Tíminn - 16.03.1961, Blaðsíða 5

Tíminn - 16.03.1961, Blaðsíða 5
TÍMINN, fimmhidaginn 16. marz 1961. Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN. Framkvæmdastjóri: Tómas Arnason Rit- stjórar: Þórarinn Þórannsson (áb.i, Andrés Kristjánsson, Jón Helgason Fulltrúi rit- stjórnar: Tómas Karlsson Auglýsinga- stjóri: Egill Bjarnason — Skrifstofur í Edduhúsinu. — Símar: 18300—18305 Auglýsingasími: . 19523 Afgreiðslusími: 12323. — Prentsmiðjan Edda h.f. Afleiðingar kreppu- stefnunnar f vantraustsumræðunum reyndu stjórnarsinnar mjög að hallmæla vinstri stjórninni og kenna henni um, hvernig nú er komið. Þessu svaraði Þórarinn Þórarins- son nokkuð í seinustu ræðunni, sem flutt var af hálfu Framsóknarflokksins. Honum fórust. orð á þessa leið: „Háttvirtum stjórnarsinnum hefur orðið tíðrætt um það, að ástandið í efnahagsmálum nafi verið orðið mjög slæmt í árslok 1958, þegar vinstri stjórnin lét af völdum. Sannleikurinn er að efnahagsafkoman var hagstæð 1958. Afkoma atvinnuveganna var óveniu góð Mikill greiðslu- aígangur var hjá ríkissjóði og greiðslujöfnuðurinn við útlönd var hagstæðari en um langt skeið Lífskjör al- mennings voru þá betri hér en í flestum, eða öllum, löndum Evrópu. Þetta sýnir árangurinn af stefnu og starfi vinstri stjórnarinnar. Þetta ástana var hægt að tryggja til frambúðar, et samkomubg hefði getað náðst um stöðvun nýrra hækkana haustið 1958, eins og Fram- sóknarmenn lögðu þá til í vinstri stjórninni. Um það náðist ekki samkomulag, og þar af æiðandi baðst stjórn in lausnar. Stjórn Alþýðuflokksins, með Sjálfstæðisflokkinn að bakhjarli, fór svo með völd árið 1959, og fylgdi þeirri stöðvunarstefnu, sem Framsóknarff nkurinn hafði beitt sér fyrir í vinstri stjórninni, með þeim árangri að af- k.oma atvinnuveganna var sæmileg 1959, og lífskjör svip- iið og þau voru áður. Það liggja nú orðið fyrir glöggar upplýsingar um það. að þessari stöðvunarstefnu hefði márt fylgja áfram. At- vmnuvegirnir hefðu þá búið við sv’paða afkomu nú og 1958 og 1959 og kjör almennings sízt þurft að vera lak- ari en þá. En í stað þessa er afkoma atvinnuveganna nú niiklum mun lakari en þá og lífskjör almennings 20-- 25 prósent verri. Skýring þessarar hörmulegu afturfarar, er einfald- lega sú, að tekin var upp algjörlega röng efnahagsstefna, með hirini svonefndu „viðreisn“ nuverandi ríkisstjórnar. Eins og stjórnarherrarnir hafa tekið MacCarthy sér 'til fyrirmyndar í áróðri sínum, vöidu þeir sér, illu hedli, hina misheppnuðu samdráttarstefnu Eisenhowers til fyrir myndar í efnahagsmálunum. Samdráttarstefna Eism- howers hefur leitt til þess, að fáein stór auðfélög í Banda- ríkjunum hafa grætt miklu meira en nokkru sinni fyrr, en fjöldi smærri fyrirtækja orðið gjaldþrota og atvinnu- leysi sívaxið, svo að atvinnuleysing'ar eru nú taldir um sjö milljónir. Slíkt öngþveiti hefur þessi stefna skapað í ríkasta landi veraldar. Það er þvi ekki að undra, þótt hún hafi hörmulegar afleiðingar hér. Verkin sýna líka merkin, þótt enn sé minnst komið tram. Einstaka stór- heildsalar og iðnrekendur, sem eiga veltufé og hafa greiðan aðgang að bönkum, hafa grætt meira á s.l. ári en nokkru sinni fyrr, en fjölda eframinni fyrirtæxja liggur við gjaldþroti Sama gildir um hundruð einstak linga, sem eiga nýbyggðar íbúðir. Ffamleiðslan er stöð- ugt að dragast saman og framkvæmdir fara minnkandi svo að Ijóst er að stórfelld kreppa er framundan, ef ekki verður að gert.