Tíminn - 16.03.1961, Side 8
VETTVANGUR ÆSKUNNAR
RITSTJÓRI: JÓN ÓSKARSSON
ÚTGEFAND.I.: SAMBAND UNGRA FRAMSOKN ARMAN NA
Á sunnudaginn var stofnað
Félag ungra Framsóknar-
manna á Akranesi, og eru
stofnendur um 50. Þessi stofn-
un F.U.F. á Akranesi er gott
dæmi um sigurgöngu Fram-
sóknarflokksins við sjávarsíð-
una og er greinilegt að æskan
fylkir sér æ meir undir merki
flokksins. Ritstjóri Vettvangs-
ins átti þess kost að sitja stofn
fundinn og fer hér á eftir
stutt frásögn af fundinum.
Stofnfundurinn var haldinn í
Góðtemplarahúsinu á Akranesi
cg hófst með því, að Þórhallur
Sæmundsson bæjarfógeti setti
fundinn og bauð fundarmenn og
gesti velkomna.
Af hálfu Sambands ungra Fram- j
sóknarmanna voru viðstaddir stofn
unina, formaður S.U.F., Örlygur.
Kálfdánarson; varaform. S.U.F.,
Jón Óskarsson, gjaldkeri S.U.F.,!
Markús Stefánsson; Ingi Ársæls-j
son, form. skólanefndar félags-
málaskólans, og Hörður Gunnars-
son form. F.U.F. í Reykjavík.
Þórhallur flutti stutt ávarp og
lýsti yfir ánægju sinni yfir áhuga
og þessu framtaki hinna yngri
nranna og kvað þá mundu flytja
með sér nýja vakningu og kraft íj
raðir Framsóknarmanna og halda
á loft merki hugsjóna og srtefnuj
flokksins og gera hann hæfari til
að fylgjast með hræringum í fé-
lagsmálum þjóðarinnar.
Fundarstióri stofnfundarins var!
Markús Stefánsson gjaldkeri S.U. j
F og fundarritari Ásgeir R. Guð-
r.;undsson. Sigurður Haraldsson
rakti í stuttu máli forsögu stofn-
unarinnar, en hann hefur átt
einna drýgstan þátt í að undirbúa
stofnunina. Sagði Sigurður, að
þessi félagsstofnun hefði að vísu
verið á döfinni nokkurn tíma, en
verulegur skriður hefði ekki kom-
izc á málið fyrr en á síðasta aðal-
fundi Framsóknarfélags Akraness,
en þá hefði verið kosin 5 manna
nefnd til að undirbúa stofnunina
Fór Sigurður nokkrum orðum um
hlutverk ungra manna í flokks-
starfinu og þau miklu verkefni er
FUF stofnað á Akranesi
Þorsteinn Ragnarsson kjörinn formaður.
Örlygur Hálfdánarson, form. S.U.F. flytur kveSju sambandsins; Markús
Stefánsson, gjaldlceri S.U.F. fundarstjóri stofnfundarlns og Ásgeir R.
Guðmundsson, ritari fundarins og hins unga félags.
Magnússon, Birgir Hannesson, Jó-
hann þorsteinsson.
Endurskoðendur voru kosnir
láll Bjarnason og Bent Jónsson
og til vara Hallgrímur Hallgrims-
son.
Þá var kosin skemmtinefnd og
e;ga þessir sæti í henni: Hjörtur
Magfl-ússon, Sigurður Guðjónsson,
Halldör Jónsson, Bergmann Þor-
leifsson.
Loks var kosið í fulltrúaráð
Framsóknarfélaganna og eiga
Hreggviður Sigríksson og Ólafur
J. Þórðarson sæti í því ásamt for-
m.anni félagsins.
Að loknum kosningum kvaddi
Hreggviður Sigríksson sér hljóðs
og bar upp eftirfar'andi ályktun:
„Stofnfundur Félags ungra
Framsóknarmanna á Akranesi
fordæmir harðlega þann upp-
gjafarsamning, sem íslenzka rík-
isstjórnin hefur gert við Breta
nú fyrir skömmu.
Fundurinn telur, að með þess-
um samningi hafi íslenzka ríkis-
stjórnin gersamlega brugði/t
þjóðinni, og skorar á alla sanna
íslendlnga að veita núverandi
stjórnarflokkum verðugt svar í
fyllingu tímans fyrir svik sín og
undirlægjijhátt í þessu lífshags-
munamálj þjóðarinnar."
Sagði Hreggviður, að sér fynd
ist vel við eiga að hið unga félag
notaði þetta tækifæri til að lýsa
aístöðu s-inni til þessa mikilvæga
máls, sem 'arðaði alla þjóðina og
ekki sízt Akurnesinga.
Urðu nokkrar umræður um á-
BJARNi TH. GUÐMUNDSSON
þciiTa biðu í framtíðinni. Hvatti
hann til sarr.heldni og einingar, og
taidi það nauðsynlegt skilyrði til
frekari uppbyggingar þjóðfélags-
ins. Hann varaði við áróðri öfga-
Lokkanna og bað menn fylkja sér
urn hina frjálslyndu, íslenzku um-
bótastefnu Framsóknarflokksins.
