Tíminn - 16.03.1961, Blaðsíða 12
RITSTJORI: HALLUR SIMONARSON
Tveggja
stiga
munur
í fyrrakvöld fói fram að
Hálogalandi körfuknattleikur
milli íslenzka landsliðsins og
úrvalsliðs af Keflavíkurflug-
velli — en það lið er nýkomið
hingað frá Bandaríkjunum,
þar sem það keppti á ýmsum
stöðum við ágætan orðstír. Úr-
slit í 'eiknum í fyrrakvóld
urðu þau. að Bandaríkjamenn
irnir sigruðu naumlega með
55 stigum gegn 53. og var það
betri útkoma fyrir íslenzka
liðið en búizt hafði verið við.
íslenzka liðið lék mjög vel
framan af og hafði þá örugga
forustu — í hléi var um 10
stiga munur því í vil. í síðari
há^fleiknum hertu Banda-
ríkjamenn hins vegar róður-
inn, léku mun fastar en áð-
ur, og tókst að minnka mun-
inn stöðugt. Skoruðu þeir sig-
urstigin á síðustu sek. leiksins,
þó eftir mistök íslenzka dóm-
arans, sem dæmdi íslenzka lið
inu í óhag, og Bandaríkja-
menn náðu knettinum og
skoruðu.
Langbezti maður íslenzka
landsliðsins var Þorsteinn
Hallgrímsson, en leikur
hans var oft mjög góður, til-
breytingaríkur og skemmti
legur. Flest stig skoraði
Hólmsteinn Sigurðsson,, ll,
en þeir Birgir Örn Birgis,
Einar Matthiasson og Þor-
steinn Hallgrimsson skoniðu
átta stig hvor.
Fyrirhugað er, að annar
leikur milli þessara sömu
liða fari fram 25. þessa mán
aðar, en þetta eru æfingaleik
ir fyrir íslenzka landsliðið.
sem mun leika landsleiki í
Kaupmannahöfn fyrst í
apríl.
A undan leiknum í fyrra^
kvöld sýndu vamarþðsmenn
af Keflavíkurflugvellinum
blak. og tókst það ekki nema
í meðallagi. Einkum kom á-
horfendum á óvart hve iila
leikmenn voru uppfærðir.
þar sem hér var um sýningu
að ræða. Húsið var nær þétt-
skipað áhorfendum.
*
ÞEIR KOMA HEIM 1 KVÖLD
í kvöld er íslenzka landsliðið í handknattleik væntanlegt heim. Liðið kemur með flugvél Loftleiða frá Kaupmannahöfn og er búizt við að
hún komi um átta-leytið í kvöld — en þó getur það hæglega breytzt. Frammistaða iiðsins hefur að vonum vakið mikla athygli bæði hér
heima og eins erlendis, enda hefur íslenzkur íþróttaflokkur sjaldan náð betri árangri á erlendri grund. Og það verður ekki langt að bíða,
að okkur hér heima gefst tækifæri til að sjá hið ágæta lið okkar í leik. Hinn 21. þessa mánaðar er væntanlegt hingað Gautaborgarliðið
Heim, sem varð í öðru sæti í sænsku meistarakeppninni, en tvö árin á undan varð það sænskur meistari. Fyrirhugað er, að þetfa sænska
lið lelki að minnsta kosti einn leik gegn íslenzka landsiiðinu, og verður sá leikur í íþróttahúsinu á Keflavíkurflugvelli. Ekki er enn ákveðið
hvaða dag þessi leikur verður. í sænska liðinu eru tveir menn, sem léku með sænska landsliðinu í heimsmeistarakeppninni, en Sviar
hlutu sem kunnugt er bronzverðlaunin í keppninni — og í leiknum, sem íslenzka landsliðið lék við Svíana unnu Svíar með 18 mörkum
gegn 10. Og eitt er víst, að gaman verður að sjá tandslið okkar leikavið hið ágæta Gautaborgarlið, sem er eitt bezta félagslið i heiminum.
Myndin hér að ofan er af íslenzku landsliðsmönnunum, og þeir verða áreiðanlega margir, sem fagna heimkomu þeirra í kvöld. í efstu
röðinni eru talið frá vinstri: Karl Benediktsson, Fram, Einar Sigurðsson, FH, Pétur Antonsson, FH, Gunnlaugur Hjálmarsson, ÍR, sem
varð elnn markhæsti leikmaðurinn í heimsmeistarakeppninni, og Hermann Samúelsson, ÍR. Miðröð: Ragnar Jónsson, FH, Karl Jóhannsson,
KR, sem báðir skoruðu mikið af mörkum í keppninni, Örn Hallsteinsson, FH, og Kristján Stefánsson, FH. Fremsta röð: Erlingur Lúðvígs-
son, ÍR, Hjalti Einarsson, FH, einn bezti markmaðurinn í heimsmeistarakeppninni, Sólmundur Jónsson, Val, og Birgir Björnsson, FH, fyrir-
liði landsliðsins. Velkomnir heini, piltar.
-og leika fljótlega við sænska liðið Heint
tÆMIrWtrSiiríSarSxltrírtríívl