðinn sleppir hún viðkomu á ýmsum stærri höfn um hér fyrir norðan okkur, svo það er allt á eina bók lært með samgöngurnar okkar Staðirnir, sem fyrix þessu verða, eru Djúpivogur, Stöðvar- fjörður og Neskaupstaður. Allir eiga það sameiginlegt, að yfir veturinn eru þessar skipakomur einu samgöngurnar. Og okkur þykir heldur illa farið, þegar við komumst hvorki heim né að heim- an nema eftir dúk og disk. Öfugþróun tímans Áður fyrr komu Esjan og Heklan hingað því sem næst á 10 daga fresti hvort skip. Nú koma þær aðeins á 20 daga fresti hvor um sig, og stundum hafa þær verið hér báðar í einu eða mætzt, þegar önnur var að fara, en hin að koma. Herðubreið, sem kemur á 10 daga fresti, kemur hins vegar ekki við á ýmsum stærri höfnum í kringum okkar, svo að lítið bætir hún úr skák með samgöngurnar innan héraðs- ins. Þetta þykir þeim, sem hér búa, I í öfugu hlutfalli við þróun tím- ans í samgöngumálum. G.A. Sáttanefnd (FramhaJd af 3. síðu) ætlað. Sú ákvörðun stjórnar Mobútós að láta flytja Lum umba til Katanga hefur kom ið í veg fyrlr þátttöku Lum- umbasinna í ráðstefnunni. — Lumumbasinnar hafa bæði Orientale- og Kívúhérað á valdi sínu og mikinn hluta Katangahéraðs. Það má teljast fullvíst, að ráðstefna þessi muni verða til þess að tryggja enn betur það samkomulag, sem virðist hafa tekizt með þeim Kasavubu forseta og Mobútós ofursta annarsvegar og Thsombe hins vegar. Nokkuð hefur hungursneyð in i Kasaihéraði rénað að und anförnu. Ætlað er þó, að enn látizt allt að 100 manns á dag úr hungri. SamþyRkir fnmvarp um lýðveldisstofnun Höfðaborg, 23. jan. (NTB) — Þing Suður-Afríku samþykkti í dag með 91 atkv. gegn 52 frumvarp stjórnarinnar þess efnis, að landið skuli gert að lýðveldi. Frumvarp þetta er flutt í beinu framhaldi af alls herjaratkvæðagreiðslu í land inu á s.l. ári, þar sem sam- þykkt var með nokkrum meiri hluta atkvæða, að landið yrði lýðveldi. Mestur hluti íbúa landsins, þ.e.a.s. blökkumenn höfðu þó ekki atkvæðisrétt I þessum kosningum. Dr. Verwoerd forsætisráð- herra, sagði við umræðu um frumvarpið, að eftir að lýð- veldi hefði verið stofnað, gæti Suður-Afríka því aðeins verið áfram í brezka samveld Flokksstarfift í bænum Miðstjórnarfundur á morgun Á morgun, miðvikudag, verður fundur í miðstjórn Framsóknar- flokksins. Hefst fundurinn kl. 3.30 e.h. í Framsóknarhúsinu, uppi. inu, að það setti því ekki skip anir um innanríkismál. Suður Afríka mun aldrei þola, að önnur ríki segi sér fyrir um stjórn innanríkismála. Dag HammarskjÖld hefur flutt Öryggisráði S.þ. skýrslu um viðræður sínar við dr. Ver woerd um kynþáttamálin í S- Afríku. Segir þar, að viðræð urnar hafi verið gagnlegar og reynt verði að finna lausn á vandanum á grundvelli þeirr- ar stefnu, er S.þ. hafi þegar markað i því máli.' Það er í frásögur færandi að nú er þriðji dyravörðurinn tekinn til starfa í Storkklúbbn um. Áður var einn dyravörð- ur við neðri sal og annar við efri, en fyrri fösudag voru ung lingar undir 21 árs aldri svo fjölmennir á barnum, að vín eftirlitið fékk því kom'ið til leiðar, r>ð ó laugardaginn var tók i-r r" -?