Þegar Sigur'ður hafði lokið máli
lyktunina og var hún samþykkt
samhljóða.
Þá kvaddi sér hljóðs Bjarni
Theódór Guðmundsson bæjarfull-
tiúi Framsóknarmanna á Akra-
nesi. Óskaði hann hinu nýja fé-
lagi til hamingju og ræddi síðan
um Framsóknarflokkinn, starf
hans og forystu í umbótamálum
þjóðarinnar. Hann kvað flokkmn
vera umbótasinnaðan flokk. sem
væri laus við allt ofstæki og and-
stæðan öfgum til hægri og vinstri.
Hvatti Bjarni hina ungu menn til
að styðja flokkinn af alefli, því
að velgengnj þjóðarinnar væri
tryggð, ef fíokkurinn réði ferð-
inni og þjóðin hefði þegar notið
í ríkum mæli ávaxtanna af starfi
flokksins og ætti eftir að gera.
Einnig minntist Bjarni á nokkra
þætti í bæjarmálum Akraness og
las síðan upp kveðjur frá Daníel
Ágústínussyni, en hann gat ekki
verið viðstaddur félagsstofnunina.
Ilörður Gunnarsson færði félaginu
kveðjur frá F.U.F. í Reykjavík.
Örlygur Hálfdánarson flutti á-
varp fyrir hönd Sambands ungra
Framsóknarmanna. Gerði hann
grein fyrir skipulagi og störfum
S.U.F. og kvað það meginverkefni
samtakanna að samstilla krafta
ungra Framsóknarmanna og fylkja
þeim um hugsjónamál sín og
stefnu og veita fram þeim skoð-
unum, sem til hagsbóta eru fyrir
þjóðina og vekja hana til skiln-
(Framhald á 13. síðu.)
SIGURÐUR HARALDSSON
Frá stofnfundinum.
ÞÓRHALLUR SÆMUNDSSON
; sinu, bar t'undarstjóri stofnun fé-
! Ir-gsins undir fundarmenn og lýsti
1 siðan formiega yfir stofnun fé-
lagsins eftir að hún hafði verið
srmþykkt.
! Því næst var frumvaip til laga
fyrir félagið lagt fyrir'fundinn og
1 var það samþykkt óbreytt. Þá fór.i
| fram kosningar til trúnaðarstarfa
fyrir hið nýja félag.
í stjórn voru kosnir:
Þorsteinn Ragnarsson, formaður:
Ójafur ;J. Þórðarson, varaform
Ásgeir R. Guðmundsson, i ritar'-
Lhgurður Guðjónsson, gjaldkeri;
Hjörtur Magnússon, ^Hreggviður
S’gríksson, Sigurður Haraldsson,
I nieðstjórnendur.
I Varastjórn skipa: Jón Heiðar
Stjórn F.U.F. á Akranesi: Sltjandi frá vinstri: Ásgeir R. Guðmundsson, rit-
ari; Þorsteinn Ragnarsson, formaður; Sigurður Guðjónsson, gjaldkeri.
Standandi frá vinstri: Ólafur Guðjónsson, varaformaður; Sigurður Har-
aldsson, Hjörtur Magnússon, Hreggviður Sigríksson, meðstjórnendur.
Málfundanámskeið FUF Hafnarfirði
Um nokkurt skeið hefur Fé-!
lag ungra Framsóknarmanna
í Hafnarfirði starfrækt mál-
fundanámskeið, en félagið var
stofnað s. I. haust. Erindreki
S.U.F., Hörður Gunnarsson,
hefur annazt leiðbeiningar i|
ræðuflutningi.
Aðaláherzla hefur verið lögð á
þjálfun í mælskulist, en ýms þjóð-
i mál verið rædd jafnframt. Fund-
i: hafa verið haldnir vikulega, á
föstudagskvöldum og hefur leið-
beinandi flutt stutt eiindi í upp-
hafi hvers fundar.
S. 1. föstudag mættu Örlygur
Iíálfdánarson, form. S.U.F. og Jón
Óskarsson, varaform. S.U.F. á
námskeiðinu. Örlygur flutti nám-
skeiðinu kveðjur frá S.U.F. og
bauð hið unga félag þeirra Hafn-
firðinga velkomið til starfa í sam-
tökum ungra manna innan Fram-
sóknarflokkrins. Einnig ræddi
hann lítiilega framtíðarhlutverk
Framsóknarflokksins og þann
h.ut er æskan ætti að eiga í því.
F.U.F. er næstyngsta félagið í
samtökum ungi'a Framsóknar
manna og er vel til fallið að það-
hefji starf sitt með málfundanám-
skeiði sem þessu, þar sem ræðu-
mennska er eitt veigamesta taékið
í öllu félagsstarfi.
Námskeiðið er um það bil hálfn-
að, en ungu fólki, sem kynni að
hafa áhuga á þátttöku, er velkomið
að bætast í hópinn núna og getur
þá haft samband við formann íé-
lagsins, Ólaf Friðjónsson. Næsti
fundur er annað kvöld, föstudags-
kvöld, kl. ð í Góðtemplarahúsinu,
uppi'.
/