Tíminn - 06.07.1961, Qupperneq 3

Tíminn - 06.07.1961, Qupperneq 3
TÍMINN, finuntudagmn G. júlí 19GL 3 Varðskip og brotlegur Myndin er af Grimsby-togaranum Khartoun, sem tekinn var að ólöglegum veiðum á Skagagrunni, og sagt var frá í blaðinu í gær. Liggur togarinn utan á varðskipinu Þór við Torfunesbryggju á Akureyri. Dómur féll í máli skipstjórans um miðnætti í gær og hlaut hann 190 þúsund króna sekt og afii og veiðarfæri voru gerð upptæk. Skipstjórinn, Gordon Sleight, áfrýjaði dóminum til hæstaréttar. Settur bæjarfógeti á Akureyri, Sigurð- ur M. Helgason, kvað upp dóminn. (Ljósm.: E.D.), Lausn deilunnar við Þrótt má ekki dragast Margvísleg stöðvun og tjón farið að hljótast af verkfallinu un, svo að skip tefjast í höfn- israel sendi gervihnött Tel Aviv, 5. júlí. ísrael hefur nú tekið sér sæti á bekk með þeim þjóðum, sem kanna geiminn með eld- flaugum og öðrum tækjum, sem send eru út úr gufuhvolfi jarðarinnar. Snemma í morg- un sendu þeir út eldflaug með gervihnetti og gáfu honum nafnið Eshawit Kromertell, sem þýðir loftsteinn eða stjarna. Útbúnaðurinn vó 250 kg. og mælitækin erq aðeins til veðurat- hugana, sagði landvarnaráðuneyti ísraels. Þetta afrek ísraelskra vís- indamanna þykir hið athyglisverð- asta, en þeir hafa ekki notið neinn ar sérstakrar aðstoðar erlendra manna við tilraun þessa, sem gerð var á strönd Miðjarðaríhafsins. Eden HÉRAÐSMÓT Framsóknarmanna á Austurlandi Framsóknarmenn á Austurlandi halda hina árlegu héraðshátíð í Atlavík um næstu helgi, 8. og 9. júlí. Verkfall Vörubílstjórafé- lagsins Þróttar heldur enn áfram, og engin lausn á þeirri deilu í nánd. Sáttasemjari hélt fund með deiluaðilum í fyrra- kvöid, en síðan hefur fundur ekki verið boðaður. Verkfall þetta er nú farið að valda miklum óþægindum, tefja framleiðslustörf, ýmsa nauð- synlega flutninga og uppskip- sér Lyfti síldin í nótt? Síðustu fréttir: Blaðið hafði samband við síldar- leitina á Siglufirði kl. 10 í gær- kveldi og fékk þar eftirfarandi upplýsingar: Síldveiðin var heldur dauf í dag. Frá því klukkan 8 í morgun hafa 20 skip komið inn með 13500 tunnur, og fór mest af því í salt. Veiðisvæðið er það «ama og verið hefur undanfarna daga, þ. e. suðaustur, austur og norðaust ur af Kolbeinsey, og veiðiveður er afburða gott. Þar lóðar á mikilli síld, en hún stendur djúpt. Vonir standa til, að hún lyfti sér, þegar kemur fram á nóttina. Skipin, sem inn komu, vorn þessi: Valafell SH 800 tunnur, Ingjaldur SH 350, Hjálmar NK 400, Hrafn Sveinbjarnarson GK 700, Jón Gunnlaugsson AK 800, Vonin KE 800, Björgvin EA 600, Sigurður Bjarnason EA 700, Faxa- vík KE 900, Gnýfari SH 900, Svan ur ÍS 900, Vörður ÞH 300, Helgi Flóventsson ÞH 550, Höfrungur AK 1100, Sveinn Guðmundsson AK 900, Ófeigur III VE 400, Máni IIU 150, Gunnvör ÍS 600, Gjafar VE 900 og Unnur VE 750 tunnur. inm. í fyrradag átti t.d. að skipa upp timbri úr Laxá hér í höfnúmi. Dagsbrún lagði þá bann við því að beiðni Þróttar, að verkamenn skipuðu upp á aðra bíla. Var þá ætlun skipseigenda að 9kipa timbr inu upp á hafnarbakkann og láta það sta-nda þar, en það bannaði Dagsbrún einnig í bili. Síðdegis í fyrradag var því banni þó af'létt, því að vafi var á að það teldist löglegt. í gærmorgun átti að hefj ast uppskipun á hafnarbakkann, en þá brá svo við, að hafnarverka rnenn fen-gust engir til þeirrar vinnu og svo stóð i gær. Ekki kaupdeila Svo kynlega bregður við, að (Framhaid á 2. síðu) . Þakkir til Ragnars í Smára Á félagsfundi í Félagi járn- iðnaðarmanna í Reykjavík sem haldinn var 1. júlí s.L, varj eftirfarandi tillaga samþykkt samhljóða: „Fundur í Félagi járniðnaðar- manna haldinn 1. júlí 1961, sam- þykkir að votta hr. Ragnari Jóns- syni forstjóra þakkir fyrir hina höfðinglegu og ómetanlegu mál- verkagjöf til Alþýðusambands ís- lands og þakkar honum jafnframt þann velvilja til verkalýðssamtak- anna á íslandi sem þessi stóra gjöf ber með sér.