-••r-fí, ''--vinn sér stöðu við bardyrnar. Laos (Framhald af 3. síðu). stjórninni álit sitt á þeim. Tillög- ur þessar hefur brezka stjórnin samið í samvinnu við stjórn Bandaríkjanna, og segir hún sig vera samþykka öllum atriðum hinna brezku tillagna, enda miði þær að því að koma á friði í land- iru. Eftirlitsnefnd þessi var kos- in 1954 og eiga sæti í henni Ind- land, Pólland og Kanada. Nefndin lét af störfum árið 1958. Frá Vientiane berast þær fregn- ir, að Boun Oum forsætisráðherra hyggist fo-rmlega mótmæla við SÞ innrás frá Norður-Vietnam í Laos. Þ.essi mótmæli mun utan- rikisráðherra Laosstjórnar af- henda í New York, en þangað er Iiann kominn til þess að tala máli lands síns á vettvangi SÞ. Vest- rænir fréttamenn í Vientiane era þeirrar skoðunar, að Boun Oum forsætisráðherra vilji i lengstu lög reyna að tefja það, að eftir- litsnefndin taki til starfa í Laos. Þessi mótmæli hans séu liður í þeirri viðleitni. Mál Magnúsar (Framhald af 1. síðu.) 1960 sakaður um: 1. Að hafa sent lögreglustjóira työ hótunarbréf um líflát, og bárust lögreglusíójra bréf þessi hinn 18. og 22. janúar 1960. 2. Að eiga og hafa í vörzlum sín- um skammbyssu og skot i hana án lögmælts leyfis. 3. Að hafa i kæru til dómsmála- ráðherra og á dómþingum sakadóms Reykjavlkur borið lögreglumenn og lögreglustjóra Reykjavíkur röngum sakargiftum. Verjandi ákærða krefst þess, að lagt verði fyrir héraðsdómara að framkvæma víðtæka framhaldsrann- sókn um sakarefni og að fimmtíu nafngreindir menn verði leiddir fyr- ir dóm. Verða kröfur verjandans í þessu efni metnar með hliðsjón af hverju ákæruatriði um sig. I. ákæruatriði. 1. Sigurjón Ingason lögregluþjónn hefur skýrt svo frá, að hann hafi verið varðmaður í Stjómarráðshús- inu I Reykjavík aðfaranótt 18. jan- úair 1960 frá tkl. 2400 til ld. 0700. Hafi ákærði, sem klæddur var einkennis- húningi lögreglumanna, komið til sín um nóttina. Var klukkan þá rúm lega 0230, og dvaldlst ákærði í hús- inu tíl klukkan um 0345, að sögn Siguirjóns. Kveðs-t Sigurjón hafa orð- ið sjónarvottur að því, að ákærði skrifaði, meðan hann stóð við, á rit- vél hótunarbréf til lögreglustjórans í Reykjavík. Ákærði hefur þrætt fyr ir að hafa komið í Stjómarráðshús- ið greinda nótt. f héraði var lagt fram vottorð lögreglustjórnarinnar í Reykjavík þess efnis, að ákærði, lögregluþjónn nr. 64, hefði „sam- kvæmt lögregluvarðskrá næturvakt- ar sunnudaginn 17. janúar 1960" verið „kl. 0100 til 0300: í eftirlitsbif- ireið ásamt lögregluþjónunum nr. 33 og 115 kl. 0300 til 0400 á lögreglu- varðstofunni". Tetur verjandi sam- kvæmt vottorði þessu sýnt, að Sig- urjón Ingvason hermi rangt um komu ákærða í Stjórnarráðshúsið og dvöl hans þar. Héraðsdómari hefur yfirheyrt lögregluþjón nr. 33. Hins vegar hefur lögregluþjónn nr. 115 ekki komið fyrir dóm, en verjandi ákærða krafðist þess í héraði og fyrir Hæstarétti, að sá lögreglu- þjónn yrði einnig krafinn vættis. Fyrir Hæstarétti hefur sækjandi lagt fram tvö vottorð lögreglustjó"’' ar Reykjavikur, bæði dags 17. janú- i ar 1961, svohljóðandi: „Samkvæmt dagbók lögreglu- sljóraembættisins í Reykjavík vott- ast, að á tímabiiinu kl. 03—04 að- faramótt 18. janúar 1960 var lög- reglan aðeins einu sinni kvödd út. Var um hjálaprbeiðni að ræða frá Hverfisgötu 49. Á vettvang fóru lög regluþjónar nr.' 99, 116 og 122. Samkvæmt lögíegluvarðskrá voru á nefndu tímabili lögregluþjónar nr. 54, 64 og 116 skráðir í varðstofu, nr. 54 til símaþjónustu, en nr. 64 og 116 til að sinna útkvaðningum. Sam- kvæmt sömu varðskrá er lögreglu- þjónn nr. 122 skráður á vakt í