Tíminn - 26.01.1961, Page 13

Tíminn - 26.01.1961, Page 13
T f MIN N, fimmtudaginn 26. janúar 1961. 13 Verkfræðingar heiðra Finnboga Þorvaldsson Stjórn Verkfræðingafélagsl íslands heimsótti í fyrradag próf. Finnboga R. Þorvalds-' son á sjötugsafmæli hans. For maður félagsins, Jakob Gisla- son, raforkumálastjóri, ávarp- aði próf. Finnboga og las upp bréf frá félaginu, er fylgir hér | með í afriti Jafnframt sæmdi hann próf Finnboga gull- merki félagsins og óskaði þess að mega láta gera af honum rismynd í Verkfræðingahúsið, eins og segir nánar í bréfinu. Margt manna heimsótti próf. Finnboga R. Þorvaldsson, m. a. prófessorar háskólans og fjöldi verkfræðinga, ungix og gamlir, enda er próf. Finnbogi manna vinsælastur í verkfræðingastétt. í bréfinu segir: fundi vorum 16. þ. m. var eftirfarandi bókun: „Fmnbogi R. Þorvaldsson, pió- fessor, verður sjötugur 22. þ. m. Hann hefur unnið margvísleg og merk verkfræðileg störf, einkum á sviði bafnarmála. Hann átti dr’júgan þátt í stofnun verkfræði- deildar háskólans og hefur sem kennari þar staðið í nánum tengsl um við mikinn fjölda verkfræð- inga í landinu. Hann hefur frá önd verðu verið manna áhugasamastur um hag verkfræðingastéttarinnar og félagsins, átt sæti í stjórn VFÍ 1926—33 og verið formaður þess 1938—40 og 1948—50. Hann var fulltrúi VFÍ á 2. móti norrænna verkfræðinga í Osló 1938 og í stjórn mótsins, enn fremur á 75 ára afmæli NIF í Osló 1949, 100 ára afmæli TH í Helsingfors 1949 og á 125 ára afmæli DTH í Kaup- mannahöfn 1954. Hann var einnig fulltrúi VFÍ í samvinnunefnd norrænna verkfræðinga í Osló og Rjukan 1949 og í Reykjavík 1950. Finnbogi R. Þorvaldsson hefur' unnið mikið fyrir Tímarit VFÍ, verið í ritstjórn þess tvívegis og skrifað í það margar góðar grein- ar’- Finnbogi R. Þorvaldsson hefur um áratugi barizt öðrhm fremur fyrir því, að félagið eignaðist hús- næði, Verkfræðingahúsið, og hann hefur verið formaður Ilús- ráðs VFÍ frá því það var stofnað árið 1951. Hann gerði frá upphafi margar tillögur um framkvæmdir í húsnæðismálum félagsins, sem náðu ekki fram að ganga, þó síð- Hátíðamessa í Saur- bæ í Eyjafirði — Síðastliðinn sunnudag fór fram hátíðleg guðsþjónusta að Saurbæ í Eyjafirði í tilefni af því að ný- lega er lokið rækilegri viðgerð á kirkjunni þar, sem er torfkirkja, byggð árið 1858. Hefur söfnuður- inn í Saurbæjarsókn fengið þjóð- minjaverði umráð yfir kirkjunni og mun henni hér eftir verða hald ið við sem menningarsögulegri byggingu, en eftir sem áður verð ur hún sóknarkirkja safnaðarins. Þjóðminjavörður lét gera við kirkj una árin 1959 og 1960 og.annaðist Sigurður Egilsson á Húsavík við- gerðina. Kirkjan er nú að öllu leyti eins og hún var í upphafi, og raunar er hún mjög svipuð því sem kirkja í Saurbæ hefur verið að minnsta kosti síðastliðin 300 ár. Við athöfnina á sunnudaginn var messaði sóknarpresturinn S'ér'a Orðið er frjálst Einhver Ólafur kom í útvarpið s.l. mánudag með þáttinn „Um daginn og veginn“ og var kynntur að vera frá stjórnarráðinu. Þessum manni var mikið niðri fyrir og nefndi nokkra liði, sem framtíðar björgunarmeðal ísl. þ.mðfélagi. Meiri hluti þessara björgunarliða voru: Að búa til sterkari bjór en nú til drykkjar innan lands og til út- flutnings. Að koma hér á sjónvarpi og reka það. Og að lána útlendum auðmönn- um landið til þess að þeir rækju hér stórverksmiðjuiðnað sem sina eign. Frá sjónarmiði margra þjóðræk- inna manna eru allar þessar þrjár björgunartillögur mjög varhuga- verðar. 1. Bjórinn er nú viðkvæmt deilu mál, og er óviðfelldið að heyra í ríkisútvarpinu einhliða magnað- an áróður i því máli. Meðal firr- anna í málflutningi ræðumanns var sá barnaskapur og fáfræði þans, að bera á borð fyrir sæmi- íega upplýst fólk, að vatn sé miklu betra hér á íslandi en yfirleitt í öðrum fjalialöndum heimsins, og byggja svo útflutning öls á slíkri reginfáfræði. 