Tíminn - 27.01.1961, Blaðsíða 3

Tíminn - 27.01.1961, Blaðsíða 3
TÍMIN N, föstudaginn 22. janúar 1961. 3 Santa Maria fyrir framan fallbyssukjaftana í Curacao í Vestur-Indíum. Þessi sama fallbyssa var forSum daga notuð í baráttu við sjóræningia. RB-47 yugmennirnir koma heim í dag: Kennedy tekur á móti þeim Krústioíf undirbýr jaríiveginn fyrir nýjan fund ætistu manna Washington—NTB 27.1. — Mikill fögnuður ríkir nú í Bandaríkjunum, eftir að Kenn edy forseti skýrði frá því á blaðamannifundi í Washingt- on í gærkveldi, að Rússar hefðu fallizt á að láta lausa bandarísku flugmennina rvo, er komust lífs af, þegar könn- unarflugvél þeirra af gerð- inni RB-47 var skotin niður norður af Kólaskaga í sumar. Þetta mun hafa verið ákveð ið, er Krustjoff kallaði Thomp son; sendiherra Bandaríkj - anna í Moskvu, á sinn fund fyrir skömmu, en haldið leyndu til þess að gefa hinum nýja Bandaríkj aforseta tæki- færi til þess að segja tíðind- in. Ríkisstjórn Eisenhowers hafði margsinnis krafizt þess, að flugmennirnir yrðu látnir lausir, en Rússar hafnað því. Fyrsta skrefið Blöð i Bretlandi og víðar í Evrópu láta þá skoðun í ljós í dag, að með lausn fanganna hafi Krustjoff viljað stíga fyrsta skrefið til þess að verða mætti af fundi þeirra Kenne dys. í þessu sambandi er einn ig vakin athygli á þvi, að Kennedy skýrði frá því í gær kveldi að hann hefðí skioað svo fyrir, að flugi U-2 flug- véla yfir rússnesku landi yrði með öllu hætt. Kennedy forseti mun sjálf ur taka á móti flugmönnun- um tveimur, Freeman Olm- stad og John MacKone, er þeir koma til Andrews-flugvallar við Washington á morgun. — Þeir komu flugleiðis til Goose Bay á Labrador í dag. en halda þar kyrru fyrir í nótt, vegna snjókomu í Washing- ton. í viðtali við fréttamenn í dag skýrðu konur flugmann- anna frá því, að þær hefðu ekki fengið gleðifréttina um heimkomu eiginmanna sinna, fyrr en um fimm mínútum áður en Kennedy ræddi við blaðamennina í gáerk’--’-’* en fögnuður þeirra hefði verið óumræðilegur. Féll Um hádegi í gær var sjúkralið kvatt að Efstasundi 81, en þar hafði maður nokkur, Magnús Magnússon, fallið niður stiga og ’slasazt lítillega. Hann var fluttur á Slysavarðstofuna og heim til sín síðar um daginn. Kviknab'i í glugga- tjöldum Laust eftir kl. hálf fjögur í gær var slökkviliðið kvatt að Lindar- götu 41. Þar hafði eldur kviknað í gluggatjöldum út frá rafmagns- ofni, en heimilisfólki hafði tekizt að slökkva er slökkviliðið kom á vettvang. Skemmdir urðu litlar, en gluggakarmar munu háfa sviðn að lítilsháttar. EGalvao höfuÖsmaÖur lætur engan bilbug á sér finna: anta María siglir hraöbyri Angóla á strönd Afríku Bandarísk könnunarflugvél flaug yfir skipið og hafÖi talsamband vitS Galvao — bandarisk og brezk herskip munu ekki gera tiliaun til a<? stöÖva Santa Maríu me'ð valdi SAN JUAN, Puerto Rico 26.1. - Síðustu fregnir af eltinga- leiknum við portúgalska stór skipið Santa Mariu og Galvao höfuðsmann eru þær, að enn hefur engu herskipi tekizt að sigla það uppi, og mun það nú statt á mzðju Suður-Atl- antshafi og sigla hraðbyri til portúgölsku nýlendunnar Ang óla í Afríku. Bandarísk könn unarflugvél fann skipið í dag, hafði samband við Galvao höfuðsmann og flaug yfir það í tvær og hálfa klukku- stund. Um þrjúleytið í dag var Santa Maria stödd úti í miðju Atlantshafi í um 1000 sjómíl ur frá Trinidad og stefndi til Afríkustranda. Talsmaður bandaríska flotans staðfesti í dag, að flugvélar og herskip úr flotanum hefðu fengið skip un um að fylgjast með ferð- um skipsins og reyna að ná sambandi við stjórnendur þess, ef kleift yrði, en ekkert mættu þau aðhafast, er stefnt gæti öryggi farþeganna í hættu. Bandaríski flotinn hefur beint þeirri áskorun til Gal- vao höfuðsmanns, að hann láti farþegana á land í ein- hverri höfn í norðurhluta S- Ameríku. Rothesay í höfn. Brezki flugherinn lét þau boð út ganga í London í dag, að hann hefði fengið fyrir- mæli um að skyggnast eftir farþegaskipinu, en sérstakar leitarflugvélar hafa þó ekki verið sendar út af örkinni. — Brezkar farþegaflugvélar og flutningaskip hafa einnig ver ið beðin um að gefa skipinu gætur. Talsmaður brezka ut- anríkisráðuneytisins sagði í dag, að sú ákvörðun þess að j freista að elta Santa Maria, j hefði ekki breytzt, en freigát í unni Rothesay, sem fyrst hóf ! eltingaleikinn við Santa. ÍMaríu, hefur verið snúið til jhafnarinnar Spánarhafnar í I Trinidad, og mun halda