Tíminn - 26.01.1961, Síða 9

Tíminn - 26.01.1961, Síða 9
iT/ÍMINN, fhnmtudaginn 26. Janfiar 196L 9 Eggert h!ær a3 landkröbbunum. Góður útbúnaður Eins og kunnugt er, er Víðir II eitt af nýjustu og beztu skipum f.'skiflotans, fenginn til landsins siðastliðið sumar, smíðaður í Nor- egi. Skipstjóri lætur vel af skip- inu og öllum úfbúnaði og stýri- maður tekur í sama streng, enda heitir hann Víðir eins og skipið, en er Sveinsson að auki. Víðir II er búinn öilum fullkomnustu sigl- Víðir II í slipp. Það duttu undan honum „bæði augun" Kraftblðkk og nælonnót - já þaö er óhætt aö kalla það byltingu Það er ekki auðgert að eiga blaðaviðtal við afiaklær á miðri vertíð, Við þóttumst þó eiga í fullu tré við Eggert Gíslason, skipstjóra á Víði II, þegar við sáum bátinn í slipp. En það var öðru nær, aflakóng ar þurfa í mörg horn að líta, þótt þeir séu ekki á miðunum. Við vorum búnir að norpa niðri í slipp góða stund úr deginum áð- Rætt við Eggert Gíslason, skipstjóra, meðan botnaugun eru fest í skip hans, Víði II í slippnum. inga- og fiskileitartækjum og hafa þau komið að góðum notum. 18000 mál — Hvað hafiði fengið á vertíð- inni? — Átján þúsund mál frá því 1. október, svarar Eggert, þar af höf- um við fengið 8000 mál í janúar einum saman; i níu róðrum. Mest g»»ll ! '1 i Þessi mynd er á réttum stað. Það er ekki verið að múra nýja íbúð, heldur eru hér starfsmenn i slippnum að verki niðri í iestinni á Víði M. hefur farið x salt og íshús, hitf í bræðslu. Síldina höfum við fengið á nokkuð stórum kafla, allt frá Breiðafirði og austur að Vest- mannaeyjum. Það er 150 sjómílna leið. Við höfum landað á öllum helztu verstöðvunum, oftast þó í Sandgerði. — Og þið eruð með kraftblökk? Engan nólabát — Já, og við viljum ekki missa hana fyrir nokkurn pening. Við er- um líka með nælonnót og hún er ó- i metanleg. Kraftblökkin og nótin | gera okkur fært að fiska, þótt ; bræla sé. Það var ekki hægt áður. i Þessi tæki er miklu þægilegri í i meðförum og meira öryggi í þeim. Það er til dæmis ólíkt öruggara að hafa nótina um borð. Og svo þarf engan nótabát. Það munar ekki svo litlu. Það er sérslaklega gott að vinna með kraftblökkina, þegar þjálfun er komin. 20 faðma dýpi — Eg er hræddur um að við fengjum lítið, ef við værum ekki útbúnir með þessi íæki, heldur Eggert áfram, síldaileitartækið gerir okkur kleift að kasta á síld á 20 faðma dýpi. Já, það er óhætt að kalla það byltingu, þegar þessi nýju tæki komu í bátana. — í fyrra var til dæmis moksíld í Mið- nessjónum, tveggja tírna stím frá landi. En það var ekki aðstaða til aS veiða nema lítið magn með gömlu græjunum. Skipin hefðu fyllt sig ef þau hefðu haft þann út- búnað, sem nú er kominn. Vakandi síldarleit — Hvemig líkar ykkur við síld- arleitina? — Við erum afar bakklátir. svar1 ar Eggert, hún hefur gert ómetan- legt gagn. Ægir og Fanney hafa veitt flotanum mikilvæga aðstoð. Enda eru þar afbragðsmenn um borð, þeir Jakob Jakobsson og Jón Einarsson. Það er einróma álit allra sjómanna að við eigum varla hæfari mönnurn á að skipa. Þeir hafa fylgst með síldinni af vakandi samviskusemi og sýnt af sér ótrú- lega útsjónarsemi. SíldarverS — Og þið emð náttúrulega eins ánægðir með síldarverðið? Nú dró íyrir sólu í svip afla- kóngsins. — Nehei! Það máttu bóka. Á því sviði ríkir mesta ófremdará- stand. Við verðum aldrei ánægðir | fyrr en við íáum sambærilegt verð fyrir síldina og frændur okkar Norðmenn. i sumar fengu Norð- Eggert íhugar síldarverðið. menn nálægt 300 krónur fyrir mál- ið af Íslandssíld á sama tíma og við fengum 110 krónur. Það er ekki nokkuð réttlæti. Og norskir s.iómenn fá í sinn hlut miklu meira af fiskverðinu en íslenzkir sjó- menn. Eg rakst á þaö úti í Noregi í sumar að bátarnir, sem lönduðu þar síld, fengu 7 krónur fyrir kíló- ið af nýrri síld, sem þó var af öll- um stærðum eins og við veiðum hér á íslandi. Þessi síld var seld á 11 krónur úr íshúsunum, svo að þú sérð að fiskimennirnir fengu bróðurpartinn af verðinu. Og það má geta þess að síldin, sem Norð- menn fluttu héðan af íslandsmið- um var seld á liðlega 20 krónur kílóið. íslenzkir sjómemn fá hins vegar kr. 1.80 fyrir kílóið af síld, en það mun láta nærri að íshúsin fái 6 krónur fyrir hvert kíló, sem fer frá þeim. Það er því engin furða þótt kurT sé í íslenzkum fiskimönn um. Eggert sagði okkur að honum reiknaðist til að íslenzkir sjómenn þyrftu að afla þrisvar sinnum meira en norskir til að fá jafnan hlut. Frekari nýting — Og svo þurfum við að koma síldinni í betra verð, sagði Eggert, nýta hana betur og vinna úr henni meiri verðmæti. Við þurfum að leita víðari markaða. Þetta er allt í handaskolum hjá þeim sem halda um stjórnartaumana. Það er aumt til þess að hugsa að við skulum þurfa að bræða afla, sem nágranna þjóðir okkar geta gert sér mat úr Þeir virðast geta hirt hvert kvik- indi. Það er til dæmis óhætt að salta síld, sem er ekki nema 10% fei't. Það á þá bara að salta í þeim flokki og ljúga engu um vöruna. Þetta þorðu þeir ekki að gera í sumar og í haust en svo kemur á dagiinn að nógur markaður er fyr- ir 10% feita saltsíld. Þarna höfum við misst góðan spón úr askinum. Cg þetta er skaði fyrir allt þjóðar- búið. Það eru ekki bara sjómenn, sem skaðast á því að koma með fullfermi af góðri síld og svo er hún látin í gúanó. Þetta er allt að le-nda í tómri vitleysu. — Síldin sem veiðst hefur nú eftir áramót- ir. er yfirleitt jöfn og góð að gæð- ii m, og það á að vera hægt að full- nýta hana. Og borga hana á fullu verði, skilyi'ðislaust. Nú er ekki lengur til setunnar boðið, viðgerðinni á Víði II er að liúka og brátt á að sjósetja bát- irn. Við höfum snör handtök og vippum okkur „í land“, þegar við höfum kvatt þennan ágæta og feng sæla skipstóra.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.