“ Eysteinn Helgi Laugardags- kvöldið klukkan 9 hefst dansleikur. Fyrir dansinum leikur H.S. sext- ettinn frá Nes- kaupstað. Á sunnudaginn hefst síðan aðal- jamkoman klukk- an tvö. Meðal dag- skrárliða verða: Eysteinn Jónsson og Helgi Bergs alþ.menn flytja ræður. Árni Jóns- ;on óperusöngvari ijsyngur, Ómar Ragnarsson fer með gamanvísur og Ævar Kvaran leikari flytur sjálf valið efni. Síðan verður dansað. írak býst enn um við mæri Kuwait Elísabet Bretadrottning 'hefur nú gefið Sir Anthony Eden, sem var forsætisráðherra Breta 1955—1957, jarls nafn, og getur hann þar meS tekið sæti á þingi á nýjan leik, í lávarðadeildinni. Eden varð veikur og dró sig út úr stjórnmálabarátt- unni í janúar 1956, eftir Súezstyrj- öldina. Síðan hefur hann ritað end- urminningar sínar, sem er umdellt verk. NTB—Kuwáit, 5. júlí. YfirmaSur brezku hersveit- anna í Kuwait, Derik Hors- ford hershöfðingi, sagði í dag, að þær upplýsingar, sem hann hefði fengið, bentu til þess, að liðssafnaður og viðbúnaður íraksmegin landamæranna héldi enn áfram. Samtímis sagði Edward Heath, varautan- ríkisráðherra, í neðri deildinni á Bretaþingi, að hættan á inn- rás íraks í Kuwait væri síður en svo úr sögunni. Liðsflutn- ingum og öðrum viðbúnaði verður að fullu lokið á morg- un, en síðan verður beðið átekta. í eyðimörkinni, þar sem liðið býst nú uoi, geisar sífellt sandfok, og hitinn er ofsalegur. Hefur þetta komið hart niður á mörg- uim brezku hermön-nunum, og hef ur þurft að flytja þá hópum sam an í sjúkrahús, en aðstaðan til Serkir feildir óeiroum í NTB—Algeirsborg, 5. júlí. kunni að verða skipt milli manna af frakknesku og múhammeðsku ætterni, og hins vegar franskra öryggis- sveita, sem voru við öllu búnar. Allt að hundraði manna týndi í dag lífinu í Alsír, en þar kom til alvarlegra átaka á nokkrum stöðum, þar sem skipzt var á skotum og kom til harðra bardaga milli serk- nesks hópgöngufólks, er mót- mælti því, er de Gaulle forseti hefur gefið í skyn, að Alsír Opinber talsmaður frönsku stjórn arinnar, Coup de Frejac að nafní, sagði í kvöld, að tala látinna væri' að líkindum hærri en 75. Lausa- frettir herma, að tala særðra só á fiórða hundrað. Sá blut) Alsírbúa, seni er Mú- hanimeðstrúar, hlýðnaðist nær allur skipun uppreisnarstjórnar- innar um að hefja sólarhrings verkfall og fara í hópgöngur til þess að mótmæla fyrirætlunum Frakka uin að skipta landinu. Frönsku öryggissveitirnar hófu skothríð á hinn mótmælandi múg í mörgum borgum, en æstir og (Framhald á 2. siðu). þess er annars góð, því að í Kú- wait er mikill fjöldi sjúkrahúsa, er f-urstinn hefur látið byggja fyr ir olíugróða sinn. Heath aðstoðar utanríkisráðherra sagði í dag í neðri deild Lundúnaþings, að það væri til athugunar hjá Sameinuðu þjóðunuim, hvort senda skyldi her lið á vegum þeirra til Kúwait, og hefði brezka stjórnin í sjálfu sér ekkert á móti því, að hennar her- ir væru leystir þannig af hólmi. Þetta var svar ráðherrans við fyr- irspura Dennis Healy, talsmanni Verkama-nnaflokksins í utanríkis- mál-u-m. RæSir við Saud Hassouna, framkv.stjóri Araba- banda-lagsins fór í dag til Saudi- Arabíu eftir viðræður sínar við furstann í Kúwait. Hann ætlar að ræða við Saud konung, sem sagður er hafa mælzt til þess við Kassem forsætisráðherra í frak, að hann. kæmi til fundar við sig við landamæri ríkjanna. — Birgða skip eru nú á leið ti.I herja Breta í Kúwait frá Möltu, og hefur stjóni Arabasamvel-disins tilkynnt, að för þeirra um skurðinn skyldi flýtt eftir megni. 16000 tunnur í salt á Ólafsfirði Ólafsfirði í gærkveldi: Hér er allt á kafi í síld. í dag hafa verið lagðar á land 4700 tunn ur til söltunar. Þessir bátar komu inn: Viðir II með 1500 tunnur, en þar af fóru 600 í salt, Guðbjörg með 1000 tunnur, Sigurður Bjarna son með 700 tunnur, Björg, Eski- firði, með 900 tunnur, og nú er verið að landa úr tveimur skipum, Hólmanesi^ með 1000 tunnur og Stíganda ÓS með 500 tunnur. Þeg ar þetta allt hefur verið saltað, er samtals búið að salta hór á öll- um plönunum á Ólafsfirði tæpar 16000 tunnur. — B.St.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.