Tíminn - 02.08.1961, Side 7

Tíminn - 02.08.1961, Side 7
^ÍMINN, miðvikudaginn 2. ágúst 1961. 7 Ólafsfirði, 31. júlí. — S. I. laugardag var vígt nýtt og mjög glæsilegt félagsheimili hér í Ólafsf jarðarkaupstað og um leið tekið í notkun til al- mennra félagsnota og sam- komuhalds. Hlaut heimilið nafnið Tjarnarborg. Félagsheimilig stendur við affal- götu kaupstaSarins. Grunnflötur hússins1 er 506 fermetrar, en alls er það 3800 rúmmetrar að stærð. Aðalsalur þess er 136 fermetrar og komast þar um 230 manns í sæti. Á svölum eru sæti fyrir 96, og í veitingasal til hli.ðar við aðal samkomusal. eru borð og sæti. fyrir 100 manns. Lei'ksvið er 70 fermetrar að stæsð, búið fullkomnum leikút- búnaði. Auk þess er í húsinu 56 fermetra fundarsalur og þrjú her bergi til nefndar- og stjórnar- starfa fyrir félög bæjarins. Þá er | gott eldhús, búningsherbergi, rúm góður forsalur, fatageymsla, snyrti herbergi, skrifstofa húsvarðár, leiktjaldageymsla, klefi fyrir kvik myndasýningarvélar. | Húsið er allt hið vandaðasta.; Það er nú fullgert, nema kvik- myndasýningarvélar, sem keyptar eru frá Þýzkalandi, eru ekki komn ar, en eru væntanlegar í haust. Stólar á svalir eru heldur ekki komnir, en þeirra er von á næst- unni. Teikningu að húsinu gerði Hall- dór Halldórsson, arkitekt í Reykja vík ,en innanhússteikningu Sig- valdi Thordarson, arkitekt. Bygg- ingameis.tarar voru bræðurnir Gísli og Gunnlaugur Magnússyn- ir, Ólafsfirði. Yfirsmi.ður innan húss var Þórður Friðbjarnarson, Akureyri. Magnús Stefánsson, raf virkjameistari annaðist allar raf- lagnir. Sigmundur Jónsson málara meistari annaðist utanhússmáln- ingu, en Hannes og Kristján Vi.g- fússynir, Litla-Árskógi málningu inni^Tónjas' Björnsson á Akureyri sá utn miðstöðVarlögn. Nýja blikk smiðjan í Reykjavík setti upp loft ræstingarkerfi. Eigendur félagsheimilisins eru Ólafsfjarðarbær og tíu félög í bæn um. Ákvörðun um byggingu húss- ins var tekin 25. júlí 1955 eða fyrir rétturn sex árum. Núverandi stjórn félagsheimilis ins skipa: Ásgrímur Hartmannsson bæjarstjóri, formaður; Björn Stef ánsson, skólastjóri, gjaldkeri og með þeim í framkvæmdaráði er Jón Ásgeirsson. Auk þeirra í stjórninni eru Gísli Magnússon, Jónmundur Stefánsson, Jakob Ágústsson og Ármann Þórðarson. Vegleg vígsluhátíð Vígsluhátíðin hófst kl. 3 á laug ardaginn. Var til hennar boðið öll um fullorðnum Ólafsfirðingum og einnig brottfluttum Ólafsfirðing- urn. Um 500 manns sátu hófið. Veitingar önnuðust Slysavarna- Sér inn aðalsalinn 09 í veitingasalinn til hliðar. Séra Kristján Dúason flytur vígsluræðuna. deild kvenna í Ólafsfirði, Kven- félagið Æskan og Verkakvennafé- lagið Sigurvon, undir ítjórn fram kvæmdastjóra hússins, Jakobs Ágústssonar. Björn Stefánsson .skólastjóri setti samkomuna með ávarpi, en síðan flutti séra Kristján Dúason vígsluræðu. Gísli Magnússon lýsti húsinu, en Ásgrímur Hartman.is- son bæjarstjóri, rakti byggingar- sögu þess frá upphafi. Margir aðr ir tóku til máls ,og tilkynnt var um ýmsar góðar gjafir og höfð- ingjegar til félagsheimilisins. Erlingur Vigfússon söng ein- söng við undirleik Ragnars Björns sonar og Kristinn Þorsteinsson, Akureyri, stjórnaði almennum söng undir borðum. Um kvöldið var dans stiginn af miklu fjöri og lék hljómsveitin Gaukar fyrir dansinum. Á sunnudaginn