Tíminn - 20.08.1961, Page 16
18«. blaff.
Sunnudaginn 20. ágúst 1961.
GLÆSIL
Nýlega er haíin sala á mi<$um í happdrætti Framsóknarflokksins 1961. —
Eru vinningar 10 talsins og sama lága vertSitS á miSunum og fyrr. Kostar
«
mi'Óinn aSeins 25 krónur. Dregib verÓur þrisvar sinnum, og gilda sömu
miÖarnir í öll skiptin. SíÖast verÖur dregiÖ um íbúÖina, á Þorláksmessu-
kvöld. — Skrifstofa happdrættisins er í Framsóknarhúsinu, Fríkirkjuv. 7.
APPDRÆTTI
Palma, höfuSborgin á Mallorca. Hér eru glæsilegar breiðgötur og pálmalundir, en
einnig þröngar götur með litriku og fjörmiklu þjóðlífi Suðurlanda. Hér er heillandi
náttúrufegurð og heilnæmt loftslag. Einn af vinningunum í happdrætti Framsóknar-
flokksins er ferð til Mallorca og vikudvöl í þessari borg.
Hið árlega hjappdrætti Fram-
sóknarflokksins hefur fyrir
stuttu hafið göngu sína. Hafa
miðar verið sendir til umboðs-
manna í kaupstöðum og hreppum
um allt land og er sala þeirra
þegar í fullum gangi. f Reykja-
vík er skrifstofa happdrættisins
í Framsóknarhúsinu á annarri
hæð, og er sími hennar 12942.
Vinningar í happdrætinu eru
10 talsins og hefur mjög verið
vandað til þeirra. Er aðalvinn-
ingurinn þriggja herbergja íbúð,
fokheld að Savamýri 41, Reykja-
vík. Er hér urn að ræða íbúð í
þriggja hæða hornhúsi með rúm-
góðri lóð. Er húsið í byggingu
núna og verður fokhelt í haust
eða snemma í vetur. Rétt er að
geta þess, að Savamýri er í
hverfi, sem nú er að rísa af
grunni á svæðinu milli Suður-
landsbrautar og Miklubrautar,
vestan Háaleitisbrautar.
Þá eru meðal vinninga þrjár
utanlandsferðir. Ferð með skipi
til Miðjarðarhafs og. Svartahafs
Er þá farið um Gíbraltarsund og
Bosporus og komið til Rússlands
Tekur þessi ferð, sem er fyrir
tvo, um 30 daga.
Þá er páskaferð tii Mallorca,
ásamt vikudvöl og stuttum
skemmtiferðum um eyjuna. —
Flogið verður báðar leiðir með
íslenzkri flugvél, ásamt íslenzk-
um fararstjóra í hópferð, sem
ferðaskrifstofan SUNNA sér um.
— Mallorca er stór og fjölbyggð
eyja í Miðjarðarhafi vtð austur
strönd Spánar. Er hún einn eftir
sóttasti ferðamannastaður jarðar-
innar sökum náttúrufegurðar og
góðrar veðráttu. — Þessi vinn-
ingur gildir fyrir tvo eins og öll
ferðálögin.
Glæsilegasta utanlandsferðin
er svo 16 daga orlofsferð fyrir
t.vo til Madeira, Kanaríeyja og
meginlands Afríku. Væntanlega
verður íslenzkur fararstjóri Mun
fcrðaskrifstofan SUNNA sjá um
þetta ferðalag. Verður flogig t.il
London og stoppað þar í einn
dag. Þaðan verður svo farið með
stóru skemmtiferðaskipi suður á
bóginn og tekur það ferðalag 12
daga. Stoppað verður 1 dag í
Sú nýbreytni hefur verið tek-
in upp núna að draga þrisvar.
Vinningar þriggja her-
bergja íbúð og ferða-
lög utan lands og innan
1. Þriggja herbergja fokheld íbúð að
Safamýri 41, Rvík........... kr. 140.000,00
2. Mánaðarferð með skipi um Mið-
jarðarhaf til Rússlands ..... — 10.000,00
3. Flugfar fram og til baka, Reyk' "<
Akureyri ..................... — 1.638,00
4. Flugfar fram og til baka, Reykja-
vík—Vestmannaeyjar ........... — 828,00
5. Páskaferð til Mallorca ásamt
vikudvöl ......................
6. Hringferð með M.s. Esju um-
hverfis landið ...................
7. Flugfar fram og til baka, Reykja-
vík—ísafjörður ...................
London í bakaleið og síðan flog 8.
ið heim.
Allar þessar utanferðir geta 9.
verið jafnskemmtilegar unga sem gamla. fyrir
Dregið verður þrisvar. 10.
og Kanaríeyja
Flugfar fram og til baka Reykja-
vík—Egilsstaðir .................
— 24.000,00
— 3.822,00
— 1.638,00
— 32.000,00
— 2.322,00
— 5.000,00
Öll ferðalögin gilda fyrir tvo.
Fljótandi hótel. Arkadia er eitt hinna mörgu skemmtiferðaskipa, sem sigla um heims
höfin. Það er 20 þúsund lestir og rúmar um 1400 farþega. Um borð eru öll hugsanleg
þægindi. Þar eru leikvellir, sundlaugar, kvikmyndahús, danssalir o. s. frv. Einn
vinningurinn í happdrætti Framsóknarflokksins er 12 daga sigiing með slíku skipi
frá London og suður til Kanaríeyja og Vestur-Afríku.
Ekki þarf þó að endurnýja mið-
ana og gildir.sami miðinn í öll
skiptin. Fræðilega er því sá
möguleiki fyrir hendi, að þrír
vinningar komi á sama miðann.
Fyrst verður dregið 23 sept.
n.k. nr. 8, 9 og 10. Hinn 3.
nóvember verður svo dergið um
5, 6 og 7.
Um fyrstu fjóra vinningana,
verður svo dregið á Þorláks-
messu hinn 23. desember n.k. —
Reynt hefur verið að stilla verðt
miðanna í hóf, svo að sem flest-
ír geti eignast þá. Kostar hver
miði aðeins 25 krónur. Ekki þarf
ag draga í efa, að marga mun
fýsa að eignast miða í þessu
happdrætti. I Reykjavík er hægt
að snúa sér til skrifstofunnar
í Framsóknarhúsinu og umboðs
menn út um land munu bráðlega
verða auglýstir hér í blaðinu. —
Sími happdrætisins er 12942.
GLÆSILEGT HAPPDRÆTTI