þar i kyrru fyrir fyrst um sinn. í Flugvél yfir Santa María. Síðdegis í dag tilkynnti 24 ára gamall bandarískur fiug- maður, Daníel Kraus nð nafni. að hann hefði rétt í bessu flogið Neptune-könnun'’vfinrr. vél sinni hvað eftir annað í lítilli hæð yfir farþegaskipið Santa Maríu, og hefði honum tekizt að ná talsambandi við Galvao höfuðsmann. sem seg j ist vera á leiðinni til Angóla' í Afríku, og hafnaði tilmæbim j um að snúa til Puerto Rico Galvao sagði, að ef yrði reynt að taka skipið, þyrfti ekkert að óttast um hag farþeganna. Þeir yrðu látnir á land í öruggri höfn og ekkert mein gert. Flugmaðurinn skýrir svo frá, að hann hafi í fyrstu náð sambandi við skipið með ljós merkjum og þá fengið góðfús lega gefið upp kallmerki skips ins. Er talsamband var komið á, kveðst hann þegar hafa haft samband við Galvao höf uðsmann. Höfuðsmaðurinn sagðist ekki vera neinn sjó- ræningi og kvaðst fúslega vilja ræða við fulltrúa Banda ríkjastjórnar um borð í skip inu, en ekki kæmi til mála að hleypa þangað fulltrúum frá Spáni eða Portúgal. Flug- maðurinn segir þá sögu, að sér hafi fundizt sem Galvao hafi fýst mjög að losna við farþegana úr skipinu, helzt yfir í eitthvað annað skip á rúmsjó. Farþegarnir vezfuðu. Neptunevél Kraus flug- manns hnitaði hringi yfir Santa Maríu í tvær og hálfa klukkustund, skyggni var slæmt og þétt rfgning, en sæmilegt i sjóinn. Hann flaug að jafnaði í 400 metra hæð, en lækkaði sig oft mun meira, er skyggnið varð betra, og tók myndir. Fimm- tíu farþega sá hann á þil- fari og veifuðu þeir mzkið og virtust hfnir kátustu. Er einn hreyfla vélarinnar tók að hökta, treysti flugmaðurinn sér ekki til að fylgjast lengur með ferðum skipsins og flaug eldsneytislítill til Suri nam. í fyrrakvöld var haldinn fundur í verkalýðsfélagi Norð fjarðar og vélstjórafélaginu Gerpi, og var þar samþykkt að hafna samningsuppkasti því, sem gert var í Reykjavík á milli samninganefnda LÍÚ og sjómannasamtakanna og samþykkt að halda verkfall- inu áfram, en samninganefnd félaganna á staðnum falið að eiga samningaviðræður við út- vegsmenn. Var fyrsti fundur þessara aðila boðaður í gær- dag. Sams konar samþykkt var gerð Eskifirði í fyrradag, og afstaða i Beðið um viðurkenningu. Galvao höfuðsmaður Þofnr sent frá sér margar orðsend- ingar og jafnvel svarað spurn ingum fréttastofa, m.a. Reut- ers. í einni orðsendingunni kvað Galvao það eina tak- mark sitt að leysa Portúgal úr viðjum harðstj órnar. Santa María væri fyrsta portúgalska eignin, er frelsuð hefði verið, en það væri að- eins upphafið. Galvao hefur beðið um við urkenningu vinveittra ríkja á byltingu sinni. Slík viðurkenn ing myndi auðvelda bonum að setja farþegana á land í hlutlausri höfn. í annari orð sendingu segir Galvao, að góð vinátta hafi tekizt á roi’” manna hans og farþeganna og líði öllum vel um borð. Bar- áttu hans verði ekki hætt fyrr en hinn eini sanni leiðtogi portúgölsku þjóðarinnar, Hum berto Delgados, hafi tekið við völdunum í Portúgal. Leynilegt senditæki. Bandarísk útvarpsstöð flutti þær fréttir í dag, að vart hefði orðið útsendinga frá leyni- legu senditæki í Brazilíu, sem sennilega væri í eigu Delgados hins portúgalska, og væri það að öllum líkindum notað til að koma skilaboðum og fyrirmælum til Galvaos höfuðsmanns. Delgado dvelst um þessar mundir í Sao Paulo. Tveir hraðbátar og eitt hrað skreitt lystiskip sigldu í dag út úr höfninni í Cayenne í frönsku Guiana með hóp franskra og portúgalskra loft skeytamanna um borð. í sömu frétt, sem kemur frá T,!-' de Janeiro, segir, að þrír Kúbu- menn séu í hópi liðsmanna Galvaos um borð í Santa Maríu. Systurskip Santa Maríu, CFramhald á 2. síðu.) manna er hin sama á Stöðvarfirði og Fáskrúðsfirði. Er nú helzt í ráði, að Alþýðusamband Austur- Iands hefji samninga við at- vinnuveitendur fyrir hörid sjó- manna, og að reynt verði að ná lieildarsamningum fyrir Austur- land. Meðal sjómanna er ákaflega mikil óánægja með fr'ammistöðu forystumanna sjómanna í Reykja- vík. Menn hafa verið hór í algeru verkbanni fyrir austan, samtímis því sem sjómenn sunnanlands hafa atvinnu bæði við þorsk- og síldveiðar. Það kemur til, að samn ingsuppkastið gerir ekki ráð fyrir neinni verulegri kjarabót, þar sem hlutaskiptin voru þeim svo hag- stæð áður. Sjómenn hér fá mjög óverulega hækkun eða alls enga. VS. Austfirðingar halda verkfallinu áfram

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.