var börnum bæj ins boðið til skemmtunar í fé- ’ < 'Ts.heimi.linu og var ýmislegt til skemmtunar og veitingar góðar. (Framhald a 13 síðu) A víðavangi Trú Moskvukomma og íhalds Merkileg deila er upp risin milli auðstéttaríhaldsins og Moskvukommúnista liér í bæ, og eru orðaskipti frá heimsókn Ga- garíns tilefnið. Gagarín upplýsti sem sé aðspurður, að hann hefði ekki beðið til guðs, áður en hann fór út í geiminn. Um þetta ritar Reykjavíkurbréfsráðherrann meg inhluta spjalls síns s.I. sunnudag í Mogga ag mælir þungum orð- um um guðleysi Moskvukomma, svo sem verðugt er. í gær svara Moskvuuienn fyrir sig í Þjóðviljanum, og er Kristur látinn dæma þar hvern og einn í auðvaldsíhaldinu með orðum úr fjallræðunni eða dæmisögum. Þessi trúmáladeila er ekki sér- lega uppbyggileg fyrir þá, sem telja, að einstaklingsfrelsið í trú- málum eigi að vera mikið og vilja Iítt áfellast trúarskoðanir annarra, þótt þeir játi krisna trú sjálfir af einlægni. Af þessari deilu virðist þó mega ráða örugglega, að Moskvumenn séu mun heittrúaðri en ráðlierr- ann og Mbl.-ritstjórarnir, og mættu þeir taka Moskvumenn sér til fyrirmyndar í þessu frem- ur en ýmsu öðru, og mundu þeír þá verða kristilegri í öllu athæfi, ef þeir tryðu eins heitt á guð og kommúnistar á Moskvuguði sína. Vildu kaupbindingu Bencdikt Gröndal flytur merki legan pistil í helgarspjalli sínu í Alþýðublaðinu s.l. sunnudag. Seg ir hann, að eina leiðin til þess að hindra sókn launastéttanna til að bæta sér kjaraskerðinguna með kauphækkun, fyrst stjórnin neit- aði annarri leið, hefði verið „ein- Iivers konar kaupbinding“. Og svo heidur Benedikt áfram: „Þessi leið var rædd í stjórn- arherbúðunum um síðustu ára- mót. Voru sumir þeirrar skoð- unar, að ríkisstjórnin ætti að lög festa einhverjar kjarabætur fyrst fyrir verkamenn og aðrar lægst Iaunuðu stéttirnar, en binda síð- an allt kaupið um ákveðið tíma- bil. Töldu þeir, sem aðhylltust þessa skoðun, að reynslan sýndi, , hvernig stjórnarandstaðan hcfði hvað eftir annað eyðilagt með verkföllum tilraunir til lausnar á efnahagsmálunum, og væri sama hvaða flokkar ættu hlut að máli.— Þess vegna væri ekki um annað að velja en áframhaldandi verðbólgu eða einhvers konar bindingu. Aðrir voru á móti kaupbi.nd- ingu, og héldu fram hinum klassísku röksemdum, að ríkið tæki þá af verkalýðsfélögum og atvinnurckendum réttinn til að semja um kaup og kjör. Sumir óttuðust enn fremur, að komm- únistar mundu reyna að brjóta slíka bindingu niður með skæru- hernaði, og kynni að takast það, eins og 1942. Virðist reynslan frá því ári vera mönnum fersk í minni. Niður-',taðan varð sú að ríki.s- stjórnin lét tækifærið fara fram hjá, og kaupgjald var ekki bundið um áramótin. Við það missti hún raunar meira, þvi hún fékk ekki tilefni til að hafa neiai úrslitaafskipti af þessum málum, fyrr en verkföll voru hafin. Þá kom aftur til tals kaup bindingarleiðin, hvort rétt væri að lögbinda miðlunartillögu sátta semjara. Svigrúm til þess reyn-l ist örstutt, áður en samvinnuf. lögin sömdu, og fór það tæk færi einnig ónotað. Þannig atvikaðist. að stjórnin gerði ekki þær róttæku ráðstaf anir, sem einar hefðn dugað tí' að fyrirbyggja þá kollsteypu. sem efnahagslífið nú hlýtur ao (Frambala a 13 siðuj.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.