“ Það, sem hér er rakið, sýnir g'öggt, að þeir erfið leikar efnahagsmálanna, sem nú er glímf við. stafa ekki að neinu leyti frá tímum vinstri stiómarinnar Þeir stafa af sömu ástæðu og efnahagsörðuslcikarnir. sem nú er giímt við í Bandarikjunum. Þeir stafa af rangri efna hagsstefnu núverandi ríkisstjórnar — af samdráttar og kreppustefnunni. Vafasamt að víðtæk verðlags- höft nái tilætluðum tilgangi Er Innf lutningsskrifstotan hætti störfum á s.l. ári,- var sett á lagg'rnar 6 manna verð iagsnefnd. Formaður nefndar- innar er táðuneytisstjórinn í viðskiptamálaráðuneytinu an hinir nefndarmennirnir eru kosnir hlu^bundinm kosningu í sameinuðu 'Alþingi. Samkvænr lögum um verðlags- nál, fer nefnd þessi með ailar verðákvai'ðar.ir, sem ekki eru bvndnar ax s érstökum lögum. Nefndin heiur heimild til að á- k' eða hámarksverð og hámarks- á agningu á vörur og þjónustu, jrfnt í smav sem stóni að því er vrrðist. Skritstoía verðlagsstjora. sem annast eftirlit með verðákvórð un nefndarinnar, heyrir þó ekki undir nefndina, heldur beint undir v. ðskiptamálaráðuneytið. ! Síðan þessi breyting á meðferð virðlagsmalanna kom til fram kvæmda heíur verið furðu hljót' i m þessi mál, og það svo. að jain- vel Morgu.nLlaðið virðist hafa gleymt öllum verðlagshöftum og nefnir þau r.ú ekki frekar en >au : væru ekki til. j Meðal annars af þessum sökum ! sneri Tíminn sér til Stefáns Jóns sonar, fyrrv skrifstofustjóra Inn- f.utningsskritstofunnar, sem á sæti |í verðla jsnefndinni, og óskaði ! eftir að htnn svaraði nokkrum spurningum um störf nefndarinn- ar og verðiftgsmálin, Taldi hann ■ sct Ijúft að verða við þeim til- mælum, en t.ók fram, að nefndar- menn væru bundnir þagnarsky’du im ýms atriði er þeir yrðu á- ssynja um í starfi sínu og svör sín myndu takmarkast við það. I. — Telur þú að breytingin á stjórn verðlagsmálanna feli i sér cinhver atr’ði, sem verzlanir og aðrir uni betur en áður var? — Ekki hygg ég það Breyting- ia er sízt . þá átt. Hér eru algjör | vtrðlagsnöft og jafnvel strangari en nokkru sinn ifyrr að ég hygg. Hér er leyíð vesrzlunarálagning n.iög lág, miklu lægri en í. ná- grannalöndum okkar, jafnvel ailt ! «-ð helmingi 'lægri á margar vörur > jÞótt vöruverð nér sé hátt. stafar iþað ekki af hárri álagningu, held-| ur af allt öðrum ástæðum, sem; kunnugt er Ástæðaa fyrir því, að hljótt'hef- ur verið um þessi mál í bili.í dag- b.öðunum, rr.un ekki sú, að verzl- a.nir og iðntyrirtæki uni hag sín- um vel, því fer fjarri. Mér þykir hms vegar .rúlegt að stjórnarb'öð- ;n hlífist 'iT>, af stjórnmálaástæð- um, að skýra frá hinni miklu óá- nægju sem fyrir hendi er hjá verzlunum o. fl með álagningar-, ífglurnar og hin víðtæku verð- lagshöft yfirleitt. II. — Hefur verðlagsnefndin gert miklar breytingar á þeim verð- lagsákvæðum sem í gildi voru er bún hóf starf sitt á s.l. sumri? 1 — Nefudin hefur enn lítið að-’ hafzt í þeiin efnum, enda ekki hægt um /ik Hin levfða álagning er það lág, að engum nefndar- manni hefur komið til hugar að, gera tilllögu til lækkunar, og hækk un hefur viðskiptamálaráðherra j ckki talið æra i bili Þær þýðii.garmestu breytingar, sem átt hafa sér stað um verzlun- a -álagningu ‘ seinni tið voru gerð- ar 1959 jg . febrúar 1960. Voru þær báðar ti. lækkunar Snemma á árinu 1959 var veizl- Viðtal vitS Stefán Jónsson, sem á sæti í verð- lagsnefndinni urarálagning yfirleitt lækkuð um 5% að tilhlutan þáverandi ríkis- stjórnar. V„r lækkunin liður í h.nni svokölluðu tilraun til verð- stöðvunar, án aukinna skatta og hækkun vöruverðs. Um leið og gengislækkunin tók gildi í febrúar 1960, var öll verzl- unarálagning lækkuð verulega nriðað við hundraðshluta. Sú lækk un var raanverulega ákveðin af rikisstjórninni, því að samþykki I. nflutningsskrifstofunnar var að- e:ns formsatriði eins og á stóð, Stefán Jónsson enda hefði andstaða hennar taJzt uppreisn gegn efnahagsráðstöfun- um ríkisstjó'narinnar. Lækkún þessa byggði ríkisstjórn- i\ á því, að gengisbreytingin þvddi aukna verzlunarumsetningu í krónutölj, miðað við svipaða um- peiningu í /örumagni. Sú aukning krllaði ekki á aukið starfslið og kaupgjald ætti ekki að hækka. Á þessum gruntívelli var þessj lækk- un gerð. Þessum ráðstöfunum mótmæltu kaupmannasamtökin strax og færðu fram ýmsar rökstuddar á- stæður, eins og aukinn verzlunar- kostnað, ^yrirsjáanlegan samdrátt i verzluntnni, hækkun vaxta, aug • ljósa