Aust- urstræti—Hafnarstræti á þessu tíma bili og nr. 99 á Laugavegi. Lögregluvarðskráin ber ekki með sér, hvers vegna lögregluþjónn nr. 64 var ekki sendur í umrætt útkall, svo að kveðja þurfti til lögreglu- mann, sem skráður var til varðþjón- ustu á öðrum stað". ,,Hér með vottast samkvæmt dag- bók og talstöðvarbók lögreglustjóra embættisins i Reykjavík, að lögreglu þjónar nr. 64 og 115, sem skráðir voru á eftirlitbifreið aðfaramótt 18. janúar 1960, kl. 01—03, gengdu engu útkalli á því tímabili. Lögreglu nr. 33, sem skráður er á eftirlitsbifreið alla næturvaktina sem bifreiðar- stjóri, gegndi hins vcgar útkalli kl. 01 að Sjafnargötu 8 ásarnt lögreglu- mönnum nr. 54 og 99, en þeir.voru skráðir á eftirlitshifreiðina frá kl. 23 tU 01". Eins og göngum málsins er hátt- að, er rétt, að rannsakaður verði nánar ferill ákærða greindan varð- tima og i þvi sambandi spurðir fyrir dómi samstarfsmenn hans á verðtn- um, þar á meðal áður greindur lög- regluþjónn nr. 115. 2. Verjandi ákærða hefur í máU þessu lagt fram ýmsar rltsmiðir, sem hann telur nafngreindan, geð- bilaðan mann hafa sett saman. Tel- ur verjandi likur fyrir því, að mað- ur þessi kunni að vera höfundur hótunarbréfa þeirra, er i máU þessu greinir, og krefst verjandi þess, að rannsókn málsins verði beint gegn nefndum manni. Eigi hafa verið leiddar neinar rökstuddar líkur að þvi, að sjúklingur þessi sé við hót- unarbréfin riðinn, og ákæruvaldið hefur eigi beint rannsókn gegn hon- um. Eins og málum nú er háttað, er eigi rétt, að þessi dómstóll skipi fyrir um sUka rannsókn. II. ákæruatriðl. Eins og rannsókn málsins er hátt- að, eru engin efni til, að Hæstiréttur mæll fyrir um frekari eftirgrennsl- an, að þvi er ákæruatriði þetta varðar. Kröfur verjanda ákærða, er þar að lúta, verða því éigi teknar tU greina. III. ákæruatriði. Ákærði er, eins og áður segir, sóttur tU refsingar fyri.r rangar sak- argiftir á hendur opinberum starfs- mönnum vegna sakburðar hans á hendur þeim í kæru tU handhafa ákæruvalds og á dómþingum. Á- kærði hefur skorazt undan að finna stað þeim ummælum sínum, sem ákæran á hendur honum er af risin, en þrátt fyrir það, hefur verjandi hans krafizt þess, að hafin verði al- menn rannsókn fyrir sakadómi á hendur þeim mönnum, sem ákærði hefur borið sökum. Handhafar á- kæruvalds hafa eigi taiið efni til að sinna greindri kröfu, og eigi er rétt, eins og málið liggur fyrir, að þessi dómstóll kveði á um siíka rannsókn. Málflutningslaun sækjanda fyrir hæstarétti, kr. 8000.00, og málflutn- ingslaun verjanda fyrir Hæstarétti, kr. 1500.00, greiðist úr ríkissjóði. Verjandi ákærða hefur í héraði og hér fyrir dómi haft uppi ýmsar löglausar og fjarstæðukenndar kröf- ur, varðandi rannsókn sakaratriða og meðferð málsins. Hefur þetta taf- ið máUð og gert það miklu umfangs- meira en nauðsyn bar til. Af þessu efni ber að víta verjandann, Guð- laug Einársson héraðsdómslögmann, og hefur verið litið til þessarar hegðunar hans við ákvörðun máls- varnarlauna. DómsorS: Héraðsdómara ber aS framkvæma framangreinda rannsókn. Málflutningslaun sækjanda fyrir hæstarétti, Páls S. Pálssonar hæsta- réttarlögmanns, kr. 8000.00, og mál- fiutningslasn verjanda fyrir hæsta- rétti, GuSlaugs Einarssonar héraðs- dómslögmanns, kr. 1500.00, greiðisf úr ríkissjóði.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.