2. Þeir, sem halda að sjónvarps- rekstur myndi bjarga eða auka ís- Misnotkun útvarpsins lenzka menningu, ættu sjálfir fyrst að kynnast sjónvarpinu í að- alvöggu þess: Bandaríkjunum. Skeð gæti þá að rynni upp fyrir þeim sú vitneskja, að við fáum r.ú orðið nægjanlegan skerf af Hollywood-menningu inn í þjóð- líf okkar i gegnum ríkisútvarpið að ógleymdu því í Keflavík í við- bót. 3. atriðið átti víst að vera aðal- rúsínan. Það var að lána erlend- um auðmönnum landið okkar til þess að þeir rækju á því stórverk- smiðjuiðnað. Þeir, sem halda slíku fram, virðast blindaðir á hætturnar, er því fylgja. Tækist að fá erlenda auðmenn hingað til þess að reka stóriðnað svo veru- lega munaði um, þá mætti bú- ast við að íðjuver þeirra yrðu svo voldug í þjóðlífinu, að þau drægju að sér leifarnar af því fólki, sem nú erfiðar við landbúnað og sjáv- arútveg. Og iðjuverin og fjölbýlið umhverfis þau mætti eins búast við að yrðu það voldug, að þar yrðu áhrif og ráð sterkus't í ís- lenzku eða hálf íslenzku þjóðfé- lagi í framtíðinni. Og er það eftir- sóknarvert? Fái ríkisútvarpið marga slíka sem þennan Ólaf frá stjórnarxáð- ir.u til að flytja svona einhliða1 og óvandaða lestra um vanda-! n'álin, þá væri ekki ástæðulaust ( að fara að ræða um einhvevjar varnir við slíku. Útvarpshlustandi ari tímar hafi leitt í ljós, að betur hefði verið farið að hans ráðum. Árið 1958 gerði hann ásamt þáver andi formanni félagsins samning um kaup á þriðju hæð í Brautar- holti 20. í sambandi við kaupin hefur Finnbogi R. Þorvaldsson boðiðdram og tekið á sig félaginu til styrktar meiri persónulegar skuldbindingar en nokkur annai’ og sýnt með því sérstakan dreng- skap. í þakklætis- og viðurkenningar- skyni fyrir mikið og óeigingjarnt starf í þágu verkfræðingastéttar- innar frá öndverðu ákveður stjórn- in að sænia Finnboga R. Þorvalds- son gullmerki félagsins á sjötugs- afmæli hans. Jafnframt ákveður stjórnin að leita eftir því við F.R.Þ. að mega láta gera af honum ris- mynd í Verkfræðingahúsið til minningar, er fram líða stundir, um ótrauðan baráttumann og góð- an dreng, sem átti svo gifturíkan þátt í að leiða fyr’sta áfanga þess til farsælla lykta“. Um leið og vér gerum yður kunnugt um þessa ákvörðun vora og væntum samþykkis yðar, ós'k- um vér yður og fjölskyldu yðar innilega til hamingju á sjötugsaf- mælinu. Með þakklæti og virðingu. Stjórn Vei'kfræðingafél. íslands. Jakob Gíslason (sign.), Aðalsteinn Guðjohnsen (sign.), | Bragi Ólafsson (sign.), Hallgrím-j ur Björnsson (sign.), K. Haukur Pjetursson (sign.), Hinrik Guð- mundsson (sign.). Benjamín Kristjánsson að við- stöddum vígslubiskupi Sigurði Stefánssyni á Möðruvöllum og fleiri prestum, auk fjölda kirkju- gesta. Að lokinni messu bauð sókn arnefnd til kaffidrykkju í sam- komuhúsi á staðnum. í forföllum Kristjáns Eldjárns þjóðminjavarð ar flutti Þorkell Grímsson safn- vörður kveðju frá Þjóðminjasafn- inu og las upp erindi, er þjóðminja vörður' hafði samið um sögu kirkj- unnar, en formaður sóknarnefnd- ar, Magnús Árnason á Krónustöð- um sagði frá ýmsu, er drifið hef ur á daga hins gamla húss og flutti þakkir fyrir þann sóma, sem kirkjunni hefur nú verið sýndur. Til máls tóku einnig vígslubiskup og sóknarprestur og kveðjur bár- ust frá biskupi. Kirkjukór Saur'- bæjarsóknar söng við messu og í samkvæminu. Séra Einar Hallgrímsson Thor- lacius var prestur í Saui’bæ, þeg- ar kirkjan var byggð, en yfirsmið- ur var Ólafur Briem timburmeist: ai'i á Grund. Saurbæjarkirkja erj ein af fjórum torfkirkjum, sem enn eru til í landinu, eða fimm, ef með er talið bænhúsið á Núps stað í Fljótshverfi, sem einnig var endurbætt og prýtt á ýmsa lund á síðastliðnu sumri. Öll þessi hús eru undir umsjá þjóðminjavar'ðar. (Frétt frá Þjóðminjasafninu). úgavél