rýr.iun vörubirgða vegna I f’árs-korts j. fl. Er mál betta var til afgreiðslu bjá Innflutningsskrifstofunni geiði ég greir. fyrir minni afstöðu neð eftirfarandi bókun: „Reiknað er með að innflutn- ingur dragizt verulega saman einkum i fjárfestingarvörum og þeim neyzluvörum sem taldar eru varmlegar. Einnig að etfir- spurn minnki vegna minni kaup- getu. Storíelld vaxtahækkun er komin tli framkvæmda. Flest bendir til að hækkun á verzlun- arkostnað; verði mun meiri en fyrirfram er áætlað. Allt þýðir þetta lakari afkomu hjá verzlun- arfyrirtækjum en verið hefur Mun þó mega telja, að þau á- kvæði um hámarksálagningu er gilt haía að undanförnu, hafi verið miðiiL við algjört lágmark. Af þessum ástæðum tel ég litlar líkur til að komizt verði hjá end- •jrskoðun til hækkunar á hinum nýju ákvæðum áður en langur timi líður." Af bókun þessari er ljóst, að ég tildi strax að hér væru á ferð á- kvarðanir, sem ekki væru til fram búðar. Þessar ákvarðanir standa þo enn ónreyttar. III. — Telur þú að reynslan hafi þegar sannaój að of langt hafi verið gengið í lækkun á álagning- unni í febrúar 1960? — Nef .idin á samkvæmt lögum, að miða íkvarðanir sinar við parf- ir vel rekinna fyrirtækja: í iög- unum segir: „Verðlagsákvarðanir allar skulu miðaðar við þarfir þeirra fyrirtækja, er hafa vel s!:ipulagðan og hagkvæman reks^- ur.“ Eg ótiast að svo langt haf’ verið gengið í lækkuninni að um brot á þessu lagaákvæði geti verið aC' ræða, en úr því sker reynslan væntanlega síðar. Frá kaupmannasamtökunum l’ggja fyrir upplýsingar um, að umsetning verzlana á s.l. ári hafi í fáum filfelium aukizt, jafnvel fcemur staðið í stað eða minnkað, miðað við krónutölu. Sé hér um tí unverulegar upplýsingar að ræða, er grundvöllurinn fallinn undan þeim rökum, sem lækkunin var byggð á í febrúar 1960. Það v.'rðist og ijóst, séu þessar upp- lýsingar ”óttar, og að álagningin hafi áður verið í lágmarki, þá bafa nefnd lagaákvæði verið snið- gengin með ráðstöfunum, sem ekki eru til frambúðar. Að skjóta sér undan staðreynd um í bili.er illur siður. Tel ég bví t mabært áður langt líður, að at- huga gaumgæfilega öll gögn er benda til að endurskoðun og leið- rótting á núgildandi verðlagsá- kvæðum sé nauðsynleg. Eg tel eng um vafa bundið, að nýju álagn- íngaiTeglurnar og efnahagsráð- stafanir nkisstjórnarinnar yfir- leitt, hafi þegar valdið rýrnun vörubirgða hjá mörgum fyrirtækj- um, eða öllum sem hafa takmark- að fjármagn. Styður þetta og það að hófs verði að gæta í meðferð verðlagsmálanna gegn fjölda fvrir tækja. Hin erfiða aðstaða neyt- andans má ekki valda því, að lok- að sé augum fyrir staðreyndum. Slíkt hefnir sín og kemur harðast mður á nevtandanum síðar. IV. — Þú visar til upplýsinga frá kaupmannasamtökunum, en hva'ð um kaupfélögin? — Kaupfélögin hafa enn iítið látið frá sér heyra í þessum efn- um, en pað mun ekki þýða, að þeirra hlutur sé góður Eg geri ráð fyrir, að þau ætli að láta reikninga sína fyiir s.l. ár ta'la sínu máli er þeir liggja fyrir, en þeir eru sem kunnugt er oftast birtir opinberlega eða í það minnsta uiðurstaða þeirra. Mér þykir ótrúlegt, að afkoma kaupfé- laganna t bæjunum reynist á ann- ar. veg en fcær upplýsingar sem' samtök annarra smásöluverzlaua hafa þegar látið í té. Eg tel að kiupfélögin eigi samleið með kaup mannasamtökunum í þessum efn- um, en þegar ég tala um kaup- nianna-samtök, á ég við samtök kaupmanni, er reka smásölu- verzlun. Eg vil » þessu sambandi taka það fram, að mér virðist stundum gæta nokkurs misskilnings í gaið þeirra kaupmanna er reka smá- söluverzlun. Almennl eru þeir menn engir stórgróðamenn með háa eigin eyðslu, heldur miklu Þemur menn, sem vinna langan vinnudag við nauðsynlega vöru- dreifingu ug þurfa að gæta hófs með alla eyðslu eins og aðrir til að komast eæmilega af. V Ýmsir telja að verzlanir séu (Framhald á 13. síðu.)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.