Til sölu fyrsta flokks sex hjóla múgavél með skjól- diskum — þýzk (Heuma). Geymd inni í Stafholti. Upplýsingar gefur forstjóri, Árni J. Bjömsson, Borgarnesi, og sími 12050, Reykjavík. Verkamannafélagið agsbrún Tilkynning Kosning stjórnar, varastjórnar, stjórnar vinnu- deilusjóðs, trúnaðarráðs og endurskoðenda fyrir árið 1961 fer fram í skristofu félagsins dagana 28. og 29. þ. m. Laugardaginn 28 jan. hefst kjörfundur kl. 2 e h. og stendur til kl. 10 e. h. — Snnnudagmn 29 jan. hefst kjörfundur kl. 10 f. h. og stendur til kl. 11 e. h. og er þá kosningu lokið. Atkvæðisrétt hafa eingöngu aðalféiágar, sem eru skuldlausir fyrir árið 1960. Þeir, sem skulda, geta greitt gjöld sín meðan kosning stendur yfir og öðlast þá atkvæðis- rétt. Inntökubeiðnum verður ekki tekið á móti eftir að kosning er hafin. Kjörstjórn Dagsbrúnar. v.v.v*w.vv.v.vv.>..v.vv*\..v.v.v.vv>.*v.v^.*v AÐALFUNDUR slysavarnardeildarinnar Ingólfs verður haldinn í Slysavarnarhúsinu við Grandagarð sunnudaginn 29. janúar kl. 4 e. h. — Venjuleg aðalfundarstörf. MINNING (Framhald af 6. síðu). enn fjögur þeirra á lífi: Þór- hildur kennslukona, búsett í Reykjavík. Guðrún, sem er hjá syni sinum á Þórshöfn, Katrín, kona Halldórs Run- ólfssonar póstmanns frá Fagradal í Vopnafirði og Jón hreppstjóri í Höfn Bakkafirði. Árið 1915 missti Magnús föður sinn og tók þá við bús forráðum hjá Þorbjörgu móð ur sinni á Bakka og bjó með henni óslitið til ársins 1930, er hann kvæntist eftirlifandi konu "'nni. Járnbrá F;,:" ’’'s- dóttur, ættaðri innan úr Þist ilfirði. Á blómaárum Magnúsar, hvað aldur og hreysti snerti, skullu yfir ísland hin svoköll uðu kreppuár og blés þá ekki árlega fyrir bændum, enda voru þau ár upphaf hinna miklu fólksflutninga úr sveit unum til kaupstaðanna. Aldrei mun það þó hafa hvarflað að Magnúsi að yfirgefa æsku- heimili sitt og flytja í kaup- stað, enda er Bakki mikil og góð bújörð, bæði til lands og sjávar, enda oftast þrí- og fjórbýlt þar. Guðdómleg feg- urð blasir við auga bóndans á Bakk-a á sólbjörtum sumar dögum, þegar Bakkaflói ligg ur við fætur hans lognbjart- ur og spegilsléttur. í norðri er Gunnólfsvíkurfjall, sem rís hátt yfir sjó, formfagurt og litauðugt. f norðvestri lyftir Lauganestáin „Fonturinn“ sér úr sjó og titrar í tibránni í breytilegum töframyndum. Úti við hafsbrúnina eru veiði skip í tugatali og senda frá sér reykský, sem gára loftið, en til suðurs eru víðfeðmar engjar og beitilönd langt til heiða, en í norðvestri er hinn ókrýndi konungur fjallanna, Hágangur, sem ber hátt við himin. Það er fullyrt af fróðum mönnum, að umhverfið móti manninn, lífsviðhorf hans og skapgerð. Mætti það vel sann ast á Magnúsi að svo sé. Eins og fyrr segir, giftist Magnús árið 1930 Járnbrá Stjórnin. Friðriksdóttur og eignuðust þau fimm börn, sem öll eru á lífi, fjórar stúlkur og einn drengur. Vegna þess að ég var flutt ur burtu úr sveitinni þegar Magnús kvæntist1, er mér ekki kunnugt um heimili hans nema af afspurn. En ég veit að hann hefur þar sem fyrr reynzt hinn góði drengur, skyldurækinn eiginmaður og húsbóndi og góður faðir. Nokk uð mun sjóndepra hafa háð framgangi Magnúsar síðustu árin og fyrir einu eöa tveimur | árum fékk hann aðkenningu j af heilablæðingu og var það I fyrirboði þess, er koma skyldi. i Þann 9. janúar sl. hné hann | niður örendur við skv) 'n örf j in, er hann var að gefa fé sínu hey á garðann. Sárt mun Magnúsar saknaö af konu hans og börnum á- samt ættingjum og vinum. En huggun er það í sorginni, að Magnús átti marga vini og kunningja, sem fylgja hon- um með hlýhug víir hafið mikla, sem aðskiiur tvo heima. í betri heimi mun hann svo bíða endurfunda við ástvirá sína. Guð blessi minningu góðs drengs. Reykjavík 33/1. lööl, Jctknb Jóvn'rrp.n frá Gvmn&rssíöðum.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.